Tíminn - 06.09.1989, Page 6

Tíminn - 06.09.1989, Page 6
Miðvikudagur 6. september 1989 6 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarf lokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aðstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: ■ Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Fæðuöflun Umræður um landbúnaðarmál eru í eðli sínu umræður um frumþarfir mannkynsins, sjálfa fæðu- öflunina, sem manninum er nauðsynleg til þess að halda lífi. En það er ein af þverstæðum nútíma- þjóðfélags að umræður um landbúnað snúast minnst um þetta frumgildi hans, heldur þann fjárhagsvanda sem landbúnaðarframleiðslan sýnist valda í efnahags- kerfi iðnaðar og viðskipta. Það jaðrar við að frumframleiðslu matvæla, sjálfri fæðuöfluninni, sé ofaukið í háþróuðum iðnaðarsam- félögum, þótt augljóst megi vera að fólkið, sem þau byggir, þarf ekki síður á mat að halda en aðrar lifandi verur. Mörgum verður því á að spyrja, hvort það efnahagskerfi sem ekki rúmar matvælaframleiðslu innan marka sinna nema með tómum harmkvælum og afgæðingi sé fært um að standast sjálft sig. Þótt varla sé í það leggjandi að hugsa svo neikvæða hugsun um auðvaldssamfélagið til enda, þá fjölgar þeim mönnum í vestrænum iðnaðarþjóðfélögum sem bera kvíðboga fyrir þróun matvælaframleiðslunnar í náinni framtíð. Kvíði þeirra byggist á því að mannkynið kunni í athafnasemi sinni og fyrirhyggju- leysi um hvað náttúran þolir að spilla svo gróðri og öðru lífríki að mannkynið geti ekki brauðfætt sig. Ekki fer hjá því að almenningi í velsældarlöndum þyki svona tal þverstæðukennt því að daglega hafa menn annað fyrir augunum en matvælaskort, auk þess sem efnahagslegar umræður fjalla fremur um offramleiðslu matvæla í umhverfi þeirra og leiðir til þess að komast út úr slíkum vanda en að hvetja til framleiðsluaukningar. En „spámenn kvíðans“ um framtíðarhorfur í matvælaframleiðslu heimsins eru ekki beinlínis að fjalla um tímabundinn aðlögunarvanda í landbúnaði iðnríkjanna. Flestir þeirra munu nægilega raunsæir til þess að viðurkenna að landbúnaður í markaðs- þjóðfélagi verður að laga sig að markaðsaðstæðum eins og kostur er. Kvíðinn um framtíðarhorfur í matvælaframleiðslu á sér rætur í tillitsleysi fjárgróðaaflanna, sem skeyta engu um náttúruauðlindirnar, hvort þær endast eða ekki, og fáfræði ráðandi manna sem gerir gróðaöflun- um kleift að gjörnýta svo lífríki jarðarinnar í sína þágu, að jörðin getur ekki haldið mannkyninu við, ef þannig verður haldið áfram endalaust. Petta þýðir einfaldlega að hið kraftmikla auðvaldsskipulag og peningahyggjan eiga sér takmörk sem þau verða að taka tillit til. Áhrifaöflin í iðnaðar- og viðskiptasamfélögunum þurfa í rauninni að breyta grundvallarhugsun sinni um sitt eigið þjóðfélag og efnahagskerfi. M.a. er þeim nauðsynlegt að breyta almennum viðhorfum sínum til landbúnaðar, sem oftar en ekki byggjast á mjög einhæfu mati og beinum fordómum á stöðu og þjóðfélagsástandi þeirrar atvinnugreinar. Efnahags- kerfi sem amast leynt og ljóst við matvælaframleiðslu hlýtur að bera dauðann í sér, ef það verður allsráðandi um heim allan. Þegar öllu er á botninn hvolft er fæðuöflun grundvallaratvinnuvegur hvers þjóðfélags og mannkynsins í heild. Illllllllllllllllllll GARRI '!Á „Stefnuskrá“ Ekki cr um annað meira rætt þessi dægrin en aðild Borgara- flokks að ríkisstjórninni og hefur sú umræða snúist upp í mikið fjaörafok vegna stefnu eða stefnu- lcysis þessa flokks, sem eins og kunnugt er hefur siglt gegnum marga stórsjói á skömmum ferli. Flokkurinn var myndaður á mjög stuttum tíma, og sú stefnuskrá sem nú er mest um deilt var harla hraðsoöin og kannske fyrst og fremst nokkurs konar „Potemkin- tjöld“, ætluö til þess að þoka aðeins úr sviðsljósinu þeirri stað- reynd að flokksstofnunin kom ein- göngu til vegna gremju margra í Sjálfstæðisflokki með það er Al- bert Guðmundssyni var gert að víkja úr ríkisstjórn