Tíminn - 26.10.1989, Qupperneq 9
Fimmtudagur 26. október 1989
Tíminn 9
FRETTAYFIRLIT
MOSKVA - Námamenn í
þremur kolanámum í Vorkuta,
námabæ ( Síberíu, héldu í
verkfall þrátt fyrir bann stjórn-
valda á verkföllum í kolanám-
um.
AUSTUR-BERLÍN
Egon Krenz leiötogi kommún-
istaflokksins og æðsti maöur
Austur-Þýskalands sagðist
vera reioubúinn að ræða við
stjórnarandstöðuna um um-
bætur í landinu, svo fremi sem
stjórrnarandstæðingarnir virði
stjórnarskránna.
HELSINKI - MikhaN Gor-
batsjof forseti Sovétríkjanna
kom í opinbera heimsókn til
Finnlands ásamt leiðtoga Eist-
lendinga.
JERÚSALEM - Moshe Ar-
ens utanríkisráðherrar ísrael
sagði að Israelar hefðu ekki
samþykkt tillögur Bandaríkja-
manna um viðræður Palest-
ínumanna og ísraela, en sagð-
ist vona að Bandaríkjamenn
samþykktu breytingarhug-
myndir Israela.
KAIRÓ - Palestínumenn,
Egyptar og Bandaríkjamenn
ræða nú saman á símafundum
um friðaráætlun í Miðaustur-
löndum, en talið er að ekki
náist samkomulag um hug-
myndir í tíma.
SAO PAULO - Skriðuföll
grófu fjölda fólks í fátækra-
hverfi Sao Paulo og er talið að
fjöldi manns hafi farist, þar af
mörg börn.
KOLOMBÓ - Lík 24 ungra
manna fundust á reki niöur
Kandy ánna. Höfðu þeir verið
skornir á háls. Þá fundust 10
aðrir látnir. Dauðasveitir ann-
aðhvort eiturlyfjabaróna eða
öfgafullra hægri manna eru
taldir hafa drýgt þessi ódæði.
VILAMOURA - Varnar-
málaráðherra NATO fögnuðu
umbætum þeim er gerðar hafa
verið í Sovétrikjunum og (
Austur-Evrópuríkjunum sum-
um að undanförnu, en beindu
því til sovéskra stjórnvalda að
skera frekar niður í kjarnork-
uvopnabúri sínu.
Hart barist í Kambódíu
Undanfarna daga hefur
verið hart barist í Kambódíu
þar sem skæruliðar reyna allt
sem þeir geta tíl að vinna
sigur á stjórnarhernum og
fella ríkisstjórn Hun Sen.
Stjórnarherinn tók hraust-
lega á móti skæruliðasveitum
Þjóðfrelsisfylkingar Khmera
sem lögðu í fyrradag til at-
lögu við bæinn Svay Chek
sem er í 35 km fjarlægð frá
Iandamærunum að Thai-
landi.
Þar standa yfir harðir bardagar og
hafa skæruliðar heldur farið halloka.
Hins vegar hafa skæruliðar sem
berjast gegn stjóminni í Phnom
Penh náð nokkrum árangri annars
Skæruliðar í Kambódíu gera nú
harðar atlögur að stjórnarhernum.
Gennadí Gerasimov talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins:
RÚSSAR TAKA UPP
SINATRAKENNINGU
Gennadí Gerasímov talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins sagði
í gær að Sovétríkin ynnu nú eftir
„Sinatra-kenningu" hvað varðar
sjálfsákvörðunarrétt ríkja Varsjár-
bandalagsins sem og annarra ríkja.
- Við höfum nú Frank Sinatra
kenningu. Hann syngur frægt lag „I
had it my way“. Samkvæmt því á
hvert ríki að ákveða hvaða veg það
skal ganga, sagði Gerasímov í viðtali
við bandaríska sjónvarpsstöð.
Viðtalið við Gerasímov var tekið
í kjölfar ræðu Eduarde Shévard-
nadze á mánudag þar sem hann
sagði að innrás Sovétríkjanna í Af-
ganistan hefðu verið mistök.
Gerasímov var spurður hvort Sov-
étmenn höfnuðu algerlega hernaðar-
lega íhlutun í ríki Austur-Evrópu.
- Það er á hreinu ... stjórnmála-
kerfi ríkjanna á að vera ákveðin af
almenningi í löndunum, svaraði
Gerasímov.
- En hvað ef kommúnistaflokkum
verður algerlega hafnað?
- Sjáið Pólland. Þar eru ný andlit
á kreiki, svaraði Gerasímov.
staða í landinu undanfarna fimm
daga. Skæruliðar hinna illræmdu
Rauðu Khmera náðu á sunnudaginn
á sitt vald bænum Pailin í suðurhluta
landsins, en sá bær er talin mjög
hernaðarlega mikilvægur. Hafa
Rauðir Khmerar setið um bæinn í
átta mánuði.
