Tíminn - 04.11.1989, Page 10

Tíminn - 04.11.1989, Page 10
10 Tíminn Laugardagur 4. nóvember 1989 ÚTLÖND FRÉTTAYFIRLIT PRAG - Um 4000 Austur- Þjóðverjar skulfu af kulda þar sem þeir höfðust að í tjöldum í garði sendiráðs Vestur-Þýska- lands í Prag, enda vetur geng- inn í garð á þeim slóðum. Þjóðverjarnir bíða eftir vega- bréfi vestur-þýsku svo þeir komist yfir til Vestur-Þýska- lands. Stjórnin (Vestur-Þýska- landi hefur farið fram á það við Austur-Þjóðverja að þeir flýti sér að utbúa fyrrum þegnum sínum nauðsynleg ferðagögn til að komast til Vestur-Þyska- lands gegnum Austur-Þýska- land. BOGÓTA - öflug sprengia sprakk I bifreið (Boaóta höfuð- borg Kólumbíu og forust fjórir ( sprengingunni, þar af eitt barn. Sprengjutilræðið var það síð- asta f fyrrinótt, en banki, versl- unarmiðstöð og prentsmiðja urðu fyrir slíkum árásum þá nótt. FAIZABAD - Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands hóf opinbera kosningabaráttu sfna og Kongressflokks hans fyrir þingkosningarnar sem fram fara síðar f þessum mánuði með bvf að biola til hins sterka meirihluta Hindúa í landinu. Gandhi ávarpaði 80 þúsund manns og lofaði að endurreisa hið goðsagnarlega konung- dæmi Hinduismans undir guo- inum Ran, ef Kongressflokkur- inn sigrar f kosningunum 22., 24. og 25. nóvember. KAIRÓ - Helstu leiðtogar PLO hófu fundarhöld f Kafró höfuðborg Egyptalands til að ræða hugmyndir Bandaríkja- manna um friðarviðræður Pal- estínumanna og (sraela. Er þetta fyrsti fundur samtakann- af Egyptalandi f 12 ár. I Tel Avivlauk fundi ísraelsku ríkis- stjórnarinnar án þess að stjórn- in tæki afstöðu til tilboðsins. Kontraliðar fallast á viðræðurumfrið Kontraliðar hafa formlega sam- þykkt að hefja friðarviðræður við ríkisstjórn Sandínista, nú eftir að stjómarherinn í Níkaragva undir- býr herför gegn skæruliðum Kontra í kjölfar þess að endi var bundinn á vopnahlé í landinu. Munu viðræðurnar verða haldnar í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð- anna í New York á mánudag og þriðjudag. „Andspyrnuhreyfingin í Níkar- agva hefur sæst á friðarviðræður" sagði í yfirlýsingu Kontraliða í fyrrakvöld. Með þessu hafa Kontr- ar tekið tilboði Daniels Ortega forseta Níkaragva frá því á miðvikudag þegar Sandínistar bundu enda á vopnahlé sem verið hefur landinu undanfarna nítján mánuði. Þrátt fyrir þetta mun stjórnar- herinn í Níkaragva halda áfram hernaðaraðgerðum sínum sem hóf- ust á miðvikudag. Segja Sandínist- ar að þrír Kontraliðar hafi þegar verið felldir og sjö hermenn stjóm- arhersins særst. Kontrar segja hins vegar að undanfama daga hafi tuttugu skæruliðar Kontra verið felldir. Daniel Ortega forseti Níkaragva sagði í viðtali við bandaríska sjón- varpsstöð að herför stjómarhersins myndi stjórnast að einhverju leiti af viðræðunum eftir helgi. Hlut- verk stjórnarhersins nú væri að verja landsmenn fyrir árásum Kontraliða, en síðan yrðu Kontrar eltir uppi og upprættir ef þeir fallast ekki á að leggj a niður vopn. -Já, þetta er mikil sókn, en mikil sókn fyrir friðinn, sagði Ortega um herförina. Auk Sandínista og Kontra taka fulltrúar frá Sameinuðu þjóðunum og frá Samtökum Ameríkuríkja þátt í friðarviðræðunum eftir helgi. Hlutverk fulltrúa Samtaka Amer- íkuríkja fá það hlutverk að sjá um afvopnun Kontraliða í samræmi við samkomulag fimm forseta Mið- Ameríkuríkja. Samkvæmt