Tíminn - 11.10.1989, Síða 6
Miðvikudagur 11. október 1989
I
6 Tíminm
Tímitm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
_____Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Fréttastjórar:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
Indriði G. Þorsteinsson ábm.
IngvarGíslason
OddurÓlafsson
Birgir Guðmundsson
Eggert Skúlason
SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar
686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot:
Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f.
Frá og með 1. ágúst hækkar:
Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Alþingi
Alþingi hefur verið sett. Samkvæmt venju tók
þingið til starfa 10. október eftir u.þ.b. fimm mánaða
sumarhlé.
Með þingi því sem nú er að hefjast er þriðja þingár
kjörtímabilsins gengið í garð. Það minnir á að
kosningar til Alþingis geta í síðasta lagi orðið eftir
eitt og hálft ár, eða í apríl 1991.
Líðandi kjörtímabil hefur verið viðburðaríkur
tími í íslenskum stjórnmálum. Upphaf þess bar
einkenni klofnings- og sérframboða í alþingiskosn-
ingunum í apríl 1987 og gerbreyttra valdahlutfalla í
þinginu. Stjórnarmyndun var erfið og dróst fram
eftir sumri. Að lokum gengu þrír flokkar, Sjálfstæð-
isflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur
saman í stjórn undir forsæti Þorsteins Pálssonar
formanns Sjálfstæðisflokksins, sem þá þreytti frum-
raun sína sem forystumaður fjölflokkastjórnar.
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar náði engum tökum
á vanda efnahagslífsins, sem fólst í geigvænlegu
rekstrartapi útflutningsatvinnuveganna með þeim
afleiðingum að vel stæð fyrirtæki sáu eigið fé sitt gufa
upp á stuttum tíma, svo að við blasti gjaldþrot eða
nauðasamningar og meiri eða minni stöðvun atvinnu-
lífsins. Þrátt fyrir mikinn þingstyrk hrökklaðist
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar frá völdum við lítinn
orðstír eftir rúmlega eins árs setu.
Seint í september 1988 myndaði Steingrímur
Hermannsson formaður Framsóknarflokksins ríkis-
stjórn með þátttöku Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags og stuðningi Stefáns
Valgeirssonar. Þessi ríkisstjórn hafði nægan meiri-
hluta til að vera varin vantrausti, en skorti formlegan
meirihluta í neðri deild þingsins og átti undir högg
að sækja hjá stjórnarandstöðu um framgang lög-
gjafarmála. Þrátt fyrir veikan þingstyrk, tókst farsælt
samstarf milli ríkisstjórnar og Alþingis um afgreiðslu
þingmála, þannig að engar umtalsverðar tafir urðu á
þingstörfum.
Þrátt fyrir það mátti hverjum manni vera ljóst, að
svo veikri þingræðislegri stöðu fylgir mikil pólitísk
áhætta. Forsætisráðherra gerði það ævinlega ljóst,
að hann teldi nauðsynlegt að styrkja ríkisstjórnina
og ekki farið dult með að raunhæfast væri að ná
samkomulagi við Borgaraflokkinn í því sambandi.
Viðræður við Borgaraflokkinn um stjórnarmyndun
reyndust að vísu langvinnar, en lauk með því að ný
ríkisstjórn var mynduð með þátttöku hans og hinna
fyrri stjórnarflokka undir forsæti Steingríms.
Aðstæður í þingbyrjun nú eru því allt aðrar en
voru í fyrra. Það er ný ríkisstjórn með tryggan
þingmeirihluta sem sest hefur að völdum.
Þótt fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á
þessu kjörtímabili næði góðum árangri í að rétta við
atvinnulífið eftir gjaldþrotastefnu Sjálfstæðisflokks-
ins, þá eru enn framundan vandasamir tímar í
íslensku efnahagslífi. Það mun því reyna á samheldni
stjórnarflokkanna á komandi mánuðum. Því er ekki
að leyna að víða gætir vantrúar á margflokkastjórnir,
e.t.v. af fræðilegum ástæðum fremur en raunhæfum.
Hitt er víst að núverandi ríkisstjórn hefur í hendi sér
að afsanna að ýmsir og ólíkir flokkar geti ekki unnið
farsællega saman til langframa.