Auk skæruliðahreyfinga Þjóð-
frelsisfylkingar Khmera og Rauðra
Khmer berjast skæruliðasveitir sem
styðja Shianouk prins gegn stjórnar-
hemum. Hinir illræmdu Rauðu
Khmerar aðhyllast kommúnisma, en
þeir stjómuðu Kambódíu með ógn-
arstjóm frá árinu 1975 til 1979 þegar
Víetnamar gerðu innrás í Kambódíu
og komu núverandi stjórn á fót. Er
talið að tvær milljónir manna hafi
dáið úr harðræði, vosbúð eða verið
myrtir á tímum Rauðra Khmera.
Hinar skæmliðahreyfingamar tvær
hafna kommúnisma.
Talsmaður skæruliðahers Shian-
ouks skýrði frá því í gær að stjómar-
herinn hefði gert harða stórskota-
liðsárás á smábæinn Thma Pouk
skammt frá Svay Chek, en skæmlið-
ar náðu þeim bæ á vald sitt í síðasta
mánuði.
- Þeirra einu yfirburðir liggja í
stórskotaliðinu. Að öðru leyti
byggja þeir styrk sinn á skriðdrek-
um, en þeir eru í vandræðum með
varahluti og við höfum eldflaugar
gegn skriðdrekunum, sagði talsmað-
urinn.
í raun hafa skæmliðahreyfingarn-
ar barist við stjórnarherinn í Phnom
Penh og herlið Víetnama allar götur
frá árinu 1979. Ástæða þess að
bardagar blossa upp nú er að herlið
Víetnama hefur yfirgefið Kambódíu
og skilið fyrmm leppstjórn sína eftir
til að eiga við skæmliða. Hins vegar
er nokkuð ljóst að engin stríðsaðih
er nægilega sterkur til að vinna
fullnaðarsigur. Því sé eina lausnin
samningar milli hinna fjögurra aðila,
stjómarinnar í Phnom Penh, skæm-
liðahreyfingar Sihanouks, Þjóð-
frelsisfylkingar Khmera og Rauðra
Khmera.
Bandaríkin:
Byssur drepa 11 % barna
Frá Bandaríkjunum berast nú
þær óhuggulegu fréttir að sífellt
fleiri börn deyja af völdum skot-
sára, ýmist vegna voðaskota,
sjálfsvígs, en því miður eru oft
hreinlega myrt. Ellefu af hundr-
aði aUrar dauðsfalla bama og
unglinga yngri en 19 ára árið
1987 voru af völdum skotsára.
- Við emm að missa æskufólk
okkar, ekki einungis vegna sjúk-
dóma og slysa, heldur í síauknu
mæli vegna skotsára og ofbeldis,
sagði Louis Sullivan heilbrigðisráð-
herra Bandaríkjanna í yfirlýsingu í
gær.
Heilbrigðisráðuneytið skráði 3392
böm og unglinga sem fallið höfðu
Eyðni breiðist ört um Irland
Eyðni breiðist hraðar út á írlandi
en annarsstaðar í Evrópu. Þetta
sagði talsmaður Alþjóðu heilbrigðis-
málastofnunarinnar í Dublin.
Tala tilfella í írlandi tvöfaldast
níunda hvem mánuð en til saman-
burðar tvöfaldast talan annað hvert
ár í Bretlandi og Frakklandi tvöfald-
ast talan á tveggja og hálfs árs fresti.
Fimmtíu og tveir hafa dáið úr
alnæmi á írlandi og sagði Flanagan,
heilbrigðismálaráðherra að nú væri
að koma í ljós farsóttarstig sjúk-
dómsins.
„Megin áhyggjur okkur hvað
varðar eyðni er gífurleg fjölgun
eiturlyfjaneytenda í Dublin" sagði
Flanagan á sérstökum fundi um
eyðni í gær. MP/starfskynning
fyrir byssukúlu árið 1987. Um það
bil 1% dauðsfalla eins árs bama er
tengt skotvopnum, en rúmlega 17%
dauðsfalla unglinga em vegna þess
að skotvopn koma við sögu.
í skýrslu heilbrigðisyfirvalda kem-
ur fram að svörtum unglingspiltum
sé einna hættast, en þar em 40%
allrar dauðsfalla tengd skotvopnum.
Til samanburðar eru 16% dauðsfalla
hvítra unglingspilta vegna þessa.
Skýrslan sýnir að á aldrinum eins
til níu ára em helmingur dauðsfall-
anna vegna voðaskota, en helmingur
þeirra er falla fyrir byssukúlum eru
myrtir. Á aldrinum tíu til fjórtán ára
skiptast dauðsföllin nær jafnt milli
sjálfsvíga, morða og voðaskota.