því samkomulagi verða frjálsar kosn- ingar haldnar í Níkaragva í febrú- armánuði, en einnig áttu Kontra- liðar að afvopnast. Það hefur ekki gengið eftir og hafa hópar Kontra ráðist á bændur og stjómarher- menn í Níkaragva að undanförnu. Þær árásir eru sagðar ástæður her- farar Sandínista gegn Kontrum nú. Sveitir Kontra hafa fengið þá skipun að forðast bardaga í lengstu lög og draga sig til fjalla eða yfir til Hondúras þar sem helstu bæki- stöðvar þeirra em. Kontraliðar og Bandaríkjamenn hafa sakað Sándínista um að hefja . herför sína til að koma í veg fyrir kosningarnar sem fram eiga að fara í febrúar. Daníel Ortega hefur svarað því til ekkert muni koma í veg fyrir þær kosningar nema inn- rás Bandaríkjamanna. Namibía: Fréttagabb Pik Botha utanríkisráðherra Suð- ur-Afríku skýrði frá því að upplýs- ingar stjórnarinnar um liðsflutninga skæruliða SWAPO frá Angóla til Namibíu hafi að líkindum verið falskar og að ríkisstjórnin í Suður- Afríku hefði-látist gabbast. Ríkisstjórn Suður-Afríku skýrði frá því fyrr í þessari viku að friðará- ætlun Sameinuðu þjóðanna væri í hættu vegna meintra liðsflutninga skæruliða og áskyldi sér rétt til að grípa til viðeigandi ráðstafanna. Vöktu þessar ásakanir miklu uppi- standi og hræðslu í Namibíu, en þar fara fram kosningar í næstu viku. Sáu menn jafnvel framá að friðará- ætlun Sameinuðu þjóðanna myndi renna út í sandinn. -Séu upplýsingar okkar gabb, þá mun það gleðja mig ósegjanlega og mun verða fyrsti maður að viður- kenna mistök okkar, sagði Pik Botha á blaðamannafundi í gær. Hann sagði þó að þessir atburði sýndu að allir aðilar yrðu að vera vel á varð- bergi svo friðaráætlunin gangi upp. Suður-Afríkustjóm hafði leitað til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna þessa máls, en eftir að friðar- gæsluliðar í Namibíu höfðu grennsl- ast fyrir um raálið hafði Perez de Cuellar aðalritari SÞ samband við ríkisstjórn Suður-Afríku og skýrði þeim að allt væri með felldu í Namibíu. Kosningar í Namibíu munu fara fram sjöunda til ellefta nóvember. Eru þær annað skrefið í átt til fulls sjálfstæðis Namibíu sem verið hefur undir stjóm Suður-Afríkustjórnar í 70 ár. Leipzig: Borgarstjóri segir af sér Bernd Seidel borgarstjórinn í Leipzig, næst stærstu borg Austur- Þýskalands, sagði af sér embætti í gær. Var gefin sú skýring að borgar- stjórinn nyti ekki lengur trausts borgarbúa sem hafa haldið í mót- mælagöngur gegn honum dag eftir dag í sex vikur. Seidel hafði gegnt embætti frá því í janúarmánuði 1986. Afsögn Seidels kemur í kjölfar mikilla hreinsanna í embættismannakerfinu. Á fimmtu- dag var eiginkona Erichs Honeckers fyrrnm leiðtoga landsins rekin úr embætti menntamálaráðherra. Þá sögðu fleiri menn af sér. Þá fór Frjálslyndi lýðræðisflokk- urinn fram á það í málgagni sínu að ríkisstjórn Egon Kranz segði af sér og ný frjálslyndari stjóm mynduð. Flokkurinn krafðist þess að Manfred Gerlach formaður flokksins yrði kjörinn forseti Volkskammer, sem er þing landsins. Hins vegar var tekið skýrt fram að kommúnista- flokkurinn ætti áfram að vera leið- andi afl í stjómmálalífi landsins, en í stað harðlínumanna skuli umbóta- sinnar raka við. á MANILA -25 þúsund stuðn- ingsmenn Marcosar hins fram- liðna fyrrum forseta Filipseyja gengu um götur Manila í stærstu göngu stuðnings- manna Marcosar frá því að honum ver steypt