Tíminn - 16.01.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 16. janúar 1990
FRETTAYFIRLIT
OtlOnd ..................................................III...II
PRAG - Hin nýja ríkisstjórn
Tékkóslóvakíu hóf viðræður
við Sovétmenn um brottför
sovéskra hermanna frá Tékkó-
slóvakíu, en sovéskt herlið hef-
ur verið í landinu frá því Var-
sjárbandalagið gerði innrás
1968 og batt enda á Vorið í
Prag. Aðstoðarvarnarmálaráð-
herra beggja ríkjanna tóku þátt
í viðræðunum, en Tékkar hafa
krafist þess að allir hinir 75
þúsund hermenn Sovétmanna
verði á brott fyrir árslok.
BÚKAREST - Vestur-
Þjóðverjar hafa heitið Rúmen-
um dyggri aðstoð við að reisa
efnahag landsins úr rústunum,
en settu það skilyrði fyrir efna-
hacjsaðstoð til lengri tíma að
stjornvöld virtu rétt þýskumæl-
andi minnihlutans í landinu og
bættu kjör hans verulega sem
og annarra þjóðarbrota í land-
inu. Það var Hans-Dietrich
Genscer utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands sem nú er
í heimsókn í Rúmeníu sem
skýrði frá þessu.
SOFIA - Búlgarar bundu
endi á 45 ára einokun og
einræði kommúnistaflokksins
og hafa því tekið stórt skref í
átt til fjölflokkakerfis í landinu.
Þing landsins samþykkti sam-
hljóða að stroka út klausu úr
stjórnarskránni sem kvað á um
forræði kommúnistaflokksins.
VIN - Ramiz Alia leiðtogi
Albaníu vísaði á bug ásökun-
um um að kynþáttaátök hafi
brotist út í Albaníu og sakaði
Júgóslava um að reyna að
koma á fót óróa og ólgu í
Albaníu.
SANTIAGO DE VER-
AGUAS - Herforingjar úr
bandaríska og panamíska
hernum heimsóttu þetta hérað
til að róa hina nýju valdaherra
í Panama sem óttast að örygq-
issveitir Noriegas fyrrum leið-
toga Panama væru að skipu-
leggja baráttu gegn þeim.
AUSTUR-BERLÍN - Um
150.000 manns fóru í kröfu-
göngu í Karl-Marx-Stadt í
Austur Þýskalandi í gærkvöldi
og kröfðust þess að tekið yrði
á ný upp fyrra nafn borgarinn-
ar, Chemnitz. Þetta er fjöl-
mennasta mótmælaganga í
borginni til þessa og sam-
kvæmt ADN, austur-þýsku
fréttastofunni, veifaði fólkið
borðum sem á voru letruð
and-kommúnísk slagorð og
kröfur um sameiningu Þýska-
'lands. Þá fóru um 100.000
manns í kröfugöngu í Leipzig (
gærkvöldi þar sem svipaðar
kröfur voru settar f ram og fréttir
bárust sambærilegum en fá-
mennari samkomum víðar í
Austur-Þýskalandi.
PEKING - íbúar Ulan Bator
höfuðborgar Mongólíu hyggja
á mótmælafundi um næstu
helgi til að fylgja eftir kröfum
sínum um breytingar. Um síð-
ustu helgi tóku 5 þúsund
manns þátt í mótmælaaðgerð-
um gegn kommúnistaflokknum
sem öllu ræður.
Rauði herinn, sovéski flotinn og sveitir KGB sendar til Kákasuslýðveldanna
eftir blóðug kynþáttaátök í Azerbajdzhan:
Skuggi borgarastyrjaldar
vof ir yf ir Azerbajdzhan
Borgarastyrjöld vofir yfir í Azerbajdzhan í kjölfar þess að
á fjórða tug manna, flestir Armenar, voru drepnir í
kynþáttaátökum í Baku höfuðborg sovétlýðveldisins um
helgina. Forsætisnefnd Æðsta ráðsins ákvað í gærkvöld að
senda sovéska herinn, flotann og sveitir KGB til Azerbajdzh-
an til að koma í veg fyrir að hrein borgarastyrjöld brjótist úr
milli Azera og Armena á þessum slóðum.
Eru þctta hörðustu hernaðarað-
gerðir sovéskra yfirvalda innan So-
vétríkjanna frá því í byltingunni
1817, að heimstyrjöldinni síðari
undanskilinni.
Fjórir Azerar felldir í Nagorno-
Karabakh í gær eftir blóðbaðið í
Bakú um helgina og lýsti Æðsta ráð
Sovétríkjanna þá yfir neyðarástandi
í Nagorno-Karabakh og öðrum hér-
uðum í Azerbajdzhan þar sem kyn-
þáttaólga ríkir. í gærkveldi tók síðan
forsætisnefndin ákvörðun um að
senda sveitir KGB og hersveitir úr
landher og flota sovéska hersins til
Azerbajdzhan til að skakka leikinn.
