Tíminn - 15.09.1989, Page 14

Tíminn - 15.09.1989, Page 14
14 Tíminn ' •* - » — - ' 1 •' - r • • • '. ' > - <* . Föstudágur 15.'séptember 1989 ÚTLÖND FRÉTTAYFIRLIT KABUL - Bandarísk þing- nefnd (hugar nú að fella niður fjárhagsaostoð við Mujahi- deen-skæruliða í Afaanistan, eftir að lióst er orðið að sundur- leitir hopar þeirra hugsa nú meir um að berast á banaspjót innbyrðis en vinna bucj á lepp- stjórn Sovétmanna i Kabúl. Stjórnarherinn hefur farið með sigur af hólmi í þeim fáu bar- dögum er átt hafa sér stað millum stjórnarliða og skæru- liða og hin skipulega mót- spyrna gegn leppstjórninni óöum að snúast i stríð allra gegn öllum. BERN - Svissnesk stjórn- völd ákváðu nwerið að ganga I lið með sex öorum þjóðum, er sameinast hafa í viðleitni til að hefta „þvott“ á illa fengnu gróðafé glæpasamtaka viða um heim. Svissneskir bankar hafa löngum verið vinsælir griðastaðir slíks „óhreins fjár" þar sem þarlend bankaleynd hefur komið í veg fyrir að hægt væri að rekja hvaðan það er runnið. Hinir samviskusvörtu eigendur hafa síðan nýtt pen- inganatil löglegrafjárfestinga. Svisslendingar tóku boði Frakka um aðild að herferðinni. Fyrsti fundur krossfaranna verður i París í næsta mánuði. TALLIN - Ráðamenn Eystrasaltsríkjanna, Eistlands, Lettlands og Litháen, hafa nú fullan hug á að stefna að sameiginlegum markaði og samræmdum efnahagsráð- stöfunum við erlend ríki. Sam- kvæmt hugmyndum þessum, er hrinda skal í framkvæmd fyrir 1993, hyggjast ríkin þrjú sameina framleiðslu sína og koma sér upp sameiginlegu kerfi til viðskipta við önnur lýðveldi í Sovét. Óljóst er hvort hinn innri markaður kalli á viðskiptatálmanir gegn hinum lýðveldunum og eftir er að ákvarða hver hinn sameigin- legi gjaldmiðill verði. Fréttir hafa ekki borist af viðbrögðum rússneska bjarnarins við þess- um fyrirætlunum. OSLÓ - Norðmenn hyggjast leggja sitt lóð á vogarskálarnar í alþjóðlegri baráttu gegn eit- urlyfjaframleiðslu. Þróunar- málaráðherrann Kari Kolle- Grondahl tilkynnti nýverið að norsk stjórnvöld byðu Kólom- bíustjórn tæknibúnað og þjálf- un í baráttu við eiturlyfiahring- ana, auk þess sem stjorn Nor- egs veitir 5,4 milljónir norskra króna til hins verðuga málstað- ar gean eiturlyfjaframleiðslu. Þá verður sérstöku aukafram- lagi, að upphæð 400.000 norskar krónur, varið til kynn- ingar- og upplýsingastarfs meðal fátækra kókaínbænda í Kólombíu og alþjóðlegs upp- lýsingastarfs. PARÍS - Að sögn Alþjóða- heilbrigðisráðsins eru Albanía og San Marínó einu Evrópu- löndin er ósnortin eru af Aids, hinum ólæknandi eyðnisjúk- dómi. Frakkland er verst haldið í þessu efni. Þar munu vera 7149 skráð tilfelli. Austur-Evr- ópulönd gefa hins veqar upp mjög lágar tölur um eyonisjúk- linqa, t.d. virðast aðeins vera 3 eyonisjúklinqar í Búlgaríu. Tal- ið er ao um nálf milljón manna gangi með sjúkdóminn f heim- inum. LONDON - Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, sagðist í gær vera eindregið hlynnt því að dauðarefsingar væru teknar upp á nýjan leik í Englandi. Thatcher lét þessi orð falla eftir að 49 ára gamall lögreglumaður var myrtur, að því er virðist að tilefnislausu, í nágrenni Manchester í gær. Hann var níundi lögreglumað- urinn er myrtur er í Bretlandi á síðustu níu árum, en breskir lögreglumenn eru óvopnaðir f starfi. Forsvarsmaður félags lögreglumanna, Alan East- wood, tók í sama streng og forsætisráðherránn. Andesfjalla-áætlun Bush í fullum gangi Bandaríkjamenn draga ekki af sér við framkvæmd hinnar nýju áætlunar Bush forseta um að stemma stigu við innflæði eiturlyfja frá ríkjum Suður-Ameríku. Af þeim 65 milljónum dala sem áætlað er að verja til verkefnisins, er þegar búið að senda stjórn Kólombíu hergögn fyrir 10,4 