Tíminn - 04.11.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 04.11.1989, Blaðsíða 14
26 Tímlnn Laugardagur 4. nóvember 1989 llllllllllllllllllllllllllll DAQBÓK Ein af mjndum Veturliða á sýningunni Sýning Veturliða í Listasafni ASÍ Myndlistarsýning málarans Veturliða Gunnarssonar verður opnuð í Listasafni ASl laugardaginn 4. nóv. kl. 15:00. Hann sýnir nú fjölbreytilegar krítarmyndir frá þorpi og strönd. Mottó hans nú í myndsmíðinni eru orð úr „Þorpinu" eftir Jón úr Vör: „Enginn slítur þau bönd sem hann er bundinn heimahögum sfnum... .“ Veturliði er fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð 1926. Hann var við nám í Handíðaskólanum, en þar kenndu þá þeir Kurt Zier og Engilberts. Eftir stríð fór Veturliði til Kaupmannahafnar og var á Konunglega listaháskólanum hjá próf- essorunum Ivarsen og Lundström, cinnig í Graffska skólanum hjá Permild. Hann sótti einkatfma hjá Jóni Stefánssyni og sfðan cinkaskóla ásamt Karli Kvaran hjá Rostrup við Statens Museum for Kunst. Veturliði hefur haldið margar einka- sýningar og tekið þátt í samsýningum og verk hans eru á fjölmörgum listasöfnum. Hann er einn af stofnendum félagsins tslensk Grafík, sem stofnað var 1954. Sýning Veturliða verður opin alla virka daga kl. 16:00-20:00 og um helgar kl. 14:00-20:00. Sýningunni lýkur 19. nóvember nk. Hausttilboð Hótels Borgar Líkur benda til að nú fari hver að verða síðastur að gista hótelið við Austurvöll - Hótel Borg. Af því tilefni er Hótel Borg nú með sérstakt hausttilboð sem gilda mun til áramóta. f samvinnu við Hollywood og Hótel ísland býður Hótel Borg sérstakan helg- arpakka fyrir landsbyggðarfólk: Gisting í tveggja manna herbergi með baði í tvær nætur frá föstudegi til sunnu- dags. Ríkulegur morgunverður. Víkinga- kvöld í Hollywood á föstudagskvöldi. Innifalið er matur og dans. Þá er dansleik- ur á Hótel íslandi. Allt þetta á aðeins kr. 6500 kr. fyrir manninn. Á Hótel Islandi eru dans- og söngsýn- ingar á dagskrá fram eftir hausti. Breyttur opnunartími á Þjóðminjasafni íslands Frá og með 16. sept. til 14. maí verður safnið opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 11:00-16:00. Aðgangur er ókeypis. Strætisvagnar sem stansa við Þjóð- minjasafnið: 5, 6, 7, 13, 14, 16, 100. Guðbjartur Gunnarsson sýnir grafík í Slunkaríki á Isafirði Laugard. 4. nóvemberopnar Guðbjart- ur Gunnarsson sýningu á grafískum myndum í Slunkaríki á Isafirði. Sýningin stendur til sunnudagskvölds 19. nóvem- ber. Myndirnar á sýningunni eru ýmis hrein- ar grafíkmyndir, eða unnar með bland- aðri tækni. Töluverður hluti myndanna er af Vestfjörðum, en þar er Guðbjartur fæddur og upp alinn. Guðbjartur lauk almennu kennaraprófi og prófi í myndmennt og stundaði kennslustörf um árabil. Hann tók há- skólapróf í uppeldis- og fjölmiðlafræðum í Bandarfkjunum og hefur fengist við kvikmyndagerð og fleira í tengslum við fjölmiðla f meira en tvo áratugi. Hann hefur tekið þátt í samsýningu Félags fslenskra myndlistamanna og haldið þrjár einkasýningar, þá stærstu í Listasafni alþýðu í fyrra, en þá seldust á annað hundrað myndir. Myndirnar á sýningunni í Slunkaríki eru allar til sölu. Guðbjartur Gunnarsson verður við- staddur í Slunkarfki þessa fyrstu helgi sýningarinnar. Kristinn G. Jóhannsson Sýning Kristins G. Jóhannsson- ar í FÍM-salnum, Garðastræti 6 Kristinn G. Jóhannsson listmálari opn- ar sýningu í FlM-salnum, Garðastræti 6, laugard. 