Tíminn - 23.06.1990, Blaðsíða 1
': £&■
Á þeim árum sem liðin eru af ferli El-
ísabetar II. hefur breska konungsveldið
orðið að samsama sig miklum breyting-
um í Bretlandi, sem og í öllum heimin-
um. Er hún kom til ríkis ríkti hún yfír
rúmlega fimmtíu löndum og landsvæð-
um er síðan hafa flest gerst sjálfstæð
Samveldislönd. Drottningin er höfuð
Samveldisins og mörg þessara ríkja eiga
sér hana að þjóðhöfðingja. Því hefúr
hún orðið vitni að ekki minna umróti en
margir forfeður hennar og forverar hafa
orðið í aldanna rás, en konungsveldið er
elsta veraldlega stofnun í Bretlandi og á
rætur að rekja að minnsta kosti til ní-
undu aldar. Drottning getur rakið ættir
------------------- ð
Elísabet II. hefur lifað eina mestu
umrótstíma i nœr tólf hundruð ára
sögu konungdóms i landi sínu
_______________________________J
sínar til Egbert konungs, sem sameinaði
England undir stjóm sinni árið 829. Því
er konungdæmið minnst fjórum öldum
eldra en þingið og þremur öldum eldra
en réttarkerfið. Aðeins einu sinni hefur
verið konungslaust í Bretlandi á þessu
langa tímabili, en það var er Cromwell
kom á lýðveldi 1649 — 1660.
í tilefni af heimsókn Hennar hátignar
verður hér rakinn æviferill hennar í stór-
um dráttum.