af stóli ári 1986. Kröfðust sumir þess að Corazon Aquino segði af sór forsetaembættinu, en hún er nú á leið til Bandaríkjanna að ræða við stjórnvöld þar. Friðarsamkomulagið í Líbanon á vonarvöl: Aoun hótar þinginu Michel Aoun forsætisráðherra bráðabirgðastjómar kristinna manna í Líbanon og yfirmaður herafla kristinna segist muni leysa upp líbanska þingið ef það komi saman í dag til að kjósa nýjan forseta í Líbanon. Hann skýrði frá þessu á blaðamannafundi í gær. -Ef ég fæ staðfest að þingfundur verði haldinn, þá mun ég leysa upp þingið, sagði Aoun. Samkvæmt friðarsamkomulagi múslíma og kristinna manna í Líb- anon sem gert var í Saudi-Arabíu í síðasta mánuði, þá skal þing landsins vera kallað saman til að staðfesta samkomulagið og kjósa nýjan forseta landsins sem og nýjan forseta þingsins. Hefur Hussein Husseini núverandi forseti þingsins boðað þingfund í dag, en sam- kvæmt samkomulaginu þarf að halda fundinn fyrir næsta þriðju- dag. Segist Hussein ætla að halda þingfundi til streitu. Michel Aoun hefur eindregið settsig upp á móti samkomulaginu þar sem í því er brottför hinna 33 þúsund sýrlensku hermanna í Líb- anon ekki tryggð. Brottför her- mannanna hefur verið skilyrði Ao- uns til samkomulags þar sem hann segir að friður sé útilokaður á meðan Sýrlendingar ráða yfir stór- um hluta Líbanon. Aftur á móti er hann reiðubúinn til að afsala sér meirihluta kristinna manna í þing- inu sem tryggður er með núverandi stjómarskrá. Flestir aðrir leiðtogar kristinna manna hafa hins vegar hvatt til þess að friðarsamkomulagið verði staðfest. En vegna andstöðu Ao- uns virðist allt stefna í það að friðarsamkomulag þetta renni út í sandinn. Lögreglan ræðst nú gegn mótmælagöngum Albana í sjálfstjórnarhéraðinu Kosovo í Júgóslavíu. Lögreglan felldi 4 í skotbardaga í gær. Kynþáttaólgan í Kosovo: Lögreglan fellir fjóra í bardaga Fjórir menn af albönsku bergi brotnir létust í átökum viö lögreglu í Kosovo héraði í Júgóslavíu á fimmtudag. Mennirnir voru vel vopnum búnir og höfðu búið um sig í kjallara fjölbýlishúss í Pristina höfuðborg Kosovo eftir að lögregla hafði brotið upp mótmælagöngu Albana í borginni. Gangan var haldin í mótmæla- manns fallið í kynþáttaátökum í skyni við nýfengin yfirráð Serba í málefnum Albana í Kosovo. Skipt- ust mennimir á skotum við lögreglu lungan af deginum, en vom felldir er Ifða tók á daginn. Þá skýrði lögreglan í Pristina frá því að einn Albani til viðbótar hafi verið drepinn í borginna á miðviku- dagskvöld. Þá hafa rúmlega þrjátíu Kosovo á þessu ári. Mótmælaalda hefur riðið yfir Kos- ovo undanfarna daga og víða brotist út átök fólks af albönsku bergi brotnu og lögreglu. Kveikjan að mótmælaöldunni em réttarhöld sem nú fara fram yfir Azem Vlasi fyrrnm leiðtoga kommúnistaflokksins í Kos- ovo. Hann er ásamt þrettán öðmm mönnum sem tengdust verkföllum og mótmælum Albana í mars og maí á þessu ári, sakaður um gagnbylting- artilraun og á jafnvel yfir sér dauða- dóm. Undirrót þessa alls var ákvörðun stjómvalda í Júgóslavíu að færa yfirstjóm Kosovo sem verið hefur sjálfstjómarhérað, til stjórnvalda í Serbíu. 1,7 milljón manna af alb- önsku bergi brotnir búa í Kosovo, en einungis 250 þúsund Serbar. Leiddu mótmælaaðgerðimar í vor til blóðugra átaka þar sem tuttugu og fimm manns féllu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.