Tíminn - 04.11.1989, Síða 2

Tíminn - 04.11.1989, Síða 2
ZTífflTríri Laugardagur 4. nóvember 1989 SJÓNVARPIÐ SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPSSTÖÐVA EVRÓPU 1990 Ríkisútvarpið-Sjónvarp auglýsir hér með eftir sönglagi til þátttöku í Söngvakeppni sjónvarps- stöðva í Evrópu 1990, sem fram fer í Júgóslavíu 5. maí. Undankeppninferfram í Reykjavík í janúar og febrúar. Skilafrestur er til 15. desember 1989 Þátttökuskilyrði: Þátttaka er öllum opin. Laginu skal skila á nótum eða hljóðsnældu. Frumsaminn texti á íslensku skal fylgja. Lagið má ekki taka nema þrjár mínútur í flutningi. Lagið skal ekki hafa komið út á nótum, hljómplötum, snældum eða myndböndum, og það má ekki hafa verið leikið í útvarpi eða sjónvarpi. Nótur, snælda og texti skulu merkt heiti lagsins og dulnefni höfundar. Rétt nafn höfundar, heimilis- fang og símanúmer skulu fylgja með í lokuðu umslagi merktu sama dulnefni. Sendi höfundur fleiri en eitt lag skulu þau send inn, hvert fyrir sig og hvert undir sínu dulnefni. Sjónvarpið leggurtil útsetjara, hljómsveitog hljóm- sveitarstjóra. Ríkisútvarpið áskilur sér einkarétt til flutnings laganna í útvarpi og sjónvarpi meðan á keppninni stendur. Kynning laganna: Dómnefnd velur 12 lög til áframhaldandi þátttöku. Þegar þau hafa verið valin verða umslögin með dulnefnum höfundaopnuðog nöfn þeirra tilkynnt. Lögin 12 verða síðan útsett og flytjendur valdir í samráði við höfunda og kynnt í tveimur sjónvarps- þáttum í lok janúar. Sex lög verða kynnt í hvorum þætti. Áhorfendur í sjónvarpssal velja þrjú lög úr hvorum þætti til áframhaldandi keppni. Úrslit: Þau sex lög sem þannig hafa verið valin verða síðan flutt í beinni útsendingu úrsjónvarpssal, þar sem sigurlagið 1990 verður valið. Verðlaun verða 200 þúsund krónur fyrir sigurlagið og ferð fyrir höfund lags og texta til Júgóslavíu á úrslitakeppnina 5. maí 1990. Séu höfundar tveir eða fleiri skiptast verðlaunin milli þeirra eins og úthlutunarreglur STEFS segja til um. Sigurlagið verður fulltrúi íslenska Sjónvarps- ins í „Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu 1990“. Nánari upplýsingar um tilhögun keppninnar veitir ritari dagskrárstjóra Innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarpsins, sími 693 731, Laugavegi 176, Reykjavík. Utanáskrift: Ríkisútvarpið-sjónvarp, „ Söngvakeppni“, Laugavegi 176, _________ 105 Reykjavík._______________ Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráöherra segist aldrei hafa rætt um skipasmíðar við Júlíus Sólnes ráðherra: „ER FULLFÆR UM AD TÚLKA MÍNAR SK0ÐANIR SJÁLFUR“ „Við Júlíus Sólnes höfum aldrei átt neitt samtal um þetta mál hvorki fyrr né síðar. Þetta mál kom lítillega til umræðu í tengslum við annað mál í ríkisstjórninni fyrir nokkrum dögum. Það er fráleitt að túlka mínar skoðanir með þessum hætti án þess að hafa nokkurn tímann rætt það við mig. Ég tel mig fullfærann um að túlka mínar eigin skoðanir og legg það ekki í vana minn að túlka skoðanir annarra sérstaklega ef ég hef aldrei við þá rætt. Þessi mál verða til umræðu á næst- unni og ég hef oft rætt þessi mál á Alþingi og annars staðar. Þar er hægt að sjá mínar skoðanir á þessu máli,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í tilefni af um- mælum sem Júlíus Sólnes ráðherra lét falla í utandagskrárumræðum um vanda íslensks skipasmíðaiðnaðar. Júlíus hélt því þar fram að Halldór væri þeirrar skoðunar að það svaraði ekki kostnaði að reka íslenskan skipasmíðaiðnað. „Ég tel vera mjög mikilvægt fyrir íslenskan sjávarútveg að það sé nauðsynleg þjónusta við skipin hér í landi. Mér hefur oft fundist að það sé einum of mikið rætt um fiski- skipaflotann í þessu sambandi. Við eigum mikið af kaupskipum og ýmsu öðru sem þjónustað er að miklu leyti erlendis. