Tíminn - 06.09.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 6. september 1989
FRÉTTAYFIRLIT
OslÓ: Belgískur flugvirki tók
belgíska F-16 orrustuþoku
traustataki og brá sér á loft. Illu
heilli kunni maöurinn ekki til
verka við stjórn fiugvéla og
fórst vélin um 60 km. norður af
Þrándheimi. Lét hinn fífldjarfi
flugmaður þar líf sitt og munaði
minnstu ao frekara manntjón
yrði er kviknaði í bóndabæ,
rétt hjá slysstað.
London: Seðlabankar vest-
an hafs og austan gripu inní á
gjaldeyrismörkuðum í gær, er
genai banaríska dalsins þótti
tekið að risa óhóflega. Hafði
hann þá hækkað á einni nóttu
um 0.02 DM og 1.05 yen.
Vaxandi trausti á bandarískum
efnahag er kennt urh hina
snöggu hækkun. Stjórnum
helstu iðnríkja er lítt um slíka
virðisaukningu gefið þar sem
verð á ýmsum framleiðsluvör-
um er bundið dalnum og er því
hækkun hans verðbólguhvetj-
andi.
Róm: Enn er hið svonefnda
„Tórínó-líkklæði" á dagskrá.
Há-vísindalegar rannsóknir
voru búnar að leiða í Ijós að
95% öruggt væri að klæðið
væri frá tímabilinu 1260-1390.
Nú hyggst hátt í 300 manna
hópur vísindamanna og sagn-
fræðinga skoða klæðio í nýju
Ijósi og hlýða á sjö „sannanir"
Italans Walters Maggiorani fyr-
ir því að blóði drífin ímynd
skeggjaðs manns hefur mótast
í klæðið. Vatikanið á ekki opin-
berlega hlut að máli, en fylgist
með af áhuga.
Medellin: Stríð „Hinna
framseljanlegu" gegn ríkis-
stjórn Virgilios Barco í Kólumb-
íu heldur áfram. Að kvöldi
mánudags var sprengjum
varpað áð þremur bönkum og
lögreglustöð var eyðilögð. Þrír
vegfarendur særðust. Banda-
ríkjastjórn stendur þétt við bak-
ið á Barco í stríði hans við
„barónana". Bush forseti
hyggst veita Kólumbíustjórn
65 miljóna dala aðstoð og
einnig munu bandarískar her-
sveitir til reiðu, verði þess
óskað. Barco kveðst ekki hafa
neina slíka hjálparbeiðni á
prjónum. *
Nairobi: Á ráðstefnu um
eyðingu ósonlagsins, er haldin
var í Nairobi í Kenya á vegum
S.Þ. nýverið, kom fram, að ein
mesta hættan af eyðingu óson-
hjúpsins væri minnkandi upp-
skera og minnkandi fiskveioi.
Rannsóknir á um 80 plöntuteg-
undum sýndu, að helmingur
þeirra óx mun hægar, eftir því
sem áhrif útfjólublárra geisla
urðu sterkari. Einnig þótti sýnt
fram á, að svif og önnur undir-
staða dýralífs í sjónum, þyldi
geislana mjög illa og því yrði
átubrestur - og þar með minnk-
andi fiskgengd -óhjákvæmileg
afleiðing af eyðingu ósonlags-
ins. Ráðstefnan hvatti iðnríki til
að helminga notkun ósoneyð-
andi efna á næstu 10 árum, en
veita þjóðum þriðja heimsins
lengri umþóttunartíma.
Bruxelles: Belgíska
flugfélagið Sabena neyddist til
að fella niður 11 flug í gær, er
flugliðar, er voru í afkastaverk-
falli, mættu skyndilega tíman-
lega. Félagið, er á í vinnudeil-
um við starfsfólk sitt, var búið
að miða áætlun sína við seink-
anir enk starfsliðið breytti þá
óvænt um baráttuaðferðir og
tók að mæta tímanlega, með
fyrrgreindum afleiöingum.
ÚTLÖND lllllllllllllllllllllllllllinillllllllllllllllll
MITSUBISHI GRLRNT
MITSUBISHI LRNCER
MITSUBISHI CQLT
Japanskar vörur flæða yfir Bandaríkin.
