Tíminn - 26.10.1989, Síða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 26. október 1989
DAGBÓK
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag, fimmtudag. Kl. 14:00 frjáls spila-
mennska. Kl. 19:30 félagsvist og kl. 21:00
er dansað.
Göngu-Hrólfur hittist að Nóatúni 17
laugard. 28. október kl. 11:00.
Munið skáldakynninguna um Þorberg
Þórðarson nk. þriðjudag, 31. október kl.
15:00 að Rauðarárstíg 18. Allir velkomn-
ir.
Minningarkort FEB fást á skrifstofu
félagsins að Nóatúni 17, gíróþjónusta.
Síminn er 28812.
Háskólafyrirlestur um þýska
tungu í Austur-Þýskalandi
Dr. Heike Comolle, norrænufræðingur
frá háskólanum í Greifswald í Austur-
Þýskalandi, flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla Islands
fimmtudaginn 26. okt. kl. 17:15 í stofu
103 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Die aktuelle
Entwicklung der deutschen Sprache in
der DDR“ og fjallar um stöðu þýskrar
tungu í Austur-Þýskalandi með sérstöku
tilliti til þess á hversu mismunandi hátt
málið hefur þróast í þýsku ríkjunum
tveimur.
Dr. Comolle er samstarfsmaður dr.
Ernst Walters sem er prófessor í norræn-
um fræðum við háskólann í Greiswald, og
hefur unnið drjúgt að rannsókna- og
útgáfustörfum í sambandi við fræði sín
þar f landi.
Fyrirlesturinn er fluttur á þýsku og er
öllum opinn.
Móðurmálsvikan 23.-27. okt.:
Fyrirlestur í
Heymleysingjaskólanum
1 skólum landsins verður í vikunni
23.-27. okt. efnt til móðurmálsviku, og af
því tilefni verður í Heymleysingjaskólan-
um málræktarátak með sérstakri kynn-
ingu á móðurmáli heymarlausra, - tákn-
máli.
Opinber fyrirlestur verður f Heymleys-
ingjaskólanum fimmtudagskvöldið 26.
okt. kl. 20:30 og nefnist: Hvað er
táknmál?
Allir era velkomnir.
r uv/i\i\vivi ■ Mnr
Framsóknarmenn á Siglufirði
Munið hádegisfund að Hótel Höfn föstudaginn 27. október n.k.
Stjórnln.
Framsóknarvist
Fyrsta Framsóknarvist vetrarins verður í
Danshöliinni Brautarholti 20 (Þórscafé) í
Norðurljósasalnum, sunnudaginn 28. október
n.k. kl. 14.00.
Finnur Ingólfsson aðst.m. heilbrigðisráðherra
flytur stutt ávarp í kaffihléi.
Aðgangseyrir kr. 400.-, kaffiveitingar innifald-
ar.
Framsóknarfélag Reykjavfkur
Aðalfundur F.R.
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur
verður haldinn mánudaginn 30. okt. n.k. að
Nóatúni 21 kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Finnur Ingólfsson mun ræða stjórnmálavið-
horfið.
Stjórnln
Aðalfundur
Framsóknarfélags
Húsavíkur
verður haldinn í Félagsheimili
Húsavíkur miðvikudaginn 1.
nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venuleg aðalfundarstörf
2. Inntaka nýrra félaga
3. önnur mál.
Á fundinn mæta Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingismaður.
Fjölmennum.
Stjórnin.
Árnesingar
Þriggjakvölda félagsvist Framsóknarfélags Árnessýslu, verður fram
haldið föstudaginn 27. október að Félagslundi kl. 21.00 og lýkur
föstudaginn 10. nóvember að Borg. Aðalvinningur: Utanlandsferð
fyrir 2 auk veglegra kvöldverðlauna. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Borgfirðingar - Nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu, Borgarnesi föstudaginn 27.
október n.k. kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Norðurland vestra
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi vestra verður haldið
í félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28. og 29. október n.k. Dagskrá
auglýst síðar.
Stjórn KFNV.
Kópavogur - Opið hús
Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl.
17.30 til 19.00.