;
llllllllllllllllllll GARRI Pllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllll
Mesta gátan
Ódæmilegum fregnum linnir
ekki austan úr Evrópu. Ungverski
kommúnistaflokkurinn vill leggja
sjálfan sig niður og byggja sig upp
sem jafnaðarmannaflokk með
vestrænu sniði. Um leið og þessi
ákvörðun er tekin er lýst yfir harmi
vegna stjómarfars í landinu á fyrri
áratugum, meðan kommúnista-
flokkur landsins hélt einn um
taumana, og enn lýst yfir að stefnt
skuli að fjölflokkakerfi. Þótt til
þessa hafi ekki komið til blóðugra
átaka í A-Þýskalandi, má hverjum
vera Ijóst að þar má ekki mikið út
af bera. Þar era ijöldafundir og
hvers kyns mótmælaaðgerðir nú
daglegt brauð. í Póllandi hefur
kommúnistaflokkurinn selt völd
sín að miklum hluta í hendur
Samstöðu. Enginn veit hvort nýju
stjórainni þar mun takast miklu
betur en þeirri fyrri að greiða úr
efnhagsöngþveiti í landinu, því það
sem saman hefur verið hamrað á
mörgum áratugum verður ekki
smíðað í nýtt form á svipstundu.
Þetta getur leitt tU vonbrigða og
hugsanlega alvarlegs ágreinings
innan Samstöðu. Nýfengið frelsi er
vandmeðfarið og má mönnum vera
hugsað tU þess er gamlar nýlendur
voru að hljóta sjálfsforræði sitt ein
af annarrí fyrir fáum áratugum:
Víða upphófust þá Uldeilur og í
versta falli borgarastríð, sem sums
staðar er ekki bitið úr nálinni með
enn þann dag í dag.
Hættulegt óþol?
Þessi þróun hefur gert ástandið
þar eystra enn flóknara og óút-
reiknanlegra en var. Sovétríkin,
undir stjóm Gorbatsjovs, hafa til
þessa sýnt að þau vilja umfram allt
forðast að beita heraaðarlegum
þvingunum, sem vissulega er fagn-
aðarefni. En rás atburða í kjölfar
opnunarpólitíkurínnar hefur tekið
nokkuð óvænta stefnu: hinir ný-
legu atburðir einkennast af óþoli
þjóðanna austur þar eftir breyting-
um, og þeirra er krafist strax og
þær eiga að verða miklar.
Þetta hlýtur að valda nokkrum
ugg. Þrátt fyrír öll nýmælin í stefnu
Gorbatsjovs, er ekki öruggt að
hann fái stýrt svo á milli boða í
slíkum ólgusjó að ekki hljótist slys
af. Hann hefur margsinnis lýst því
yfir að breytingarnar sem að er
stefnt skuli eiga sér stað undir
formerkjum sameignarkerfisins.
Ósennilegt er að hann fái ráðið
hvað geríst, ef þetta kerfi virðist
vera að taka að gliðna sundur í
einu fylgiríkjanna á eftir öðru.
Varla verður það liðið í öllum
stöðum. Hér er vissulega ekki
ætlunin að vera með hrakspár, en
óþol almennings í löndum eystra
gæti orðið honum sjálfum (þ.e.
almenningi) skeinuhætt. Það gæti
meir en hugsanlega komið tilslöku-
narstefnu Gorbatsjovs á kné og
ekki að vita hvað þá tæki við.
Hægar breytingar
Eftirtektarverð eru ummæli ung-
verska leikstjórans, István Szabo,
í viðtali í Morgunblaðinu í gær, en
hann er nú staddur hérlendis á
Kvikmyndahátíð. Leikstjórínn
segir er leitað er álits hans á
atburðum í heimalandi hans: „...
Ungverjar hafa allir þunga reynslu
af stjórnmálum. Allar fjölskyldur
hafa orðið fyrir áhrifum af pólitísk-
um breytingum og átt í erfiðleikum
vegna þeirra... Já, ég er fylgjandi
breytingum. Þær skipta miklu
máli. En ég vil ekki hraðar breyt-
ingar. Ég vona að þær verði hægar.
Ég er ekki hrifinn af hröðum
breytingum. Ég hef séð þær nokkr-
ar og veit það leiðir aldrei til góðs“.
Þaraa er skynsamlega mælt af
þegn þjóðar, sem margt hefur mátt
reyna. En verður honum að ósk
sinni? Varla er nein gáta mikils-
verðari í alþjóðamálum nú um
stundir en sú. Umrót og sviptingar,
eins og nú eiga sér stað, eru
sjaldnast vettvangur aðgáts og yfir-
vegunar ráðsettra manna, hvort
sem kvikmyndaleikstjórar eiga í
hlut eða aðrír. Nýjar kynslóðir
spretta úr grasi, sem lítt skeyta um
það sem liðið er og ganga ókvíðnar
á hólm við hvað sem er, og að
vonum er það æskan sem mest
lætur að sér kveða austur þar nú.
Það var einnig æskan, sem ætlaði
að heimta umbætur úr hendi gömlu
mannanna í Peking með svo
hörmulegum afleiðingum. En von-
andi flýgur dreki valdsins í A-Evr-
ópu ekki svo gustmikill úr bæli sínu
og þar gerðist. Garrí
lllllllllllllllllllll VÍTTOGBREITT ................................................................................ ................................... .................... .................. ....................
