Tíminn - 04.11.1989, Page 20

Tíminn - 04.11.1989, Page 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300 NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tfyggvagötu. S 28822 SAMVINNUBANKINN í BYGGÐUM LANDSINS V Leigjum út sali fyrir fundi og einkasamkvæmi og aðra mannfagnaði ^oielLAsr0i ÞRðSTUR 68 50 60 VANIR MENN Tíminn LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989 íslendingur hnepptur í gæsluvaröhald í London vegna fjársvika: Reyndi að svíkja út 1 milljarð kr. íslenskur athafnamaður, Jósafat Arngrímsson hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald í London. Fyrir rétti hefur hann verið ákærður fyrir að reyna að svíkja út, ásamt fjórum örðum mönnum, 17 milljónirdollara eða sem svarar einum milljarði ís- lenskra króna út úr National West- ministerbankanum. Hann var handtekinn í London um miðjan september og skömmu síðar var farið þess á leit við dóms- málaráðuneytið hér á landi að afrit af sakaskrá hans yrði send utan, sem var gert. Ákæra á hendur Jósafat er ekki fullfrágengin og er jafnvel talið að fleiri ákæruatriði eigi eftir að bætast við. Hann á að mæta aftur fyrir réttinn 12. desember næstkomandi og má þá búast við að dómur verði kveðinn upp í málinu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jósafat Arngrímsson kemst í kast við löginn. Hann hefur verið dæmd- ur hér á landi í tveggja ára fangelsi fyrir skjalafals og ávísanamisferli, þá þekktur athafnamaður í Kefla- vík. Það var árið 1965, en dóminn Jósafat Amgrímsson, eða Joe Grímsson eins og hann kallar sig. afplánaði hann aldrei, þar sem hann var samkvæmt læknisvottorði ekki talinn fær um að sitja inni. Hann flutti úr landi til írlands fyrir rúmum áratug og tók þá upp nafnið Joe Grimsson, þar sem hann hélt áfram fyrri iðju. Hann var dæmdur í 9 mánaða fangelsi í Bretlandi snemma árs 1987 fyrir að reyna að svíkja fé út úr banka. Þegar hann losnaði eftir sex mánuði hélt hann til írlands. Eins og Tíminn greindi frá 8. ágúst 1987 sveik Joe Grimsson ásamt þrem írum sem hann fékk til liðs við sig, milljónir dala í umboðslaun fyrir sölu á skreið. í gegn um sérstakt fyrirtæki, Service World Internat- ional sem hafði aðsetur í London en skráð í Líberíu. Um mitt ár 1986, áður en upp komst um svikin hafði hann með hjálp íranna tekist að svíkja út úr norskum skreiðarfram- leiðendum og Tromsö Bank um- boðslaun upp á 6 milljónir dollara. Þetta mál er enn til umfjöllunar hjá írskum dómstólum. Þrátt fyrir að bankinn hafi gert ítrekaðar tilraunir til að ná fjármununum til baka hefur það reynst árangurslaust og sat hann uppi með tugmilljóna norskra króna tap. Mynd var gerð um svik Joe Grims- son og félaga. Hún var sýnd hér á landi, sem og á írlandi og í Noregi. Vakti hún mikla athygli. -ABÓ Verðhækkun dekkja minni en verðbólgu og gengis Verð nýrra vetrarhjólbarða er nú í kring um 15-25% hærra heldur en það var í desember 1987, en um eða tæplega 40% hærra heldur en það var í janúar 1988, eftir að verð hafði þá víðast verið lækkað um hátt í 20% í kjölfar tollalækkana ársbyrj un 1988. Síðan þá hefur verð á dekkjum því hækkað svipað eða jafnvel held- ur minna en framfærsluvísitalan á sama tíma. Og mun minna heldur en verð algengustu erlendu gjaldmiðla (pund 47%, mark 52% og dollar 68%). Sóluð dekk kosta nú um 25% meira heldur en í janúar í fyrra, áður en tollalækkunin var ekki kom- in fram í verði þeirra. Verðlagsstofn- un var þá lofað lækkun síðar, og sú lækkun hefur samkvæmt þessu kom- ið fram. Ný verðkönnun leiðir í annan stað í ljós að verðmunur á sömu tegund- um var nær enginn milli sölustaða - raunar svo lítill að undrun sætir þegar litið er til þess að hve 40-60% verðmunur milli verslana er algeng- ur, nú síðast t.d. í verðkönnun á fiski. Verð á sóluðum dekkjum ( t.d. 165 x 13) var 2.290 kr. hjá Heklu á Fosshálsi og Höfðadekki á Tangar- höfða í Reykjavík, en á fjórtán öðrum sölustöðum var mesti munur frá 2.600 upp í 2.700 kr., eða tæplega 4%. Verð á jafn stórum Michelin dekkjum, sem fengust á nær öllum stöðum, var mestur frá 4.300 og upp í 4.630 kr. Algengast er að aðeins muni í kringum 50 kr. á þessum dekkjum milli sölustaða. Enn minni verðmunur er á gjaldi dekkjaverkstæðanna fyrir skiptingu undir bíl (4 dekk) og jafnvægisstill- ingu. Ódýrast var þetta 3.200 kr. en dýrast 3.340 kr., sem er aðeins um 4% verðmunur. Algengt er að verð sé upp á krónu það sama á mörgum stöðum. - HEI Tímainynd: Pjclur Rósa enn í baði Rósa Ingólfsdóttir þula og leikkona kynnti í gær, eins og henni einni er lagið, íslensk baðkör og sturtubotna í verslun BYKO í Breidd og mun hún vera þar í dag líka. Tilefnið er að nú standa yfir íslenskir dagar í BYKO. I»eir sem lögðu leið sína í BYKO í gær, fegnu að heyra reynslusögur Rósu af gæðum íslenskra baðkara. Enginn vaðmálskerlingarbragur var á Rósu þegar hún að kynningu lokinni svipti rasssíðum rósóttum sloppi sínum frá og brá sér í bað. Sýndu gestir og gangandi baðferð þessari mikinn áhuga, enda varla annað hægt, þegar vel er staðið að kynningu. Við kynningarstarfsemina hafði Rósa sér til halds og trausts unga stúlku og strák. Um 50 framleiðendur eru á staðnum til að sýna fjölbreytta og vandaða íslenska framleiðslu. -ABÓ Grunnskólanemendur í Sandgerði: ÚTVARPA f TVO TÍMA Nemendur Grunnskólans í Sand- geröi munu reka eigið útvarp á milli klukkan tíu og tólf í dag. Sent verður út á fm. 105,5 og eiga send- ingarnar að nást í Sandgerði og nágrenni. Efni dagskrárinnarer unn- ið í nýafstaðinni málræktarviku og samið af nemendum skólans frá forskólaaldri og upp í áttunda bekk. Að sögn nemenda er standa fyrir þessari uppákomu verður í boði fjölbreitt dagskrá, leikin tónlist, tek- in viðtöl og flutt þrjú stutt leikrit, sem lesin eru upp af skólakökkum. Búnaður til útsendingar er fenginn hjá Pósti og síma. - ÁG

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.