Tíminn - 06.09.1989, Side 7
Miðvikudagur 6. september 1989
Tíminn 7
Barátta eiturlyfjabarónanna og yfirvalda i Kolumbiu fer fram á mörgum vígstöðvum. M.a. ásælist einn eiturlyfjabarónanna, „Mexíkaninn", stærstu smaragðanámur landsins ofi
svifst einskis til að komast yfir þær. En þar eru margir að leita eðalsteina, ungir sem gamlir. Victor Carranza er nú helsti þrándur í götu „Mexíkanans“ í baráttunni um smaragðanámurnar,
en sjalfur komst hann yfir auðæfi sín með vafasömum hætti. (Innfellda myndin)
Blásið í herlúðra í eitur-
lyfjastríðinu í Kólumbíu
Til tíðinda hefur dregið í baráttunni gegn hinum
svokölluðu eiturlyfjabarónum í Kólumbíu. Yfírvöld létu til
skarar skríða gegn þeim eftir að þeir höfðu banað vinsælum
stjórnmálamanni, Galan, sem hugðist bjóða sig fram til
forseta í komandi kosningum, og virtist þá mælirinn fullur
þó að ekki sé hægt að segja að eiturlyfjakóngarnir hafí látið
lítið fara fyrir sér fram að því. 1 kjölfarið voru a.m.k.
14,000 handbendi þeirra handtekin og mikið af eigum
þeirra gert upptækt. Flestir sluppu þó höfuðpaurarnir
undan í þetta sinn en einn háttsettur maður í þeirra röðum,
sem eftirlýstur er í Bandaríkjunum náðist og gera Ameríku-
menn sér vonir um að hann verði framseldur til Bandaríkj-
anna. Eftir þessa miklu herför stjórnvalda var ekki að
sökum að spyrja, eiturlyfjahringarnir í Medellín sögðu
yfírvöldum í Kólumbíu stríð á hendur.
Örlög andstæðings
eiturlyfjabaróns
andi á miskunn, detta úr nokkurra
feta hæð framan við ráðhús bæjar-
Pedro Yaya var virtur maður í
litla sveitahéraðinu Pacho, mitt á
smaragðanámusvæðinu norðvestur
af Bógóta, höfuðborg Kólumbíu.
Hann var maður ákveðinna grund-
vallarsjónarmiða og hafði verið
óragur við að mæla gegn auknum
áhrifum fíknilyfjabaróna á svæð-
inu. Kjarkur hans kostaði hann
lífið.
Snemma í júlí hvarf Yaya - þar
til lítil flugvél flaug yfir námurnar
í grennd við Pacho 15. júlí og niður
úr henni hékk poki. í pokanum var
horfni maðurinn. Þegar flugvélin
var komin yfir bæinn, lét hún
pokann, með Yaya innbyrðis hróp-
Sömu nótt smöluðu vopnaðar
dauðasveitir saman sjö fjölskyld-
um í grenndinni, drápu 6 menn og
vörpuðu líkum þeirra á brún smar-
agðanámunnar. Skilaboðin til
fólksins á svæðinu voru skýr: sér-
hver tilraun til að berjast gegn
eiturlyfjabarónunum yrði launuð
með dauða.
Miskunnarlaust stríð
um smaragðanámur
Það er Gonzalo Rodriguez
Gacha, þekktur sem „Mexíkan-
inn“, einn af voldugustu kókaín-
barónum Kólumbíu, sem heyr
þessa ruddalegu baráttu um yfirráð
yfir smaragðanámum Kólumbíu.
Gacha, sem hefur orðið svo
vellauðugur af eiturlyfjabraski að
hann hefur komist á forsíðu For-
tune-tímaritsins, hefur þegar náð
yfirráðum yfir stórum landsvæðum
umhverfis eiturlyfjaborgina Me-
dellín, þar sem hann á nokkur
fótboltalið, kappreiðahesta og rek-
ur voldugan einkaher leigumorð-
ingja.
En hann hefur alltaf haft löngun
til pólitískra afskipta og lætur sig
dreyma um að skipta úr kókaín-
braskinu í aðrar ábatasamar fjár-
festingar.
