Tíminn - 23.12.1989, Side 3
Laugardagur 23. desember 1989
Tíminn 3
Skipað í bankaráð Landsbanka og Búnaðarbanka:
Fimm nýir fulltrúar í
bankaráð ríkisbanka
Um hádegi í gær fékkst endanleg niðurstaða varðandi það
hverjir verða fulltrúar stjórnmálaflokkanna í bankaráðum
Landsbanka og Búnaðarbanka. Fimm nýliðar taka nú sæti í
ráðunum.
í fráfarandi bankaráðum sitja fyrir
Sjálfstæðisflokkinn Jón Þorgilsson,
Halldór Blöndal, Pétur Sigurðsson
og Friðjón Þórðarson. Sætum Sjálf-
stæðismanna í bankaráðunum
tveimur fækkaði nú um helming og
þrátt fyrir umræður og ráðabrugg á
bak við tjöldin tókst Sjálfstæðis-
mönnum ekki að ná samstöðu um
hvaða tvo menn bæri að tilnefna.
Eftir atkvæðagreiðslu á þingflokks-
fundi varð niðurstaðan sú að Halldór
Blöndal heldur sínu sæti í Búnaðar-
bankanum en Friðrik Sophusson
tekur sæti í bankaráði Landsbank-
ans.
Halldór Blöndal og Haukur
Helgason, sem er tilnefndur af Al-
þýðuflokki, eru einu mennirnir
bankaráðsmennirnir í Búnaðar-
bankanum sem halda sínum sætum.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir kemur
inn í ráðið fyrir Borgaraflokkinn,
Þórir Lárusson fyrir Frjálslynda
hægrimenn, Guðni Ágústsson kem-
ur inn fyrir Framsóknarflokkinn og
þar með missir Stefán Valgeirsson
fyrrum bankaráðsformaður sæti í
bankaráðinu. Stefán kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár af þessu tii>. fni
og flutti ríkisstjórninni, sérstaklega
forsætisráðherra, kaldar kveðjur.
Vill Stefán meina að stjórnarliðar
hafi brotið samkomulag stjórnar-
flokkanna en forsætisráðherra vísar
slíku á bug.
Þrír af núverandi bankaráðs-
mönnum Landsbankans sitja áfram
þeir: Kristinn Finnbogason fyrir
Framsóknarflokk, Eyjólfur K. Sig-
urjónsson fyrir Alþýðuflokk og Lúð-
vík Jósepsson fyrir Álþýðubandalag.
Auk Friðriks Sophussonar, Sjálf-
stæðisflokki, er Kristín Sigurðar-
dóttir nýliði í bankaráðinu fyrir
Kvennalistann. Hún starfar sem við-
skiptafræðingur hjá Kaupþingi.
I gær eignuðust þrír flokkar full-
trúa í bankaráði í fyrsta sinn, Borg-
araflokkur, Frjálslyndir hægri menn
og Kvennalistinn. Einu stjórnmála-
samtökin sem eiga mann á þingi án
þess að eiga fulltrúa í nýju banka-
ráðunum eru Samtök jafnréttis og
félagshyggju eftir að Stefán Val-
geirsson tapaði sæti sínu í Búnaðar-
bankanum. SSH
Fjárlög samþykkt á þingi í gær:
HALUNN VERDUR
3,6 MILUARDAR
Fjárlög fyrir árið 1990 voru sam-
þykkt á Alþingi í gær. Heildarút-
gjöld ríkissjóðs verða rúmlega 95
milljarðar króna og heildartekjur
verða rúmlega 91 milljarðar króna.
Halli á fjárlögum verða því rúmlega
3,6 milljarðar. Við þriðju umræðu
um fjárlög hækkuðu útgjöldin um
794 milljónir, en útgjöldin höfðu
hækkað um 1,182 milljónir við aðra
umræðu. Við þriðju umræðu hækk-
uðu tekjur ríkissjóðs um 1,180 millj-
ónir.
Sighvatur Björgvinsson formaður
fjárveitinganefndar sagði þegar
hann gerði grein fyrir breytingartil-
lögum meirihluta fjárveitinganefnd-
ar að nauðsynlegt væri að reyna að
draga úr verðhækkunum með öllum
tiltækum ráðum og að aðilar vinnu-
markaðsins yrðu að semja á hófleg-
um nótum. Hann sagði að í kjara-
samningum væri ekki hægt að semja
um auknar þjóðartekjur né aukið
aflaverðmæti. Sighvatur sagði að
menn gætu ekki samið af sér það
neikvæða efnahagsumhverfi sem
þjóðin býr við.
