Tíminn - 11.10.1989, Side 10

Tíminn - 11.10.1989, Side 10
10 Tíminn Miðvikudagur 11. október 1989 JOi Akranes Fjármál og f ramkvæmdir bæjarsjóðs Akraness verður fundarefni á almennum fundi sem haldinn verður mánudaginn 16. október kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut. Gísli Gíslason bæjarstjóri kynnir fundarefnið. Framsóknarfélögin. Félag framsóknar- kvenna í Reykjavík fer í ferðalag undir leiðsögn Sigrúnar Magnús- dóttur, borgarfulltrúa, sunnudaginn 15. októ- ber kl. 13.30 frá Umferðarmiðstöðinni í Fteykjavík. Við byrjum á að heimsækja Vatns- veitu Reykjavíkur (Gvendarbrunna). Förum svo að Nesjavöllum og að Úlfljótsvatni í Félagsmiðstöð Reykjavíkurborgar. Þar segir Sigrún Magnúsdóttir okkur frá ferð sinni til Moskvu. Farið verður heim um Þingvelli. Góðfúslega látið vita um þátttöku fimmtudaginn 22. október milli kl. 16 og 18 í síma 24480. Mætið vel. Stjórnin. Hafnarfjörður Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna verður haldinn fimmtu- daginn 12. október kl. 20.30, að Hverfisgötu 25. Venjuleg aðalfundarstörf. Inntaka nýrra félaga. Önnur mál. Stjórnin Hafnarfjörður Aðalfundur Framsóknarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn mánu- daginn 16. okt. kl. 20.30 að Hverfisgötu 25. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Aðalfundur Framsóknarfélags Garðabæjar Boðað er til aðalfundar í Framsóknarfélagi Garðabæjar mánudaginn 23. október n.k. kl. 20.30 að Goðatúni 2. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Mætum öll! Stjórnin. Reykjanes Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s. 43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19. K.F.R. Norðurland vestra Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi vestra verður haldiö í félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28. og 29. október n.k. Dagskrá auglýst síðar. Stjórn KFNV. Kópavogur - Opið hús Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl. 17.30 til 19.00. Gísli Gíslason t Þökkum vinarhug og hlýjar kveðjur við andlát og jarðarför Rósu Þorsteinsdóttur frá Baldursheimi Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Húsavíkur. Ingibjörg, Þóra, Vilborg Friðjónsdætur og fjölskyldur t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, fósturtöður, tengdaföður og afa Steinbjörns Jónssonar frá Syðri-Völlum Lækjarseli 7 Álfhildur Steinbjörnsdóttir Sverrir Sigurjónsson Samúel Ó. Steinbjörnsson Guðrún Pálsdóttir Anna Steinbjörnsdóttir GísliSævar Sigurður Steinbjörnsson Elín Einarsdóttir Pétur H. Guðmundsson Magnea Ásmundsdóttir Steinbjörn Björnsson og barnabörn dagbók !!!!!!!llllllllllllll!lll!llll!!!!!lll Heyrnar- og talmeinastöð: Móttaka í Vestmannaeyjum Móttaka verður á vegum Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands í Heilsugæslu- stöðinni í Vestmannaeyjum dagana 21. og 22. október 1989. l’ar fer fram greining heyrnar- og talmeina og úthlutun heyrnartækja. Sömu daga, að lokinni móttöku Heyrn- ar- og talmeinastöðvarinnar, verður al- menn lækningamóttaka sérfræðings í háls-, nef- og eyrnalækningum. I'ekið er á móti viðtalsbeiðnum í Heilsugæslustöðinni í Vestmannaeyjum. Ameríska bókasafnið - lengdur opnunartími Opnunartími Ameríska bókasafnsins að Neshaga 16, Reykjavík, var lengdur þann 1. október s.l. Safnið er nú opið kl.11:30-18:00 alla virka daga, eða klukkutíma lengur en verið hefur í sumar. „Hlutverk Ameríska bókasafnsins er fyrst og fremst að veita íslenskum al- menningi aðgang að hvers kyns upplýs- ingum um Bandaríkin. Safnið telur 8000 titla, sem spanna félagsvísindi, stjórnmál, utanríkismál, bókmenntir, listir, efna- hagsmál, ferðalög og sögu, svo eitthvað sé nefnt. Einnig eru á boðstólum banda- rísk dagblöð, fjölbreytt úrval tímarita (um 140 talsins) og myndbandasafn sem telur 500 eintök. Allir eru velkomnir að nýta sér þá þjónustu sem safnið hefur upp á að bjóða,“ segir í fréttatilkynningu frá Ameríska bókasafninu. Ráðstefna um málefni aldraðra Öldrunarráð íslands gengst fyrir ráð- stefnu föstudaginn 13. október kl. 13:00 í Borgartúni 6. Fjallað verður um ný lög um málefni aldraðra. Framsögumenn verða frá Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytinu