Tíminn - 26.10.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 — 686300
RÍKISSÍciP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnorhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 rSAMVINNUBANKINN 1 BYGGÐUM LANDSINS Leigjum út sali fyrir fundi og einkasamkvæmi og aðra mannfagnaði PÓSTFAX TÍMANS 687691
Tímiiin
FIMMTUDAGUR 26. OKTOBER 1989
Fyrstu tvær reglugerðirnar með virðisaukaskattslögunum gefnar út í gær:
Fjöldi reglugerða um
virðisauka á leiðinni
Fyrstu tvær reglugerðirnar við lög um virðisaukaskatt
sem taka á gildi um næstu áramót voru gefnar út af
fjármálaráðherra í gær, en mikill fjöldi reglugerða mun
fylgja í kjölfar laganna. Meðal atriða sem stjórnarflokkarn-
ir hafa ekki komið sér saman um eru, endurgreiðsla skatts
af matvörum, upphitun íbúðarhúsnæðis, stangveiðileyfum,
blöðum, tímaritum, bókum og fleiru.
Reglugerðirnar sem út eru
komnar fjalla taka til bókhalds og
tekjuskráningu virðisaukaskatt-
skyldra aðila annars vegar, og hins
vegar endurgreiðslu virðisauka-
skatts til erlendra ferðamanna. í
fyrrnefndu reglugerðinni er um
verulegar breytingar að ræða frá
þeim reglum sem nú gilda um
söluskatt, en hin síðari fylgir að
mestu sömu reglum og gilt hafa.
Vegna þess að skattstofn virðis-
aukaskatts er mun breiðari en
skattstofn söluskatts er nú gerð
krafa um að aðilar sem ekki hafa
borið bókhaldsskyldu þurfi nú að
halda bókhald yfir kaup sín og sölu
á viðrisaukaskattsskyldum vörum
og þjónustu. í þessum hópi eru t.d.
bændur, trillukarlar og aðrir smá-
atvinnurekendur.
Ýmis atriði eru ófrágengin á
milli stjórnarflokkanna varðandi
nánari útfærslu virðisaukans með
reglugerðum. Þar á meðal er
endurgreiðsla skatts af matvörum,
en ákveðið hefur verið að verja
einum milljarði til endurgreiðslu á
þeim vettvangi. Taka þarf ákvörð-
un um hvernig endurgreiðslunni
verður hagað. Valið er um tvær
leiðir, þ.e. að verja allri fjárhæð-
inni til að endurgreiða skatt af
mjólkurvörum og dilkakjöti. Þær
vörur eru háðar verðlagseftirliti og
með því á endurgreiðslan að skila
sér örugglega til neytenda. Annar
kostur er sá endurgreiða virðis-
aukaskatt líka vegna innlends
grænmetis og fisks, en þá er sú
áhætta tekin að lækkunin skili sér
ekki að fullu til neytenda.
Þá þarf að taka afstöðu til þess
hvort veita eigi gjaldfrest á virðis-
aukaskatti vegna innflutnings. í
lögum er heimildarákvæði til að
veita greiðslufrest, en væri því
beitt myndi það hafa veruleg áhrif
á greiðslustöðu ríkissjóðs á fyrsta
ársfjórðungi 1990, en reiknað er
með að innheimta virðisaukaskatts
á því tímabili nemi allt að 1,5
milljarði króna.
Uppi eru hugmyndir um að
endurgreiða virðisaukaskatt af
upphitun íbúðarhúsnæðis, sem er í
dag undanþegin söluskatti. Að
mati fjármálaráðuneytisins kemur
til álita að leggja skatt á allt
prentmál, hvort sem um er að ræða
bók, dagblað, eða tímarit, en nú
gilda þrár mismunandi aðferðir um
skattalega meðferð ritaðs máls,
þar sem dagblöð og tímarit eru
undanþegin söluskatti. Væri sú
ákvörðun tekin að leggja sömu
skattprósentu á allt prentmál, yrði
það sama látið gilda um afnota-
gjöld útvarps og sjónvarps og allir
fjölmiðlar fengju sömu skattalegu
meðferð.
Þá eru uppi hugmyndir um að
sett verði löggjöf þar sem tekið sé
skýrt fram að sala stangveiðileyfa
og leiga á ám og vötnum verði
skattskyld. Það er rökstutt með því
að erfitt yrði að réttlæta skatt-
skyldu matvæla og annarra nauð-
synja, á meðan ákveðin tegund af
tómstundaiðju væri undanþegin.
