Tíminn - 15.09.1989, Page 3
Föstudagur 15. september 1989
Tíminn 3
Tillögur afuróastöðvanefndar um hagræðingu í rekstri innan mjolkuriðnaöarins:
Athugasemd frá
Lúðvík Jósepssyni
Ég ætla ekki að biðja Tímann að
birta frá mér skammargrein vegna
þrálátra árása blaðsins á mig undan-
fama daga. Ég get varla ætlast til
þess að Tíminn annist slíkt fyrir mig.
En örstutta athugasemd frá mér
getur Tíminn birt þar sem ég leiðrétti
missagnir.
Tíminn krefst þess að ég verði
lögsóttur fyrir ummæli mín um kaup
Landsbankans á Samvinnubankan-
um. Forstjórar Sambandsins kæra
mig og segja að ég segi ósatt um
skuldir þess við Landsbankann. Það
eru ekki mín orð að Sambandið
„rambi á gjaldþrotabarmi“. Þar vitn-
aði ég í orðrétt ummæli þeirra sem
harðast berjast fyrir því að Sam-
vinnubankinn verði keyptur á 1600
milljónir króna. Þéssum orðum svar-
aði ég þannig, að ef svo væri þá bæri
að taka málið upp við ríkisstjóm, en
óréttmætt væri að Landsbankinn
borgaði brúsann.
Aðeins eitt efnisatriði hefi ég sagt,
sem varðað getur bankaleynd og
trúnað bankaráðsmanna, en það er
að skuld Sambandsins við Lands-
bankann hafi verið um 2,6 milljarðar
króna. Ég hefi sannað á ótvíræðan
hátt að þessi skuldarupphæð er rétt
og samkvæmt bestu heimildum.
Fullyrðingar Sambandsforstjóra um
annað em rangar. Þessa skuldarupp-
hæð nefndi ég í óhjákvæmilegu
sambandi við það að rætt var um að
Landsbankinn yfirtæki til viðbótar
skuld Sambandsins við Samvinnu-
bankann. Ég nefni ennfremur að
aðrir bankaráðsmenn og bankastjór-
ar hafa oft áður sagt frá heildarskuld
aðila við bankann, síðast í Oltsmál-
inu.
Skuld Sambandsins við Lands-
bankann er ekkert leyndarmál og á
ekki að vera neitt feimnismál. Upp-
lýsingar um skuldina koma fram
bæði í reikningum Sambandsins og
Landsbankans þannig að auðvelt er
að sjá hver hún er.
Það er rangt að ég hafi nokkru
sinni talað um vanskil Sambandsins
og það er rangt að ég hafi talið skuld
þess við bankann óeðlilega. Ég hefi
aðeins sagt frá réttri skuldartölu. Ég
hefi ekkert sagt um Samvinnubank-
ann sem getur komið við banka-
leynd. Um stöðu hans hef ég enga
trúnaðarpappíra. Ég hefi að sjálf-
sögðu leyfi eins og aðrir til að ræða
um erfiðleika bankans vegna mikilla
skulda þungra viðskiptamanna.
Það er staðlaust rugl Sambands-
manna að ég hafi sagt nokkurt
hnjóðsyrði um Samvinnuhreyfing-
una, eða Sambandið. Ég hefi aðeins
lýst mig mjög andvígan því að kaupa
Samvinnubankann á 1600 milljónir
króna.
Tíminn og Sambandsforstjórar
hafa enga táfestu til að ákæra mig
fyrir neitt annað en að segja rétt til
um skuld þess við Landsbankann.
Um annað hefi ég sama rétt og aðrir
til að ræða um. Ég hefi því engan
trúnað brotið og enga leynd rofið.
En sennilega er hægt að víta mig
fyrir að segja satt og láta hina sleppa
sem sannanlega hafa sagt rangt.
14. september 1989
Lúðvík Jósepsson.
Sökudólgar ófundnir
„Hvemig ætli þetta sé í Beirút, nóg var þetta,“ sagði Bergljót
Guðmundsdóttir sem hér sópar glerbrotum af eldhúsborðinu.
