Tíminn - 15.09.1989, Side 8
Viðskipti
Samgöngur.
Fors.ráðun. 0,
8 Tíminn
Föstudagur 15. september 1989
Föstudagur 15. september 1989
Tíminn 9
Hvar vilja landsmenn skera af eða kannskil stækka ,,ríkiskökuna“?
RIKISUTGJOLDIN 102
ALFJOLSKYLDU A MANU
- eða 154 þús. á mann fyrstu 6 mánuðina
Ríkissjóður „eyddi“ hátt í 39 þúsund
milljónum króna (milljörðum) fyrstu 6
mánuði þessa árs. Það svarar t.d. til 154
þús. króna á hvert mannsbarn í landinu
þetta hálfa ár, eða um 102.000 krónum á
mánuði á hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu að meðaltali. Ýmsum sýnast þetta
sennilega vænar upphæðir enda háværar
kröfur um niðurskurð síhækkandi ríkisút-
gjalda og lækkun skatta. Að vísu er ekki
sjaldnar krafist bættrar heilbrigðis- og
umönnunarþjónustu (t.d. aldraðra, fatl-
aðra og fíkniefnaneytenda), betra skóla-
kerfis (t.d. einsetins skóla) meiri framlög
til húsnæðismála (fleiri og hærri lána)
betra vegakerfis og meiri löggæslu, sem
er t.d. til umræðu þessa dagana. Síðast
en ekki síst krefjast ríkisstarfsmenn svo
hærri launa.
„Ríkiskakan1*
í ljósi þessa er fróðlegt að skoða
skiptingu „ríkiskökunnar“ - þ.e. í hvað
ríkið hefur „eytt“ öllum þessum 39 millj-
örðum. Skipting ríkisútgjaldanna á ráðu-
neyti fyrstu 6 mánuði þessa árs kemur
fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Fyrir
þá sem vilja auka áðurnefnda þjónustu
og um leið skera niður ríkisútgjöldin
virðist gott að hafa „Ríkiskökuna“ til
hliðsjónar.
í ljós kemur að um 80% „ríkiskökunn-
ar“ hafa farið til greiðslu fyrir þá þjónustu>
sem talin var upp hér að framan (og
margir vilja auka) og stjórnun hennar.
Góður hluti þessara 80% útgjaldanna eru
vitanlega laun, sem a.m.k. ríkisstarfs-
menn telja að þurfi að hækka verulega -
og svo er raunar líka um nokkuð af þeim
20% afgangi kökunnar sem fara í aðra
liði.
Um 40% í bætur
og lækningar
Um 40% allrar „kökunnar“ fór í trygg-
ingabætur og heilbrigðiskerfi, þ.e. ef
með er talinn sá þriðjungur, u.þ.b., af
útgjöldum fjármálaráðuneytisins sem
jafnan fer í uppbætur á lífeyri opinberra
starfsmanna. Onnur 40% fóru svo í
skólakerfið, vegina og aðrar samgöngur,
lögregluna og dómskerfið, húsnæðismál
og málefni fatlaðra og síðan afborganir
og vexti af skuldum, sem er hraðvaxandi
útgjaldaliður hjá ríkissjóði eins og fleiri
eyðslusömum.
„Blórabögglarnir112,9%
Þá eru aðeins eftir 20% „kökunnar".
Einhverjum kynni að þykja athygli vert
að þeir sem hvað oftast og mest eru'
Eftir Heiði Helgadóttur
ásakaðir fyrir „eyðslu“ og „sóun“: Al-
þingi, forsetaembætti og ríkisstjórn (m.a.
fyrir veisluhöld og opinberar heimsókn-
ir), utanríkisráðuneyti og sendiráð, for-
sætisráðuneyti, Byggðastofnun, Þjóð-
hagsstofnun og fleiri, hafa samanlagt
„eytt“ aðeins 2,9% „kökunnar“ (öll laun
í þessum ráðuneytum og stofnunum með-
talin).