Þorsteins Páls- sonar. Þessi gremja reyndist hafa skotið rótum nógu víða til þess að flokkurinn varð hinn óumdeildi sigurvegari næstu kosninga. Kom enda á daginn að sjónarmið og viðhorf þess hóps er tók sæti á Alþingi í nafni hans voru alls ekki steypt í sama mótið. Var slíks ef til vill ekki að vænta, þar sem menn höfðu fylkt sér um ekki umfangs- meira málefni en persónu Alberts - með fullri virðingu fyrir sendi- herranum að öðru leyti! Þannig hefur flokkurinn oft reynst skiptur í afstöðu til núverandi ríkisstjórnar og hefur komiö henni til stuðnings í veigamiklum málum. Má vel deila um það hvort þyngra eigi að vega á metunum persónuleg af- staða (tekin af bestu vitund, hljót- um vér að ætla) hvers þingmanns fyrir sig til einstakra mála eða stefnuskrá sú, sem drifin var saman af skyndingu á sínum tíma. í Ijósi þessa þarf ekki að vera um að ræða þá breytingu frá fyrra ástandi og margir vilja láta, taki einstaklingar úr hinum upphaflcga Borgara- flokki sæti í stjórn. Þessi fyrirætlun, sem eins og ekki hefur farið fram hjá neinum, hefur verið lengi í deiglunni, verð- ur sjálfstæðismönnum tilefni mik- illa gífuryrða þessa dagana. Mikið er gert úr dvínandi vinsældum ríkisstjórnarinnar samkvæmt skoð- anakönnunum, þótt þeir sem mest gera úr þessum tölum ættu að vita hve tímabundnar slíkar lægðir eða uppsveiflur eru. Þingmenn Kvennalista, sem taka undir með sjálfstæðismönnum og ganga svo langt að ræða um „skrumskælingu á lýöræöinu“, ættu ckki síst að hafa reynslu af slíku. Hið mikla fylgi sem kannanir sýndu flokkinn njóta fyrir nokkru rcynist ekki vera nándar nærri fyrir hendi nú. Má vafalaust kenna það því að flokkur þeirra hefur kinokað sér við að taka á nokkrum vanda og forðast raunverulega ábyrgð, sem núverandi stjórnvöld eru ásökuð fyrir að hliðra sér ekki hjá að axla. Rikisstjórnin fæst við mörg og brýn vandamál um þessar mundir, sem valda því að flest er meir aðkallandi en að gengið sé frá hálfloknum verkum og kannske efnt til kosninga, eins og Sjálf- stæðismenn helst vilja. Virðast þeir telja sig um þessar mundir eygja langþráðan meirihluta flokksins á þingi sem þá hefur dreymt um í áratugi. Sem betur fer eru þó litlar horfur á að þær vonir mundu verða að raunveruleika, því enn mundi sannast að er á hólininn kæmi kærði meirihluti kjósenda sig ekki um flokkseinræði og óhefta frjáls- hyggjustefnu, sem menn svo eftir- minnilega hafa fengið smjörþeflnn af. Þorsteinn Pálsson, sem nú gerir mest úr óvinsældum stjórnar þeirr- ar sem nú situr, reyndist fær um að skera fylgi flokks síns niður við trog á mettíma, eins og öllum er eftirminnilegt. Hætt er við að Sjálf- stæðisflokkurinn, hvort sem væri með aðstoð Þorsteins eða án, mundi og fyrr en varði vera búinn að tapa þeim Ijóma í skoðana- könnunum (sem nú fær liðsmönn- um hans glýju í augu) kæmist hann að stjórnveli með þau úrræði sem honum eru tömust og menn mættu vel muna, hugsi þeir sig um. Að þessum vangaveltum sleppt- um vekja athygli hugmyndir um nýtt umhverfismálaráðuneyti, en þessi málaflokkur er orðinn það mikilvægur í þjóðfélagi samtímans að full ástæða er til að honum sé ætluð sérstök stjórnardeild. Þessi mál eru ekki síður brýn hér á landi en annars staðar í Ijósi þeirrar ábyrðar sem við hljótum að teljast bera vegna stöðu okkar í norður- höfum. Þannig er sennilegt að stofnun slíks ráöuncytis verði á engan hátt neitt stundarfyrirbæri, en verði að finna í stjórnkerfinu framvegis. Garri lllllllllllllllllllll VÍTT OG BREITT llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll HVERT STEFNIR? Samkvæmt framreikningum Byggðastofnunar mun íbúum utan höfuðborgarsvæðisins fækka veru- lega næstu áratugina en þéttbýlis- búum fjölga að sama skapi. Sem sagt, þróun síðustu ára mun halda áfram að öllu óbreyttu. Margir ala nú ugg í brjósti vegna hrikalegra gjaldþrota burðarása at- vinnulífs í útgerðarplássum víða um landið. Hrakspár eru