Tíminn - 28.10.1989, Side 7
Laugardagur 28. október 1989
Tíminn 7
' ■ ■■
Ví\' vJ
Flóttalest á leið út úr kommúnismanum
en vikið er að orðum forsætis-
ráðherra um þetta efni, er vert
að benda á, að stjómarandstað-
an er komin í einskonar fjöl-
miðlaham; fyrst og fremst þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, og
ætla að hefja sig upp á siðferðis-
predikunum. Það væri góðra
gjalda vert ef siðferðismál
stjómarsinna væru í miklum
ólestri og sýnu meiri ólestri en
gengur og gerist með almenning
í landinu, að ekki sé nú talað um
þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Siðferðisbjarg þeirra er hátt og
gneypt þessa dagana, en líklega
eitthvað sorfið að neðan eins og
gjaman verður um sjávarkletta.
Nýir hættir yfirskoðunarmanna
ríkisreikninga hafa orðið til að
auka fréttir af athöfnum stjóm-
málamanna, einkum ráðherra,
en nú síðast birtist mikil skýrsla
um ferðir og ferðakostnað ráð-
herranna í DV og fylgja kort,
eins og í auglýsingapésum flug-
félaga á borð við Sabena eða
British Airways. Rétt er það að
eylandið hér í norðurhöfum ger-
ir það að verkum, að við þurfum
að ferðast og eru ekki ráðherrar
einir um það. Engar tölur fylgja
um ferðir og ferðakostnað hins
almenna manns, sem mun vera
þó nokkur. Man nú enginn
Spán. Ferðir og ferðakostnaður
ráðherra kemur ekki til af neinni
sérstakri ferðalöngun, heldur er
um að ræða stórfelldar breyting-
meðferð fjölmiðla á stjórnmála-
mönnum að umtalsefni. Áður
ar á samskiptum okkar við aðrar
þjóðir, sem því miður eru stað-
settar sunnan Atlantshafsins
hvort sem yfirskoðunarmönnum
eða DV líkar betur eða ver.
Upplýsingar um ferðakostnað
ráðherra sérstaklega eru því al-
veg út í hött, eins og þær eru
framsettar. Þær eru liður í
stjómarandstöðu og liggja á
lausu vegna þess að ríkisreikn-
ingurinn er endurskoðaður pólit-
ískt, sem sést best á því, að áður
hafa nú ráðherrar ferðast án
þess að gerð væru flugleiðakort
af þeim ferðum.
Hrossavísindi í DV
Það er dýrt að vera íslending-
ur, en óþarfi er að una því að
vera skammaður fyrir það. Þótt
DV sé þannig úr garði gert, að
blaðið heldur að merar fylji fola
og ritstjórinn hefur af því tilefni
skrifað þrjú hundruð blaðsíðna
bók um hross, er samt til fólk,
sem tekur skrif þess alvarlega.
Flugferðakortin eru af sama
toga og hrossavísindi blaðsins.
Áteiknaður flugferðafjöldi er
eflaust réttur. En hvað segir
það? Flestar ferðir skrifast á Jón
Baldvin Hannibalsson, utanrík-
isráðherra. Hann gegnir áríð-
andi embætti í fjölþjóðasamtök-
um. Vill kannski einhver skýra
hvemig hann á að sinna trúnað-
arstöðum sínum bæði sem utan-
ríkisráðherra landsins og sem
yfirmaður fjölþjóðasamtaka án
þess að ferðast. Kannski DV
vilji skýra það samkvæmt kenn-
ingunni um merina og folann.
