Tíminn - 23.12.1989, Side 1
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989 - 254. TBL. 73. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110,-
Helsta þrælmenni kommúnista tekið höndum í stjórnarbyltingu i gær:
Ceausescu gripinn
á f lótta í Rúmeníu
Stjórnarbylting var gerð í Rúmeníu í
gær eftir að ólga almennings og upp-
reisn hafði breiðst út með ógnar hraða
síðustu daga. Einræðisherrann Nicu-
las Ceausescu var handtekinn um
hádegisbii í gær en slapp aftur úr haldi
með þyrlu. Hann hélt flótta sínum
áfram í bifreiðum en var síðan hand-
tekinn á ný eftir nokkra klukkutíma.
Stefan Gusa yfirhershöfðingi tilkynnti
fagnandi skara almennings sem var
samankominn á lýðveldistorginu í
Búkarest að séð yrði til þess að örygg-
issveitir einræðisherrans yrðu upp-
rættar. Það var á sama stað sem lon
lliescu, meðlimur í nýrri þjóðfrelsis-
nefnd Rúmeníu tilkynnti um handtöku
Ceausescus við mikinn fögnuð. Vest-
ræn ríki hafa fagnað falli Ceausescus
og boðið nýjum valdhöfum aðstoð.
Valdaferli einræðisherra, sem spannar
meira en tvo áratugi, líkur þó ekki án
harðra átaka og frameftir kvöldi bárust
fregnir af blóðugum bardögum í Búka-
rest. • Blaðsíða 5
£ ' Sá vestfirski siður að borða kæsta skötu á Þorláksmessu er orðinn algengur
OKala 3 um allt land, þó sumum þyki þefurinn og bragðið lítt freistandi. Fisksalar hafa
hftvlólr bir9t s'9 upp at skötunni °9 er víst ^01^' tonna rennur niður í maga
rOl laK landsmanna í dag. Tímamynd: Arnl Bjarna.
Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs Alþingis segist sem betur fer hafa kímnigáfuna
í lagi og hafa mikið gaman af ’89 á Stöðinni:
Hyggst bjóða þeirn að
skoða sinn fataskáp!
íhelgarviðtaliviðTímannsvararGuðrúnHelgadótt- stofumanna í ’89 á stöðinni. Guðrún segist sem
ir m.a.spurningum um launalánamál sitt og segist betur fer hafa kímnigáfu og hafa gaman af þeim
hafa tekið nærri sér hvernig um það mál var fjallað spaugstofumönnum. Raunar sé hún staðráðin í að
og að þurfa ranglega að liggja undir því að hafa bjóða þeim einhvern daginn að koma og skoða
misnotað almannafé. Hún svarar því einnig hvernig sinn fataskáp. • Blaðsíður 8 og 9
henni finnist að verða viðfangsefni þeirra spaug-