Tíminn - 28.10.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 28. október 1989
Tíminn 23
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur, Borgarleikhús - Litla
sviðið: UÓS HEIMSINS. Unnið úr fyrsta hluta
Heimsljóss Halldórs Laxness. Leikgerð og leik-
stjórn: Kjartan Ragnarsson. Leikmynd og bún-
ingar: Grétar Reynisson. Tónlistarstjóm. Jó-
hann G. Jóhannsson. Sönglög: Jón Ásgeirsson.
Lýsing: Egill Öm Amason.
Fyrstu orð sem leikgagnrýnandi
setur á blað eftir að Borgarleikhúsið
tekur til starfa geta ekki tjáð annað
en fögnuð yfir þeim miklu tíðindum
í menningarlífi þjóðarinnar. Loksins
er komið leikhús serh fullnægir nú-
tímakröfum umbúnað leikhúsa.
Unnendur leiklistar sjá nú fram á
bjartari tíð með hærri kröfum, því
að svona hús hlýtur að verða til þess
að við förum fram á betri leiklist.
Kannski er það ekki alls kostar
réttmætt, gott hús gerir engan að
meiri listamanni. En samt, hér er
langþráðu marki náð og við óskum
hvert öðru og Leikfélaginu til ham-
ingju.
Það er byrjað á íslenskri klassík
eins og tilheyrir á hátíðarstundu. Að
vísu ekki klassískri dramatík heldur
leikgerð skáldsögu: fyrstu tveir hlut-
ar Heimsljóss eru opnunarverkin.
Segja má að ekki sé teflt á tvær
hættur í byrjun þar sem leikgerðir
skáldsagna Halldórs Laxness hafa
átt vísa góða aðsókn og athygli, svo
er ástsældum skáldsins með þjóðinni
í seinni tíð fyrir að þakka. Telst mér
til að nú séu einungis tvær af helstu
sögum hans sem hvorki hafa komist
upp á svið, í bíó né sjónvarp,
Vefarinn mikli og Gerpla. En
kannski líður að því að við sjáum
Stein Elliða og Þormóð Kolbrúnar-
skáld fklæðast holdi, hver veit. En
Heimsljós hefur fyrr verið fært í
leikbúning þar sem er gerð Eyvindar
Erlendssonar á Húsi skáldsins í
Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum.
Leikgerðir skáldsagna sem við
höfum séð á sviði, bæði Halldórs
Laxness og annarra höfunda, hafa
umfram allt verið eins konar mynda-
Úr „Ljósi heimsins“:
Huginn Ágústsson.
Jakob Þór Einarsson (Sigurður
Breiðfjörð), Helgi Bjömsson (Ljósvíkingurinn), Orri
Ljósm. Guðmundur Ingólfsson.
„Um sólna sundin“
sýningar úr sögunum, og hefur svo
sem oft verið að þessu vikið. Menn
hafa hingað til ekki leyft sér að búa
til sjálfstæð leikverk úr efniviði höf-
undanna, ekki tekið verkin til rót-
tækrar meðferðar handa hinum nýja
listmiðli. Þetta segi ég engan veginn
í álösunar skyni, þótt stundum hafi
maður velt fyrir sér hvað unnt væri
að gera með djarflegri og nærgöng-
ulli meðhöndlun. Alveg er auðvitað
undir hælinn lagt hvort lesendur og
unnendur bókanna kynnu að meta
einhverjar kúnstir með sína gömlu
vini. Ég held einmitt að lýðhylli
margra þesskonar sýninga stafi ekki
síst af því af hvílíkri virðingu og
trúmennsku frumverkin eru þar ein-
att meðhöndluð. Kjartan Ragnars-
son á þarna góðan hlut að máli með
leikgerð Ofvitans sem óralengi gekk
í Iðnó á árunum.
75 ár liðin f rá fæðingu mið-
ilsins Hafsteins Björnssonar
Það er skylda mín, að minnast
góðvinar míns Hafsteins Björnsson-
ar miðils á merkisdegi sem þessum.
Um manngildi Hafsteins þarf ekki
að fjölyrða, hann opnaði með miðils-
starfi sínu fólkinu í landinu nýjan
heim birtu og vonar, nýjar ókunnar
veraldir, fögur æfintýr. Hugur og
hjarta fundargesta lyftust, svo stór-
kostlega sannar voru lýsingar
Runólfs, Vinar, Finnu, Rögnu, þau
voru í helgri þjónustu. Gamlar
minningar og góð kynni voru rifjuð
upp, framtíðarfyrirætlanir voru
lagðar. Fólkið í landinu sem sótti
fundi Hafsteins fann blessunaráhrif.