Margir munu líklega sjá möguleika að
„skera“ væna sneið af þeim 10,4% sem
„eytt“ hefur verið af viðskiptaráðuneyti
og landbúnaðarráðuneyti samanlagt. Því
þar eru m.a. innifaldar bæði útflutnings-
uppbætur og niðurgreiðslur. (Minni nið-
urgreiðslur mundu þó þýða hærra verð
margra matvara).
Þá eru aðeins eftir 6,5% „kökunnar“.
Þau tvö ráðuneyti (sjávarútvegs- og iðn-
aðar) sem fara t.d. með málefni nær
allrar útflutningsframleiðslu þjóðarinnar
hafa „eytt“ 3,5% kökunnar. Af þeim 3%
„kökunnar“ sem fjármálaráðuneytið
„eyddi“ (að frátöldum lífeyrsuppbótum
ríkisstarfsmanna sem að framan eru tald-
ar með öðrum bótagreiðslum) fór stór
hluti í kostnað við að innheimta af okkur
hina fjölbreyttu skatta, tolla, og önnur
gjöld sem ríkið þarf til allrar þessarar
„eyðslu“.
Mánadarskattur fjölskyldunnar
„Eyðsla“ ríkissjóðs frá janúar til júní-
loka var 38.856 milljónir króna. Auðveld-
ara er að átta sig á þessari gífurlegu
upphæð með því að skipta útgjöldum
hvers ráðuneytis þannig að fram komi
hver útgjöld ríkissjóður hefur haft að
meðaltali á hverja meðalfjölskyldu í
landinu (4ra manna) á hverjum mánuði
frá janúar til júní:
Mánaðarútgjöld á meðalfjölskyldu
Kr.fjölsk:
Heilbrigði/tryggingar 39.220
Menntamálaráðuneyti 16.720
Fjárl./hags.st. (skuldir) 10.020
Samgönguráðuneyti 6.830
Viðskiptaráðuneyti 5.640
Landbúnaðarráðun. 4.970
Fjármálaráðuneyti 4.600
Dóms/kirkjum.rn. 4.480
Félagsmálaráðun. 3.740
S j ávarútvegsráðuney ti 1.190
Iðnaðarráðuneyti 1.530
U tanrí kisráðuney ti 1.140
Æðsta stjórn ríkisins 930
Forsætisráðuneyti 890
Hagstofan 90
Alls á fjölsk.á mán. kr. 102.000
Tryggingabætur og nær „ókeypis“
sjúkrahúsa-, heilbrigðisþjónusta og lyf
kosta í raun og veru nær 40 þús.kr. á
mánuði á hverja fjögra manna fjölskyldu
á mánuði að meðaltali. Hér er þó ekki
nærri allt talið. Því við þessa upphæð
bætast m.a. í kringum 1.500 kr. sem
fjármálaráðuneytið borgar í uppbætur á
lífeyri fyrrum ríkisstarfsmanna. Sömu-
leiðis vantar hér í kringum 1.000 kr.
kostnað vegna málefna fatlaðra sem
greiddur er af félagsmálaráðuneytinu.
„Ókeypis" skólar (og Lánasjóður
námsmanna) kosta fjölskylduna þegar að
er gætt hátt á annan tug þúsunda áj
mánuði. Um tíundi hluti af útgjölduml
menntamálaráðuneytisins fer að vísu tilj
menningarauka, t.d. Þjóðleikhúss, Sin-
fóníuhljómsveitar og annarra lista. Hér|
vantar þó þann skólakostnað sem færðurj
er undir landbúnaðarráðuneyti.
Ríkisskuldir/húsnæðislán
Auk afborgana af eigin skuldum verður
meðalfjölskyldan (með sköttum sínum)
að borga um 10.000 kr. í afborganir og
vexti af skuldum ríkissjóðs á hverjunr
mánuði (fjárlaga- og hagsýsl.st.), sem er
t.d. álíka greiðsla og af 2,6 milljóna
króna láni frá Húsnæðisstofnun. Vekur
athygli hve skuldakostnaður ríkisins hef-
ur vaxið mikið á síðustu árum, eða úr um
2,5% í upphafi áratugarins upp í að
nálgast nú tíunda hluta ríkisútgjaldanna
(9,1%).