Tfmamynd Pfetur
Tvær öflugar sprengjur sprangu
með um tiu mínútna millibili
skömmu fyrir klukkan 12 í fyrra-
kvöld, á Oldugötu og Bergþóra-
götu. Víðtæk leit var þegar gerð að
spellvirkjunum án árangurs og er
ekki vitað hverjir voru að verki.
Engan mann sakaði, en talsverðar
skemmdir urðu á eigum fólks i
grennd við þá staði sem sprengj-
urnar sprungu. Lögregla, slökkvi-
lið og sjúkralið, ásamt sprengju-
sérfræðingum Landhelgisgæslunn-
ar vora kallaðir á staðinn. Helst er
talið að sá, eða þeir sem þama
voru að verki hafi verið á bfl og
hent sprengjunum út.
Ummerki benda til þess að ein
130 gramma dínamíttúba hafi
sprungið á hvorum stað. Talið er
að kveikiþráður hafi verið látinn
sprengja hvellhettu, sem síðan
sprengdi dínamítið. Fundist hafa
leifar af kveikiþráðum á báðum
stöðunum og tekin hafa verið jarð-
vegssýni þar sem sprengjurnar
sprungu. Rannsóknarlögregla
ríkisins hefur yfirheyrt fjölmarga
íbúa húsa í grennd við sprengistað-
ina, en enginn mun hafa orðið var
við mannaferðir skömmu áður en
sprengingarnar urðu.
Það var um 10 mínútur í 12 sem
seinni sprengjan sprakk fyrir fram-
an hús númer 14 við Bergþórugötu.
Þrjátíu og níu rúður brotnuðu í sex
stigagöngum báðum megin göt-
unnar, útihurðir gengu til og
skemmdir urðu á tveimur bifreið-
um. Á Bergþórugötunni sprakk
sprengjan milli bifreiðanna og
kastaðist önnur þeirra til og hola
myndaðist í malbikinu. Á Öldugöt-
unni sprakk sprengjan um tíu mín-
útum fyrr, þar brotnuðu níu rúður
í einu húsi. Sprengjugnýrinn barst
víða um Reykjavík og heyrðu
íbúar hvellina tvo, allt frá Seltjarn-
amesi og austur að Elliðaám.
Bergljót Guðmundsdóttir
fóstra, sem býr að Bergþórugötu
14 var að horfa á sjónvarpið inni í
stofu þegar sprengjan sprakk. Hún
sagðist í samtali við Tímann,
skömmu effir að sprengingin varð,
hafa hlaupið inn í eldhúsið, litið út
um gluggann, sem þá var brotinn
og séð þykkan reyk leggja yfir alla
götuna. Eftir það hringdi hún til
lögreglu en fór síðan aftur að
glugganum, og hafði þá fólk úr
nærliggjandi húsum þyrpst út á
götu til að athuga hvað um væri að
vera. „Hvemig ætli þetta sé í
Beirút, nóg er þetta,“ sagði Berg-
ljót og lýsir það kannski best því
sem þama gerðist.
Eftir að lögregla og sprengju-
sérfræðingar Landhelgisgæslunnar
höfðu lokið vettvangsrannsókn og
tekið sýni, var fenginn vinnuflokk-
ur frá Reykjavíkurborg til að að-
stoða fbúa við að byrgja glugga
fyrir nóttina og hreinsa til.
- ABÓ
473 milljónir til úreld
ingar átta mjólkurbúa
Skýrsla afurðanefndar varðandl framtíðarskipulag afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði gerir ráð fyrir að unnt sé að hætta
rekstri sjö mjólkurbúa sem nú eru starfandi og að það áttunda
bætist við fljótlega. Kostnaður við úreldingu þessara mjólkur-
búa er reiknaður um 473 milljónir, en sparnaður vegna
hagræðingar í rekstri 211 milljónir á ári. Náist sú hagræðing
sem stefnt er að mun rekstrarkostnaður þeirra búa sem fyrir
eru lækka um allt að 2 krónur á hvern innveginn lítra af mjólk.
Lagt er til að hætt verði rekstri sjö Mjólkurbú Dalamanna, Mjólkurbú
mjólkurbúa á næstu þremur ámm.
