Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 26. apríl 1990
DAGBÓK
Ragnheiður Jónsdóttir við eitt verka sinna á sýningunni.
Síðustu dagar sýningar
Ragnheiðar Jónsdóttur
í Norræna húsinu
Nú stendur yfir sýning Ragnheiðar
Jónsdóttur í Norræna húsinu, þar sem
hún sýnir teikningar. Sýningin er opin
daglega kl. 14:00-19:00, en henni lýkur á
sunnudagskvöld 29. apríl.
Frá Húnvetningafélaginu
Laugardaginn 28. aprt'l hefur Húnvetn-
ingafélagið í Reykjavík félagsvist í Húna-
búð, Skeifunni 17, kl. 14:00. Þetta er
„Paravist“ og allir eru velkomnir.
Sunnudaginn 29. apríl er kaffiboð fyrir
eldri Húnvetninga í Glæsibæ kl. 14:30.
Fundur Kvenfélags Neskirkju
Kvenfélag Neskirkju heldur fund
mánudagskvöldið 30. aprtl kl. 20:30 í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Myndirnar frá jólafundinum verða af-
hentar félagskonum.
Minningarspjöld Neskirkju fást hjá
kirkjuverði og hjá Hrefnu í síma 13726.
Veislukaffi og hlutavelta
hjá Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins r'
Reykjavík verður með veislukaffi og
hlutaveltu t' Drangey, Síðumúla 35,
þriðjudaginn 1. maí kl. 14:00.
RISIÐ
Borgartúni 32
Sjáum um erfisdrykkjur
Upplýsingar í síma 29670
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar
Miklubraut 68 @13630
t
Bróðir okkar
Þórarinn Kristjánsson
bóndi, Holti, Þistilfirði
lést á heimili sínu sunnudaginn 22. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Svalbarðskirkju þriðjudaginn 1. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Arnbjörg Kristjánsdóttir
Árni Kristjánsson
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar
Þorgils Benediktssonar
læknis
Kársnesbraut 47, Kópavogi
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Vífilsstöðum.
Emma Benediktsson
Björn Þorgilsson
Baldur Þorgilsson
Guðmundur Hjörtur Þorgilsson
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag, fimmtudag 26. apríl. Kl. 14:00 er
frjáls spilamennska. Kl. 19:30 félagsvist
og kl. 21:00 er dansað.
Göngu-Hrólfar hittast nk. laugardag
kl. 11:00 aðNóatúni 17.
Margrét Thoroddsen, frá Trygginga-
stofnun ríkisins, verður til viðtals fimmtu-
daginn 17. maí. Nánari upplýsingar á
skrifstofu félagsins í síma 28812.
. "J
■
Norræna húsið:
Fyrirlestrar um málefni Eystra-
saltslanda og Austur-Evrópu
Föstudaginn 27. apríl kl. 20:30 heldur
Eistlendingurinn Johann Are fyrirlestur í
Norræna húsinu um stöðu mála í Eistlandi
um þessar mundir.
Johann Are er blaðamaður og stjórn-
málamaður, m.a. er hann fulltrúi Eist-
lands í Æðsta ráði Sovétríkjanna. Frá
áramótum hefur hann verið fréttamaður
eistneska útvarpsins í Stokkhólmi, jafn-
framt því sem hann hefur verið styrkþegi
sænska sjónvarpsins sama tímabil. Hann
hefur sérstaklega látið sig umhverfismál
varða og í fyrra hlaut hann umhverf-
isverðlaun norska Vinstri flokksins. Jo-
hann Ore er nýkominn frá heimalandi
sínu, en þar hefur hann dvalist mestallan
aprílmánuð. Fyrirlestur hans verður flutt-
ur á sænsku, en hann talar einnig ensku.
Hann er hér í boði Norræna hússins.
Á laugardaginn, 28. apríl kl. 14:00
heldur Krístian Gemer, dósent í Lundi,
fyrirlestur um Austur-Evrópu án forræðis
Sovétríkjanna. Gerner er í hópi kunnuslu
sérfræðinga Norðurlanda í málefnum
Sovétríkjanna og Austur-Evrópu. Hann
hefur skrifað 5 bækur um sovésk málefni
síðustu 12 árin, einn eða með öðrum. Þá
hefur hann skrifað fjölda tímaritsgreina
um Sovétríkin og Austur-Evrópu og er
eftirsóttur fyrirlesari um þau efni. Síðustu
þrjár vikur hefur hann verið í rannsókna-
ferð um Sovétríkin. Fyrirlestur Gerners
verður haldinn á sænsku.
Það er Norræni sumarháskólinn, sem
stendur að heimsókn Gerners hingað og
er fyrírlesturínn haldinn í samstarfi hans
og Norræna hússins.
Guðlaug María Bjarnadóttir og Þórdís Arnljótsdóttir f hlutverkum sínum i
„HJARTATROMPET".
Síðustu sýningar
á „Hjartatrompet"
á fimmtudag og sunnudag
tslenska leikhúsið verður með síðustu
sýningar á Ieikriti Kristínar Ómarsdóttur
„Hjartatrompet" í kvöld, fimmtud. kl.
20:30 og á sunnudagskvöld á sama tíma.
Sýningarnar eru í Leikhúsi Frú Emilíu,
Skeifunni 3C.
Leikstjóri er Pétur Einarsson. Leikarar
eru: Guðlaug María Bjarnadóttir, Hall-
dór Björnsson, Þórarinn Eyfjörð og Þór-
dís Arnljótsdóttir.
Ekki reynist unnt að hafa aukasýning-
ar, svo sýningin á sunnudagskvöld er sú
allra-síðasta.