milljónir og meira mun í vændum. Til þessa hefur lögreglulið Barcos forseta fengið fimm þyrlur, vélbyssur, sprengjuvörpur og skotfæri. Ekki hefur herinn heldur orðið Talsmaðurinn, Pete Williams, útundan, því Bandaríkjamenn hafa kvað líklegt að Bush forseti muni sent liðsveitum stjórnarinnar 50 flug- vélar, 23 jeppa og sjúkrabíla, sjúkra- gögn, skotheldan klæðnað og byssur, svo eitthvað sé nefnt. Þá má ekki gleyma 500 skotheldum vestum er ætluð eru til að hlífa kólombískum þjónum dóms og laga gegn kúlum flugumanna eiturlyfja“barónanna“ er hótað hafa að myrða 10 dómara fyrir hvem einn er framseldur verði úr þeirra hópi. Talsmaður Bandaríkjastjómar neitaði því hins vegar nýverið að stjórn Bush hefði lagt Barco til bandarískar hersveitir og sagði íhlut- un bandarísks liðsauka alfarið á valdi Barcos forseta. Mun Barco ekki hafa í hyggju að fara fram á siíkt. Aftur á móti munu nú vera um 50 bandarískir herráðgjafar í Kól- ombíu til að þjálfa liðssveitir stjórn- arinnar og leiðbeina um notkun hins bandaríska vopnabúrs. fara fram á 90 milljónir dala til frekari aðstoðar við Kólombíu, auk 97,5 milljóna til aðgerða í Bólivíu og um 73,4 milljóna til Perú. Ekki er mælt með orlofsferðum til Kólombru þessa dagana. Síðan eit- urlyfja“barónarnir“ lýstu yfir „al- gjöru og skilyrðislausu stríði“ á hendur stjórnvöldum, hefur höfuð- borgin, Bogota, er eitt sinn var nefnd „Aþena vestursins" fengið á sig viðurnefnið „Beirút vesturins". Hálfu verra er þó ástandið í Medell- in, er með réttu má nefna höfuðborg eiturlyfjanna. Þar sprungu 17 sprengjur fyrstu vikuna eftir stríðsyf- irlýsingu „barónanna" og yfir 500 dómarar lögðu inn lausnarbeiðnir sínar, enda hafa 220 réttargæslu- menn - þar af 41 dómari - verið myrtir á síðustu 10 árum og glæpa- herir eiturlyfja“baróna“ draga ekki afhótunum viðstéttina. M.a.s. dóm- Medellin, höfuðborg kókaínsins. urum unglingadómstóla er ekki vært í embætti. Fram til þessa hafa að meðaltali 10 manns týnt lífi á sól- arhring hverjum í Medellín og er drápstíðnin því níföld á við New York er þykir þó ekki nein griðavé. Haft er fyrir satt að leigumorðingja megi kaupa til verka fyrir andvirði 600 króna íslenskra. Bandaríkjamenn hafa fyrir löngu lokað sendiráði sínu í landinu og hvatt alla bandaríska borgara til að koma sér heim sem skjótast. Dóms- málaráðherra landsins, hin 32 ára gamla Monica de Greiff, bar nýverið til baka sögusagnir um að hún hygð- ist segja af sérembætti. Morðhótanir gegn henni og fjölskyldu hennar eru að heita má daglegt brauð, enda er de Greiff sjötti dómsmálaráherrann er um ráðuneyti þetta sýslar á sl. þremur árum. Þrátt fyrir ástandið er hún þó hvergi bangin: „Lög og réttur á undir högg að sækja í Kólombíu," er haft eftir henni, „ og við verðum að verja hvorttveggja með öllum tiltækum ráðum.“ Beðið nýrra tækifæra í landamærabúðunum Friedland. Austur-þýskir vinnuþjarkar: Blendin viðbrögð við þjóðflutningum Síminn hjá vinnumiölun- inni í GieBen í Vestur-Þýska- landi þagnar vart þessa dag- ana. Daglega hringja fulltrú- ar 500-600 fyrírtækja í leit aö vinnukrafti til starfa. „Ég hef á tilfinningunni að fréttir um 200.000 atvinnuleysingja í þessu landi séu tómur upp- spuni,“ segir Wolfgang Dohmen, er veitir vinnu- miðluninni forstöðu. En þróun mála vekur upp efa- semdir hjá öðrum, er telja að hinar vinnufúsu hendur að austan muni skapa umtalsverð vandamál er stundir líða fram. Andstætt öðrum flóttamönnum, er til Vestur-Þýska- lands koma, skortir aðkomumenn úr ríki Honeckers hvorki þýsku- kunnáttu né faglega menntun. Sú aðdróttun austur-þýskra yfirvalda, að vestanmenn séu að lokka til sín rjómann af fagmenntuðu fólki þeirra, er ekki með öllu tilhæfulaus. Auk þess hafa