Tíminn - 07.03.1990, Side 15
' Wliövíkúdagur Yv Vnárá í'990
flfii'íY T
V ►
iiiiiniiiiiii íþróttir iiiiiiiiiiiiiHiiiiiiNiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuHiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiH
HM í handknattleik:
Bless OL
- Enn eitt rothöggið í Tékkóslóvakíu
ísland verður að taka þátt í B-
keppninni í handknattleik á næsta
ári og vinna sér þar sæti ía HM í
Svíþjóð 1993. ísland verður ekki á
meðal þátttökuþjóða í næstu Ól-
ympíuleikum, sem fram fara í Bar-
celona 1992. Þetta er staðreynd eftir
óskiljanlegt tap fyrir Pólverjum í
Bratislava í gær 25-27. Ofan í kaupin
gerðu A-Þjóðverjar sér Utið fyrir og
sigruðu Spánverja 25-20 og því er
Ijóst að Island mun verma neðsta
sætið í milliriðlinum, hvernig sem
leikurinn gegn A-Þjóðverjum á
morgun fer.
Leikurinn í gær var næstum því
nákvæm eftirlíking af leiknum gegn
Júgóslövum. Sveiflukenndur leikur,
en íslenska liðið virtist hafa alla
burði til þess að sigra. Slæmur kafli
í síðari hálfleik réð úrslitum, en í
gær breyttu Pólverjar stöðunni úr
15-11 í 15-18 á nokkrum mínútum.
Eftir þetta rothögg tókst íslenska
liðinu ekki að jafna, þótt litlu mun-
aði á lokasekúndunum. Þess í stað
náðu Pólverjar að tryggja sér 2
marka sigur 25-27, en í leikhléi var
ísland yfir 13-11.
Hvað að er í íslenska liðinu er ekki gott
3
92ogHM’93
að segja. Aðal skýringin er líklegasálræns
eðlis. Það sem víst er, er að markvarslan
er algjörlega á núlli og lykilmenn eins og
Kristján Arason ná ekki að lyfta sér upp
til þess að skjóta á markið. Sigurður
Gunnarsson nær sér ekki á strik og Alfreð
Gíslason skorar sjaldan úr skotum sínum.
Sem sé, andstæðingar liðsins ná að stöðva
skytturnar og líkleg skýring á því er
skortur á fjölbreytileika í sóknarleiknum.
Hvernig væri að gefa Júlíusi Jónassyni
tækifæri í sókninni. Hornamennirnir og
línumennirnir hafa borið sóknarleikinn
uppi.
Allt bendir nú til þess að íslenska liðið
muni leika gegn S-Kóreu um 11. sætið, en
sá leikur verður á föstudag.
Ljóst er að uppstokkunar er þörf hjá
landsliðinu. Skipta þarf um menn í nokkr-
um stöðum, en fyrst og síðast þarf að
skipta um þjálfara. Léttleika, leikgleði og
fjölbreytileika er þörf í stað staðnaðra
kerfisbundinna aðgerða.
BL
Úrslit leikjanna í gær
og staðan í milliriðlunum:
Milllriðill A
Tékkóslóvakía-Frakkland 21-21
Rúmenía-Ungverjaland 21-24
Suður Kórea-Svíþjóð 23-34
Milliriðill B
Pólland-ísland
Sovétríkin-Júgóslavía
A-Þýskaland-Spánn
27-25
24- 22
25- 20
Staðan:
Sovétríkin
Spánn
Júgóslavía
A-Þýskal.
Pólland
Island
Staðan:
Svíþjóð
Rúmenía
Ungverjal.
Tékkósl.
Frakkland
Suður Kórea
100-81
97-86
90-88
87-96
78-90
95-116
C-riðill 13.-16. sæti:
Japan-AIsír
Kúba-Sviss
21-20
26-32
Á morgun eiga handknattleiks-
mennirnir frí, en á fimmtudag verða
síðustu leikirnir f milliriðlunum
leiknir.
(slenskar getraunir:
Pottur verður
nú fjórfaldur
- fékk 11 rétta fyrir mistök
Enginn var með 12 rétta í 9.
leikviku knattspyrnugetrauna um
síðustu helgi. 1. vinningur
2.662.606 kr. færist því yfir á 10.
leikviku og verður potturinn því
ijórfaldur. Úrslit voru óvænt í
nokkrum leikjum og því gekk pott-
urinn ekki út.
En annar vinningur gekk út, því
6 raðir komu fram með 11 réttum.
Fyrir hverja röð komu 84.752 kr. í
vinning.
Tveir vinnufélagar hugðust taka
þátt í handboltagetrauninni og
settu nokkrar raðir niður á blað.