Hins vegar kemur að unglingum
fimmtán ára og eldri eru 48% dauðs-
falla morð, 42% sjálfsvíg og 8%
voðaskot.
Michel Aoun leggur ekki stein í götu friðarsamkomulagsins í Líbanon:
Heitir þinginu fullu öryggi
Þaö ganga nú skyn og skúrír yfir fríðaráætlunina sem
þingmenn múslíma og krístinna manna í Líbanon samþykktu
um síðustu helgi. Mikil óvissa ríkir um það hvort áætlunin
mun ganga upp. Nokkrír stuðningsmenn Michel Aouns
hershöfðingja yfirmanns krístna hluta líbanska hersins og
forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn krístinna hafa hótað að
drepa þingmennina sem gerðu fríðarsamkomulagið í Saudi
Arabíu dirfist þeir að stíga fæti sínum á stræti Beirútborgar.
Þingmennimir hafa tekið þessum býð þeim öllum hingað, ég tryggi
hótunum alvarlega, en Arababanda-
lagið hefur farið fram á það við
þingið að það haldi þingfund í Beirút
7. nóvember. Þar verði friðaráætlun-
in staðfest og kosnir forsetar landsins
og þingsins.
Þó hluti hinna 70 þúsund stuðn-
ingsmanna Aouns sem söfnuðust
saman fyrir utan forsetahöllina fyrr
í þessari viku til að mótmæla friðar-
samkomulaginu hafi nú í hótunum
við þingmenn, þá hefur Aoun gefið
út yfirlýsingu þar sem hann segist
tryggj a öryggi þingsins og þingmann-
anna komi þeir til Beirút.
- Látum þá koma hingað á ný. Ég
öryggi þeirra, sagði Aoun í viðtali
við franska dagblaðið Le Figaro.
Aoun sem hafnað hefur friðar-
samkomulaginu á þeim forsendum
að það tryggi ekki tafarlausa brottför
sýrlenska herliðsins frá Lfbanon,
tók það skýrt fram að hann muni
ekki bjóða sig fram til forsetakjörs.
Þá virtist Aoun vera að linast í
afstöðu sinni til samkomulagsins á
sama tíma og helstu samtök krist-
inna manna í Líbanon lýstu sig
fylgjandi því. Benda ummæli Aouns
til að hann hyggist ekki leggja stein
í götu friðaráætlunarinnar þó hann
sé henni algerlega mótfallinn.
- Ég býð þeim öllum að skýra mál
sitt og ræða það opinberlega, meðal
þeirra sjálfra, lögfræðinga og
blaðamanna. Ég tek á móti þeim
með opnum hug ... Ef þeir verða
sannfærandi, þá hugsaniega munum
við öll samþykkja, sagði Aoun einn-
ig í viðtalinu við Le Figaro.
Þá þykja viðbrögð annarra leið-
toga kristinna manna lofa góðu.
Líbanska fylkingin, sem er sam-
starfssamtök kristinna stjórnmála-
hreyfinga, hafa hvatt kristna menn
til að samþykkja friðaráætlunina.
„Fylkingin hvetur alla leiðtoga og
embættismenn að taka niðurstöðum
friðarsamkomulagsins með sveigjan-
leika til að gera jákvæða hluti sam-
komulagsins sem mest ríkjandi og
draga úr áhrifum hinna neikvæðu“
sagði í yfirlýsingu fylkingarinnar.
Athygli vekur að undir yfirlýsing-
una skrifar Samir Geagea leiðtogi
hinna vopnuðu harðlínusveita „Lí-
banska hersins“, leiðtogi Frjálslynda
þjóðarflokksins og Falangistaflokks-
ins. Því er opinber andstaða krist-
inna manna nær einungis einskorðuð
við Aoun, sem þó hefur linast í
afstöðu sinni.
Þó kristnir menn nái samkomulagi
um að veita friðaráætluninni braut-
argengi eru enn mörg ljón á veginum
þar sem leiðtogar Drúza og Shíta
eru langt frá ánægðir og vilja aukin
völd. Innbyrðis togstreita þeirra og
sunníta gætu því stefnt samkomulag-
inu í voða.
Ekki þykir bæta úr skák að tveir
Shítar féllu í átökum Amalliða og
Hizbollahsamtakanna í Beirút í gær,
en þessar hreyfingar berjast um
yfirráð í samfélagi Shíta í Líbanon.
Þess má geta að nú eru einungis
73 þingmenn á lífi af þeim 99 sem
kjömir vom í síðustu þingkosning-
um, sem haldnar voru árið 1972. Til
að forseti landsins, sem á að vera
kristinn, og forseti þingsins, sem á
að vera sunníti, nái kjör, þurfa
viðkomandi að hljóta atkvæði 49
þingmanna í fyrstu umferð, eða 39
þingmanna í annarrri umferð.