USA og Japan ræða málin:
Japanir tregir til
aðslááhallann
Viðræðuncfnd Japana og Banda-
ríkjamana þingar nú í Tókýó, í því
skyni að finna leiðir til að draga úr
gífurlegum ójöfnuði á viðskiptum
ríkjanna. Bandaríska þingið þrýstir
nú mjög á Buslt lorscta að minnka
viðskiptahallann sem nemur alls um
50 milljörðum bandaríkjadala.
Viöræðurnar í Tókýó cru fram-
hald árangurslausra umleitana
Bandaríkjastjórnar til að fá breytt
japönskum innflutningshöftum og
breyta gengisskráningu. Þeim erætl-
að að standa næstu níu mánuði og
veitir tæpast af þeim fresti. Þrátt
fyrir góðar undirtektir bandarísku
viðræðunefndarinnar við ýmsar til-
lögur Japana, eru þeirhinirþverustu
andspænis sjónarmiðum Sáms
frænda og þverskallast við að gera
nokkrar þær breytingar er fái stofnað
kjörfylgi stjórnarflokkana í hættu, í
kosningum á næsta ári. „Mun frekar
er við Washington að sakast en
Tókýó um hvernig komið er í við-
skiptum landanna," er haft eftir
Sumio Takahara.japönskum ráð-
herra efnahagsáætlanagerðar.
Bandaríska nefndin hefur reynt að
leiða viðræðuaðilum sínum fyrir
sjónir að tillögur Bandaríkjastjórnar
séu einnig japönskum neytendum
fyrir bestu, en áheyrendur þeirra sjá
ekki það Ijósið.
Bresk verkalýðsfélög:
Vilja afnám laga
gegn verkföllum
Pólland:
Ný stjórn í
burðarliðnum
Hinn verðandi forsætisráðherra
Póllands, Tadeusz Mazowiecki, er
nú að leggja síðustu hönd á skipan
ríkisstjórnar sinnar. Stjórnarmynd-
un hans hefur staðið allt frá 19. ágúst
og þykir hafa dregist úr hömlu, enda
ástand óburðugt í landinu, hátt í
200% verðbólga og hið pólska zloty
hefur rýrnað um 23% andspænis
Bandaríkjadalnum þann tíma sem
liðinn er frá því Mazoiecki fékk
umboð sitt.
Heimildir herma að Samstaða
muni hreppa að minnsta kosti sex
ráðuneyti í hinni nýju fjórflokka-
stjórn: Ráðuneyti iðnaðarmála, fjár-
mála, húsnæðismála, menntamála,
vinnumála og nýstofnað ráðuneyti
samgöngumála. Samstaða mun einnig
fá í sinn hlut nokkur valdamikil
forráð er þykja ráðuneytaígildi, þar
á meðal forræði ríkisfjölmiðlanna.
Kommúnistar fá hins vegar ráðu-
neyti varnarmála, innanríkismála og
flutningamála auk þess sem hugsast
getur að ráðuneyti utanríkisverslun-
ar falli þeim í skaut. Stóll utanríkis-
ráðherra, er hart hefur verið tekist á
um undanfarið, fer hins vegar til
oddaaðila. Tveir smáflokkar, Sam-
einaði bændaflokkurinn og Lýð-
ræðisflokkurinn fá einnig ráðuneyti,
sá fyrri fjögur og hinn síðarnefndi
tvö. Kommúnistar eru þó ekki af
baki dottnir og reyna ntikið að fá til
sín fjármálaráðuneytið. Félagi í mið-
nefnd flokksins sagði nýveriðað
flokkurinn gerði kröfu um sex ráðu-
neyti.
Dagblað Samstöðu, Gazeta Wy-
borcza, lýsti í fyrradag óþoiinmæði
með seinagang í stjórnarmyndun og
kvað Mazowiecki þurfa að hafa
hraðann á, ætti að takast að varna
óðaverðbólgu í landinu.
Umsjón:
Jón B.
Guðlaugsson
78 fulltrúar á þingi breska Alþýðu-
sambandsins kröfðust þess einróma
í gær að 9 ára lagabókstafur íhalds-
stjórnarinnar, er skcrt hefur völd
verkalýðsfélaga og torveldað þeim
að fara í verkföll, verði afnuminn.