uppi um að hrun blasi við á enn fleiri stöðum og að fiskvinnslu- og út- gerðarfyrirtæki hætti starfsemi og kvóti færist milli byggðarlaga í æ ríkari mæli. Einföldum skýringum á ástand- inu er hampað og eru t.d. Vestfirð- ingar ekki í neinum vafa um að fiskveiðikvótinn sé að leggja alla byggð vestur þar í auðn. Einu gildir þótt kvótaeigendurnir, sem sjálfir búa í verstöðvunum. láti skip sín landa víðs fjarri heim- ahöfnum, oftast í útlöndum. Það er kvótinn sem veldur atvinnuleys- inu segja Vestfirðingar, eða öllu heldur talsmenn þeirra. DV heldur líka uppi sínum skýringum á ástandinu, ekki aðeins á Vestfjörðum, heldur víðast hvar um landið. Fyrirgreiðsla og ódýrt fjármagn til handa framleiðendum og fyrirtækjum á larrdsbyggðinni er að setja allt á hausinn og er farið að valda stórfelldu atvinnuleysi. Fjármagnskostnaður og afætu- liðið í Reykjavík sjúga allan merg úr landsbyggðinni, sogar til sín fjármagnið og lokkar og laðar unglinga og kvenfólk suður og aðrar byggðir tæmast, segja enn aðrir og eru ekkert hissa á að allt sé að fara fjandans til, eða til Reykjavíkursvæðisins, sem í sumra augum er nokkurn veginn eitt og hið sama. Gloruleysi Hvað sem öllum útskýringum og svartagallsrausi líður, er það stað- reynd að víða hallar undan fæti í byggðamálum og atvinnuþróun sýnist vera að fara á allt annan veg en til var stofnað með stórfelldum skipakaupum og stórhuga fram- kvæmdum við uppbyggingu at- vinnulífs, sem í mörgum tilfellum reynist svo eins og myllusteinn um háls byggðarlaganna. Þess ber einnig að gæta að fjár- hagserfiðleikar og gjaldþrot hrjá einnig atvinnufyrirtæki á höfuð- borgarsvæðinu og þar er ekki allt sem sýnist, þótt athyglin beinist nær óskipt að þeim stöðum sem eru að missa öflugustu fyrirtækin út í greiðsluþrot og aðra óáran hverju sinni. Flest sjávarpláss byggja að veru- legu leyti á einu eða tveimur stór- um fyrirtækjum, sem halda uppi atvinnu og þar með mannlífi öllu. Þegar svo þessi fyrirtæki sigla í strand verður fátt til bjargar og atvinnuleysi og bölsýni grípur um sig og orðhákar fara að leita að sökudólgum og finnur hver blóra- böggul eftir sínu geðslagi. Stjórnvöld eru krafin um ráð- stafanir til útbóta sem einatt eru á sömu lund, að vísa til sjóða sem leysa vanda, það er að segja þegar eitthvað er í þeim, eða afleggja kvóta og bæta þjónustu og íþrótta- aðstöðu og samgöngur eða eitt- hvað í þeim dúr, sem eyðir vanda- málum líðandi stundar. Þótt bændum fækki ár frá ári er enn talað um að þeir séu svo sem helmingi of margir miðað við fram- leiðslugetu, enda þrengir búvöru- kvótinn verulega að þeim sem enn búa. Á sama hátt þrengir fiskveiði- kvótinn víða að útgerð og sala á óunnum fiski í stórum stíl til út- landa veldur óhjákvæmilega at- vinnuleysi á útgerðarstöðum, þar sem togarar og bátar eru of margir miðað við leyfilegan aflahlut. Reynt er að sporna við sífelldum skipakaupum stækkunar fiski- skipaflotans, en allt kemur fyrir ekki. Flotinn stækkar og stækkar og verður dýrari og dýrari í rekstri og verður ekki haldið úti nema með því að selja aflann óunninn í erlendum höfnum. Það á ekki að þurfa að koma neinuni á óvart að fiskvinnslan í landi missir spón úr aski sínum og fyrirtækin standa hvorki undir fjár- magnskostnaði né vinnulaunum. Þeir vísu menn sem hafa hönd í bagga með mótun byggðastefnu og mannlífs í einstökum byggðalögum ættu að fara að líta á hvaða stærð- arhlutföll eru æskileg á milli íbúa- fjölda og fyrirtækja. Líka væri hugsanlegt að leggja einhverjar kvaðir á kvótaeigendur, sem eiga fiskinn í sjónum. Ef viðhalda á byggð um allt land verður það ekki gert með svartag- allsrausi og billegum fréttaskýring- um um ástandið, heidur með vit- rænum aðgerðum, sem láta stund- arhag lönd og leið en byggja upp lífsgæði til framtíðar. Og lífsgæði eru ekki endilega pengingaaustur og glórulausar framkvæmdir. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.