Gu&mundur JóhannesGeir
Bjarnason Sigurgeirsson
heiibrigðlsráðherra alþingismaður
Flnnur Ingólfsson
Flnnur Ingólfsson
Fræðslufundur Náttúru-
lækningafélags Hafnarfjarðar
Náttúmlækningafélag Hafnarfjarðar
heldur fræðslufund f Góðtemplarahúsinu
í Hafnarfirði fimmtudaginn 27. október
kl. 20:00.
Hallgrímur Magnússon læknir flytur
fyrirlestur um náttúmlækningar.
Fundurinn er öllum opinn sem áhuga
hafa.
Fundur Kvenfélags Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs heldur félagsfund
fimmtudaginn 26. okt. í Félagsheimili
bæjarins. Ingólfur Sveinsson læknir fiytur
erindi um streitusjúkdóma. Mætum vel.
Kaffisala og basar
Kvenfélags Neskirkju
Kvenfélag Neskirkju verður með kaffi-
sölu og basar í safnaðarheimili kirkjunnar
sunnudaginn 29. okt. eftir messu.
Tekið er á móti basarmunum og kökum
á laugardag milli kl. 13:00 og 17:00 (kl.
1-5) og fyrir hádegi á sunnudag.
Námsstefna um
fagvitund kennara:
Eru kennarar fagmenn?
Skólamálanefnd Hins íslenska kenn-
arafélags gengst fyrir námsstefnu um
fagvitund kennara, laugardaginn 28. okt-
óber, í Hafnarborg, Hafnarfirði. Náms-
stefnan ber yfirskriftina „Em kennarar
fagmenn?" Aðalfyrirlesari námsstefn-
unnar er Dr. Wolfgang Edelstein, en auk
hans munu 4 kennarar flytja stutt erindi
um fagmennsku við kennslu einstakra
greinaj Sigríður Hlíðar,stærðfræði, Haf-
dís Ingvarsdóttir, erlend tungumál,
Heimir Pálsson, móðurmál og Herdís
Oddsdóttir, tónmenntir.
Flutt verða stutt tónlistaratriði: Kór
Öldutúnsskóla mun syngja og félagar úr
kór Flensborgarskóla syngja við undir-
leik.
Námsstefnan hefst kl. 09:30 og er
öllum opin. Þeir sem hyggjast taka þátt í
námsstefnunni em beðnir um að skrá sig
á skrifstofu HÍK í síma 31117, í síðasta
lagi á fimmtudag.
Ríkey sýnir í Gamla Lundi
á Akureyri
Fimmtudaginn 26. október kl. 18:00
opnar Ríkey Ingimundardóttir myndlist-
armaður sýningu á verkum sínum í Gamla
Lundi.
Á sýningunni verða postulínsmyndir,
málverk, skúlptúrar og fleira.
Sýningin verður opin kl. 14:00-kl. 23:00
og stendur fram á sunnudagskvöld.
Ríkey útskrifaðist úr höggmyndadeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1983.
og stundaði síðan keramiknám f 3 1/2 ár
við sama skóla. Hún hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í samsýning-
um, bæði hér heima og erlendis.
Leikfélag Reykjavíkur
Ljós heimsins á Litla sviði á föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld. Leikgerð
Kjartan Ragnarsson, leikmynd og bún-
ingar Grétar Reynisson, lýsing Egill Örn
Árnason, sönglög Jón Ásgeirsson, tónlist-
arstjórn Jóhann G. Jóhannsson. Leik-
stjóri er Kjartan Ragnarsson.
I helstu hlutverkum eru: Helgi
Bjömsson, Guðmundur Ólafsson, Mar-
grét Ólafsdóttir, Orri Hugi Ágústsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður Karls-
son og Sverrir Páll Guðnason.
Höll sumariandsins á Stóra sviði á
föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld. Leikgerð Kjartan Ragnarsson,
leikmynd Steinþór Sigurðsson, búningar
Guðrún S. Haraldsdóttir, sönglög Jón
Ásgeirsson, önnur tónlist og tónlistar-
stjóm Jóhann G. Jóhannsson, lýsing
Láms Bjömsson og leikstjóri Stefán
Baldursson.