og Pétur Sigurðsson forstjóri. Einnig verður fjallað um efnið: Að deyja með reisn. Vandamál sem tengjast virkri læknisþjónustu þegar ekki verður séð að hún beri árangur. Framsögumenn: Dr. Pálmi Jónsson Iæknir og sr. Ólafur Oddur Jónsson. Námsstefnustjóri: Gunn- hildur Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri. Hal Igrí mskirkja - Starf aldraðra ( vetur verður leikfimi á þriðjudögum kl. 12:00 og hefst hún í dag. Einnig verður leikfimi á föstudögum k. 10:00 undir lciðsögn Jóhönnu Sigríðar Sigurðardóttur sjúkraþjálfara. Fót-, hár- og handsnyrting verður sömu daga. Tekið er á móti pöntunum á þriðjudögum og föstudögum eftir kl. 13:00 í síma kirkjunnar 10745. Sýningar á Kjarvalsstöðum í vestursal Kjarvalsstaöa stendur yfir sýning á verkum eftir ERRÓ. í austursal sýnir Stefán Axel Valdi- marsson 9 stór málverk, unnin meö acrýl á striga. Báðum sýningunum lýkur 22. október. Safniö er opið daglega kl. 11:00-22:00. Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag íslands: DAGUR FATLAÐRA á föstudag Landssamtökin Þroskahjálp og Ör- yrkjabandalag (slands hafa ákveðið að efna til Dags fatlaðra á íslandi föstud. 13. . október. Lagt verður af stað í kröfugöngu frá Hlemmi kl. 16:00. Gengið verður niður að Alþingishúsi þar sem útifundur hefst kl. 16:30. Ávörp flytja: Ásta B. Þorsteinsdóttir og Arnþór Helgason fyrir hönd samtaka fatlaðra og Ögmundur Jónasson fyrir hönd launþega í landinu. Formönnum stjórnmálaflokkanna er boðið á fundinn. Fundarstjóri verður Sigmundur Guð- bjarnason háskólarektor. Tilgangur aðgerða þessara er að krefj- ast þess að stjórnvöld geri áætlun um lausn húsnæðismála og umönnunar mikið fatlaðs fólks. Digranesprestakall Fyrsti Kirkjufélagsfundur haustsins veröur í safnaöarheimilinu viö Bjarnhóla- stíg fimmtudagskvöld 12. okt. kl. 20:30. Sr. Jón Kr. ísfeld flytur frásöguþátt, Jóhanna Björnsdóttir sýnir myndir. Kaffi- veitingar. Helgistund í umsjá sóknar- prests. Listasafn Einars Jónssonar Listasafn Einars Jónssonar er opið alla laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga kl. 11:00-17:00. Benedikt Gíslason frá Hofteigi Þegar við kveðjum Benedikt Gtslason frá Hofteigi erum við að kveðja einn hinna sterku og stoltu andans höfðingja, sem íslensk al- þýðumenning bændasamfélagsins skapaði. Hann kveður nú meðal hinna síðustu, sem voru að vaxa úr grasi úm aldamótin og mótuðust af bjartsýnni framfaratrú þess tíma. Benedikt fæddist 21. desember 1894 á Egilsstöðum í Vopnafirði. Foreldrar hans voru Jónína Hildur Benediktsdóttir og Gísli Sigurður Helgason. Hann andaðist 1. október s.l. eftir 13 áradvöl á hjúkrunardeild Borgarspítalans á Heilsuverndar- stöðinni við Barónsstíg. Við töluðum margt, tengdafaðir minn og ég þessi löngu veikindaár. Minni hans var óbrigðult til síðustu stundar, og hann sagði mér sitt hvað frá fyrri árum. Hann brá upp mynd- um af leit að fé eftir stórhríðarveður á uppvaxtarárum sínum og harðri lífsbaráttu Vopnfirðinga á fyrstu áratugum aldarinnar. Þegar hann var um nírætt las hann mér fyrir frásögn af sendiför, sem hann fór með kjörkassa eftir alþingiskosning- ar 15. nóvember 1919. Sú sendiför var hvorki stutt né auðveld. Atkvæð- in úr Vopnafirði þurftu að komast suður að Arnheiðarstöðum í Fellum. Ég skrifaði frásögnina orðrétt eins og hann mælti hana af munni fram á fallegu og skilmerkilegu máli, og þurfti þar engu orði að hagga, þegar handritið var sent til prentunar. Ljóðmál lá Benedikt létt á tungu, og einnig í ljóðunum orðar hann hugsun sína skýrt og umbúðalaust eins og sjá má í eftirfarandi vísu. Fingur spila forlaganna furdulega margan brag. Á ævihörpu okkar manna eiga þeir, sem dæmin sanna einræði um óð og lag. Þessi hæfileiki reyndist honum dýrmætur til æviloka, og allt frant í andlátið orti hann rétt kveðin vers sér til hugarhægðar. Skólaganga Benedikts var ekki löng. Hann var í Eiðaskóla 1911- 1913 og í Samvinnuskólanum vetur- inn 1918-1919, en bækur og blöð og skjöl urðu honum drjúg þekkingar- uppspretta á langri lífsleið. Fornbókmenntir og saga þjóðar- innar voru hjartfólgin viðfangsefni. Hann vildi ekki rengja ritaðar heim- ildir, heldur leita skýringa á textum þeirra og komast að niðurstöðu