Gámahverf ið í Gautaborg
I kjölfar samdráttar í efnahags-
lífinu síðustu tvö ár hefur atvinnu-
ástandið hér á landi orðið ótrygg-
ara en verið hefur um langt árabil.
íslendingar hafa talið sér það til
gildis að hér hefur atvinnuleysi
verið óþekkt fyrirbæri um áraraðir
á þeim tíma sem milljónir manna
hafa þolað atvinnuleysi í auðugum
ríkjum Evrópu.
í Noregi, Danmörku og Finn- •
landi er m.a. talsvert atvinnuleysi.
Hins vegar er umtalsverð eftir-
spurn eftir vinnuafli í Svíþjóð.
Norskir og danskir iðnaðarmenn
og verkamenn ieita sér þar atvinnu,
enda auglýsa sænsk fyrirtæki eftir
vinnuafli í þessum löndum og gylla
fyrir fólki þau kjör sem í boði eru.
Hins vegar gengur á ýmsu að
gylliboð sænsku fyrirtækjanna
standist.
„Máske lykken“
f blaðinu NORDEN NU sem
gefið er út af Norrænu félögunum
og hefur á sér þann svip að vera
hagnýtt upplýsingarit um norræn
málefni, er að finna frásagnir af
reynslu danskra iðnaðar- og iðn-
verkamanna sem leitað hafa vinnu
í Svíþjóð. Þar segir að 4000 Danir
hafi á síðustu árum farið yfir Eyr-
arsund að leita sér atvinnu og ■
„máske lykken" í Svíþjóð, - eins
og þar stendur.
A ýmsu hefur þó gengið að
dönsku iðnaðar- og verkamennirn-
ir hafi höndlað hamingju og fyrir-
myndaratlæti hjá Svíum, þótt þeir
fengju vinnu hjá frægum fyrirtækj-
um. Greinarhöfundurinn í NORD-
EN NU segir að hluti þeirra 4000
Dana sem fóru til Svíþjóðar í
atvinnuleit með loforði um góða
vinnu og húsnæði hjá bílaverk-
smiðjum SAAB og Scania hafi
verið holað niður í „store contain-
erbyer" á verksmiðjusvæðum
vinnuveitendanna milli Trollháttan
og Gautaborgar, en „containerby"
merkir eftir orðanna hljóðan
„gámabær“, sem virðist gefa í skyn
að fólkið sé látið búa í einhvers
konar gámaútlítandi svefnskálum,
eða hvað þetta nú er, sem þarna
þykir boðlegt húsnæði. Það fylgir
sögunni að íveruherbergi í „gámi“
hjá SAAB sé sex fermetrar og er
a.m.k. ekki fjölskyldubústaður,
hvað sem öðru líður.
Reynsla Finna
Dönsku starfsmennimir létu
ekki bjóða sér þetta og leituðu
vinnu annars staðar í landinu og
varð betur ágengt hvað aðbúnað
varðar en var í boði hjá SAAB.
Þetta sýnir þó, að fólk sem flyst
milli landa í atvinnuleit, verður að
kynna sér aðstæður áður en það
ræðst í þau stórræði sem slíkir
búferlaflutningar em. í grein
þeirri, sem hér er stuðst við og
birtist í upplýsingablaði Norrænu
félaganna, segir að þetta sé ekki í
fyrsta skipti sem sænsk fyrirtæki
blekki farandverkamenn með gylli-
boðum um húsnæði. Út á slík boð
tóku Finnar að streyma tugþúsund-
um saman í upphafi áttunda ára-
tugarins, en urðu reynslunni ríkari,
því að húsnæðisloforðin voru
svindl og svik, þegar til átti að
taka. Úr þessu var ekki bætt fyrr
en yfirvöld gripu í taumana og
skuldbundu sig með samningi til að
tryggja finnskum innflytjendum
mannsæmandi aðbúnað. Samskon-
ar samningur mun nú hafa verið
gerður milli danskra og sænskra
aðila, og áttu Svíar raunar frum-
kvæði að gerð hans, að sagt er.
Trúgimi og hvatvísi
Skylt er að vara við því að leggja
meira í svona frásagnir en í þeim
stendur. En af því að íslenskt fólk
hefur undanfama mánuði verið að
búa sig til atvinnuleitar í Svíþjóð -
af hvaða ástæðum sem það kann að
vera - þá sýnist allur varinn góður
að trúa ekki öllu sem kann að
standa í auglýsingum frá sænskum
atvinnurekendum um kjörin sem í
boði em. Áhættan af illa undirbún-
um búferlaflutningum milli landa
er meiri en svo að þar megi trúgimi
og hvatvísi ráða.
I.G.