Frelsi fjölmiðla er ábyrgðar-
hluti. Verst er þó þegar fjölmiðl-
ar taka sig til og byrja að fóðra
almenning á upplýsingum, þar
sem aðeins hálfiir sannleikurinn
er sagður af pólitískum ástæð-
um. Þá er eins gott að staldra við
og hugsa málið. íslenskir ráð-
herrar verða að ferðast í heimi,
þar sem alþjóðleg samvinna er í
brennidepli. Annað er óhugs-
andi. Og eigi að fara að beita
almenningsáliti til að setja ráða-
herrum skorður um ferðalög í
hálfopinbemm eða opinberum
erindum, þá getum við alveg
eins lokað að okkur og hengt á
hurðina: Enginn heima. Tölur
um kostnað og ferðafjölda segja
enga sögu í þessu máli, þótt DV
haldi það og kannski yfirmenn
ríkisreikninga. Það mætti alveg
eins kortleggja í DV hvaðan
þessir yfirmenn erú, sem hafa
svo mikla löngun til að koma
eyðsluorði á núverandi ráð-
herra, að þeir ganga fram fyrir
skjöldu til að tilkynna um ferðir
þeirra og ferðakostnað, eins og
um saknæmt atriði sé að ræða.
Fjölmiðlar í leit
að skúrkum
Síðastliðinn laugardag átti
Tíminn viðtal við Steingrím
Hermannsson um þá mynd, sem
dregin hefur verið upp af stjórn-
málamönnum í fjölmiðlum.
Steingrímur sagði:
„Ég held að fjölmiðlar séu
vægast sagt komnir út á hála
braut í þeim efnum. Eftir dæma-
lausa ræðu Davíðs Oddssonar á
Selfossi er ljóst að Sjálfstæðis-
flokkurinn hyggst heyja stjórn-
málabaráttuna með því að draga
stjómmálin niður í svaðið. Fjöl-
miðlar mega ekki láta „næra“
sig af óvönduðum stjórnmála-
mönnum. Ég hef átt sæti í ríkis-
stjóm í ellefu ár og kynnst á
þeim tíma mjög mörgum mönn-
um í ráðherraembættum. Jú, jú,
við emm ekki á sömu skoðun
um ýms málefni og getum deilt
hart, en ég tel mig geta sagt af
sannfæringu, að ég hef ekki
kynnst neinum manni í ráð-
herraembætti sem er skúrkur,
eins og nú er reynt að sýna
stjómmálamenn, og ekki síst
ráðherra. Þvert á móti hafa
þessir menn verið heiðarlegir og
unnið sitt starf vel. Menn vinná
hér myrkranná á milli, og eins
og komið hefur fram, fyrir lág
laun borið saman við það er
almennt gerist með forystumenn
í þjóðfélaginu. Það er fáránlegt
að halda því fram að ráðherrar
kaupi áfengi í auðgunarskyni.
Ég hef aldrei nokkurn tímann
kynnst því.
Mönnum geta orðið á mistök.
Ef Ríkisendurskoðun telur að
svo sé er það að sjálfsögðu
leiðrétt. Þetta er komið út í
slíkar algerar öfgar, og umræðan
er dregin svo niður í svaðið, að
ef svona heldur áfram þá hlýt ég
að ráðleggja hverjum manni að
forðast þessi störf, sem yrðu
bæði til skaða fyrir hann sjálfan
og hans fjölskyldu. Þótt menn
kasti grjóti úr „glerkúlu" og
þrátt fyrir ótrúlegar árásir á mig,
meðal annars af mönnum, sem
svo klappa manni á bakið við
hátíðleg tækifæri, mun ég ekki
taka þátt í þessum ljóta leik;
ekki láta draga mig niður í
svaðið.“
Það hlýtur að vera umhugs-
unarefni fyrir þá, sem stjórna
fjölmiðlum, að ráðherra, sem
hefur setið í ríkisstjórn í ellefu
ár skulu finna sig knúinn til að
taka þannig til orða um frétta-
flutning af stjórnmálamönnum.
Aðförinni að þeim og ráðherr-
um sérstaklega verður að linna.
Um samráðherra sína segir
Steingrímur, en þeir hafa verið
úr Sjálfstæðisflokki, Alþýðu-
flokki og Alþýðubandalagi, að
þeir hafi verið „heiðarlegir og
unnið starf sitt vel“. Skyldu ekki
þessi orð forsætisráðherra vega
þyngra en gasprið í einstöku
fjölmiðlum?