Gert er ráð fyrir því að tekjur
ríkisins hækki um 1,2 milljarða frá
því sem gert var ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpinu. Beinir skattar hækka
um 1,2 milljarða, óbeinir skattar
lækka um 700 milljónir og aðrar
tekjur hækka um liðlega 700 milljón-
ir. Hækkun tekjuskatts einstaklinga
á að skila ríkissjóði um einum millj-
arði og tekjuskattur sem verður
lagður á orkufyrirtæki á skila um 250
milljónum króna. Vegna lækkunar á
innheimtuhlutfalli virðisaukaskatts
lækka tekjur ríkissjóðs um 1,9 millj-
arða. Á móti þessu kemur m.a. að
tekjur af launagreiðslum eiga að
hækka um 100 milljónir og tekjur af
bifreiðagjaldi eiga að hækka um 460
milljónir. Óbeinir skattar lækka því
um 700 milljónir. Til að bregðast við
þessu er gert ráð fyrir að leigugjald
af ríkisjörðum hækki um 90 milljónir
og verði 100 milljónir í stað 10
milljóna, tekjur af fríhöfninni i
Keflavík hækka um 80 milljónir og
Póstur og sími á að skila 150 milljón-
um til viðbótar í ríkiskassann. Pá
eiga ríkisfyrirtæki eins og t.d. Járn-
blendiverksmiðjan á Grundartanga,
Landsvirkjun og fleiri fyrirtæki að
skila auknum arði upp á 350 milljón-
ir króna.
Stjómarandstaðan gagnrýnd
ríkisstjórnina fyrir að auka skatt-
heimtu á einstaklinga og fyrirtæki.
Pálmi Jónsson fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í fjárveitinganefnd sagði
að í fjárlagafrumvarpinu hefði verið
efnt til stórkostlegs feluleiks sem
miðaði að því að fela hallann á
fjárlögunum. Pálmi taldi að falinn
halli í frumvarpinu væri allt að þrír
milljarðar. - EÓ
Inailllhölil
Fært fyrir Horn
Hæstiréttur:
í gær kannaði flugvél Landhelg-
isgæslunnar TF-SÝN hafísinn úti
fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum.
ísjaðarinn er að þéttleika 3/10,
er um 55 sjóml. NA af Kolbeinsey
og liggur til SV, rétt fyrir A-Kol-
beinsey og þaðan áleiðis að Horni.
Um 15-30 sjóml. utar er ís að
þéttleika 4-6/10. Erfitt var að
ákveða legu ísbrúnarinnar vegna
lélegs skyggnis. Is að þéttleika 9/10
er landfastur frá Munaðarnesi 4-5
sjóml. frá landi að Horni og 7
sjóml. N af Horni með stefnu á
Kögur. Á svæðinu fyrir N rennuna
frá Horni að Straumnesi er ísinn að
þéttleika 3-4/10.
Á Húnaflóa eru stakir jakar á
víð og dreif. Siglingaleiðin fyrir
Horn að ísafjarðardjúpi er fær í
björtu. 2ja til 3ja sjóml. renna er
opin 7 sjóml. N af Horni og
venjuleg siglingaleið fyrir Kögur
og Straumnes að ísafj.djúpi. í
rennunni eru jakar á víð og dreif.
Til SV frá Aðalvík er mjó ísspöng.
Ekkert skyggni var fyrir S-
ísafj.djúp, en reikna má með ísjök-
um þar á siglingaleið.
Veður til ískönnunar var slæmt.
Vindur var af SA á austanverðu
svæðinu 30-45 hnúta, en norðlæg-
ari vindur á vestanverðu svæðinu
20-30 hnútar. Snjókoma og élja-
gangur var á öllu svæðinu og lélegt
skyggni.
Nauðgunardómar
Tuttugu og fimm ára gamall
maður, Skúli Helgi Skúlason var í
Hæstarétti dæmdur til fjögurra og
hálfsárs fangelsisvistar fyrir nauðg-
un. Innifalin er 405 daga óafplánuð
refsing vegna annars afbrots sem
honum hafði verið veitt reynslulausn
frá, þegar verknaðurinn var
framinn.