- ÁG
Frá slysstað við Bústaðaveg í fyrrakvöld.
Haröur árekstur á Bústaðavegi:
Tímamynd Pjetur
Þrír á slysadeild
Harður árekstur varð á Bústaða-
vegi, skammt frá Bústaðakirkju um
hálf ellefu í fyrrakvöld. Ökumenn
beggja bifreiðanna og farþegi í öðr-
um bíinum voru fluttir á slysadeild.
Slysið vildi þannig til að bifreið
sem ekið var í austur eftir Bústaða-
vegi ók á nýgerða umferðareyju sem
þar er og kastaðist til og yfir á hinn
hluta vegarins og þar á bifreið sem
kom úr gangstæðri átt.
Breytingunni á götunni sem gerð
var nýlega, var ekki lokið þegar
slysið átti sér stað. Meðal annars eru
gömlu yfirborðsmerkingarnar á göt-
unni enn til staðar og í engu samræmi
við þær breytingar sem gerðar hafa
verið. Þá mun götulýsing á þessum
stað vera vera fremur slæm að mati
vegfaranda sem leið átti um götuna,
fyrrgreint kvöld. - ABÓ
Skagafjörður:
Atkvæði greidd um
hreppasameiningu
Næstkomandi laugardag greiða
íbúar í Fells, Hofs og Hofsóshrepp-
um í Skagafjarðarsýslu atkvæði um
hvort þessi sveitarfélög verða sam-
einuð í eitt. Nokkuð er síðan um-
ræða um sameiningu þessara hreppa
hófs þar sem Fellshreppur sem er
fámennastur þessara hreppa hefur
ekki haft 50 íbúa og því Ijóst að
sveitarfélagið yrði að sameinast öðru
samkvæmt ákvæði í núgildandi sveit-
arstjórnarlögum.
Nefnd skipuð tveimur fulltrúum
frá hverjum hreppi hefur unnið að
ýmsum undirbúningi vegna þessa
máls undanfarna mánuði. í síðustu
viku var haldinn fundur á Hofsósi
þar sem íbúum hreppanna var kynnt
ýmislegt varðandi hugsanlega sam-
einingu. Þessi þrjú umræddu sveitar-
félög standa sameiginlega að rekstri
grunnskóla og félagsheimilis á Hofs-
ósi. Einnig eru þau öll hluthafar í
Hraðfrystihúsinu á Hofsósi en frysti-
húsið er langstærsti atvinnuveitandi
á þessu svæði og þar vinnur að
jafnaði talsvert af fólki úr Fells- og
Hofshreppi. Eins og kunnugt er hafa
Hofsóshreppur og Hraðfrystihúsið
átt í verulegum fjárhagserfiðleikum
undanfarið. Nú þykjast menn sjá
fram á að úr málefnum frystihússins
rætist með lánveitingu frá Byggða-
stofnun sem ákveðin var fyrir
skömmu einnig hefur tekist að lækka
skuldir Hofsóshrepps verulega
undanfarna mánuði.Því þykir
ástæða til að kanna hvort vilji er fyrir
að sveitarfélögin verði sameinuð. í
kosningunum eru um 310 manns á
kjörskrá, kosið verður á þremur
stöðum. Ef sameiningin verður sam-
þykkt er reiknað með að hún verði
næsta vor um það leiti sem sveitar-
stjórnarkosningar fara fram. ÖÞ.
Ársþing LH
um helgina
Fertugasta ársþing Lands-
sambands hestamanna verður
haldið á Hótel Örk í Hveragerði
næstkomandi föstudag og laugar-
dag.
Þingið munu sitja 109 fulltrúar
frá 44 hestamannafélögum og
aðalmál þingsins verður staða
hrossaræktarinnar og hvert stefn-
ir í henni. Framsögumenn verða
Ágúst Sigurðsson, Reynir Huga-
son og Þorkell Bjarnason.
Þá verður rætt á þinginu um
næsta landsmót hestamanna sem
haldið verður á Vindheimamel-
um í Skagafirði á komandi sumri
og fjallað verður um Reiðhöllina,
Reiðskólann og fleiri mál.
Alls eru félagar í hestamanna-
félögum innan Landssambands
hestamanna 6494 en' að þinginu
loknu má búast við að þeir verði
eitthvað fleiri því að tvö ný félög
hafa sótt um inngöngu í samband-
ið. -sá