Tíminn - 26.10.1989, Page 3
Fimmtudagur 26. október 1989
Tíminn 3
í DAG ERU 70 ÁR síðan Halldór Laxness hóf sinn ríthöfundarferil, en þann 26. október 1919 kom út bókina
„Bam náttúrunnar“ eftir Halldór frá Laxnesi. Að þessu tilefni var haldin samkoma í Menntaskólanum Sund
þar sem afmælisins var minnst. í næsta Helgarblaði Tímans verður útkoma „Bams náttúrunnar“ riljuð upp og
greint frá viðtökum manna við bókinni.
Á myndinni era frá vinstrí Þórarinn Friðjónsson útgáfustjóri Vöku-Helgafells, Guðrún Ágústsdóttir
aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Ólafur Ragnarsson framkvæmdastjóri Vöku-Helgafells, Svavar Gestsson
menntamálaráðherra, Einar Laxness sagnfræðingur og nemendur og kennarar í Menntaskólanum við Sund.
— EÓ Timamynd Pjetur
Samningaviðræður hafnar við Sovétmenn:
Búið að salta í
45 þús. tunnur
Búið er að salta í um 45 þúsund
tunnur af þeim um 70 þúsund tunn-
um sem samningar hafa náðst um.
Þessi síld fer til Finnlands, Svíþjóð-
ar, Póllands, Bandaríkjanna og
Kanada.
íslenska samninganefndin fór til
Moskvu til viðræðna sovéska kaup-
endur um síðustu helgi og hófust
viðræður á mánudag. Sovéska samn-
inganefndin hafði þá fengið gjald-
eyrisheimild til saltsíldarkaupa, en í
gær var ekki ljóst á hvaða stigi
viðræðumar vom, en vonast er til að
samningar takist í þessari lotu.
í gær var mest er búið að salta í
Grindavík eða í 7200 tunnur, á
Fáskrúðsfirði var búið að salta í 6200
tunnur, á Vopnafirði var búið að
salta í 6000 tunnur og á Eskifirði var
búið að salta í 5600 tunnur. Alls er
farið að salta á 38 plönum frá
Akranesi til Vopnafjarðar. - ABÓ
Frávísun hafnað
Sakadómur Reykjavíkur hafnaði
í gærmorgun frávísunarkröfu fimm
verjenda í Hafskipsmálinu. Úr-
skurði sakadóms var vísað til Hæsta-
réttar.
Frávísunarkrafa verjendanna
byggðist meðal annars á því að
rannsókn málins væri ábótavant.
Sakadómur féllst á í úrskurði sínum
að betur hefði mátt standa að rann-
sókninni og yfirheyra hina ákærðu
og vitni ítarlegar, auk þess sem
einnig hefði mátt afla frekari gagna.
Sakadómur metur það hins vegar
svo að við meðferð málsins fyrir
dómi megi bæta úr flestu því sem
talið er vera ábótavant við fmmrann-
sóknina. - ABÓ
Stofnfundur nýrra fjölmiðlunarsamtaka
boðaður um helgina:
SAMTÖK UM
KAPALKERFI
Um helgina verður haldinn stofn-
fundur Landssambands kapalkerfa
á íslandi og er samtökunum ætlað að
berjast fyrir ýmsum hagsmunamál-
um tengdum kapalkerfum og mót-
töku sjónvarpsefnis frá gervihnött-
um.
í fréttatilkynningu frá undirbún-
ingsnefnd segir að meðal verkefna
sem bíða samtakanna sé að stuðla að
raunhæfri lagasetningu um móttöku
og dreifingu á sjónvarpsefni frá
gervihnöttum og beita sér fyrir
fræðslu og kynningu á kapalkerfum.
í þessu efni sé mikið verk fyrir
höndum enda hafi lög og reglugerðir
hérlendis ekki fylgt hraðri þróun í
fjölmiðlun eftir og ríki nú þvílíkt
ófremdarástand i þeim efnum að við
svo búið verði ekki iengur unað.
Stofnfundurinn verður haldinn á
Holiday Inn á laugardaginn kemur
og hefst hann kl. 14. Júlfus Sólnes
hagstofuráðherra mun ávarpa fund-
inn og fundarstjóri verður Ingibjörg
Kristinsdóttir á Skagaströnd. - sá
48. Fiskiþing:
Stjórnun fiskveiða er
helsti málaflokkurinn
Fertugasta og áttunda Fiskiþing verður sett næstkomandi
mánudag í húsi Fiskifélagsins, Höfn við Ingólfsstræti. Fyrir
þinginu liggur frumvarp tU laga um stjórnun fiskveiða. Þar
sem um er að ræða langtíma stefnumörkun í þessu
mikilvæga máli, má búast við að umræður Fiskiþings að
þessu sinni markist nokkuð af því.
Aðrir helstu málaflokkar á þing-
inu eru m.a. afkoma sjávarútvegs-
ins, fiskiskipaflotinn, sjóðir sjávar-
útvegsins og verðlagsráð fiskiðnað-
arins.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra mun ávarpa þingið.
Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri SÍF heldur ræðu um
Evrópubandalagið og Þórður
Friðjónsson forstjóri Þjóðhags-
stofnunar talar um gengi krónunn-
ar og sjávarútveginn. Þá munu
Grímur Valdimarsson forstöðu-
maður Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins og Jakob Jakobsson
forstöðumaður Hafrannsókna-
stofnunar flytja erindi.
Rétt til setu á Fiskiþingi hafa 39
fulltrúar sem koma frá landshluta-
samtökum Fiskifélagsins og ölium
helstu hagsmunasamtökum sjávar-
útvegsins, sem einnig eiga aðild að
Fiskifélagi íslands.
