Tíminn - 11.10.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.10.1989, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 11. október 1989 Tíminn 3 Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík rannsakar sérstakt skaðabótamál: VILL HUNDRAÐ ÞÚSUND FYRIR DAUDAN HÖGNA Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík hefur nú til athugunar all sérstakt skaöabótamál, þar sem kona hefur krafist hundrað þúsund króna skaðabóta vegna þess að ketti sem hún hafði tekið að sér var lógað að henni forspurðri. Málið er allt hið flóknasta og á viðkvæmu stigi eins og er, þar sem Iögregla er þessa dagana að hlýða á framburð málsaðila. Tíminn mun því kalla konurnar A,B og C. A á læðu sem gaut kettlingum síðastliðið vor. Einn af þeim kettl- ingum, gulbröndóttur högni var vist- aður hjá B og fékk hún köttinn til eignar. Var hann hjá B í fjóra mánuði. C, sem býr í nágrenni við þær A og B, kom nýverið að kettin- um þar sem hann var í stigagangi fjölbýlishúss og tók hann heim með sér, þar sem henni þótti kötturinn vannærður og grindhoraður. Þegar högninn hafði dvalið hjá C í hálfan mánuð rakst A á hann utan við fjölbýlishúsið og þótti þá sem hann væri mjög illa á sig kominn. Að því er A segir tók hún köttinn, og fór með hann á dýraspítalann, þar sem honum var gefin sprauta og hann aflífaður. Þcgar C uppgötvaði hvað gerst hafði leitaði hún til lögreglunnar og kærði A fyrir verknaðinn. Jafnframt leggur C fram kröfu um skaðabætur allt að hundrað þúsund krónum. Segir C að það hafi verið verulegt tilfinningalegt áfall fyrir sig að kötturinn skyldi aflífaður án sinnar vitneskju. Málsaðilum ber ekki saman um hvert ásigkomulag högnans var. Kærða var kölluð fyrir hjá lög- reglu í gær, þar sem hún gaf skýrslu vegna málsins. B sem er vitni í málinu verður kölluð og hennar framburður skráður. „Við höfum ekkert til að fara eftir, nema samvisku fólks,“ sagði Bernharð Laxdal dýralæknir á Dýra- spítalanum, í samtali við Tímann, þegar hann spurður hvort leitað væri staðfestingar á því að sá er biður um aflífun á dýri, sé jafnframt eigandi. „Það er ekki hægt að biðja fólk um vottorð fyrir eignarhaldi á ketti. Við erum því algerlega varnarlausir þeg- ar fólk kemur og biður okkur um að sprauta dýr,“ sagði Bernharð. Hvert framhald þessa mjög svo sérstæða máls verður er ekki gott að segja, en allt bendir til þess að C haldi skaðabótakröfu sinni til þraut- ar- - ES Á myndinni má sjá Steingrím Hermannsson forsætisráðherra stjórna ferföldu húrrahrópi að aflokinni setningarræður forseta íslands. Minningarorö aldursforseta, Stefáns Valgeirssonar, um Benedikt Bogason alþingismann, við þingsetningu 10. október 1989: í minningu þingmanns í dag minnumst við og söknum Benedikts Bogasonar, verkfræð- ings og alþingismanns, sem kvaddi okkur hér í vor eftir skamma setu á Alþingi og andaðist 30. júní, hálfsextugur að aldri. Benedikt Bogason var fæddur 17. september 1933 að Laugardæl- um í Hraungerðishreppi í Árnes- sýslu. Foreldrar hans voru hjónin Bogi bóndi þar, síðar verkstjóri í Reykjavík Eggertsson bónda og alþingismanns í Laugardælum Benediktssonar og Hólmfríður Guðmundsdóttir bónda á Læk í Hraungerðishreppi Snorrasonar. Benedikt lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vor- ið 1953, stundaði síðan verkfræði- nám einn vetur í Háskóla íslands, en fór síðan til náms í Finnlandi og lauk prófi í byggingarverkfræði frá Tækniháskólanum í Helsingfors árið 1961. Að námi lóknu var hann framkvæmdastjóri Flóaáveitunnar og Ræktunarsambands Flóa- og Skeiðaveitna 1961-1964. Jafnframt var hann ráðgjafi Ölfusveitunnar og stundaði almenn verkfræðistörf á Selfossi. Á árinu 1964 fluttist hann til Reykjavíkur og var verk- fræðingur við gatna- og holræsa- deild borgarverkfræðings 1964- 1971, en rak síðan eigin verkfræði- stofu í Reykjavík. Árið 1980 varð hann verkfræðilegur ráðunautur Framkvæmdastofnunar ríkisins, þar til hún var lögð niður, og fulltrúi forstjóra Byggðastofnunar var hann frá 1985. Benedikt Bogason sinnti ýmsum