Þetta hafa margir viðurkennt.
Læknirinn Magnús Jóhannsson hef-
ur rétt mörgum sína máttugu hönd
með Guðs hjálp og gerir enn, svo
undravert er. Hversu mörgum tókst
ekki að sneiða hjá erfiðleikum, er
leitað er til Hafsteins? Leituðu til
Hafsteins með hrygga sál, einmana
og fengu kærleiksríkar móttökur
horfinna ástvina. Miðilsstarfsemi-
Hafsteins Bjömssonar má líkja við
lind, er fólk gat svalað þorsta sínum
og endumærst. Fólk hugleiddi og
hagnýtti sér þessa merkilegu lind, úr
öllum stéttum íslensks þjóðfélags.
Stjómendur Hafsteins gáfu öllum,
sem þyrstir vom í samband við
annan heim, fúslega svör, án mann-
greiningarálits, án þess að krefjast
eða ætlast til þakklætis.
Hafsteinn Bjömsson var einhver
undursamlegasti miðill sem ísland
hefur þekkt, með stórkostlega gáfu.
Hafsteinn Bjömsson var verkfæri
í höndum Guðs, sem er öllum æðri.
í upphafi hvers einasta fundar vom
hugsanir fundargesta látnar beinast
til Guðs. Mikil umhyggja var borin
fyrir hverjum og einum fundargesta,
og mikill undirbúningur stjórnend-
anna hinu megin.
Fundargestir Hafsteins og aðstoð-
armenn sem oft vom tveir, til hægri
og vinstri handar honum, fundu vel
hvað þeir vom bundnir traustum
kærleiksböndum ósýnilegri veröld,
sem yl og birta lagði frá, höfðu
bætandi og hressandi áhrif.
Hafsteinn Bjömsson var mikill
mannkostamaður, og fyrir mann-
kosti sína réttkjörinn til að vísa
öðmm leiðina inn f Paradís, en svo
nefnist næsta tilvemsvið.
Hafsteinn fékk trúmennskuna og
skylduræknina í vöggugjöf, trúmað-
ur af hug og hjarta. Hið ljúfmann-
lega viðmót, alúðleg framkoma, við
hvem sem í hlut átti, hið hispurs-
lausa dagfar hans og yfirlætisleysi,
hvar sem honum var að mæta og
hver sem í hlut átti.
Hafsteinn var Skagfirðingur að
ætt, fæddur 30. október 1914 að
Syðri-Hofdölum. Foreldrar hans
hjónin Ingibjörg Jósafatsdóttir og
Bjöm Skúlason, síðar veghefilsstj. á
Sauðárkrók Benjamínssonar á
Btönduósi. í móðurætt Hafsteins
hefur skyggnigáfan verið arfgeng, í
marga ættliði. Móðir Hafsteins Ing-
ibjörg var sjálf mjög dulræn.
Fullorðnir Skagfirðingar hafa sagt
mér, að sem drengur hafi Hafsteinn
verið óvenjulega yndislegur, falleg-
ur, gáfaður og hvers manns hugljúfi.
í bemsku kom fram að Hafsteini
hafi verið gefin furðuleg Guðsgjöf.
En enginn skildi hann nema hans
góða og göfuga móðir. Fermingar-
vorið fer Hafsteinn sem léttadrengur
til móðurbróður síns Guðmundar að
Hliði í Hjaltadal í Skagafirði og
konu hans Hólmfríðar Jónasdóttur.
Margrét Ólafsdóttir systir Guð-
rúnar húsfreyju á Kossanesi í Vall-
hólmi ömmu Hafsteins kynntist
hann á Hliði. Margrét var tengda-
móðir frú Jóhönnu Linnet, en fyrri
maður Jóhönnu var Jóhann P. Pét-
ursson frá Sjávarborg í Skagafirðj.
