Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 5
Föstudagur 15. september 1989
Tíminn 5
SÁA telur nauösynlegt aö fara á vinnustaði til að fræöa fólk um afengismal:
OLDRYKKJA A VINNU-
STÖDUM HEFUR AUKIST
Áfengisneysla á vinnustöðum veldur fyrirtækjum miklum
skaða á hverju ári. Margt bendir til þess að drykkja á
vinnustöðum hafi aukist með tilkomu bjórsins. SÁÁ býður
nú starfsmönnum og forsvarsmönnum fyrirtækja upp á
fræðslu um áfengismál.
Tímamynd: Pjetur
Að sögn Jóhanns Arnar Héðins-
sonar ráðgjafa hjá SÁÁ veldur
áfengisneysla fyrirtækjum oft mikl-
um skaða. Drykkjuskapur starfs-
manna veldur fjarvistum frá vinnu,
mistökum í starfi, siysum og óhöpp-
um svo sem dæmin sanna. Það getur
einnig orðið dýrt fyrir fyrirtækin að
reka mann úr vinnu sem á við
áfengisvandamál að stríða því að
fyrirtækið er kannski búið að kosta
mikið upp á starfsþjálfun hans. Þetta
á t.d. við um flugmenn og fleiri
stéttir. Forráðamenn fyrirtækja
neyðast þó í mörgum tilfellum tii að
taka á málum starfsmanna. Það er
þá gert á þann hátt að annað hvort
eru menn reknir eða þeim gert skylt
að fara í meðferð.
SÁÁ hefur tekið upp nýjan þátt í
þjónustu sinni, íhlutun á vinnustöð-
um, þar sem forsvarsmönnum og
starfsmönnum fyrirtækja og stofn-
ana er boðið upp á eins konar
vinnustaðaþjónustu. Starfsmaður
SÁÁ hefur undanfarið haldið fundi
með starfsmönnum og forsvars-
mönnum fyrirtækja þar sem farið er
í gegnum hvenær áfengisneysla verð-
ur vandamál, þróun alkóhólisma,
áhrif á fjölskyldu og félagsleg tengsl,
hvað er til ráða, hvaða meðferðarúr-
ræði bjóðast, hvaða árangurs má
vænta o.s.frv. f framhaldi af al-
mennri fræðslu gefst svo kostur á
einkaviðtölum, námskeiðum, fjöl-
skyldufræðslu o.fl.
Hvernig skyldu forystumenn fyrir-
tækja taka þessari nýju þjónustu?
„Mér finnst margir þeirra vera
dálítið tregir til að viðurkenna
vandann. Mörg fyrirtæki hafa þá
einföldu reglu að reka starfsmenn
sem ekki standa sig í stykkinu. Við
ætlum ekkert að reyna að breyta
því. Við viljum einfaldlega benda á
að það eru til fleiri leiðir. Það er
auðvitað mjög slæmt fyrir mann sem
á við drykkjuvanda að stn'ða að vera
rekinn úr vinnu. Slíkt getur haft þær
afleiðingar að viðkomandi missi
gersamlega stjórn á drykkju sinni.
Það eru þó til dæmi um þveröfug
viðbrögð.“
Hefur drykkjuskapur á vinnustöð-
um aukist í kjölfar komu bjórsins til
landsins?
„Ég tel mig geta fullyrt að drykkja
á vinnustöðum hafi aukist með til-
komu bjórsins. Það er ekki þannig
að menn séu út úr drukknir við
vinnu. Það er frekar þannig að menn
séu mjúkir. Margir fá sér bjór með
hádegismatnum eða nota bjór eins
og svaladrykk. Við viljum ekki að
ástandið verði eins og víða erlendis
þar sem fyrirtæki hafa þá stefnu að
gera enga samninga og taka engar
meiriháttar ákvarðanir eftir hádegi.
Þar treysta fyrirtækin ekki starfs-
mönnum sínum eftir hádegi vegna
þess að þeir eru þá búnir að fá sér
sjúss,“ sagði Jóhann Örn að lokum.
- EÓ
Útvarpshlustun 8. september 1989
LANDID ALLT (9-80 ára)
%
25 i---------------------- ------------
20 -
7 8 9 10 11 12 12.20 13 14 16 16 17 18 19 19.30 20
Timi dags
Rás 1 Rós 2 Bylgjan
Stjarnan Etf Enim -o- Velt ekkl
Taflan hér að ofna sýnir útvarpshlustun fyrir landið allt.
