Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn Föstudagur 15. september 1989 UNGIR FRAMSOKNARMENN Fundur verður haldinn í húsakynnum Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, sunnudaginn 17. sept. kl. 20:00 Fundarefni: Þriðja ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar Framkvæmdastjóm Sambands ungra framsóknarmanna Ull Jón Kristjánsson Halldór Ásgrímsson og Jón Kristjánsson, ræða stjórnmálaviðhorfið og atvinnumál á eftirtöldum stöðum á Austurlandi: Eskifirði í Valhöll, sunnudaginn 17. sept. kl. 20.30. Reyðarfirði í verkalýðshúsinu, mánudaginn 18. sept. kl. 20.30. Seyðisfirði í Herðubreið, þriðjudaginn 19. sept. kl. 20.30. Neskaupstað í Egilsbúð, miðvikudaginn 20. sept. kl. 20.30., Fundirnir eru öllum opnir. Halldór Ásgrímsson Jón Kristjánsson. Halldór Ásgrímsson Framsóknarmenn í Keflavík Við byrjum vetrarstarfið með því að hittast nk. mánudag, 18. september, kl. 20.30 í Iðnsveinahúsinu, Tjarnargötu 7. Dagskrá: Vetrarstarfið. Undirbúningur fyrir næsta bæjarstjórnarfund. Leggið starfinu lið. Mætið vel og stundvíslega. Heitt á könnunni. Framsóknarfélögin í Keflavik. llfi Drffa Magnús Slgfúsdóttir Haraldsson Keflvíkingar Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins í Keflavík verða með viðtalstíma nk. mánudag, 18. september, kl. 20.30-22.00 í Iðnsveinahúsinu, Tjarnargötu 7. Allir velkomnir. Framsóknarfélögin í Keflavík. Kópavogur - Opið hús Framsóknarfélögin i Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl. 17.30 til 19.00. Hjónin Guðmundur P. Valgeirsson og Jensína Óladóttir, sem eiga demantsbrúðkaup í dag. Myndin er tekin fyrir um 20 árum á góðviðrisdegi heima á Bæ. Árnað heilla: Demantsbrúðkaup Hjónin Jensína Óladóttir og Guð- mundur P. Valgeirsson, Bæ í Árnes- hreppi, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli, eða demantsbrúðkaup í dag, föstudaginn 15. september. Jensína er fædd 18. febrúar 1902, en Guðmundur 11. maí 1905. Jensína hefur gegnt Ijósmóðurstörfum í Árneshreppi frá 1928, að fjórum árum undanskildum. Þau Guðmundur og Jensína hafa búið allan sinn búskap að Bæ f Árneshreppi á Ströndum. Ámað heilla 80 ára er í dag, föstud. 15. sept., frú Ingibjörg Þorsteinsdóttir frá Langholti í Flóa. Eiginmaður Ingibjargar var Hró- bjartur Árnason í Burstagerðinni, hann lést 11. febr. 1953. Ingibjörg tekur á móti gestum í Safnað- arheimili Laugarneskirkju í dag milli kl. 17:00 og 20:00. Inntðkupróf fyrir nýja sðngvara í Mótettukór Hallgrímskirkju Mótettukór Hallgrímskirkju er að hefja áttunda starfsár sitt. Á verkefnaskrá vetrarins eru allar mótettur eftir J.S. Bach, sex að tölu, en þær verða fluttar á Listahátíð í júní á næsta ári. Af öðrum verkefnum má nefna Jólaóratóríu eftir Saint-Saéns, fyrir 5 einsöngvara, kór, strengi, hörpu og orgel. Æfingar eru tvisvar t' viku. Litlir hópar kórfélaga leiða safnaðarsönginn í guðsþjónustum á sunnudögum og á hátíðum kemur allur kórinn fram. Kórinn getur bætt við sig örfáum söngv- urum og býður þeim sem áhuga hafa til inntökuprófs í Hallgrímskirkju föstud. 15. sept. kl. 17:00-19:00 og laugard. 16. sept. kl. 10:30-12:30. Inntökuskilyrði eru að menn séu á aldrinum 18-40 ára og hafi einhverja reynslu af söng eða hljóðfæra- leik. Stjórnandi Mótettukórs Hallgríms- kirkju er Hörður Áskelsson. llfi Sunnlendingar Almennur stjórnmálafundur með Halldóri Ásgrímssyni verður haldinn á Hótel Selfoss, fimmtudaginn 28. september kl. 20.30. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss. Sunnlendingar Félagsvist Spilað verður að Eyrarvegi 15, Selfossi á þriðjudögum, 19. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 20.30. (Stök kvöld). Góð verðlaun í boði. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss. Laugardagsganga Hana nú Hin vikulega laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugar- daginn 16. september. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. Markmið göngunnar er: Samvera, súr- efni og hreyfing. Verið með í bæjarrölt- inu. Nýlagað molakaffi. Frá Félagi eldri borgara í Reykjavík Göngu-Hrólfar hittast kl. 10:00 á laug- ardaginn á skrifstofu félagsins að Nóatúni 17. Félag eldri borgara, Kópavogi Farin verður sfðdegisferð til Nesjavalla laugardaginn 16. september kl. 13:30 frá Sparisjóði Kópavogs. Ekið verður um hinn nýja veg (hita- veituveginn) um Mosfellsheiði. Jarðfræð- ingur verður leiðsögumaður og veitir þátttakendum innsýn í það hvernig há- hitasvæði Nesjavalla er beislað. Farseðlapantanir og sala á skrifstof- unni, sími 41226, eftir kl. 13:00 á föstu- dag. Gunnar R. Bjarnason með eina af sýningarmyndum sínum Hafnarborg: Sýning Gunnars R. Bjamasonar Gunnar R. Bjarnason opnar sýningu í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, laugardaginn 16. sept- ember. Á sýningunni verða um 50 pastel myndir. Gunnar lærði leiktjaldamálun við Þjóð- leikhúsið 1953-1956 og sótti jafnframt námskeið í Myndlista- og handíðaskólan- um. Hann vann síðan við leiktjaldamálun hjá Þjóðleikhúsinu, en hélt til Svíþjóðar 1957 og stundaði nám við Konstfackskol- an í Stokkhólmi. Einnig hefur hann farið í námsferðir til Englands, Danmerkur, Svíþjóðar, Tékkóslóvakíu og Póllands. Frá 1958-’74 starfaði Gunnar sem leik- myndateiknari hjá Þjóðleikhúsinu, en 1974-’88 á eigin vinnustofu, en þá tók hann við starfi yfirleikmyndateiknara Þjóðleikhússins. Þetta er þriðja einkasýning Gunnars, en hann hefur einnig tekið þátt í samsýn- ingum myndlistarmanna og leikmynda- teiknara í Reykjavík og Kaupmannahöfn og hlotið margs konar viðurkenningar fyrir list sína. Sýningin í Hafnarborg stendur frá 16. september til 1. október og er opin kl. 14:00-19:00 alla daga nema þriðjudag. Erla sýnir á Kjarvalsstððum Erla Þórarinsdóttir opnar sýningu á Kjarvalsstöðum í austursal, laugardaginn 16. september kl. 14:00. Erla lauk námi frá Konstfackskólanum í Stokkhólmi 1981 og hefur síðan unnið og starfað að myndlist í Svíþjóð, New York og hér heima. Hún hefur haldið einkasýningar í Reykjavík, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og New York og tekið þátt í fjölda samsýninga. Á Kjarvalsstöðum verða til sýnis olíumyndir unnar á striga og á tré. Þetta eru myndaraðir sem kallast „seglin“, „landið" og „farangurinn". „Myndimar eiga upptök sín hérlendis og í loftinu umhverfis landið,” segir í fréttatilkynn- ingu frá Erlu Þórarinsdóttur. Sýningin er opin alla daga kl. 11:00- 18:00 til 1. október. Eitt af verkum Páls á sýningunni í Nýhöfn, Hafnarstræti 18 Páll frá Húsafelli sýnir í Nýhðfn Páil Guðmundsson frá Húsafelli opnar sýningu í Listasalnum Nýhöfn, Hafnar- stræti 18, laugardaginn 16. september kl. 14:00-16:00. Á sýningunni em málverk, öll af fólki og höggmyndir unnar í grjót úr Húsafelli. Páll er fæddur í Reykjavík 1959. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla íslands 1977-’81. Einnig var hann við nám 1 Listaháskólanum í Köln, hjá prófessor Burgeff. Þetta er ellefta einkasýning Páls, en hann hefur einnig tekið þátt í samsýning- um. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 10:00-18:00 og kl. 14:00- 18:00 umhelgar. Henni lýkur4. október.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.