Tíminn - 11.10.1989, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.10.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 11. október 1989 Tíminn 7 VETTVANGUR Sigrún Magnúsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins í borgarstjórn: Staða framsóknamanna er málefnalega sterk í borainni Miðvikudaginn 4. október hélt Alþýðubandalagið í Reykjavík opinn fund vegna væntanlegra borgarstjórnar- kosninga. Frummælendur voru oddvitar flokkanna í stjórnarandstöðunni í borgarstjórn. Fundarefnið var sam- vinna minnihlutans í borgarstjórn þetta kjörtímabil, sér- staða flokkanna og kostir og gallar sameiginlegs framboðs. Það var sérkennilegt að Alþýðu- bandalagið skyldi halda þennan fund núna vegna þess að Birting, hið nýja félag Alþýðubandalagsins var búið að heimsækja öll borgar- málaráð flokkanna til að ræða „hvort“ möguleiki væri fyrir hendi að bjóða fram sameiginlega. Ég tilkynnti Birtingarmönnum, sem heimsóttu okkur framsóknarmenn, að við værum búin að afskrifa þennan möguleika. Þetta hefði ver- ið rætt talsvert síðastliðinn vetur, en umræðum lauk síðan með eftir- minnilegum hætti s.l. vor þegar „Sjafnardeilan" kom upp. Þá lýsti Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðuflokksins því yfir í sjónvarpi að ef menntamála- ráðherra dragi ekki auglýsingu um skólastjórastöðuna við Öldusels- skóla til baka, yrði ekkert af sam- eiginlegu framboði, vegna þess að með kommúnistum væri ekki hægt að starfa. Sameiginlegt framboð þeirra flokka sem nú eru í stjórnarand- stöðu í borgarstjórn hefur þann kost að þá er komið í veg fyrir að sjálfstæðismenn haldi völdum í borginni út á minnihluta kjósenda eins og oft hefur verið. Pess eru dæmi að rúmlega 40% atkvæða hafi dugað sjálfstæðismönnum til þess að halda meirihluta. Upphaflega hugmyndin um sam- eiginlegt framboð byggðist á því að flokkarnir störfuðu saman á jafn- réttisgrundvelli. Tveir fulltrúar frá hverjum hinna fjögurra flokka skipuðu átta efstu sætin og í átt- unda sæti væri borgarstjóraefnið. Þessi tilhögun virtist mér vera þannig að vert væri að kanna hana nánar og á því byggðist afstaða mín upphaflega, en síðan hefur ýmislegt breyst. Á fyrrnefndum fundi hjá Al- þýðubandalaginu voru ýmsar ein- kennilegar hugmyndir reifaðar t.d. að flokkarnir sem slíkir stæðu ekki að framboðinu, heldur yrði mynd- uð einhverskonar hreyfing sem ekki væri í nafni stjórnmálaflokk- anna þó þeir lýstu yfir stuðningi við hana. Einnig var varpað fram hug- mynd.um að framboðið yrði ein- ungis skipað konum. 1 ræðu minni lýSti ég því yfir að við framsóknarmenn værum al- gjörlega andvígir því að búa til einhverskonar hreyfingu sem ekki væri í nafni stjórnmálaflokkanna, þó þeir ættu að lýsa stuðningi við hana. Þannig yrði Framsóknar- flokkurinn að lýsa stuðningi við hreyfinguna, jafnvel þótt svo gæti farið að enginn framsóknarmaður ætti sæti á listanum. Á fundinum létu alþýðubanda- lagsmenn í ljósi mikinn áhuga á sameiginlegu framboði í einhverri mynd og er það nokkuð undarlegt þar sem Alþýðubandalagið undir- býr nú borgarstjórnarkosningar í tveimur félögum. Það er skoðun mín að framboð án atbeina stjórnmálaflokka gæti ef til vill gengið í litlu sveitarfélagi en alls ekki í stærsta sveitarfélagi landsins. Sérstaða Reykjavíkur er marg- vísleg t.d. er borgin sérstakt