Þeir sem hlustuöu ekki á útvarp 8. sept.
Landiö allt (9-80 ára)
7 8 9 10 11 12 12.20 13 14 15 16 17 18 19 19.30 20
Tími dags
iiiiiliii HlustuSu ekki
Þessi tafla sýnir athyglisverðan hlut. 65% þjóðarinnar hlusta ekki á útvarp
þegar mesta útvarpshlustun mælist.
Útvarpshlustun hefur minnkað um 10% á þrem mánuðum:
65% hlusta ekki á
útvarp í hádeginu
í niðurstöðum könnunar um út-
varpshlustun sem Gallup gerði fyrir
Samband íslenskra auglýsingastofa,
RÚV og íslenska útvarpsfélagið
kemur fram að 70% þeirra sem
könnunin náði til kváðust hafa hlust-
að á útvarp föstudaginn 8. septem-
ber. Það er um 10% fækkun frá því
að síðasta könnun var gerð í júní sl.
Samdráttur hefur orðið í hlustun á
öllum stöðvum, nema Rás 2 sem
bætt hefur við sig hlustendum síðan
júníkönnunin fór fram.
Ef aldurshópurinn 9 til 80 ára er
tekinn til athugunar kemur fram að
27% landsmanna kváðust hafa hlust-
að á Rás 1 föstudaginn 8. september,
miðað við landið allt, 32% sögðust
hafa hlustað á Rás 2, 16% á Bylgj-
una, 9% á Stjörnuna og 6% á
Effemm. Ef hlustun er eingöngu
borin saman á því svæði sem stöðv-
amar fimm ná til, kemur í ljós að
31% hlustaði á Rás 1, 28% hlustuðu
á Rás 2, 21% hlustaði á Bylgjuna,
10% á Stjömuna og 8% á Effemm.
Vinsældir útvarpsstöðvanna fara
eftir því sem stendur til boða hverju
sinni. Rás 2 tekur forystuna strax í
morgunsárið með 7% hlustun, á
meðan Rás 1 hefur4%, Bylgjan 2%,
Stjarnan og Effemm 1%. Frá klukk-
an 8.00 til loka kvöldfrétta er hlustun
á Rás 2 frá 9% upp í 14% þegar
dægurmálaútvarp stendur yfir. Há-
degis- og kvöldfréttir eru vinsælasta
efni Rásar 1 með 11 til 12% hlustun.
6 til 7% hlustuðu á þátt Valdísar
Gunnarsdóttur á Bylgjunni, en aðrir
dagskrárliðir fengu minni hlustun.
Hlustun á Stjörnuna mældist frá 2 til
4% yfir daginn og 1 til 2% á Effemm.
Athyglisvert er að sjá hversu
margir hlusta ekki á útvarp. Ef tekið
er mið af landinu öllu þá hlusta um
82% landsmanna ekki á útvarp milli
7.00 og 8.00. Fjöldi þeirra sem
hlusta ekki á útvarp er minnstur um
hádegisbil, þegarfréttatímareru. Þá
hlusta 65% landsmanna ekki á út-
varp og eftir klukkan 19.30 hlusta
87% landsmanna ekki á útvarp.
í niðurstöðum könnunarinnar
kemur fram að konur hlusta meira á
útvarp en karlar og fleiri konur
hlusta á fréttir Ríkisútvarps á báðum
stöðvum en karlar.
Ef Rás 1 og Rás 2 eru sérstaklega
teknar til athugunar kemur í ljós að
elsti aldurshópurinn, 65 til 80 ára
hlustar mest á Rás 1. Álíka margir á
aldrinum 25 til 64 ára hlusta á fréttir
Rásar 1 í hádegi. Nær allir dagskrár-
liðir á Rás 2 njóta álíka vinsælda
meðal mismunandi aldurshópa,
nema þeirra sem elstir eru.
Hlustun eftir starfsstéttum er
einnig mismunandi. Sérfræðingar,
atvinnurekendur og stjórnendur
hlusta mest á hádegisfréttir Rásar 1
og 2, því næst koma verka-, iðnaðar-
, sjómenn og bændur. Sama er með
kvöldfréttir sömu stöðva. Þeir sem
hlusta yfir höfuð á Bylgjuna eru
einkum skrifstofufólk og fólk í þjón-
ustu og af þeim sem eru í hlustenda-
hópi Stjörnunnar mælist mest hlust-
un hjá verka-, iðnaðar-og sjómönn-
um og bændum.