Dómur Hæstaréttar er staðfesting
á dómi undirréttar. Þá er Skúla gert
að greiða konunni 400 þúsund krón-
ur í skaðabætur. Verknaðinn framdi
hann á heimili konunnar í Reykjavík
í september 1988, að auki veitti
hann konunni lífshættulega líkams-
áverka og þurfti konan að gangast
undir aðgerð á sjúkrahúsi.
Hæstiréttur hefur einnig dæmt 24
ára gamlan mann, Jens Karl Magnús
Jóhannesson til tveggja ára fangels-
isvistar fyrir nauðgun, sem átti sér
stað í Vestmannaeyjum árið 1988.
Honum er gert að greiða konunni
300 þúsund krónur í skaðabætur.
Dómurinn tekur einni til refsingar
fyrir líkamsárásir. - ABÓ
Reykjanesbraut:
Bílvelta
Fernt var flutt á sjúkrahús eftir
að bifreið valt á Reykjanesbraut
á Strandarheiði um klukkna átta
í gærmorgun. Fólkið hlaut minni-
háttar meiðsl og fékk að fara
heim af sjúkrahúsi eftir að hafa
fengið aðhlynningu. Mikil hálka
var á Reykjanesbraut í gærmorg-
un og fram eftir degi.
Mikið snjóaði á Suðurnesjum í
fyrrinótt og áttu Grindvíkingar
erfitt með að hreifa bíla sína fyrr
en búið var að ryðja götur bæjar-
ins. - ABÓ
Tveir milljarðar kr. í
ferðir, risnu og bíla
Á síðasta ári greiddi ríkið tæpa 22
milljarða í laun, þar af var yfirvinna
um 5,6 milljarðar eða um 26% af
heildarlaunagreiðslum ríkisins. Á
vegum menntamálaráðuneytis voru
greiddir tæpir 7 milljarðar í laun,
heilbrigðisráðuneytis 3,5 milljarðar
og svipað fór í launagreiðslur í
málaflokka á vegum samgönguráðu-
neytis.
Á síðasta ári greiddi ríkið samtals
rúmar 855 milljónir í ferðakostnað
þar að fór 469 milljónir í kostnað
vegna ferða innanlands en 386 millj-
ónir vegna ferða utanlands. í risnu
fór um 127 milljónir. Samtals greiddi
ríkið því tæpan milljarð í ferða- og
risnukostnað. Þá er ótalinn bifreiða-
kostnaður ríkisins en hann var sam-
tals rúmur milijarður, 692 milljónir
vegna aksturs og 363 vegna reksturs
og viðhalds eigin bifreiða. Ríkið átti
á síðasta ári 911 bifreiðar, flestar á
vegum samgönguráðuneytis 372 og
dómsmálaráðuneytis 169.
Mestur risnukostnaður var hjá
utanríkisráðuneyti og menntamála-
ráðuneyti, rúmar 25 milljónir hjá
hvoru ráðuneyti. Mestur ferðakostn-
aður var hjá samgönguráðuneyti 229
milljónir og hjá menntamálaráðu-
neyti 123 milljónir. - EÓ
Eldur í
togara
Eldur kom upp í skuttogaran-
um Baldri EA-108 þar sem hann
lá við Dalvíkurhöfn í gærmorgun.
Skipið skemmdist mikið aðallega
af sóti og reyk, en reykurinn fór
um allt skip. Eldurinn kom upp í
geymslu þar sem yfirhafnir skip-
verja voru geymdar. Líklegast er
talið að blástursofn sem var í
geymslunni hafi orsakað að
eldurinn kviknaði. Landað var úr
togaranum í fyrradag.
Haukur Haraldsson starfsmað-
ur við Dalvíkurhöfn varð fyrstur
var við eldinn. Haukur sagði í
samtali við Tímann að þegar
hann hefði komið niður í skipið
hefði gosið á móti sér mikill
reykur. Hann sagðist hafa tæmt
tvö slökkvitæki inn í geymsluna,
en síðan hefði slökkviliðið séð
um að gera endanlega útaf við
eldinn. - EÓ
Jól hjá Strætó
Stjórn SVR samþykkti á fundi
sínum nýlega að farþegar fái að
ferðast frítt strætisvögnunum yfir
jólin.
Það er reyndar strax á Þorláks-
messu, eða í dag sem frítt verður
með vögnunum og strætó verður
í jólaskapi áfram þar til vagnamir
hætta að ganga að kvöldi 26.
desember.