Tíminn - 23.12.1989, Page 5
Laugardagur 23. desember 1989
Tíminn 5
Blóðbaðið á götum Búkarest endaði í miklum fagnaðarlátum Rúmena:
Harðstjóri
Blóðbaðið á götum Búkarest á fimmtudag þróaðist yfir í
fagnaðarlæti á gærmorgun þegar hermenn tóku sér stöðu með
almenningi og hröktu harðstjórann Nicolai Ceausescu frá
völdum. Ceausescu flúði forsetahöllin í þyrlu undir hádegi og
reyndi að komast úr landi, en var handtekinn á flugvellinum
í Búkarest ásamt konu sinni Elenu og syni Nicu. Það var
skammgóður vermir því samkvæmt fréttum rúmenska sjón-
varpsins þá náði Ceausescu að flýja á ný og var ekki vitað um
afdrif hans þegar Tíminn fór í prentun.
Harðstjórinn féll þegar einungis
fimm dagar voru liðnir frá blóðbað-
inu í Timisario þegar fimmþúsund
manns voru myrtir af öryggislög-
reglu Ceausescus fyrir þær sakir að
andæfa harðstjórninni í landinu.
Nær óþekktur hershöfðingi Mili-
taru að nafni hefur nú með daglega
yfirstjórn Rúmeníu að gera þar til ný
ríkisstjórn verður mynduð. Ekki er
einu sinni vitað hvert fornafn hans
er. Þá hefur fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Rúmeníu, Corneliu Man-
escu verið nefndur sem líklegur
fyrsti arftaki Ceausescus, en hann
hefur tekið þátt í andófi gegn honum
að undanförnu.
Blóðugir bardagar eru víða um
Rúmeníu þar sem hinir illræmdu
liðsmenn öryggislögreglunnar verja
hendur sínar, en þeir hafa verið
verkfæri í ógnarstjórn Ceausescus
alla tíð og myrtu börn, konur og
gamalmenni með köldu blóði undan-
farna viku þegar andófið gegn harð-
stjórninni fór að aukast. Eru bardag-
ar sérstaklega harðir í borginni
Sibiu. Er talið að hermenn taki þátt
í átökunum við öryggislögregluna,
auk þess sem einhverjar hersveitir
sem staðið hafa fyrir grimmdarverk-
um að undanförnu eigi nú undir
högg að sækja.
Eftir hrylling fimmtudagsins þegar
fimmtíu manns að minnsta kosti
voru myrtir, annaðhvort af öryggis-
lögreglu Ceausescu sem skaut úr
vélbyssum á mannfjöldann sem
krafðist afsagnar harðstjórans, eða
voru kramdir undir beltum skrið-
dreka, höfðu hermenn fengið nóg.
Fjöldi hermanna gekk í lið með
almenningi sem hóf mótmælaað-
gerðir í býtið í gærmorgun og réðst
til atlögu við höfuðstöðvar kommún-
istaflokksins. Náðu Ceausescu að
forða sér með þyrlu á síðustu stundu
og tók þyrlan sig á loft í þann mund
sem fólkið náði höfuðstöðvunum á
sitt vald.
Þegar hér var komið hafði nær
allur rúmenski herinn gengið til liðs
við almenning í baráttunni gegn
Ceausescu og kallaði yfirhershöfð-
ingi hersins alla hershöfðingja sína á
sinn fund í höfuðstöðvum ríkissjón-
varpsins um leið og hann fyrirskipaði
öllum hermönnum að hætta öllum
aðgerðum gegn almenningi og halda
aftur til búða sinna. Sagði hann
herinn hafa mikið á samviskunni
vegna aðgerða gegn andófsmönnum
að undanförnu.
Þegar fréttist að Ceausescu hafði
ekki komist úr landi fyrirskipaði
yfirmaður rúmenska herliðsins í
Búkarest hermönnum sínum að
handtaka Ceausescu og hvatti rnenn
til þess að þyrma lífi Ceausescu svo
hægt væri að draga hann fyrir dóm.
Þess má geta að varnarmálaráð-
herra Rúmeníu framdi sjálfsmorð í
gærmorgun þegar hermenn gengu til
liðs við almenning, enda bar hann að
hluta til ábyrgð á grimmdarverkum
undanfarna daga.
Sjöþúsund og fimm hundruð
andófsmenn sem handteknir voru í
mótmælaaðgerðunum undanfarna
daga höfðu verið dæmdir til dauða
fyrir landráð og er næsta víst að sú
staðreynd hefur flýtt fyrir falli
Ceausescus.
Þá hafa stúdentar sem voru í
fararbroddi í atlögunni gegn Ceaus-
escu í Búkarest lagt fram hugmyndir
að nýrri ríkisstjórn. í hópi ráðherra
sem þeir vilja að taki við má finna
nöfn hinna frægu rithöfunda Doina
Cornea og Dan Petrescu ásamt fyrr-
um utanríksiráðherra Rúmeníu,
Corneliu Manescu sem Ceausescu
vék til hliðar á sínum tíma vegna
umbótahugmynda hans og stjórn-
málamannsins Silviu Brucan sem
var á meðal þeirra er skrifaði undir
áskorunarbréf til Ceausescu að hefja
'umbætur í landinu. Reuter/HM
Nicolai Ceausescu með veldissprota í hönd á meðan hann hafði fulla stjórn
á Rúmeníu með hjálp hinnar illræmdu öryggislögreglu. Nú er harðstjórinn
fallinn, en hann slapp þó úr höndum rúmenskra hermanna.