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að vera almenna reglan að Islendingar eigi að skipta við sín fyrirtæki. Hins vegar er nauðsynlegt fyrir atvinnugrein sem keppir á al- þjóðlegum mörkuðum að fá aðföng sín á því verði sem gildir á þeim mörkuðum. íslenskur sjávarútvegur getur ekki keppt á erlendum mörkuðum með öðrum hætti erlend- is. Ég ítreka það sem ég hef oft áður sagt að hér er ekki aðeins um hagsmunamál skipasmiðanna að ræða heldur jafnframt sjávarútvegs- ins. Verður þetta mál eitthvað rætt í ríkisstjórninni á næstunni? „Meðan Friðrik Sophusson var iðnaðarráðherra var ráðið sérstakt ráðgjafafyrirtæki til að fara ofan í þessi mál. Þetta ráðgjafafyrirtæki ræddi málið m.a. við hin ýmsu ráðuneyti. Þáverandi iðnaðarráð- herra fór þess á leit við mig að ég beitti mér fyrir því að Fiskveiðasjóð- ur íslands tæki þátt í þessu verkefni. Niðurstaðan varð sú að það var gert. Þetta ráðgjafafyrirtæki hefur unnið alllengi að málinu og skilað bráðar- birgðar skýrslu. Ég veit ekki ná- kvæmlega hvar það mál er á vegi statt nú, en við hljótum fyrst og fremst að kalla eftir niðurstöðum þessa fyrirtækis í sambandi við málið. Það verður að byggja á þeim upplýsingum sem þar koma fram. Ég vísa á iðnaðarráðherra í því sambandi. - EÓ Samgönguráðuneytið veitir leyfi til áætlunarflugs innanlands. Ýmis nýmæli: Samkeppni reynd í innanlandsfluai Fulltrúar flugfélaganna koma af fundi samgönguráðherra í gær. Tímamynd: Pétur „Það má segja að þessi leyfisveit- ing marki að nokkru upphaf nýrrar stefnu í flugmálum, að minnsta kosti frá því sem verið hefur um hríð, því < við höfum ákveðið að gera tilraun með samkeppni í innanlandsflug- inu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra í gær. Samgönguráðherra veitti í gær fimm flugfélögum leyfi til áætlunar- flugs innanlands og sagði hann að flugfélögin sem fengið hafa leyfið gætu hafið flug samkvæmt hinu nýja fyrirkomulagi strax um áramótin. Félögin eru Arnarflug innanlands h.f., Ernir h.f. ísafirði, Flugfélag Austurlands h.f. Egilsstöðum, Flugfélag Norðurlands h.f. Akureyri og Flugleiðir h.f. Nú fá bæði Arnarflug og Flugleiðir leyfi til áætlunarflugs frá Reykjavík til Vestmannaeyja og miðast leyfi Amarflugs við allt að tvær ferðir á dag með 19 sæta vélum. Leyfi Arn- arflugs gildir til þriggja ára en fram- lengist sjálfkrafa til ársloka 1997 tilkynni ráðuneytið félaginu ekki um breytingu að tveim og hálfu ári liðnu. Sérleyfi Flugleiða til Húsavíkur gildir til ársloka 1990 en breytist síðan í almennt áætlunarleyfi sem gilda á til 1997. Þá opnast möguleiki til að veita fleiri félögum leyfi til áætlunarflugs milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Sérleyfi til staða þar sem fjöldi farþega er undir 12 þús- undum á ári munu gilda áfram. Þá hefur verið veitt leyfi til nýrra áætlunarleiða og hefur Flugfélag Norðurlands fengið leyfi til að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur, Vest- mannaeyjaogStykkishólms. Þáfékk Flugfélag Austurlands leyfi til áætl- unaflugs frá Egilsstöðum og Höfn til Vestmannaeyja. Samgönguráðuneytið hyggst jafn- framt þessari nýskipan efla eftirlit með flugrekstraraðilum hvort sem er á sviði tækni, öryggis eða þjónustu og hyggst efla loftferðaeftirlitið í þessum tilgangi hvað varðar tækni- og öryggishliðina. Þá verður stofnuð sérstök flugeftirlitsnefnd en í henni verða fulltrúar frá Flugmálastjóm, Verðlagsstofnun. Nefndinni er ætlað að fylgjast með þjónustu flugfélag- anna hvað varðar far- og farmgjöld, tímaáætlanir o.fl. Gert er ráð fyrir að nefndinni verði falið að gera tillögur til ráðherra um úrbætur, áminningar og leyfissviptingar verði ástæða til slíks. -sá Borgardómur um 5. áfanga: Borgið Byggung Borgardómur Reykjavíkur hefur tekið allar kröfur Byggung til greina í máli þeirra gegn byggendum í fimmta áfanga fé- lagsins. Byggendunum var gert að greiða allar kröfur Byggung, auk vaxta og málskostnaðar. Tæpur helmingur þeirra 50 að- ila sem byggðu í 5. áfanga hafa ekki viljað viðurkenna að út- reiknað kostnaðarverð sé ein- göngu vegna kostnaðar við bygg- ingu áfangans og hafa m.a. borið fyrir sig að stjórn Byggung hafi haldið illa á málum og fært fé á milli byggingarflokka. -ABÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.