Vegakerfið fær stærstan hluta af nær
sjö þús.kr. sem fjölskyldan borgar til
samgönguráðuneytisins, en hitt fer til
flugsamgangna, hafna, Veðurstofunnar
og Pósts og síma.
Lögbrotin dýr
Fyrir lögregluvernd, landhelgisgæslu
og síðan dóma yfir þeim brotlegu borgar
fjölskyldan um fjögur þúsund á mánuði
(dóms- og kirkjumál) og svo nokkur
hundruð krónur fyrir prestþjónustu.
Þarna vantar þó rúmar 200 kr.á fjölskyldu
vegna lögreglu á Keflavíkurvelli sem
utanríkisráðuneytið borgar.
Þær rúmlega 1.100 kr. sem fjölskyldan
borgar til utanríkisráðuneytisins fara í
rekstur sendiráðanna, lögregluna og
fleira á Keflavíkurvelli og skrifstofu-
reksturinn.
Með tæplega þúsundkalli í æðstu stjórn
ríkisins er fjölskyldan að borga í kringum
600 kr. fyrir rekstur Alþingis en hitt fær
að mestu ríkisstjórnin og forsetaembætt-
ið.
Landbúru\4,9% 1.876,8 m.
Fjármálar. 4,5% 1.739,7 m.
C,
Dóms- og kirlýj. 4.4% 1.694,9 m.
Félagsm^p,'7%^.413,2 m.
Sjáv.útv.r. 2% 753,1 m
lönaoarr. 1,5% 576,5 m
Utanr.r. 1,1% 429 m.
Menntam.r. 16.4% 6.321
Heildar-
útgjöld
jan.-júní
Hagstofa ísl. 0,1% 35,9 m.
1989, |
skipt á ráðuneyti.
Tölur í i milljón kr.
Heilbr. og tr.r. 38,4% 14.826,2 m.
„Rfldskakan“,39milljarðar, einsog Rfldsendurskoðun segirhana hafaskipst áfyrrahelmingiþessaárs. Bæði másjá hlutfall hvers ráðuneytisaf kök unni og upphæð í milljónum króna. Um 55% allra útgjalda (rúmlega 21 milljarður) hafa faríð
ígegnum menntamála-ogheilbrigðisogtryggingaráðuneytið. Þar vantar þó töluverðar upphæðir í lífeyrisgreiðslur, málefni fatlaðra ogskólakostnað sem talinn er undir a.m.k. þrem öðrum ráðuneytum.
Níuhundruðkallinn til forsætis-
ráðuneytisins fer, auk aðalskrifstofunnar,
til reksturs ýmissa stofnana svo sem
Þjóðhagsstofnunar, Byggðastofnunar,
Húsameistará, Þingvalla og fleira.
Skiptingu þeirra tæplega 12 þús. króna
sem fjölskyldan „borgar" til „atvinnu-
greinaráðuneytanna“ á mánuði hefur
Tíminn ekki tiltæka fyrir árið í ár, enda.
breytast þau útgjöld oft stórlega með
ýmisskonar skyndi- og/eða bráðabirgða-
aðgerðum. Stórir póstar í þessum út-
gjöldum eru vegna útflutningsuppbóta
og niðurgreiðslna (m.a. til niðurgreiðslu
á „matarskattinum").
Útgjöld Iðnaðarráðuneytisins fara að
stórum hluta til virkjana og annarra
orkumála.
Hvar á svo að skera?
„Fjölskyldan" sem þessar vikurnar
veltir vöngum yfir því hvað hún geti
„skorið niður“ af heimilisútgjöldunum
(og virðist ganga það nokkuð vel miðað
við 17% samdrátt innflutnings) hefur
væntanlega líka hugmyndir um hvar/
hvernig hún vill „skera niður“ á þeim 102
þús. kr. sem hún felur ríkissjóði að
ráðstafa fyrir sig á mánuði hverjum?
- HEI