Sinfóniuhljómsveitin:
Nýtt íslenskt verk
og einleikur á gítar
Á áskriftartónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Háskólabíói fimmtud. 26.
apríl kl. 20:30 verða flutt þrjú verk. Fyrst
er frumflutt nýtt verk eftir Pál P. Pálsson,
Concerto di Giubileo, Fagnaðarkonsert,
sem hann samdi í tilefni 40 ára afmæli
Sinfjóníuhljómsveitarinnar í mars. Þá er
gítarkonsert eftir Joaquin Rodrigo: Con-
certo de Aranjuez. Einleikari verður
Arnaldur Amarson, sem nú leikur í
fyrsta sinn einleik með hljómsveitinni.
Þriðja verkið verður svo Sinfónía nr. 8
eftir Antonín Dvorák.
Stjórnandi á tónleikunum verður Kar-
slen Andersen, sem var aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitarinnar árin 1973-
1977. Hann er nú prófessor við Tónlistar-
háskólann í Osló.
SCHMUEL GELBFISZ
A. Scott Berg, Goldwyn,
579 bls. Knopf, $ 24.95.
Með Metro og Mayer á sína hvora
hönd er nafn hans kunnast, en hann
var fæddur Schmuel Gelbfisz í
Varsjá 1879 af fátæku foreldri. Sext-
án ára gamall gekk hann 500 mílur
til Hamborgar og varð þar lærlingur
í hanskagerð. Til Bandaríkjanna fór
hann án landvistarleyfis, lítt mæl-
andi á enska tungu.
í New York heillaðist hann af
kvikmyndum, þá á frumstigi, þegar
honum varð gengið inn í „nickelode-
on“. Taldi hann mág sinn, Jesse
Lasky, á að styðja sig til kvikmynda-
gerðar. Nafni sínu breytti hann,
fyrst í Goldfish, síðan í Goldwyn
Félag gerði hann við einn samstarfs-
manninn af öðrum, fyrst við Lasky
mág sinn, þá Cecil B. DeMille og
loks við Adolph Zukor, en varð
síðan einn á báti. Honum var lagið
að hæna til sín leikara, sem gerðu
garð hans frægan svo sem, Ronald
Colman, Danny Kay, David Niven,
Merlc Oberon og Gary Cooper.
Frægasti kvikmyndagerðarmaður
hans var William Wyler. Goldwyn
sjálfan, hégómlegan, en fastan fyrir,
bar hátt.
Aðdragandi síðari
heimsstyrjaldarinnar
Donald Cameron Watt:
How War Came, 736 bls.,
Heinemann, 25 pund.
í ritdómi um bók þessa (Hvernig
styrjöldina bar að), í Times Literary
Supplement, 1. september 1989,
segir:
„(Bókin) ber þess vitni að Donald
Cameron Watt var í mörg ár í
alþjóðlegu starfsliði sem kannaði
skjöl þýska utanríkisráðuneytisins. í
senn nýtur bókin þess og geldur.
Ávinningur er af miklu heillandi efni
ásamt vendilega tilfærðum heimild-
um um orð og gerðir nálega allra
einstaklinga sem fyrir bregður í
sjónarspili evrópsks stjórnarerind-
rekstrar 1938 og 1939. Flestir töldu
þeir sig starfa leynilega þótt símtöl
þeirra væru hleruð og diplómatískt
dulmál þeirra ráðið af vinum sem
óvinum. Gallinn er sá að erfitt er að
eygja skóginn sakir trjánna og hætt
er við að lesandinn láti telja sér trú
um að allt hefði á annan veg farið ef
X hefði einungis látið önnur orð
falla eða hefði ekki misskilið herra
Y eða signor Z hefði skorist í leikinn
á öðrum tíma.“ Rýnir
Sokkin skip og sandorpin
George Bass, Ships and Shipwrecks
of the Americas, 260 bls., Thames &
Hudson, 24,95 pund
Gullskipa einna er ekki ieitað -
grafinna í fjörusöndum eða sokk-
inna á hafsbotni - heldur hvers
konar skipa. Margar eyður eru í
þekkingu manna á hafskipum fyrri
alda. „Samt sem áður vita fornleifa-
fræðingar meira um grísk og róm-
versk skip en skip spænskra og
portúgalskra sæfarenda á 15. og 16.
öld,“ segir í ritdómi í New Scientist,
19. ágúst 1989.
Ritstjóri þessarar bókar, George
Bass, er prófessor við Texas A&M
University og er hann kunnur af riti
stnu The History of Seafaring, Sögu
siglinga. f fyrrnefndum ritdómi segir
enn: „Bókin flytur líka nýjan fróð-
leik um forn norður-amerísk skip;
um hvalfangara Baska sem veiddu
undan Labrador; um skip sem fluttu
evrópska landnema til Norður-Am-
eríku og mörg fleiri. Henni lýkur á
hinum stóru seglskipum 19. aldar.“
Rýnir
„fý held
éggíuigi heim“
Eftir einn -ei aki neinn
UUMFEROAR
RAO
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti ríkisins:
Raflost
Við heyrum stundum varað við
því að snerta samtímis tvö rafmagns-
tæki, eða til dæmis að snerta raf-
magnstæki með annarri hendi og
vask eða krana með hinni.
Öðru hverju heyrast fregnir um að
fólk hafi fengið raflost með þessum
hætti.
Ástæðan er sú að öryggisbúnaður-
inn í rafmagnstöflunni vinnur ekki;
eins og hann á að gera.
Rafmagnseftirlit ríkisins hvetur
húsráðendur til að láta löggiltan raf-
vcrktaka líta á rafkerfið hjá sér, ef
nokkur vafi cr í huga þeirra um að
öryggi í sambandi við rafmagn sé
nægilega tryggt.
BÍLALEIGA
með útibú allt í kringum
landið. gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bíla erlendis
interRent
Europcar