Tíminn - 16.05.1990, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 16. maí 1990
Tíminn 13
Kópavogur:
Kosningaskrifstofur B-listans
Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin virka daga kl. 9-22 og
laugardaga kl. 13-18, símar 43222 og 41590.
Skrifstofan að Engihjalla 8 er opin virka daga kl. 17-22 og
laugardaga kl. 13-15, sími 40810.
Þinghólsbraut 19 er opin virka daga kl. 17-22 og laugardaga kl.
13-15, símar 40701 og 40730.
Xp Alltaf heitt "%f n
■ Dá könnunni,^V“D
Þarftu að kjósa utankjörstaða!
Utankjörstaðaskrifstofa Framsóknarflokksins er að Nóatúni 21, 3.
hæð (gegnt Radíóbúðinni).
Sími: 624731 og 624739.
í Reykjavíkferutankjörstaðakosning fram í Ármúlaskólanum daglega
frá kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnudaga frá kl. 14-18.
Við á skrifstofunni munum að sjálfsögðu veita kjósendum sem kjósa
þurfa utankjörstaða alla aðstoð í þeim efnum.
Stuðningsmenn og framsóknarfólk hafið samband við okkur um
utankjörstaðakosningu.
Framsóknarflokkurinn.
Borgarnes - Kosnlngaskrifstofa
Skrifstofan að Borgarbraut 1 er opin sem hér segir: Mánudaga til
föstudaga kl. 17.00-19.00 og 20.30-22.30. Laugardaga og sunnudaga
kl. 13.00-18.00.
Símar 71633 og 71966.
Allir velkomnir. Kaffi á könnunni.
Framsóknarfélag Borgarness.
Selfoss - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi.
Opið hús að Eyravegi 15, alla virkadaga kl. 16.00-22.00, laugardaga
kl. 10.00-13.00. Sími 22547 og 22955
Allir velkomnir. - Heitt á könnunni.
Framsóknarfélag Selfoss
Dalvík - Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa Framsóknar- og Vinstri manna er í Jónínubúð.
Opið alla virka daga kl. 20-22 og laugardaga kl. 17-19. Sími 96-61850.
H-listinn
B-listinn ísafirði
Kjördæmissamband framsóknarmanna og Framsóknarfélag ísafjarð-
ar eru með opna skrifstofu að Hafnarstræti 8, ísafirði. Opið alla virka
daga frá kl. 13.30 til kl. 22.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00
til kl. 18.00. Sími 3690 og 4600. Kaffi á könnunni. Allir velkomnir.
Akurnesingar - Kvöldskemmtun
verður haldin þann 19. maí kl. 19.30 á nýja veitingastaðnum
Ströndinni. Matur - skemmtiatriði - dans.
Allir veiunnarar B-listans velkomnir.
Miðapantanir á kosningaskrifstofunni í síma 93-12050.
Frambjóðendur B-listans
Sandgerði - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi. Opið hús að Strandgötu 14 alla virka
daga kl. 20.00-22.30, um helgar kl. 14.00-19.00. Allir velkomnir. Alltaf
heitt á könnunni. Sími 92-37850.
B-listinn.
Þorlákshöfn
Kosningaskrifstofa B-listans er í gamla Kaupfélagshúsinu við Óseyr-
arbraut. Opið fyrst um sinn mánudaga-föstudaga frá kl. 20.30-22.00.
Sími 98-33475.
Akureyri
Skrifstofa Framsóknarflokksins er að Hafnarstræti 90, Akureyri. Opin
alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-19.
Kosningastjóri er Sigfríður Þorsteinsdóttir. Símarnir eru 96-21180 og
96-11180.
Frambjóðendur verða við alla daga.
Bömin öll tilbúin aö halda afmælisveisluna. Fimmburamlr sitja fyrir framan en Qórburamir fyrir aftan. Þau þurfa ekki
enn skó á fætuma, því aö lítið eru þau farin aö ganga
Merkilegt afmælisboð
— Fjórburar og fimmburar halda saman upp á eins árs afmæli sitt
í Perth í Ástralíu var nýlega haldið
upp á eins árs afmæli 9 bama. Af-
mælið var alveg einstakt og annað
eins hefur áreiðanlega aldrei verið
haldið hátíðlegt áður. Bömin vom
sem sagt 9, cn fæddust í tveimur
fæðingum — þau vom fimmburar
og fjórburar.
Rennie-fjórburamir og Pavlenko-
fimmburamir em glasaböm. Þau
komu öll í heiminn sama dag á
sömu fæðingardeild og það vom
sömu læknar og yfirsetukonur sem
tóku á móti báðum hópunum.
Bömin og foreldrar þeirra eiga öll
heima í Perth.
Gina tekst á loft við bendingu bandaríska töframannsins, Franz Harary.
Lollobrigida í lausu lofti
Rainier prins og böm hans, Albert, Caroline og Stephanie, skemmtu sér hiö besta á hátíöinni, þar sem hinir snjöllustu
töframenn heimsins sýndu listir sínar
Fyrir nokkm héldu töframenn hvað-
anæva úr heiminum keppni sín í
milli í Monte Carlo, og var það í ann-
að sinn er þeir efna til slíkrar keppni.
í dómnefndinni sem greiddi at-
kvæði um atriðin var m.a. ítalska
kvikmyndadísin Gina Lollobrigida.
Tók hún þátt í sjálfri keppninni, sem
aðstoðarmaður bandaríska sjón-
hverfingamannsins Franz Harary
Með hjálp hennar framkvæmdi
töframaðurinn atriði sitt „Stúlkan
svífandi". Lollobrigida lagist niður á
borð og þegar Harry gerði hreyfingu
með hendinni hófst leikkonan ská-
hallt upp í loftið. Til þess að sanna að
hún svifi í loftinu tók töframaðurinn
bíldekk og smeygði því yfir Ginu.
Brellan er framkvæmd þannig: Gina
Lollobrigida lá á málmstöng, sem
falin var undir fotum hennar. Annar
endi stangarinnar var sveigður í 90
gráðu hom niður á við og sást því
ekki. Þar var hann tengdur vökva-
þrýstibúnaði, sem lyfti leikkonunni á
réttu andartaki. Til þess að áhorfend-
ur sæu ekki stöngina var hún máluð í
sama lit og bakgrunnurinn.