Þeir sem hafa tekjur á bilinu 50 til
80 þúsund krónur, og 81 þúsund og
meira hlusta frekar á hádegisfréttir
Rásar 1 og 2 en þeir sem hafa tekjur
undir 49 þúsund krónum. Á Rás 2
eru tveir efri tekjuhóparnir iðnari
við að hlusta á dagskrána og sömu
sögu er að segja af þeim sem hlusta
á Bylgjuna. Þeir sem hlusta á Stjöm-
una eru í lægsta tekjuhópnum, þ.e.
undir 49 þúsund krónum og með
tekjur á bilinu 50 til 80 þúsund
krónur.
Úrtakið var 850 manns á öllu
landinu og svömðu 584. - ABÓ
Fjðlþjóðleg ferðakaupstefna í Laugardalshöll
Laugardalshöll hefur verið
breytt úr íþróttahöll í viðskipta-
markað. Um 150 kaupsýslumenn
alls staðar að úr heiminum em þar
saman komnir á ferðakaupstefnu
til að gera viðskiptasamninga við
íslenska, færeyska og grænlenska
ferðamálafrömuði.
Kaupstefnan er haldin á vegum
ferðamálanefndar Vestnorden.
Þetta er í þriðja sinn sem þessi
kaupstefna er haldin. Hún var fyrst
haldin í Reykjavík árið 1986. Árið
1987 var hún haldin í Nuuk á
Grænlandi og í fyrra í Þórshöfn í
Færeyjum. Umfang kaupstefnunn-
ar hefur stöðugt vaxið og má segja
að hún sé búin að vinna sér fastan
sess. Fyrir þremur ámm þegar
kaupstefnan var haldin hér á landi
buðu 30 íslenskir ferðamálafröm-
uðir 80 erlendum kaupsýslumönn-
um vömr sínar til kaups. Nú verða
íslensku seljendurnir 112 en hinir
erlendu kaupendur verða um 150.
Erlendir ferðamálafrömuðir hafa
verið mjög viljugir í að sækja
kaupstefnuna og í ár komast færri
að en vilja. Þeir koma úr ýmsum
heimshornum m.a. frá Ástralíu,
Austurríki, Belgíu, Englandi,
Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu,
Júgóslavíu, Sviss, Norðurlöndun-
um og víðar.
Á kaupstefnunni verða væntan-
lega gerðir mjög margir samningar
milli fyrirtækja að andvirði margra
milljóna króna. Flestir þessara
samninga hafa verið undirbúnir
fyrirfram. Þátttakendur hafa í
mörgum tilfellum þegar ákveðið
hvenær þeir ætla að hittast niðri í
Laugardalshöll. Hinir erlendu
kaupsýslumenn fá aðeins tuttugu
mínútur til að ganga frá samning-
um og ef sá tími dugar ekki verða
þeir að hittast annars staðar síðar.
Að þessum tuttugu mínútum liðn-
um er kaupendum gert skylt að
flytja sig yfir til næsta viðskiptaað-
ila. Þetta fyrirkomulag er haft til
þess að erlendu kaupendurnir geti
hitt sem flesta seljendur. En kaup-
stefnan stendur aðeins í tvo daga
og því er nauðsynlegt fyrir báða
aðila að hafa snör handtök. Kaup-
stefna þessarar tegundir nefnist
Travel Mart og er samdóma álit
allra að hún sé mjög hagstæð fyrir
bæði seljendur og kaupendur
ferða, því að í stað þess að fara um
allan heim í leit að viðskiptum geta
menn gengið frá þeim á einum stað
á skömmum tíma.
Með samstarfi landanná þriggja
hefur ferðamannaiðnaður í þeim
vaxið mikið.
Ferðamannaiðnaðurinn á lands-
byggðinni hefur einnig notið góðs
af kaupstefnunni. Stærstu hótel og
flugfélög á landsbyggðinni auk
allra ferðamannasamtaka lands-
hlutanna eru aðilar að henni. Er-
lendu ferðamálafrömuðimir fóm í
ferðir um ísland, Grænland og
Færeyjar fyrir kaupstefnuna, og
eftir hana verður einnig boðið upp
á skoðanaferðir um landið.
Ferðakaupstefnan stendur til 16.
september. Hún er eingöngu ætluð
viðskiptaaðilum og er því lokuð
almenningi. - EÓ