Margrét átti staðfastan kærleika
hreina og fagra elsku til þessa frænda
síns. Hafsteinn trúði Margréti í ein-
lægni fyrir sýnum sínum, og orð
hennar bám þess fagurlega vott að
hún skildi hann. Leið Hafsteins lá úr
Skagafirði 1936, að Nesjum í Grafn-
ingi, þar sem hann réðst til merkis-
kvennanna frú Guðrúnar Jónasson
bæjarfulltrúa í Reykjavík og fröken
Gunnþórunnar Halldórsdóttur leik-
konu. Þær sýndu Hafsteini ástríki og
næman skilning, og virtu stórkost-
lega hæfileika hans. Fyrir milligöngu
Hallgríms Jónssonar skólastjóra og
séra Kristins Daníelssonar fyrrv.
forseta sameinaðs Alþingis komst
Hafsteinn í kynni við frú Gíslínu og
Einar H. Kvaran rithöfund, og það
vom þau hjónin sem komu Hafsteini
Bjömssyni til æðri þroska. Það starf
verður aldrei fullmetið af íslenskri
þjóð.
Leiðir okkar Hafsteins lágu saman
fermingarárið mitt, þá bauð hann
mér að vera „aðstoðarmaður" á
miðilsfundum. Hver einn einasti
dagur hjá Hafsteini flutti mér margar
dýrlegar andlegar gjafir, í meira en
tuttugu ár. Þegar ég renni huganum
yfir það, sem mér er dýrmætast af
öllu, fyrir utan að eiga einstaklega
góða og göfuga móður, þá em það
kynni mín af Hafsteini Björnssyni
miðli.’
Hafsteinn andaðist 15. ágúst 1977.
Helgi Sigfússon.
Kjartan hefur farið svipaða leið
að Ljósi heimsins, sýnist mér. Vita-
skuld em Ó. Kárason Ljósvíkingur
og ofvitinn Þórbergur ólík verk. Og
þó, - fjalla ekki bæði um misskilin
séní, skáldmenni sem standa utan
við samfélagið og það vill ekki
kannast við? í báðum tilvikum fer
Kjartan þá leið að skipta aðalpersón-
unni í tvennt, láta tvo leikara fara
með hlutverkið og hafa þá báða á
sviði í senn. f Ofvitanum var þetta
óhjákvæmilegt þar sem frásegjand-
inn og sögupersónan standa í óron-
ískri fjarlægð hvor frá öðrum. Öðru
máli gegnir raunar um Heimsljós.
Eins og allir vita sem lesið hafa er
sterkasti strengurinn í þessu óvið-
jafnanlega skáldverki hin ljóðræna
fegurð þess, sem er dýpst í fyrstu og
síðustu bókinni, þar sem samfélags-
myndin verður á hinn bóginn fyrir-
ferðarmest í annarri og þriðju bók.
En í sjónarmiðju er jafnan Ólafur
Kárason, krossberinn sem sækir sér
huggun og styrk í ríki fegurðar og
skáldskapar. Hversu tekst að skila
þeirri ljóðrænu mannsmynd, á því
veltur gengi og áhrifamáttur leiksýn-
ingar upp úr sögunni.
Þetta tókst ágætlega hjá Kjartani
Ragnarssyni. Hann er anda verksins
svo trúr sem á verður kosið, sýningin
er látlaus og þokkafull. Þegar í
upphafi hrífa voldug orð skáldsins
áhorfandann með sér, - atriði fyrir
atriði situr maður og meðtekur verk-
ið með öllum skilningarvitum.
Stundin fram að hléi var hrein nautn.
Eftir hlé fannst mér slakna á sýning-
unni. Kannski var hún bara of löng,
eins og slíkum verkum hættir raunar
til, því að sem mestu efni verður að
koma fyrir á sviðinu.
Ég hætti mér ekki út í að lýsa
tæknilegri hlið sýningarinnar, en
umgerðin, á hálfkúlu í miðjum saln-
um var stílhrein. - Það hefur verið
fjallað um Ljósvíkinginn í gervi
Krists, Gunnar Kristjánsson samdi
fræðilegt rit um það efni og hefur
gert því skil í útvarpi og á prenti.
Mér virðist Kjartan Ragnarsson taka
verulegt mið af slíkum hugmyndum.
Ólafur er krossberi, og í sviðsmynd-
inni gegnir krossinn miklu hlutverki.
Útlit, gervi og klæðnaður Helga
Björnssonar dregur dám af þessu. f
þessu er fólginn hinn ljóðræni og
dramatíski áhrifamáttur sýningar-
innar. Þjáning Ljósvíkingsins and-
spænis illsku heimsins, skilningsleysi
hans og glópsku, - þetta verður
skýrt í öllumáherslum verksins.