Annar mannanna hringdi í eigin-
konu sína og bað hana að fara með
raðirnar í sölukassa fyrir sig. Ekki
tókst eiginkonunni þó betur til en
svo að hún gleymdi að merkja við
að seðillinn væri aukaseðill og því
var hann ekki gildur í handbolta-
getrauninni, en þess í stað í knatt-
spyrnugetraunum sl. laugardag. í
ljós kom að seðillinn var með 12
réttum í handboltagetrauninni þar
sem í vinning voru 17.154 kr.
Þegar hins vegar var litið á knatt-
spyrnugetraunina var um tvær rað-
ir með 11 réttum að ræða, en fyrir
hverja röð voru 84.752 kr. í vinning
eins og áður segir. Mistökin urðu
því til þess að vinningurinn marg-
faldaðist.
Alls komu fram 9 raðir með 12
réttum í handboltagetrauninni. í
vinning greiðast 17.154 kr. á röð.
169 raðir komu fram með 11 réttum
en vinningurinn er aðeins 391 kr.
Potturinn í 10. leikviku getrauna
á laugardaginn er sem sagt fjórfald-
ur og ætla má að 1. vinningur verði
ekki undir 6 milljónum. BL
Guðmundur Guðmundsson lék vel í gærkvöld þegar Island tapaði fyrir
Pólverjum á kunnuglegan hátt. Á morgun mætir liðið A-Þjóðverjum, en á
föstudag mun liðið leika um 11. sætið á mótinu, að öllum líkindum gegn
Suður-Kóreumönum. Þar fær landsliðið kærkomið tækifæri til þess að hefna
fyrir ófarimar á Ólympíuleikunum 1988. Tímamynd Pjetur.
r
Island-Pólland 25-27 (13-111
MARKVERÐIR VARIN SKOT VARIN VlTI SAMTALS
EINAR PORVARÐARSON 4 1 5
GUÐMUNDUR HRAFNKELSSON 4 4
LEIFUR DAGFINNSSON
ÚTILEIKMENN SKOT/MÖRK VlTI TAPAÐ STC LIÐ STOÐSEND.
ÞORGILSÓ. MATHIESEN 6/4 2 4 3
BJARKI SIGURÐSSON 5/2 1 1
VALDIMAR GRlMSSON
SIGURÐUR GUNNARSSON 3/0 1 2
ALFREÐ GlSLASON 9/3 8/6 2 2
ÓSKAR ARMANNSSON
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON 5/4 1 1 5
KRISTJÁNARASON 6/2 4 1 6
GEIR SVEINSSON 1 1
SIGURÐUR SVEINSSON
HÉÐINN GILSSON
JÚLÍUS JÓNASSON 4/4
Skíðaíþróttir:
Bikarmót á
Siglufirði
Frá Erni Þórarínssyni fréttaritara Tímans í
Skagafírði:
Bíkarmót á skíðum var haldið á
Siglufirði um síðustu heigi. Keppt
var I flokkumdrengja og stúlkna
13-14 ára. Vegna óhagstæðs veðurs
á laugardag fór allt mótið fram á
sunnudag, keppendur á mótinu voru
liðlega 70 talsins. Úrslit urðu þessi.
Svig drengja:
1. Davíð Jónsson Reykjavík 1:34,20m
2. Sverrir Rúnarsson Ak. 1:34,56m
3. Sveinn Brynjólfsson Dal. 1:35,08m
Svig stúlkur:
1. Hjálmdís Tómasdóttir ÚíA 1:35,04m
2. Hildur Þorsteinsd. Ak. 1:35,52m
3. Rakel Steinþórsdóttir R. 1:35,96m
Stórsvig drengja.:
1. Kristján Krístjánsson R.
2. Róbert Hafsteinsson ísaf.
3. Sveinn Brynjólfsson Dalv.
1:31,93m
1:32,88m
1:33,56m
Stórsvig stúlkna:
1. Theódóra Mathíesen R.vík
2. Hildur Þorsteinsdótt.Ak.
3. Þórey Ámadóttir Ak.
1:32,30m
1:32,93m
1:34,63m
ÖÞ/BL
Laugardagur kl.14:55 W W
10. LEIKVIKA- 10. mars 1990 1 X m
Leikur 1 Chelsea - Norwich
Leikur 2 Man. City - Arsenal
Leikur 3 Nott. For. - Coventry
Leikur 4 Tottenham - Charlton
Leikur 5 Blackburn - W.B.A.
Leikur 6 Hull - Middlesbro
Leikur 7 Oxford - Leeds
Leikur 8 Plymouth - Swindon
Leikur 9 PortVale - Bournemouth
Leikur 10 Sunderland - Leicester
Leikur 11 Watford - Newcastle
Leikur 12 West Ham - Portsmouth
Allar upplýsingar um getraunirvikunnar hjá : LUKKULÍNUNNI s. 991002
FJÓRFALDUR POTTUR