kjör- dæmi. Það er þess vegna alveg út í hött að Framsóknarflokkurinn skipti sér ekki af borgarmálefnum og hafi ekki sitt eigið borgarmála- ráð. Borgarfulltrúar og þingmenn flokksins í Reykjavík hljóta að þurfa að vinna að mörgum málum saman, sem snerta borgina og það er best gert á vettvangi flokksfé- laga. Þrátt fyrir það að ekki sé grund- völlur fyrir sameiginlegu framboði nú hefur samstarf stjórnarand- stöðuflokkanna í borgarstjórn á þessu kjörtímabili verið með mikl- um ágætum og ber að kappkosta að svo verði áfram. Reykjavíkur- Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi. borg hefur verið'illa stjórnað af íhaldinu og það ef mjög brýnt að hér verði breytt um áherslur og ofurveldi Sjálfstæðisflokksins í borginni hnekkt. Staða Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningum hefur að mínum dómi breyst eftir að Davíð Oddsson fékk sig kosinn varafor- mann flokksins. Það er augljóslega skref á leið hans í formannssætið og þar með út úr borgarstjórn. Flvert er næsta borgarstjóraefni sjálfstæðismanna? Flokkurinn verður að fara að flýta sér að velja eftirmann til að geta auglýst hann upp. Með hliðsjón af þeim miklu mistökum sem sjálfstæðismönnum hafa orðið á við stjórn borgarinnar þar sem mjög miklum fjármunum hefur verið eytt að óþörfu á meðan ýmissjálfsögð þjónusta við borgar- ana hefur verið vanrækt, hljóta Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í borgarstjórn bera saman bækur sínar. þeir flokkar sem nú eru í stjórnar- andstöðu að eiga góða von um að vinna verulega á í næstu borgar- stjórnarkosningum og einnig með tilliti til þess að her sjálfstæðis- manna í borginni er að verða höfuðlaus. Þess vegna er það ekki sjálfgefið að borgarstjórnarmeiri- hlutinn næsta kjörtfmabil verði áfram skipaður sjálfstæðismönnum þótt um sameiginlegt framboð verði ekki að ræða. Staða okkar framsóknarmanna er málefnalega sterk um þessar mundir. Það er ekki hægt að ætlast til þess að stuðningsmenn flokksins í borginni, sem hafa treyst okkur og stutt af alefli fari að leysa upp samtök sín og kjósa einhverja óskilgreinda hreyfingu þar sem þeir kynnu að verða algjörlega áhrifalausir. Síðastliðið vor setti fulltrúaráð framsóknarfélaganna á fót ýmsar málefnanefndir vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Ég vil hvetja alla framsóknarmenn til þess að halda ótrauðir áfram undir- búningi kosninganna. Með þrótt- miklu starfi og samstilltum kröftum mun okkur auðnast að gera hlut flokksins góðan í borgarstjórnar- kosningunum næsta vor. Sigrún Magnúsdóttir „Þrátt fyrir það að ekki sé grundvöllur fyrir sameiginlegu framboði nú hefur samstarf stjórnarandstöðuflokk- anna í borgarstjórn á þessu kjörtímabili ver- ið með miklum ágæt- um og ber að kapp- kosta að svo verði áfram. Reykjavíkur- borg hefur verið illa stjórnað af íhaldinu og það er mjög brýnt að hér verði breytt um áherslur og ofurveldi Sjálfstæðisflokksins í borginni hnekkt.“ „Staða okkar fram- sóknarmanna er mál- efnalega sterk um þessar mundir. Það er ekki hægt að ætlast til þess að stuðnings- menn flokksins í borg- inni, sem hafa treyst okkur og stutt af alefli fari að leysa upp sam- tök sín og kjósa ein- hverja óskilgreinda hreyfinguþarsem þeir kynnu að verða algjör- lega áhrifalausir.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.