austanmenn - er flestir eru á ungum aldri - það orð á sér að þeir séu vinnufúsari, stundvís- ari og samviskusamari en innfæddir þegnar velferðarríkisins. Ekki mundi hvarfla að vestur-þýskum verkfræðingi að ráða sig til verka- mannsstarfa, en slíkt vílar starfs- bróðir hans að austan ekki fyrir sér. Austur-Þjóðverjarnir hafa fengið þá mynd af vesturríkinu, að þar byrji menn smátt en njóti sveita síns erfiðis til vegsemdar með árunum. Félagsfræðingar þykjast þó sjá ýmis teikn á lofti, að aðstreymið muni baka þýsku þjóðfélagi vand- kvæði. „Félagslegur kostnaður" samfélagsins sé hár vegna innflytj- endanna, óvíst hverjar bætur sam- félagið muni hafa af framlagi þeirra og síðast en ekki síst muni borgarar Sambandslýðveldisins þurfa að brjóta brauð sitt með hinum ný- komnu, með óljósum afleiðingum í framtíðinni. Loks muni hinir nýju samborgarar, er flestir eru ungt fólk nú, komast á eftirlaunaaldur kring- um 2020, en óvenju hátt hlutfall Vestur-Þjóðverja mun leggjast á jötu hins félagslega kerfis um þær mundir. Ólympíuleikar 1994: Peningarnir streyma inn Undirbúningur að vetrarólympíu- leikunum 1994 er þegar hafinn í norska bænum Lillehammer. Undir- búningsnefndin hefur allar klær úti til fjáröflunar og nýverið tókst frændum vorum að selja bandarísku CBS-sjónvarpsstöðinni einkaleyfi til útsendinga frá leikunum á Banda- ríkjamarkað fyrir litlar 300 milljónir dala. Það samsvarar 2,1 milljarði norskra króna og má undirbúa sitt af hverju fyrir þá upphæð. Helsti keppinautur CBS, NBC-sjónvarps- stöðin hafði einnig hug á einkaréttin- um en mátti ekki við fjárhagslegu ofurefli CBS. Norðmennimir selja reyndar sjón- varpsréttinn grimmt í allar áttir. Samningur við evrópska gervi- hnatta-dreifikerfið EBU halaði 24 milljónir dala inn í kassann, og áþekkir samningar við áströlsk, kan- adfsk og japönsk fyrirtæki munu gefa milli 30 og 35 milljarða í aðra hönd. Þeir Lillehammer-bændur verða þá orðnir handhafar um 360 milljóna dala (21,6 milljarða íkr.) og þætti mörgum gott til að grípa. Thailand: Lyfta höfði úr sandinum Fram til þessa hafa thailensk yfirvöld haft hljótt um hina hljóðu dauðavá eyðniveirunnar. Líkt og önnur stjórnvöld í Asíu, hafa thailenskir ráðamenn farið að fordæmi strútanna og eytt vandanum með því að virða hann að vettugi. Það hefur ýtt undir þögn þeirra, að Thailand er róm- að land gleði og næturgamans og hefur orðsporið skilað drjúgu í ríkiskassann frá leitandi ferða- mönnum. Nú hefur hins vegar verið ráðin hér bragarbót á, enda mörgum tekið að finnast þögnin grunsamleg. Fram til þessa hafa 30 manns látist af völdum eyðni í Thailandi og opinberar tölur herma að 9000 manns séu sýkt af veirunni. Flestir í þeim hópi eru ýmist heróinneytendur, vændis- konur eða gleðlar. Óttast er þó að þessi tala sé hófleg um of, enda hafa aðeins 100.000 úr hópi 800.000 blíðusala verið færð til rannsóknar. Af þeim 150.000 heróinneytendum, er vitað er um í landinu, hafa aðeins 32.000 verið eyðniprófaðar. Stjórnvöld, einkaaðilar og yfir- menn hersins hafa nú tekið hönd- um saman í mikilli upplýsinga- og forvamaherferð. Dreift verður 43 milljónum smokka til þeirra er næturvinnu stunda og upplýs- ingaherferð haldið uppi frá 126 útvarpsstöðvum og tveimur sjón- varpsstöðvum. Þá hafa eyðni- prófanir verið auknar að mun og finnast að meðaltali 900 nýir sjúklingar á mánuði. Stjómvöld hafa þungar áhyggjur af út- breiðslu sjúkdómsins, er þau segja geta lagt efnahag landsins í rúst og lamað thailenska herinn. 242 tilfelli hafa greinst meðal hermanna. Váin hefur hins vegar ekki minnkað vinsældir hins thai- lenska næturlífs: Búist er við 5 milljónum ferðamanna í ár.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.