Skrifaði Mikhaíl Gorbatsjof forseti
Sovétríkjanna sjálfur undir yfirlýs-
ingu forsætisnefndarinnar, en þar
segir að átökin í Azerbajdzhan sé
bein vopnuð ógnun gegn Sovétríkj-
unum.
Áður höfðu hersveitir á vegum
innanríkisráðuneytisins verið sendar
til að styrkja hersveitir þær er fyrir
voru og áttu að tryggja lög og reglu.
Undanfarin misseri hefur nánast
verið stríðsástand milli hinna kristnu
Armena og íslömsku Azera í Azer-
bajdzhan vegna vandræðahéraðsins
Nagorno-Karabakh, þar sem meiri-
hluti íbúa er af armensku bergi
brotinn og vill sameinast Armeníu.
Hefur oft kastast í kekki milli þess-
ara kynþátta, bæði í Nagorno-Kar-
abakh þar sem Armenar ofsækja
Azera og í öðrum hlutum Azer-
bajdzhan þar sem Azerar ofsækja
Armena. Hafa fjölmargir verið lim-
lestir og jafnvel drepnir í samskipt-
um kynþáttanna.
Upp úr sauð nú um helgina þegar
herskáir Azerar í höfuðborginni
Bakú tóku sig til og réðust að þeim
fáu Armenum sem enn eru eftir í
borginni. Á fjórða tug manna féllu í
átökunum, nær allir Armenar. Þetta
athæfi hefur vakið mikla ólgu í
Nagorno-Karrabakh og annars stað-
ar í Azerbajdzhan þar sem Armenar
eru fjölmennir og þeir gert sig líklega
til að þjarma enn að Azerum.
Fjórir Azerar féllu í 90 mínútna
löngum bardaga milli íbúa tveggja
þorpa í Nagorno-Karabakh. Menn
frá þorpi Armena réðust að þorpi
Azera á þyrlum og vopnuðum bif-
reiðum. Skotgrafir hafa verið grafn-
ar og hafa bæði Azerar og Armenar
skipulagt vopnaðar sveitir.
Þá berast fréttir af því annars
staðar í Azerbajdzhan að hópar
öfgafullra Azera hafi vígvæðst með
veiðibyssum og vopnum sem stolið
hefur verið af Rauða hernum og
hyggi á Armenaveiðar.
Ryhkov forsætisráðherra varaði
hina stríðandi aðila við í gær og
sagði að yfirvöld í Sovétríkjunum
myndu ekki líða borgarastyrjöld í
Azerbajdzhan og að sovéski herinn
myndi grípa inn í af fullri hörku ef
þess þurfi. Nú eru hersveitirnar
komnar á átakasvæðin.
Ólga er einnig í nágrannalýðveld-
unum Georgíu og Armeníu. 1
Georgíu hafa andófsmenn látið ill-
um látum og krefjast þess að leiðtog-
ar Sovétríkjanna komi til Georgíu
og ræði málin. Krefjast þeir aukins
sj álfræðis og sj álfstæðis lýðveldisins.
í Jerevan höfuðborg Armeníu
safnaðist hálf milljón sama til að lýsa
stuðningi yfir kröfum Nagorno-Kar-
abakhbúa og lýsa vanþóknun sinni á
aðgerðarleysi sovéskra yfirvalda sem
þeir saka um að snúa blinda auganu
að ofsóknum Azera gegn Armenum.
Ekki var ljóst í gær hvort sveitir úr
her, flota og KGB hefðu verið
sendar til þessara sovétlýðvelda.
Yitzhak Shamir forsætisráöherra ísrael:
Hernumdu svæðin
nauðsynleg fyrir
sovéska Gyðinga
Yitzhak Sahmir hinn hægri sinnaði
forsætisráðherra ísrael sagði í
sunnudaginn að fsraelar yrðu að
halda hernumdu svæðunum á Vest-
urbakkanum og í Gaza svo að sov-
éskir Gyðingar sem flykkjast munu
til fyrirheitna landsins næstu misser-
in hefðu land til að setjast að á.
Skipti engu að á hernumdu svæðun-
um byggju fyrir milljónir Palestínu-
manna, þeir verði að víkja fyrir
Guðs útvaldri þjóð.
Talið er að um 300 þúsund sovésk-
ir Gyðingar muni flytjast til ísrael
næstu þrjú árin í kjölfar þess ferða-
frelsis sem umbótastefna Gorbat-
sjofs tryggir þegnum Sovétríkjanna.
Bandaríkjamenn hafa hert innflytj-
endareglurnar svo að sovéskir Gyð-
ingar komast vart þangað, svo fsrael
er þeirra draumastaður.