Breskir málaliðar
þjálfa dauðasveitir
Til að tryggja stöðu sína sem
einn af mikilvægustu eiturlyfjabar-
ónum Kólumbíu, réð Gacha í fyrra
hóp breskra málaliða til að þjálfa
dauðasveitir sínar til að ráðast á
vinstrisinnaða hópa sem eru að
ryðja sér til rúms á landsvæðinu
„hans“ og til að vernda kókaín-
vinnslustöðvarnar sem faldar eru í
frumskóginum.
Upp komst um tilvist málalið-
anna fyrr á þessu ári eftir að einn
nýliðanna sem þeir þjálfuðu gaf sig
fram við kólumbísk yfirvöld. Mála-
liðunum stjórnaði maður sem gekk
undir nafninu Peter ofursti, en allir
notuðu þeir eingöngu skírnarnöfn
sín. Breskir stjórnarerindrekar í
Bógóta halda því fram að málalið-
arnir hafi hætt að vinna fyrir Gacha
í nóvember sl.
Dauðasveitirnar sem þeir þjálf-
uðu voru settar á stofn með blessun
aðþrengdra hersveita stjórnvalda,
sem veita dauðasveitunum oft op-
inberan stuðning, m.a. vopn og
njósnaskýrslur um hentug laun-
morðsskotmörk.
Hernaðarlegt mikilvægi
námasvæðisins
Meðfram því að sveitunum óx
fiskur um hrygg og urðu að stórum
vopnuðum herjum, hefur löngun
Gachas eftir völdum líka vaxið.
Hann einbeitti sér að smaragða-
námunum, sem eru feitur biti.
Ekki aðeins eru smaragðar þriðja
dýrmætasta útflutningsvara
landsins, heldur er líka landið
umhverfis námurnar mikilvægt frá
hernaðarlegu sjónarmiði og gæti
reynst skipta sköpum verði reynt
að hrifsa völdin.
Fyrr á þessu ári réðust árásar-
sveitir hans á skemmtibúgarð Gil-
bertos Molina, eins forystumanna
smaragðanámueigenda, þar sem
Molina og 18 vinir hans voru
drepnir. Nú er Gacha að reyna að
afmá Victor Carranza, sem kallað-
ur er „Smaragðakeisarinn“ og er
eigandi hinna stórkostlega auðugu
Muzo náma, eina svæðisins sem
ekki er enn undir yfirráðum Gac-
has á heljarstóru landbelti sem nær
frá Bógóta skáhallt norðvestur yfir
landið.
Þorp eftir þorp hefur gefist upp
fyrir ógnunum og orðið Gacha
undirgefið. „Hver sá sem stendur
gegn honum er þurrkaður út af
kortinu,“ segir Carranza. „Rod-
riguez Gacha vill verða Adolf Hitl-
er Kólumbíu. Fólk veit ekki enn
hvaða dýrategund hann tilheyrir."
Enginn engill heldur
Sjálfur er Carranza enginn sak-
laus skátadrengur. Einu sinni var
hann fátækur gimsteinagrafari,
sem leitaði að eðalsteinum á ár-
botninum ásamt mörgum þúsund-
um annarra. Hann barðist fyrir því
að fá sérleyfi í aðalnámunum í
grimmilegri samkeppni við fleiri
áhugasama á árunum upp úr 1970.
Sú barátta skildi eftir nokkur
hundruð látna. Yfirvöld í Kólum-
bíu segja að þau haldi að hann taki
líka þátt í kókaínviðskiptunum,
a.m.k. fjármálalega, en engar
ákærur hafa verið settar fram.
Hann er þægilegur þrjótur með
yfirvaraskegg. Þegar hann hlær
djúpum hlátri skín í hvítar tenn-
urnar og skammbyssa fylgir honum
alla tíð í rassvasanum.
Hann segir Gacha vilja komast
yfir námurnar til að fullgera „sjálf-
stætt lýðveldi" sitt og til að hafa tök
á að stjórna eðalsteinaviðskiptun-
um til að þvo milljónir dollara til
að koma þeim í umferð og gera
þannig auðæfi sín lögleg.