Lögin heimila atvinnurekendum
m.a. að stefna verkalýðsfélögum
vegna skaða af völdunt verkfalla og
einnig geta vinnuveitendur fyrirfram
kært væntanlega vinnustöðvun til
dómstóla og látið lýsa hana ólöglega.
Stjórn Thatchers var harðlega gagn-
rýnd á þinginu vegna „skerðinga á
rétti bresks verkalýðs og ofurselji
verkalýðsfélög náð atvinnurek-
enda," svo vitnað sé til orða Johns
Vanderveken, formanns Alþjóða-
sambands frjálsa stéttarfélaga.
Krafa þingfulltrúanna þykir geta
komið breska Verkamannafloknum
í nokkurn bobba, því Neil Kinnock,
hefur reynt að hrekja þær glósur
íhaldsflokksins að væntanleg stjórn
Verkamannaflokks yrði undir hæl
verkalýðsforingja. Hefur Kinock
lýst því yfir, að hann mundi ekki
afnema lagasetningar íhaldsflokks-
ins að fullu, komist Verkamanna-
flokkurinn til valda. Þá sýna skoð-
anakannanir að hömlur þær, er
Thacher hefur brugðið á verkalýðs-
félögin, eru vel séðar af öllum þorra
almennings. Leiðtogar verkalýðsfé-
laga þóttu athafnasamir við að fella
ríkisstjórnir á áttunda áratugnum.
ÁSÓKNEYKST
TIL MEXÍKÓ
Mexíkönsk yfirvöld standa nú
andspænis sama vandamáli og hin
bandarísku hafa átt við að etja svo
áratugum skiptir: Vaxandi straum
ólöglegra innflytjenda frá löndum
Mið-Ameríku. Fram til þessa hafa
landamæri Mexíkó og Guatemala
verið opin að kalla, en nú er svo
komið að Mexikanar sjá sér ekki
annað fært en að stemma stigu við
straumnum. Á síðasta ári sneru
landamæraverðir 13000 ólöglegum
innflytjendum aftur til síns heima;
til borgarastyrjalda og sárrar fátækt-
ar í ríkjunt Mið-Ameríku. Sami
fjöldi var hins vegar gerður afturreka
á fyrslu þremur mánuðum þessa árs
og áætlað er að 5000 manns reyni að
komast ólöglega inn í landið í mán-
uði hverjum, aðallega með hjálp
stigamanna er iðulega ræna við-
skiptavini sína aleigunni. Það þykir
grafa verulega undan verkalýðsbar-
áttu í suðlægari héuðum Mexíkó, að
hinir réttindalausu borgarar eru til-
búnir að vinna fyrir hálf lögboðin
lágmarkslaun -sent eru jafnvirði 225
króna - og er því ekki lánlegt ástand
á vinnumarkaði þar syðra. Þeir ólög-
legir innflytjendur er nást, eru færðir
í fangelsi og sviptir vegabréfum
sínum, áður en þeim er vísað úr
landi. Sagt er, að mexíkanska lög-
reglan láti hina ólánssömu Mið-Am-
eríkubúa greiða sem svarar 1200
krónunt hið minnsta tii að endur-
heimta vegabréf sín. Þeir, fjölmörgu
sem ekki eiga þá upphæð, verða að
leita á náðir hjálparstofnana sem
þegar ala önn fyrir 200.000 „indo-
cumcntados."
r lv/i\í%ou ■ Mnr
Steingrímur Sigurður Geirdal Gissur Pétursson
Hermannssonform. Framkvstj. formaðurSUF
Framsóknarflokksins Framsóknarflokksins
4. landsþing Landssambands
Framsóknarkvenna
á Hvanneyri 8.-10. september
Sérstakir gestir verða:
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir vararitari Framsóknarflokksins.
Carin Starrin varaformaður Miðflokks kvenna í Svíþjóð.
Torun Dramdal frá norskum miðflokkskonum.
Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður.
Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins.
Gissur Pétursson formaður SUF.
Muniö að skrá ykkur á þingið
hjá LFK í síma 91-24480 og á Hvanneyri í síma 93-70000.
Stjórn LFK.
Valgerður
Sverrisdóttir
alþingismaður
Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir
vararitari
Framsóknarflokksins
Carin Starrin
varaform. Miðflokks
kvenna í Svíþjóð