I helstu hlutverkum em: Þór Tuliníus,
Edda Heiðrún Backman, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Kristján Franklín Magnús,
Sigrún Edda Bjömsdóttir og Þorsteinn
Gunnarsson.
Miðasölusími er 680680. Miðasalan er
opin alla daga nema mánudaga kl. 14:00-
20:00.
Þjóðminjasafn íslands
Frá og með 16. sept. til 14. maí verður
safnið opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga kl. 11:00-16:00.
Aðgangur er ókeypis.
Árni Páll sýnir í
GALLERÍ SÆVARS KARLS
Föstudaginn 27. október opnar Ámi
Páll myndlistarsýningu í Gallerí Sævars
Karls, Bankastræti 9.
Ámi Páll er fæddur í Stykkishólmi
1950. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu
f SÚM 1976. Ámi Páll hefur síðan haldið
eina eða fleiri sýningar á ári, einn og með
öðmm, heima og heiman.
Sýningin stendur til 24. nóvember og er
opin á verslunartíma, kl. 09:00-18:00.
Dagsferð F.í. sunnud. 29. okt.
Kl. 13:00 Höskuldarvellir - TröUa-
dyngja. Leiðin liggur suður með sjó þar
til komið er að afleggjaranum til Höskuld-
arvalla hjá Kúagerði. Trölladyngja er lág
hæð austur af Höskuldarvöllum. Létt
gönguferð í fallegu landslagi. Farmiðar
við bíl. (800 kr.) Frítt fyrir böm að 15 ára
aldri.
Næsta myndakvöld verður miðvikud.
8. nóv. í Sóknarsalnum, Skipholti 50A.
Ferðafélag íslands
Sjallinn á Akureyri:
KOMDU í KVÓLD
Föstudaginn 3. nóvember verður dæg-
urlagahátíðin KOMDU I KVÖLD sýnd í
Sjallanum.
Sýning þessi er til heiðurs Jóni Sigurð-
ssyni bankamanni, sem verið hefur í
sviðsljósi íslenskrar dægurlagatónlistar í
fimmtíu ár. Þar koma fram söngvarar svo
sem Ellý Vilhjálms, Þuríður Sigurðar-
dóttir, Pálmi Gunnarsson, Þorvaldur
Halldórsson, Hjördís Geirsdóttir og
Trausti Jónsson, en hann er sonur Jóns
Sigurðssonar.
Kynnir á sýningunni er útvarps- og
sjónvarpsmaðurinn Bjami Dagur
Jónsson.
Hljómsveit Ingimars Eydal sér um
undirleik í sýningunni og Ieikur síðan
fyrir dansi.
Sérstök athygli Norðlendinga og ann-
arra er vakin á tilboðum um helgardvöl á
Hótel Akureyri og skemmtun á Sjallan-
um: Gisting á hótelinu í tvær nætur,
þríréttaður kvöldverður í Sjallanum
ásamt aðgöngumiða að sýningunni og
dansleik kostar „í einum pakka“ aðeins
5000 krónur.
lllllllllllll MINNING .. - '
Guðmundur Richard
Guðmundsson
Guðmundur Richard Guðmunds-
son var til moldar borinn frá
Hvammstangakirkju 25. ágúst sl.
Rikki eins og hann var að jafnaði
kallaður, fæddist að Hnausakoti í
Fremri-Torfustaðahreppi 16. janúar
1912. Foreldrar Rikka, Guðmundur
Stefánsson og kona hans Jónína
Jónsdóttir bjuggu þar skamman
tíma.
Rikki var tekinn í fóstur eins árs
gamall af afa mínum og ömmu,
Bimi Jónssyni og konu hans Helgu
Bjarnadóttur Barkarstöðum.
Þegar faðir minn tók við búi eftir
foreldra sína hér á Barkarstöðum,
Hvammstanga
ólst Rikki upp með okkur systkin-
um, var hann talinn með eins og eitt
af okkur.
Rikki kvæntist Elsu Bjarnadóttur
frá Kirkjuhvammi 7. sept. 1974.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið, Gunnars, Birnu og Rafns.