Þingið stendur til föstudagsins
þriðja nóvember. - ABÓ
Jónas Ingimundarson leikur með á fyrstu hljómleikum Kammerhljómsveitar Akureyrar:
Kammersveitartónar í íþróttaskemmu
Vetrarstarf Kammerhljómsveitar Akureyrar er hafið fyrir
allnokkru og mun þess sjá stað á fyrstu tónleikum vetrarins
sem verða haldnir í Iþróttaskemmunni þann 29. október n.k.
Fyrirhugað er að haldnir verði
fimm tónleikar á þessu starfsári og
hefur tónleikahald verið skipulagt á
eftirfarandi hátt: Á fyrstu tónleikun-
um verða leikin klassísk verk eftir
Beethoven, Mozart og Haydn. Gest-
ir sækja að þessu sinni hljómsveitina
heim, eins og svo oft áður. Hljóm-
sveitarstjóri verður Oliver J.
Kentish, sem er bæjarbúum að góðu
kunnur frá þeim tíma er hann starf-,
aði hér á Akureyri. Einleikari á
píanó verður Jónas Ingimundarson,
sem varla þarf að kynna fyrir áheyr-
endum. Fluttur verðurpíanókonsert
í C dúr op. 37 eftir Beethoven.
Þennan glæsilega konsert samdi tón-
skáldið á þeim árum sem hann bjó í
Vínarborg og munu án efa fáir vilja
missa af því að heyra Jónas Ingi-
mundarson takast á við svo magn-.
þrungið verk. Hljómsveitin mun að
auki leika forleik að óperunni „Der
Schauspieldirektor", sem einnig var
frumflutt í Vínarborg. Þriðja verkið
á efnisskránni á þessum fyrstu tón-
leikum verður sinfónía nr. 101, „Die
Uhr“, eftir Haydn.
Vetrarstarf Kammerhljómsveitar-
innar verður mjög fjölþætt og fjöl-
breytilegt og ættu allir að geta fundið
þar eitthvað við sitt hæfi. Þann 1.
desember verður á efnisskrá Jóla- og
aðventutónlist. Þar verður fluttur
jólakonsert eftir Corelli og önnur
verk tengd aðventu. Stjómandi á
þeim tónleikum, sem verða haldnir
í Akureyrarkirkju, er Roar Kvam
og einsöngvari verður Margrét Bóas-
dóttir. Hólmfríður Þóroddsdóttir
leikur einleik á óbó og kemur sér-
staklega heim frá London til þess að
leika á þessum tónleikum.
Þriðju tónleikamir verða haldnir í
febrúar. Þá fagnar hljómsveitin
hækkandi sól með því að flytja
Vínartónlist. Á efnisskrá verða m.a.
þrír gamlir Vínardansar - „Liebes-
freud“, „Liebesleid" og „Schöne
Rosmarin". Einnig verða leikin
Strausslög. Stjórnandi er Vaclaw
Lazarz.
í apríl verður efnisskráin helguð
Hafliða Hallgrímssyni og em tón-
verkin, sem flutt verða, ýmist eftir
Hafliða eða valin af honum. Hafliði
Hallgrímsson dvaldist um tíma í
Davíðshúsi hér á Akureyri s.l.
sumar, við samningu tónverka, og
munu áheyrendur væntanlega fá að
njóta þeirra verka hans á tónleikum
hljómsveitarinnar í apríl. Hafliði
verður hljómsveitarstjóri á þessum
tónleikum og einleikari verður Pétur
Jónasson gítarleikari.
í maí verða síðustu tónleikamir á
þessu starfsári. Þá verður ráðist í
konsertuppfærslu á söngleiknum
fræga „My Fair Lady“. Roar Kvam
stjómar þessum tónleikum, en hann
hefur lengst af verið einn af máttar-
stólpum Kammerhljómsveitar Ak-
ureyrar. Á þeim tónleikum koma
fram auk hljómsveitarinnar 50-60
manna kór og 3 einsöngvarar.
Kammerhljómsveit Akureyrar
hefur nú starfað í 3 vetur og vaxið
fiskur um hrygg með hverju ári.
Hana skipa um 40 hljóðfæraleikarar
sem margir starfa við Tónlistarskóla
Akureyrar og Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar. Hljómsveitin hefur auk þess
stundum fengið til liðs við sig hljóð-
færaleikara víðar að á Norðurlandi
og frá Suðurlandi. Einnig hafa þeir
nemendur Tónlistarskóla Akureyr-
ar, sem komnir eru að námslokum,
fengið tækifæri til að leika með
hljómsveitinni. Því miður hefur
hljómsveitin enn sem komið er sjald-
an leikið utan heimabyggðar og er
það kostnaðarhliðin sem valdið hef-
ur þar mestu um og svo einnig það
að hljóðfæraleikarar eru flestir
bundnir allan veturinn við kennslu.
Aðrir landsmenn hafa þó ekki farið
varhluta af flutningi hljómsveitar-
innar því Ríkisútvarpið hefur tekið
upp næstum alla tónleikana og út-
varpað síðar. En vonir standa til að
Kammerhljómsveit Akureyrar geti
heimsótt aðra landshluta til tónleika-
halds, þó ekki sé fyrirsjáanlegt að
það geti orðið á þessu starfsári.
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ!
Frá og með 1. nóvember n.k. falla
niður síðdegisafgreiðslur bankans á
fimmtudögum á eftirtöldum stöðum:
Bankastræti, Háaleitisbraut,
Bíldshöfða, Hafnarfirði, Selfossi
og Sauðárkróki. Afram verður opið á
Suðurlandsbraut 18 og á Akranesi.
$
SAMVINNUBANKIÍSLANDS HF.