félagsmálum og vann aukastörf jafnframt aðalstarfi. Hannvareinn stofnenda og fyrsti formaður Fé- lags íslenskra stúdenta í Finnlandi og hann var formaður Sambands íslenskra stúdenta erlendis 1962- 1963. Gjaldkeri í stjóm Suomi-fé- lagsins í Reykjavík var hann 1969- 1980. Hann var stundakennari við Miðskóla Selfoss, Iðnskóla Selfoss og Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi á árunum 1961- 1963 og kennari við Tækniskóla íslands 1970-1973. Hann var í hreppsnefnd og byggingarnefnd Selfoss 1962-1964 og í byggingar- nefnd Ríkisútvarpsins frá 1981. Formaður Framfarafélags Seláss- og Árbæjarhverfis var hann frá 1983. Hann tók þátt í stofnun Borgaraflokksins vorið 1987 og var þá kosinn varaþingmaður flokksins í Reykjavík. Hann sat á Alþingi rúmar tvær vikur í nóvember og desember 1987. Við þingmennsku- afsal Alberts Guðmundssonar í byrjun aprílmánaðar í vor tók Benedikt Bogason fast sæti á Al- þingi. Benedikt Bogason hlaut góða menntun til undirbúnings störfum sínum síðar á ævinni. Verkfræði- kunnáttu hans og forsjár og ráð- gjafar í verklegum efnum sér víða stað, en þó mest sunnanlands. Þar neytti hann fyrst hæfileika sinna og menntunar við fjölbreytt verkefni. Síðar náði starfssvið hans vítt um landið. Á vegum Framkvæmda- stofnunar og Byggðastofnunar kom í hans hlut að hafa afskipti af athafnalífi landsmanna til sjávar og sveita. Hann leiðbeindi sveitar- stjórnum, gegndi nefndastörfum og sat í stjórnum félaga af hálfu stofnananna og fékkst við torleyst mál sem komu til þeirra kasta. Að dómi þeirra, sem störfuðu með Benedikt Bogasyni og þekktu hann best, var hann gæddur mikl- um skipulagshæfileikum, var holl- ráður, afkastamikill og ósérhlífinn. Hann átti slíkan starfsferil að baki að binda mátti miklar vonir við störf hans á Alþingi. En þegar hingað kom voru honum búin þau örlög að sitja hér aðeins nokkrar vikur. Ég vil biðja þingheim að minnast Benedikts Bogasonar með því að rísa úr sætum. Alþingi sett í 112. skipti Vigdís Finnbogadóttir forseti ís- Bogasonar. Þrír varaþingmenn taka lands setti í gær hundraðasta og nú sæti á þingi. Jónas Hallgrímsson, tólftalöggjafarþingþjóðarinnar,eft- varamaður Halldórs Ásgrímssonar, ir að þingheimur hafði hlýtt á messu Jóhannes Geir Sigurgeirsson, vara- íDómkirkjunniþarsemséraSólveig maður Valgerðar Sverrisdóttur, og Lára Guðmundsdóttir þjónaði. Stef- Einar Kr. Guðfinnsson, varamaður án Valgeirsson aldursforseti þingsins Þorvalds Garðars Kristjánssonar. se|ti fyrsta fund vetrarins, og minnt- - ÁG ist látins þingmanns Benedikts Þrír nýir þingmenn setjast á Alþingi í byrjun þessa þings, þau Ásgeir Hannes Eiríksson, er kemur í stað Benedikts Bogasonar, Anna Ólafsdóttir Björnsson, er kemur í stað Kristínar Halldórsdóttur, og Rannveig Guð- mundsdóttir, sem sest inn á þing í stað Kjartans Jóhannssonar. Tímamyndir Ámi Bjarna. Rafiðnaðarsambandið: Verkfallið í biðstöðu Enginn fundur hefur verið boðað- ur milli rfkisins og rafiðnaðarmanna. Rafiðnaðarmenn hjá Reykjavíkur- borg og samninganefnd borgarinnar funduðu í gær. Var talið að nokkuð hefði miðað í samkomulagsátt og verður óformlegum viðræðum hald- ið áfram í dag. Hjá Rafiðnaðarsambandinu feng- ust þær upplýsingar síðdegis í gær að verkfallið væri í algerri biðstöðu og að engar óformlegar viðræður hafi átt sér stað í gær. í ellefufréttum Sjónvarps á mánu- dagskvöldið voru sýndar myndir frá komu Jórdaníukonungs til landsins. Ekki var veitt undanþága til þessarar útsendingar. Eftir því sem Tíminn kemst næst mun Sjónvarpið hafa vísað til þess að fréttaflutningurinn væri á höndum fréttaritara. öryrkjabandalagið fór fram á undanþágu til Rafiðnaðarsambands- ins vegna fyrirhugaðrar útsendingar í útvarpi frá degi fatlaðra í Reykja- vík sem er á föstudaginn. í svari sambandsins segir að undanþágu- beiðnin verði að koma frá þeirri stofnun sem vinna á fyrir og ef að Ríkisútvarpið sæki um slíka undan- þágu muni tæknimenn vinna endur- gjaldslaust að útsendingunni. SSH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.