21. október kl. 16:00. A sýningunni eru 22 ný olíumálverk, sem öll fjalla um landslag og náttúru landsins. Þetta er 17. einkasýning Kristins, en hann sýndi síðast að Kjarvalsstöðum fyrir réttu ár, en nú í haust eru 35 ár liðin síðan hann hélt sfna fyrstu sýningu á Akureyri. Þá hefur hann tekið þátt í fjölda samsýn- inga hér heima og erlendis. Sýningunni lýkur sunnudaginn 5. nó- vember. Sýnishom af basarvöranum á Hrafnistu í Reykjavík. BASAR á Hrafnistu í Reykjavík Á Hrafnistu í Reykjavík hefur verið unnið að undirbúningi á sölu handavinnu. Hér er um að ræða árlega fjáröflun vistfólks. Hver vistmaður fær andvirði þeirra muna sem hann hefur unnið. Þama er um að ræða hvers kyns handavinnu, t.d. ofna borðdregla, stóra og smáa heklaða dúka og rúmteppi, trévörur, handmálaðar silkislæður, tau- þrykkta dúka, litla skinnskó og úrval af prjónavömm. Basarinn verður opinn kl. 13:30-17:00 laugard. 4. nóv. og kl. 10:00-15:00 mánud. 6. nóv. á fjórðu hæð í C-álmu Hrafnistu í Reykjavfk. Margareta „T0SCA“ Havarinen og Collin Hansen halda tónleika Laugardaginn 4. nóv. kl. 14:30 verða á vegum Tónlistarfélagsins tónleikar í ls- lensku óperunni. Þar mun hin finnsk-rúss- neska sópransöngkona Margareta Haver- inen og eiginmaður hennar, Collin Han- sen píanóleikari, flytja lög eftir Brahms, Duparc, Liszt og Tshaikovsky. Fyrir fimm ámm söng Margareta fyrir fullu húsi áheyrenda í Austurbæjarbíói og heillaði áheyrendur. Sl. vetur var sýndur þáttur um söngkonuna, sem vakti athygli og hrifningu. Margareta mun dvelja hér á landi næstu vikur, þvf hún mun syngja titilhlut- verkið í „Tosca“ eftir Puccini, sem ís- lenska óperan og Norska óperan vinna saman að og verður sett upp um miðjan mánuðinn. Miðasala á tónleikana er f íslensku ópemnni. „Verkfall" Eisensteins á kvikmyndasýningu í MÍR Kvikmyndasýnigar MÍR í bíósal félags- ins að Vatnsstíg 10 verða í nóvembermán- uði helgaðar hinum sovéska kvikmynda- leikstjóranum Sergei Eisenstein (1898- 1948). Sýndar verða fjórar af kvikmynd- um hans, sú fyrsta á sunnudaginn 5. nóvember kl. 16:00. Þá verður fyrsta kvikmynd Eisensteins sýnd, „Verkfair (Statska), en myndin var gerð á árinu 1924 og fmmsýnd 1. febr. 1925. Kvikmyndin hlaut verðlaun á lista- hátíð í París sama ár og höfundur hennar varð víðfrægur á svipstundu. Á undan „Verkfalli" verður sýnd stutt heimildarmynd um S. Eisenstein, ævi hans og störf, og em skýringar við hana fluttar á íslensku af Sergei Halipov, háskólakennara í Leningrad. Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR er ókeypis og öllum heimill. Málverkasýning í HAFNARB0RG Viðtalstími L.F.K. Guðrún Alda Harðardóttir, forstöðumaður leik- skólans Marbakka í Kópavogi, verðurtil viðtals að Nóatúni 21, miðvikudaginn 8. nóv. kl. 14-15.30. Sími 91-24480. Stjórn L.F.K. 1 Hafnarborg, menningar- og listastofn- un Hafnarfjarðar stendur nú yfir sýning á verkum í eigu safnsins. Á sýningunni em olíumálverk og vatnslitamyndir eftir m.a. Kjarval, Ásgrím Jónsson, Finn Jónsson, Jón Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur, Jú- líönu Sveinsdóttur, Jón Engilberts og Svein Þórarinsson. Sýningin er opin kl. 14:00-19:00. Sýn- ingunnilýkur mánudaginn 6. nóvember. Basar Kvenfélags Kópavogs Kvenfélag Kópavogs heldur sinn árlega basar í Félagsheimilinu sunnudaginn 12. nóvember kl. 14:00. Munum veitt mót- taka laugard. 