Kjartan gætir þess að láta ekkert
skyggja á þessa mynd, því eru aðrar
persónur en Ólafur dempaðar, gerð
þeirra öll undirseld þeim tilfinninga-
lega kjarna sem sýningin er byggð
utan um; skynjun Ljósvíkingsins
sjálfs.
Þegar maður sér góða sýningu,
vandaða og vel heppnaða, verður
áhuginn á að draga fram einstaka
þætti og einstök hlutverk einatt tak-
markaður. Þá er það heildarmyndin
sem öllu máli skiptir. Helgi Björns-
son og Sverrir Páll Guðnason voru í
hlutverki Ljósvíkings og Litla Óla,
en þann síðarnefnda leikur Orri
Huginn Ágústsson á móti Sverri.
Samleikur þeirra var einkar fallegur
og Sverrir hinn þekkilegasti, þótt
auðvitað væri honum ekki alls kostar
létt að fara með texta Halldórs á
köflum. Helgi nær, við leiðsögn
Kjartans, fallegum og látlausum tök-
um á Ljósvíkingi. Sennilega besta
verk Helga til þessa. í fólkinu á Fæti
undir Fótarfæti eru stólpar úr Iðnó:
Margrét Ólafsdóttir Kamarilla
fóstra, harðstjóri heimilisins, Nasi
og Júst, Sigurður Karlsson og Guð-
mundur Ölafsson. En stjarnan í
þessum hópi er Magnína sem Ólafía
Hrönn Jónsdóttir leikur. Gervi
hennar er nokkuð ýkt og hrikafeng-
ið, en Ólafía lék hlutverkið af slíku
öryggi og nærfærni að aðdáun vakti.
Þarna er stólpa leikkona í uppsigl-
ingu, og best var hún þegar hún
sýndi sorg og einstæðingsskap stúlk-
unnar. - Önnur hlutverk eru minni,
eða hverfa í skugga Magnínu: Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Karítas
húskona, Jana dóttir hennar Bára
Lyngdal Magnúsdóttir. Steindór
Hjörleifsson brá upp fallegri mynd
af einstæðingnum Jósep og Margrét
Ákadóttir var öldungis heimakomin
í hlutverki Jarþrúðar. Örðugra er að
fást við önnur hlutverk, eins og
Sigurðar Breiðfjörðs, Jakob Þór
Einarsson, sem kemur „um sólna
sundin" til Ljósvíkingsins. Þar kom
tæknibúnaður leikhússins að góðum
notum, og reyndar í fleiri atriðum.
Ótaldir eru nokkrir leikendur:
Eyvindur Erlendsson, Reimarskáld,
einkar sannfærandi, Marinó Þor-
steinsson, gamall burðarás hjá Leik-
félagi Akureyrar, leikur prest og
bónda. Bryndís Petra Bragadóttir er
Guðrún á Grænhóli, Erla Ruth
Harðardóttir Þórunn í Kömbum, og
vantar þá nokkur nöfn enn.
Tónlist Jóns Ásgeirssonar hæfði
fyllilega öllum svip sýningarinnar.
Þetta var Ljós heimsins. Næst er
það Höll sumarlandsins, og vart trúi
ég öðru en hinar tvær komi síðar.
Höfuðkostur sýningar eins og þess-
arar er fyrst og fremst sú alúð sem
hún sýnir sögunni, sú smekkvísi og
stílhreina fágun sem hún lýsir. Hún
hvetur mann til að taka sér Heims-
Ijós í hönd enn á ný. Ekki svo lítill
árangur hjá hinum snjalla leikhús-
manni, Kjartani Ragnarssyni. Og
glæsileg byrjun við Listabraut.
Gunnar Stefánsson
t
Alúðarþakkir til þeirra fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall og jarðarför
Margrétar Friðriksdóttur
Hamraborg 14
Guð blessi ykkur öll.
Björn Þórhallsson
Friðrik Þórhallsson
Gunnar Þór Þórhallsson
Guðrún Þórhallsdóttir
Gunnþórunn R. Þórhallsdóttir
Kristveig Þórhallsdóttir
Þorbergur Þórhallsson
Guðbjörg Þórhallsdóttir
ogfjölskyldur
Þórhallur Björnsson
Guðný Jónsdóttir
Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir
Thomas Ludwig
Stefán Örn Stefánsson
Anna Helgadóttir
Jens L. Eriksen
Sigurborg Þórarinsdóttir