unt hvernig bæri að túlka þá texta. Hann var kunnugur á söguslóðum Hrafn- kelssögu og hélt því fram gagnstætt ríkjandi söguskoðun, að rétt væri þar farið með frásagnir af byggð í Hrafnkelsdal. Nýjasta tæjtni við könnun á landi hefur nú sannað, að þar hafði Benedikt rétt fyrir sér. Benedikt rannsakaði sérstaklega tiltækar heimildir um upphaf Is- landsbyggðar og benti með gildum rökum á, að ekki sé allan sannleik- ann um landnám íslands að finna í íslendingabók og Landnámu. Hann var sjálfstæður í hugsun og fundvís á rök, og skorti ekki dirfsku til að setja fram nýjar kenningar um fyrstu byggð í landinu og uppruna íslenskr- ar fornmenningar. Þessar kenningar setti hann fram í bók sinni íslendu, sem fyrst kom út 1963. Hann var kappsfullur söguskýrandi og hélt sínum kenningum fast fram hvort sem hann átti orðastað við lærða eða leika. Benedikt var afkastamikill rithöf- undur. Hann gaf út Ijóðabók 1947, og lítið vísnasafn kom út 1981, en aðrar bækur hans eru af sagnfræði- legum toga. Ritmennska hans og sögurannsóknir voru þó lengst af aðeins tómstundastarf. Hann var bóndi til fimmtugs, og síðar starfaði hann alllengi hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins. Haustið 1921 kvæntist Benedikt Geirþrúði Bjarnadóttur. Minningu þess sumars hatt hann í fjórum hendingum. Pað ilmaði alla daga og ómaði loftið heitt. Pað er hin sanna saga um sumarið tuttugu og eitt. Með æskumynd af tengdamóður minni í huga skynja ég meira en veðurblíðu Vopnafjarðar að baki þessara vísuorða. Geirþrúður var dóttir Guðrúnar Sigurðardóttur og Bjarna Gíslason- ar, sem bjuggu á Sólmundarhöfða á Akranesi á uppvaxtarárum hennar. Benedikt og Geirþrúður hófu bú- skap á Egilsstöðum í Vopnafirði ,1922. Börnin fæddust eitt af öðru.og urðu alls ellefu. Þrír synir eru látnir og Geirþrúður lést 1978. Vorið 1928 fluttu þau hjónin bú- ferlum að Hofteigi á Jökuldal. Ég minnist frásagna af þeim degi, þegar fjölskyldan hélt yfir fjallveginn milli byggða. Það reyndist 14 tíma lestar- gangur með 5 lítil börn og það sjötta í móðurkviði. Elsta barnið, 6 ára drengur, gat setið á hesti sínum, en búið var um 4 litlar stúlkur í kössum á klyfjahestum. Það þarf mikið þrek í slíka ferð. Hofteigur er stór og mikil jörð, og þar bjó Benedikt vel til ársins 1944. Hann var kappsfullur við vinnu og ætlaðist til þess sama af öðrum. Féð var margt og vænt, og landinu farn- aðist vel. Það þarf því engan að undra þótt Benedikt héldi því fram með þeirri ákefð sem honum var gefin, að sauðkindin og gróðurinn ættu eðlilega samleið í þessu landi. Benedikt tók slíku ástfóstri við þessa jörð að við hana kenndi hann sig síðan. Hofteigur er kirkjustaður, og neðan bæjarins var ferjustaður yfir Jökulsá á Dai. Tvennt fylgdi því búskapnum í Hofteigi, annars vegar það að taka á móti kirkjugestum og veita þeim beina og hinsvegar að ferja ferðamenn yfir Jöklu. Það ferjumannsstarf hefur ekki verið heiglum hent, því að þungur er straumur þessa jökulvatns. Én allt fór það vel. Tómstundir voru fáar á þessunt búskaparárum, en gripið var í bækur og tímarit, hvenær sem færi gafst. Bóndinn, sagan og landið. Þetta þrennt býr í öllum athöfnum Bene- dikts, jafnt ritstörfum sem öðrum verkum. Honum voru kjör bænda nákontin, og hann var frá æsku þátttakandi í framfarasókn þeirra. Hagmæltur maður lýsir Benedikt svo: Góðum málum lagði lið löngum verkahraður. Hofteig kenndur var hann við virtur fræðimaður. Þessi meitluðu vísuorð koma heim og saman við mína mynd af Bene- dikt. Þegar ég kynntist honum, var hann að vísu orðinn sextugur og gekk við staf, en átti ennþá reisn í fasi og hýran svip. Hann átti enn eftir að skrifa margar bækur og greinar, og vinnuþrekið entist hon- um lengi. Um áttrætt fóru kraftar mjög þverrandi, og elliglíman varð honum þung og löng. Nú er þessari erfiðu glímu lokið, og ég vil þakka starfsliði hjúkrunardeildar umönnun hans í þrettán ár, og ég vil þakka Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra vin- áttu og tryggð, sem hann auðsýndi Benedikt til hinsta dags. Mætur maður hefur fengið lang- þráða hvíld. Fri$tir sé met) honum. Adda Bára Sigfúsdóttir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.