11. nóvember kl. 13:00- 17:00 og sunnud. 12. nóv. frá kl. 10:00. MINNING Þórhallur Halldórsson Fæddur 11. ágúst 1922 Dáinn 24. október 1989 Viðlékum okkursaman aðleggogskel, Ijúft var vor og bjart um fjöll og dal. Elskulegur fósturbróðir okkar, Þórhallur Halldórsson, er horfinn yftr móðuna miklu, þá miklu móðu, sem við öll förum yfir þegar stunda- glas okkar er út runnið. Hann hét eftir móðurforeldrum okkar, Halldóri og Þórdísi. Er Hall- dór faðir hans lést, stóð móðir hans ein uppi á afdalakoti með fimm unga syni. Halli var í miðið, tveir yngri og tveir eldri. Foreldrar okkar ákváðu þá að taka Þórhall í fóstur. Hann var þá þriggja og hálfs árs gamall. Brýnt var fyrir okkur systkinum og sérstak- lega fyrir mér, sem þá var yngst, hve erfitt það væri fyrir lítinn dreng að fara frá foreldrum sínum og bræðr- um til ókunnugs fólks. Ég held við höfum skilið það öll. Mér fannst þetta voðalegt, kenndi sárlega í brjósti um hann, ég gat ekki hugsað mér að sofa eina nótt á næsta bæ, þó ég þekkti fólkið þar vel. Því tók ég því með glöðu geði að láta honum eftir beddann minn, er stóð fyrir framan rúm pabba og mömmu. Mér var stungið í bólið hjá Kötu systur. Fljótlega tók þessi litli snáði gleði sína. Föðursystir hans, er kom með honum til okkar, hélt til síns heima. Allt gekk þetta vel, ég fékk ákjósan- legan leikfélaga, því aðeins var tveggja ára aldursmunur á okkur. Við urðum samrýmd og lékum mikið saman, gengum saman í skólann, þegar hann var á Stað, þar sem hópur af gæsum, gassinn var grimmur, kom gapandi á móti okkur. Við stóðum þá þétt saman hlið við hlið og börðum hann með skólatöskunum okkar, þetta ráð gaf prestsfrúin okkur og dugði það vel. Margir snúningar falla til á sveita- bæjum, sem auðvelt er fyrir krakka að annast, þannig að við höfðum alltaf nóg að stússa. Eitt atvik er mér minnisstætt, okkur var sagt að sækja sand niður að á (gólfin voru þá alltaf þvegin með sandi), við bárum hann í poka á bakinu. Ég sé að djúp spor myndast í grassvörðinn og segi: Nú er ég eins þung og hestur. Neihei, segir Halli. En hvað þú ert vitlaus, enginn maður er eins þungur og hestur. Hann var strax mjög glöggur og verkhagur. í þann tíð þekktist lítið að krakkar fengju aðkeypt leik- föng. Við lékum okkur að legg og skel - höfðum búskap með kýr, kindur og hesta. Kúskeljar voru kýr, leggir voru hestar og gimburskeljar, svokallaðar, voru kindur. Nú skilja snenilega fáir svona tal. Krökkunum fjölgaði, tvö bættust í hópinn með þriggja ára millibili, bróðir og systir. Tíminn leið, við uxum öll úr grasi, unnum saman sem unglingar og RUM-fyrirlestur í Kennaraskólahúsinu: Bóm og umhverfi Þriðjudaginn 7. nóv. kl. 16:30 verður haldinn fyrirlestur í Kennaraskólahúsinu við Laufásveg. Það er Þorvaldur Öm Árnason, námstjóri í náttúrufræði, sem flytur fyrirlesturinn á vegum Rannsókna- stofnunar uppeldis- og menntamála. Hann nefnist: Hveraig kennum við böra- um að taka ábyrgð á umhverfinu. Þetta er fjórði fyrirlesturinn á vegum RUM um náttúrufræðikcnnslu í grunn- og framhaldsskólum. Fyrirlestrar og um- ræðufundir sem þeim fylgja hafa opnað umræðu um stöðu og stefnu náttúrufræði- kennslu á báðum skólastigum og tengsl- um hennar milli aldurshópa og skólastiga. Þorvaldur örn mun ( erindi sínu víkja að áhyggjum manna af umhverfismálum, auknum áhuga á umhverfisvemd og hlut- verki skóla og félagasamtaka á þessu sviði. öllum er heimill aðgangur. Yfirlitssýning Jóns Stefánssonar I Listasafni íslands: - Síðasta sýningarhelgi Yfirlitssýningu Jóns Stefánssonar í Listasafni lslands lýkur sunnudaginn 5. nóvember. Því er nú að verða síðasta tækifæri að sjá þessa merku sýningu. Yfir tuttugu þúsund gestir hafa komið á sýn- inguna, en ekki verður hægt að fram- lengja hana. Listasafn fslands er opið alla daga, nema mánudaga, kl. 11:00-17:00 og er veitingastofa safnsins opin á sama tíma. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn um sýn- inguna fer fram í fylgd sérfræðings sunnud. 5. nóvember kl. 15:00. Sunnudagsf erð Útivistar 5. nóv. Kl. 13:00 Miðdalsheiði - Álfaborg. Róleg síðdegisganga fyrir alla fjölskylduna um fagurt vatnasvæði. Brottför frá Umferða- miðstöð- bensínsölu kl. 13:00. Stoppað við Árbæjarsafn. Sunnudagsferð Ferðafélagsins 5. nóv. Kl. 13:00 Kjalaraes - Músarnes Ekið að Brautarholti og gengið þaðan um Músarnes. jÁ leiðinni til baka er gengið á Brautarholtsborg. Létt gönguferð um láglendi. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin farmiðar við bíl (800 kr.) Frítt fyrir böm að 15 ára aldri. Alþýðubandalagið Kópavogi Spilakvöld verður í Þinghóli Hamra- borg 11, mánudaginn 6. nóvember kl. 20.30. Allir velkomnir. Alþýðubandalagið. BASAR Verkakvennafélagsins Framsóknar Árlegur basar Verkakvennafélagsins Framsóknar verður haldinn laugardaginn 11. nóvember kl. 14:00. Félagskonur eru beðnar um að koma munum á skrifstofuna, Skipholti 50A. Kökur era alltaf vinsælar. Allir munir vel þegnir. Listasafn Einars Jónssonar Listasafn Einars Jónssonar er opið alla laugardaga og sunnudaga kl. 13:30 - 16:00. Höggmyndagarðurinn er opinn alla dagakl. 11:00- 17:00. Hafnarfjarðarkirkja Sunnudagaskóli kl. 11:00. Muniö skólabílinn. Messa kl. 14:00. Altaris- ganga. Einsöngur: Elísabet F. Eiríksdótt- ir. Organisti Helgi Bragason. Sr. Gunnþór Ingason. Fríkirkjan í Reykjavík Bamaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðs- þjónusta kl. 14:00. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. fulltfða fólk. Leikimir gleymdust að mestu, þó kom það fyrir að stansað var við hálfhrundar kofatóftir, sem við höfðum byggt sem krakkar. Tímamir breyttust hröðum Pólsk kvikmyndavika í REGNB0GANUM Pólsk kvikmyndavika verður á vegum pólska sendiráðsins og Kvikmyndasjóðs Islands dagana 4.-9. nóvember í Regn- boganum. Kvikmyndavikan hefst með sýningu myndarinnar „Móðir King fjölskyldunn- ar“ í leikstjóm Janusz Zaorski, laugard. 