30.000 manns
í Kringlunni
Kaupmenn eru sammála um að
jólainnkaup landsmanna hafi farið
seinna af stað en undanfarin ár en
svo virðist að kaupmenn í miðbæn-
um og í Kringlunni séu sáttir við
sinn hlut.
Einar Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Kringlunnarsagði að
verslunin hafi verið lífleg undan-
farna daga og sagðist áætla að á
fimmtudaginn hafi 30 þúsund
manns komið í Kringluna en þann
dag var opið til klukkan 21:00.
Því hefur verið haldið fram að
kaupmenn við Laugaveginn hafi
misst stóran hlut af innkaupunum
vegna kuldanna sem hafa verið.
Guðlaugur Bergmann sem er í
forsvari fyrir samtökin Gamli mið-
bærinn sagði svo ekki vera. Fólk
virtist bara hafa klætt sig betur og
kaupmenn í miðbænum væru yfir-
leitt ánægðir með sinn hlut. „Mið-
að við ástandið í þjóðfélaginu og
þá verslun sem er almennt þá held
ég að við megum mjög vel við
una.“
Skýringin á því að innkaup fyrir
jólin fóru svo seint af stað virðist
helst vera sú að fólk hefur mun
minna á milli handanna en áður og
veltir verðinu meira fyrir sér.
SSH
Ekkert lát á bar-
dögunum í Panama
Ekkert lát er á bardögunum í
Panama og á bandaríski herinn í
fullu fangi við að verjast árásum
stuðningsmanna Noriega hershöfð-
ingja þrátt fyrir gífurlegan liðsmun.
Harðastir voru bardagarnir í bænum
Colon sem er næst stærsta borg
Panama, en einnig var hart barist á
ýmsum stöðum í Panamaborg. Þar
skutu stuðningsmenn Noriega á
bandaríska stjórnarráðið og tóku á
móti bandarísku hermönnunum sem
ganga hús úr húsi í leit að vopnum
og stuðningsmönnum Noriegas.
Vitað er að tuttugu og einn banda-
rískur hermaður er fallinn og rúm-
lega tvöhundruð særðir. Fimmtíu og
níu panamískir hermenn liggja í
valnum, sextíu og sex eru særðir og
fimmtánhundruð hafa verið teknir
til fanga.
Það eru liðsmenn einkasveita Nor-
iegas sem halda uppi harðastri and-
stöðu og gera allt til að skapa
glundroða með gripdeildum. Talið
er að Noriega sé enn í Panama þrátt
fyrir að Bandaríkjamenn hafi sett
eina milljón bandaríkjadala til höf-
uðs honum.
Svo virðist sem Bandaríkjamenn
séu að tapa áróðursstríðinu á al-
þjóðavettvangi, því sífellt fleiri ríki
hafa fordæmt innrásina. Hefur
George Bush forseti Bandaríkjanna
sagst ætla að skýra Mikhaíl Gorbat-
sjof persónulega frá ástæðum þess
að Bandaríkjamenn gerðu innrás í
Panama, en Sovétmenn hafa gagn-
rýnt Bandaríkjamenn mjög harka-
lega vegna hennar. Reuter/HM
Yfirlýsing frá utanríkisráöherra, Jóni Baldvin Hannibalssyni:
Harmar beitingu
vopna í Panama
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra óskar að taka eftirfar-
andi fram í kjölfar atburða í Panama
undanfarna daga:
íslensk stjómvöld árétta þá stefnu
að leysa beri alþjóðleg deilumál með
friðsamlegum hætti í samræmi við
sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Á
grundvelli þessarar meginreglu
þjóðaréttar er ástæða til að harma
að bandarísk stjóravöld hafa talið
sig knúin til að beita vopnavaldi í
samskiptum sínum við Panama.
Bandarísk stjórnvöld hafa skýrt
hernaðaraðgerðir í Panama á þann
veg, að tilgangur þeirra hafi verið að
tryggja öryggi bandarískra ríkis-
borgara, koma á lýðræðislegum
stjómarháttum á ný í landinu,
hindra að samningi ríkjanna um
Panamaskurðinn yrði stofnað í
hættu og handtaka Manuel Noriega
hershöfðingja. Þrátt fyrir að fregnir
frá Panama séu óljósar, virðist sem
markmið hernaðaríhlutunar Banda-
ríkjanna hafi enn sem komið er
einungis náðst að hluta. Ófriður
geisar enn í landinu og ekki hefur
tekist að hafa hendur í hári Norieg-
as.
Það ástand, sem nú ríkir í Pan-
ama, verður hins vegar að skrifast að
stórum hluta til á ábyrgð Noriegas.
Hershöfðinginn hafði að engu lýð-
ræðislegar kosningar í landinu í maí
sl., eftir að nefnd hlutlausra aðila,
sem skipuð hafði verið til að fylgjast
með kosningunum, hafði úrskurðað
andstæðingum hans sigurinn í skjóli
sjötíu prósenta greiddra atkvæða.
Stjórn valdaræningjans Noriegas gat
því ekki talist lögmæt.
Lýðræðislega kjörinn leiðtogi
Panama, Guillermo Endera forseti,
hefur nú sest að völdum og hvatt
hersveitir Noriegas til að leggja nið-
ur vopn. Áskoranir hans hafa ekki
borið árangur til þessa.
Jafnframt því sem utanríkisráð-
herra lætur í ljósi von um að lýð-
ræðislegir stjórnarhættir nái að festa
rætur í Panama, lýsir hann áhyggjum
yfir því ófriðarástandi, sem nú ríkir
í landinu. Skorað er á deiluaðila að
ráða ráðum sínum með friðsamleg-
um hætti, þannig að bandarískt her-
lið verði kvatt á brott frá Panama hið
fyrsta.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 22. desember 1989