Rikki og Elsa stofnuðu heimili á
Hvammstanga, var Rikki um tuttugu
ára skeið flutningabílstjóri hjá
Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.
Konu sína missti hann 1975, varð
hann nokkru síðar að flytjast á
sjúkrahúsið á Hvammstanga og
dvaldi þar þegar hann lést.
Ég vil þakka fósturbróður mínum
allar minningarnar, ekki síst þann
styrk er hann sýndi þegar við hjónin
heimsóttum hann á sjúkrahúsið og
hann var hinn sterki þó líkaminn
hrömaði stöðugt.
Ræddi hann þá oft um hestana
sína en hann átti jafnan góða og vel
tamda hesta, sagði þá stundum í
gamni að Pétur þyrfti ekki á sér að
halda, fyrr en þörf væri á að temja
einhverja haldna hesta.
Við hjónin sendum börnum hans,
tengdabörnum og bamabömum
innilegar samúðarkveðjur.
Ragnar Benediktsson.
Skólahöföingi á Laugarvatni:
Fáein viðbótarorð
í fróðlegri grein Páls Lýðssonar í
Tímanum 21. okt. sl., sem hann
skrifaði í tilefni aldarafmælis Bjarna
Bjarnasonar á Laugarvatni, gætir
missagnar, þá hann talar um svo-
nefnda „Skálholtsdeild“ og segir
m.a. „Þessir nemendur luku stúd-
entsprófi utanskóla við Menntaskól-
ann í Reykjavík."
Hið rétta er að nemendur þessarar
deildar héldu burtu frá Laugarvatni
eftir eins vetrar nám í „Skálholts-
deild“ og settust í aðra skóla, sumir
í Menntaskólann í Reykjavík og
lúku þar námi sem reglulegir nem-
endur þess skóla.
Undirritaður var hins vegar í hópi
sex utanskólanemenda frá Laugar-
vatni sem héldu til Reykjavíkur á
vordögum 1952 til þess að þreyta
stúdentspróf í M.R. Auk mín vom
þar þessir nemendur: Ásgeir Svan-
bergsson, Elís Guðnason, Erling
Snævarr Tómasson, Ingibjörg Berg-
þórsdóttir og Teitur Benediktsson.
Við sexmenningarnir höfðum dvalið
við nám á Laugarvatni í framhalds-
deild sem tók við hlutverki „Skál-
holtsdeildar“ þ.e. að ryðja brautina
fyrir stofnun „Menntaskóla í sveit“,
eins og Bjami skólastjóri komst
stundum að orði. Bekkurinn okkar
hafði verið fjölmennur í upphafi en
er leið á námið fóru sumir í aðra
skóla eins og „Skálholtsdeildin“, þar
til við sex vomm ein eftir, ákveðin í
því að hjálpa Bjama skólastjóra til
þess að láta draum hans um mennta-
skóla í sveit rætast. •
17. júní 1952 vomm við sex síðan
útskrifuð stúdentar frá M.R. í fríðri
fylkingu stúdenta skólans. Daginn
eftir héldum við svo til Laugarvatns
þar sem okkur var vel fagnað af
Bjarna skólastjóra og okkur búið
þar kaffisamsæti. Síðan bauð Bjami
okkur í ferðalag um Suðurland. I
minningunni er bjart yfir þessum
dögum, viss áfangi var í höfn og
gleði í huga að hafa verið þátttak-
andi í mikilvægu baráttumáli Bjarna
skólastjóra. Draumur hans um
„Menntaskóla í sveit“ rættist tæpu
ári síðar, þá Menntaskólinn að
Laugarvatni var stofnaður.
Þessu vil ég nú koma á framfæri
um leið og ég minnist Bjama skóla-
stjóra á þessum tímamótum með
virðingu og þökk. Hann var áhrifa-
valdur í mínu lífi, sveitastráks austan
af fjörðum sem ætlaði ekki í lang-
skólanám en tók síðan þátt í því
ásamt góðum kennurum og félögum
á Laugarvatni að veita skólahöfð-
ingjanum Bjarna Bjarnasyni lið, til
þess að „Menntaskóli í sveit“ yrði
meira en draumsýnin ein.
Einar Þ. Þorsteinsson,
Eiðum