4. nóv. kl. 14:00. Leikstjóri verður við- staddur framsýninguna. Aðrar myndir sem sýndar verða era: Stutt mynd um dráp, leikstjóri Krzyntof Kieslowski, Stutt mynd um ást, sami leikstjóri, New York kl. 4 eftir miðnætti, leikstjóri Krysztof Krauze, Svanasöngur. leikstjóri Robert Glinski og Málefni karla, leikstjóri Jan Kidawa-Blonski. Basar Húsmæðrafélags Reykjavíkur Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur sinn árlega basar sunnud. 5. nóv. kl. 14:00 að Hallveigarstöðum við Túngötu og hefst hann kl. 14:00. Mikið er af alls konar handavinnu, svo sem sokkum, vettlingum, peysum, húfum, jóladúkum og jólasvuntum fyrir böm og fullorðna. Ennfremur prjónuð dýr, (saumaðir, prjónaðir og heklaðir dúkar og margt fleira, eins og lukkupokar fyrir böm. Allur ágóði af sölu basarmuna fer til líknarmála. Leiklistarþing 1989: Þjóðleikhúsið á 10. áratugnum Leiklistarsamband íslands boðar til leiklistarþings, sem haldið verður laugar- daginn 4. nóvember í ráðstefnusal A, annarri hæð í nýbyggingu Hótels Sögu. Yfirskrift þingsins er: Þjóðleikhúsið á tfunda áratugnum. Þingið hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 17:00. Sigrún Valbergsdóttirerform. Leiklist- arsambands íslands. Hún setur þingið, en ávarp flytur Svavar Gestsson. Þá verða flutt erindi fram að matarhléi, en eftir það sitja frammælendur fyrir svörum í pall- borðsumræðum. Þingið er opið öllu áhugafólki um leiklist og leikhús. Skemmtikvöld Barðstrendingafélagsins Barðstrendingafélagið heldur skemmtikvöld í Hreyfilshúsinu í kvöld, laugard. 4. nóv., kl. 20:30. Spilakvöld og dans. Félagsvist Breiðfirðingafélagsins Breiðfirðingafélagið í Reykjavík verð- ur með félagsvist í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, sunnudaginn 5. nóv. og hefst kl. 14:30 stundvíslega. Góð verðlaun. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Frá Félagi eldri borgara Kökubasar og fatamarkaður verður haldinn í Goðheimum, Sigtúni 3, sunnu- daginn 5. nóv. kl. 14:00. Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, sunnudag. Kl. 14:00 frjálst spil og tafl. Kl. 20:00 er dansað. Skáldakynning um Einar H. Kvaran verður haldin þriðjudaginn 7. nóv. kl. 15:00 að Rauðarárstíg 18. Breyttur opnunartími á Þjóðminjasafni íslands Frá og með 16. sept. til 14. maí verður safnið opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 11:00-16:00. Aðgangur er ókeypis. Strætisvagnar sem stansa við Þjóðminj- asaafnið:5, 6, 7, 13, 14, 16, 100. skrefum, hópurinn tvístraðist, við stofnuðum okkar eigin heimili. Þór- hallur kynntist myndarstúlku á Hólmavík, Ragnhildi Friðjónsdótt- ur. Gengu þau í hjónaband og stofnuðu heimili þar. Þau eignuðust mannvænleg böm, sem nú eru upp- komin. Sfðar fluttu þau til Reykja- víkur. Halli settist þá á skólabekk og nam múraraiðn, er hann vann við meðan heilsa hans entist. Að því kom að þrek hans dvínaði og varð hann algjör sjúklingur. Ég sem þetta skrifa heimsótti Þórhall okkar á Grensásdeildina. Við áttum þar saman dýrmæta stund. Hann sagði: „Okkur kom alltaf svo vel saman.“ Þessi orð hans mun ég ætíð muna. hann var mannkostamaður, glögg- ur á flest, prúður alla tíð og hógværð- in sjálf. Við gleðjumst að hann þurfi ekki að þjást lengur og biðjum honum guðsblessunar. Fjölskyldu hans vottum við samúð okkar. Minningin um hann mun ætíð veita okkur ljós og hlýju. Fyrir hönd okkar systkinanna frá Viðivöllum. SJ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.