Tíminn - 26.10.1989, Qupperneq 17
Fimmtudagur 26. október 1989
Tíminn 17
Aðalfundur Steingrímur
Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna
verður haldinn að Hótel Lind miðvikudaginn 1. nóvember nk. kl. 17.30.
DAGSKRÁ
Kl. 17:30 Setning
Kl. 17.35 Kosning starfsmannafundarins
a) fundarstjóra
b) fundarritara
Kl. 17.40 Skýrslastjórnar
a) formanns
b) gjaldkera
kl. 18:00 Umræðurumskýrslustjórnar
Kl. 18.30 Lagabreytingar
Kl. 19:00 Kvöldverðarhlé
Kl. 19:30 Tillagaumleiðávaliframbjóðendaálistaframsóknar-
manna fyrir borgarstjórnarkosningar 1990
Kl. 20:15 Kosningar
Kl. 21:00 Stjórnmálaviðhorfið.SteingrímurHermannssonfor-
sætisráðherra, formaður Framsóknarflokksins
Kl. 22:30 Önnurmál
Félagar í fulltrúaráðinu eru hvattir til að mæta.
30 þing Kjördæmissambands fram-
sóknarfélaganna á Suðurlandi
á Hótel Selfossi, dagana 3. og 4. nóv. 1989.
Dagskrá: - Föstudagur 3. nóv.
Kl. 20.00 Þingsetning. Kjörnirstarfsmenn þingsins. Skýrslaformanns
K.S.F.S. Skýrsla gjaldkera K.S.F.S. Skýrsla Þjóðólfs.
Umræður um skýrslur og reikninga. Álit kjörbréfanefndar.
Kl. 21.00 Ávörpgesta.
Kl. 21.20 Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra flytur erindi og svarar fyrirspurnum.
Kl. 22.20 Mál lögð fyrir þingið. Nefndastörf.
Laugardagur 4. nóv.
Kl. 9.00 Nefndastörf (framhald)
Kl. 10.00 Atvinnu- og ferðamál. Sigurður Kristjánsson kf.stj., Oddur
Gunnarsson iðnráðgjafi, Paul Richardson, Ferðaþjónustu
bænda, Björn S. Lárusson Selfossi.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Sveitarstjórnarkosningarnar, Ragnheiður Sveinbjörns-
sdóttir Hafnarfirði, Guðmundur Kr. Jónsson Selfossi,
Andrés Sigmundsson Vestmannaeyjum.
Kl. 14.30 Nefndir skila áliti. Umræður. Afgreiðsla mála.
Kl. 16.00 Kosningar.
Kl. 17.00 Þingslit.
Kl. 20.00 Árshátíð K.S.F.S. að Hótel Selfossi.
(Með fyrin/ara um breytingar)
Kjördæmissamband framsóknarfélaganna á Suðurlandi.
Aðalfundur
Framsóknarfélags
Rangæinga
verður haldinn að Hlíðarenda
fimmtudagin 26. október n.k.
kl. 21. Alþingismennirnir Jón
Helgason og Guðni Ágústsson
mæta á fundinn.
Aðalfundur F.U.F. Keflavík
Aðalfundur ungra framsóknarmanna í Keflavlk og nágrenni verður
haldinnaðTjarnargötu 7, Keflavík, laugardaginn 28. okt. n.k. kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa til fulltrúaráðs félaganna í Keflavík.
3. Kosning 9 fulltrúa á kjördæmisþing.
4. Sveitarstjórnarkosningar í maí.
5. önnur mál.
Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti.
F.U.F., Keflavík og nágrenni.
Félagsvist
Vegna annarra sþilakvölda verður áður auglýstum spilakvöldum að
Eyrarvegi 15 frestað til 14. nóv., 21. nóv. og 28. nóv. kl. 20.30.
Kvöldverðlaun og glæsileg heildarverðlaun.
Framsóknarfélag Selfoss.
Vestlendingar
Kjördæmisþingið verður haidið í Hótel Borgarnesi 3. og 4. nóvember.
Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi verður í Hótelinu
föstudagskvöldið 4. nóvember. Nánar auglýst síðar.
Stjórn kjördæmissambandsins
SPEGILL
Höfundur „Babettes
Gæstebud“ með
nýja verðlaunamynd?
- Nýtt par í danskri mynd: Peter Falk (Columbo)
og Kirsten Norholt
í nýlegu dönsku blaöi
mátti sjá bollaleggingar um
það, hvort Danir væru að
eignast enn eina verðlauna-
kvikmynd á heimsmæU-
kvarða. Þá voru tekin mið
af hinum frægu dönsku
myndum: „PeUe Erobrer-
en“, „Pigen i Gyngen“ og
„Babettes Gæstebud“.
Tvær þær síðustu eru eftir
Just Betzer, sem segist vera
nú með þriðju stórmynd
sína á prjónunum.
Jólagleðin endurnýjuð
Þessi nýja mynd Betzers er
reyndar ekki aíveg splunkuný,
heldur ætlar hann að gera nýja
útgáfu af myndinni „Julefrokost-
en“ (Jólagleði á skrifstofunni) sem
hann gerði 1976. Myndin sú var
mjög vinsæl í Danmörku, en Betz-
er segir að þetta efni sé alþjóðlegt.
Það sé svo víða í heiminum, sem
haldin séu „jólapartí" á vinnustöð-
um sem verði söguleg og fólk
sleppi fram af sér beislinu. Nú segir
Just Betzer að hann hafi nóg fjár-
magn til að gera þessu efni góð
skil. Hann ætlar að fá þekktar
stjörnur f myndina. Efst á óskalista
leikstjórans er Peter Falk, sem
Columbo-nafnið hefur fest við eftir
margra ára leik Falks í Columbo-
myndunum. Svo hefur Betzer mik-
inn áhuga á að fá sjálfa Dolly
Parton með í leikinn, - en aðal-
stjaman á þó að vera dönsk.
„Kristen Norholt
verður þriðja heims-
fræga danska leik-
konan,“ segir Betzer
Just Betzer segist vera viss um
að Kristen Norholt verði heims-
fræg þegar hún leiki á móti sjálfum
„Columbo". Hann bætir við:
„Fyrsta fræga leikkonan okkar var
Asta Nielsen. Hún var í þöglu
myndunum og sagði aldrei orð, en
svo kom Gitte Stallone (eða Brig-
itte Nielsen), sem því miður opnaði
munninn. Nú fær danska kyn-
bomban Kristen Norholt tækifærið
og hún bæði sýnir sig og opnar svo
sannarlega munninn!“
Danska kynbomban Kir-
sten Norholt sem leikstjór-
inn segir að öðlist heims-
frægð í nýrri útgáfu af „Ju-
lefrukosten“.
Peter Falk sést hér sem
hinni frægi Columbo, - en
Betzer segir hann verða í
aðalhlutverki Jólagleðinnar
á móti Kirsten Norholt.