Shamir sagði á sunnudaginn að
hinn mikli og hraði innflutningur
sovéskra Gyðinga sannaði að tíminn
ynni með ísraelum og myndi gjör-
breyta ásjónu Ísraelsríkis, gera það
stærra betra og sterkara.
- Arabarnir í kring um okkur eru
í kröggum. Þeir finna ósigurinn,
blönduðum ótta, sagði Shamir á
opnum fundi hins hægrisinnaða Lik-
udbandalags.
- Þeir sjá árangur Síonismans og
eiga ekkert andsvar. Þeir hafa enga
lækningu. Við höfum svarið og það
er sannarlega ekki Palestínuríki.
Fyrir flóð innflytjenda verðum við
að ráða yfir landi ísraels og við
verðum að berjast fyrir því, sagði
Shamir þessi 74 ára gamli fyrrum
skæruliði.
Nú búa um 70 þúsund Gyðingar
meðal tæplega tveggja milljóna Ar-
aba á hernumdu svæðunum. Telja
ísraelar að með sovésku innflytjend-
unum verði staða Gyðinga á her-
numdu svæðunum trygg.
Bandaríska ríkis-
stjórnin klofin í
afvopnunarmálum
Bandaríska ríkisstjórnin er klof-
in í afstöðu sinni til afvopnunar-
mála. Brent Scowcroft öryggisráð-
gjafi Bandaríkjanna vill að Banda-
ríkjamenn leggi til að helstu teg-
undum langdrægra kjarnaflauga
stórveldanna verði eytt. Þetta vill
Dick Cheney varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna ekki heyra á
minnst. Frá þessu var skýrt í Was-
hington Post í gær.
Scowcroft mun hafa stungið upp
á því við George Bush forseta
Bandaríkjanna að hann biði Sovét-
mönnum upp á að Bandaríkja-
menn hættu við framleiðslu 50 MX
kjarnaflauga sem bera fjölda
kjarnaodda ef að Sovétmenn
myndu eyðileggja 20 SS-24 kjarna-
flauga sem þegar hefur verið komið
fyrir. Þá myndu stórveldin skrifa
undir samning um að framleiða
ekki fleiri slíkar flaugar.
Scowcroft heldur því fram að
með þessu væri komið í veg fyrir
það að stórveldin hefði mátt til að
gera kjarnorkuvopnaárás sem gætu
lamað helstu kjarnavopn andstæð-
mgsins.
Scowcroft vildi að James Baker
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
mynddi leggja tilboð þessa efnis
fyrir Eduarde Shevardnadze utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna í
næsta mánuði, en Baker mun hitta
hann í Moskvu 6. febrúar.
Dick Cheney varnarmálaráð-
herra stöðvaði þetta tilboð í bili að
minnsta kosti með því að leggjast
harkalega gegn því að hætt verði
við framleiðslu MX flauganna, sem
eru mun öflugri en Midgetman
kjarnaflaugar sem nú eru uppistað-
an í kjarnavopnabúri Bandaríkj-
anna. Slíkar flaugar bera einungis
einn kjarnaodd.
Þó er ekki öll von úti, því hinn
virti öldungadeildarþingmaður
demókrata, Sam Nunn, sem er
formaður hermáladnefnar öld-
ungadeildar þingsins hefur tekið
undir hugmyndir Scowcrofts um
útrýmingu kjarnaflauga er beri
fleiri en eina kjarnahleðslu. Segist
hann reiðubúinn að berjast fyrir
málinu í öldungardeildinni.
Austur-Þýskaland:
Tugir þúsunda Austur-Þjóðverja
réðust að höfuðstöðvum Stasi, hinn-
ar illræmdu öryggislögreglu sem nú
hefur verið lögð niður.
Fjöldi vörubíla hlaðnir verka-
mönnum óku að hliðum höfuðstöðv-
anna við Normannenstrasse í Aust-
ur-Berlín þar sem fólkið klifraði yfir
girðingar og tóku höfuðstöðvarnar á
sitt vald. Sinnti mannfjöldinn í engu
áskorunum stjórnarandstöðusamt-
akanna Nýs Vettvangs og Kalli borg-
aranna um friðsamleg mótmæli,
heldur brutu allt og brömluðu.
Árás þessi á höfuðstöðvar Stasi
komu í kjölfar þess að stjórnvöld
upplýstu ýmis myrkraverk Stasi, sem
almenningur hafði svo sem grun um
fyrir.
Á tímabili var talið að tugir þús-
unda mótmælenda hafi verið í höf-
uðstöðvunum sem áður voru best
vörðu byggingar Austur-Þýska-
lands.
Nokkur ótti er meðal umbóta-
sinna og stjórnarandstöðunnar um
að þetta athæfi geti sett strik í
reikning umbótaþróunar í Austur-
Þýskalandi.