Þau em Mjólkursamlagið í Borgar-
nesi, sem talið er dýrast að úrelda
eða 239 milljónir kr., mjólkursam-
lögin á Patreksfirði, Hvammstanga,
Húsavík, Þórshöfn, Neskaupstað og
Djúpavogi. Þessu til viðbótar er gert
ráð fyrir að rekstri mjólkursamlags-
ins á Sauðárkróki verði hætt þegar
aukin aðstaða til ostagerðar á Ákur-
eyri verður til staðar. Samkvæmt
tillögum nefndarinnar munu því
eftirtalin bú starfa áfram: Mjólkurbú
Flóamanna, Mjólkursamsalan,
ísfirðinga, Mjólkurbúið Blönduósi,
Mjólkurbú KEA, og mjólkurbúin á
Eigilsstöðum, Vopnafirði og Höfn.
Lagt er til að stofnuð verði tvö
fyrirtæki er annist vinnslu mjólkur
og mjólkurvara. Þau verði starfrækt
sem hlutafélög og nái annað hluta-
félagið yfir Suðurland, Vesturland
og Vestfirði, en hitt yfir Norður- og
Austurland.
Skýrslan var kynnt fyrir hags-
munaaðilum í mjólkuriðnaði í gær,
en þeir funduðu um málið í húsa-
kynnum ríkisins í Borgartúni. Land-
NUERLAG!
- Fleiri konur í sveitarstjórnir. -
Fleiri konur á þing er yfirskrift
bæklingsins, Nú er lag! sem Jafn-
réttisráð hefur gefið út. í bæklingn-
um er fjallað um hlutfall kvenna í
sveitarstjórnum og á Alþingi og
bent á leiðir sem geta leitt til meiri
jöfnuðar. Bent er á aðgerðir sem
gripið hefur verið til bæði af ís-
lenskum og norrænum stjórnmála-
samtökum til að tryggja meiri jöfn-
uð kynjanna í trúnaðarstöðum
stjórnmálaflokka.
Sérstakur kafli fjallar um hvað
flokksstjórnir geti gert til að fjölga
konum í öruggum sætum á listum
og annar kafli fjallar um hvað
konurnar sjálfar eða samtök þeirra
þar sem þau eru til staðar, geti
gert. Á vegum Jafnréttisráðs er nú
unnið að viðhorfskönnun hjá kon-
um í sveitarstjórnum og eru fyrstu
niðurstöður úr þeirri könnun birtar
í bæklingnum. SSH
búnaðarráðherra segir að á næstu
dögum verði væntanlega tekin
ákvörðun um áframhaldandi með-
ferð skýrslunnar, en höfundar henn-
ar hafa lagt til að skipuð verði fimm
manna nefnd til að leggja mat á
tillögur þær er þar koma fram. Verði
mennirnir skipaðir af Samtökum
afurðastöðva er hafi þrjá fulltrúa,
Framleiðsluráði og landbúnaðar-
ráðuneytinu er hafi einn fulltrúa
hvor um sig. Þá kemur einnig til
greina að mjólkuriðnaðurinn sem
slíkur taki tillögumar til meðferðar
á eigin vegum.
Fulltrúar frá Samtökum afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði, stjóm Osta-
og smjörsölunnar, Mjólkurfræð-
ingafélagi íslands, Framkvæmda-
nefnd búvömsamninga, Byggðar-
stofnun, Stofnlánadeild landbúnað-
arins, Fimmmannanefnd og Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins sátu
fundinn í gær og var búist við að
hann stæði eitthvað fram eftir nóttu,
eða yrði jafnvel fram haldið í fyrra-
málið. _ ÁG
Lögreglan komin á staðinn til að kanna vegsummerki eftir sprenginguna á Bergþóragötu. 39 rúður brotnuðu og
hurðir gengu tfl. Sprengjan sprakk á milli bflanna sem era á myndinni og kastaðist Ijósi bfllinn til. Tfmamynd PJetur
Tvær öflugar sprengjur sprengdar viö íbúöarhús í Reykjavík: