Tíminn - 08.09.1990, Page 7

Tíminn - 08.09.1990, Page 7
Laugardagur 8. september 199Ö r r.: I a ■ - í ■« Tíminn 7 LAUGARDAGURINN 8. SEPTEMBER 1990 markaðarins hefur verið gott og raunar sýnt á sér nýjar hliðar. Þar ber hæst hið víðtæka samkomu- lag í kjara- og efhahagsmálum sem komist var að í febrúarmán- uði í vetur. Að samkomulagi þessu stóðu helstu áhrifaöfl þjóð- félagsins, ríkisvaldið, atvinnu- rekendur, íjölmennustu laun- þegasamtökin, bændasamtökin og bankavaldið. Þetta víðtæka samkomulag varð til í sambandi við undir- búning kjarasamninga milli helstu aðila hins almenna vinnumarkaðar og þróaðist þannig að samtök almennra ríkis- og bæjarstarfsmanna, BSRB, urðu aðili að málinu, auk þess sem rikisvaldið gegndi lykilhlutverki í sam- komulaginu, bæði sem ráðandi opinberrar efnahagsstefhu og sem vinnuveitandi. Þar sem bankar eru eðlilega mjög ráð- andi um peninga- og lánsfjár- mál, þ. á m. vaxta- og fjár- magnskostnað, þótti nauðsyn- legt að þeir væru aðilar að alls- herjarsamkomulaginu. Það máttu einnig kallast söguleg tíðindi í þessu sambandi að Stéttarsamband bænda gerðist þátttakandi í þeirri „þjóðarsátt“ sem hér var verið að stofha til um samræmda þróun efna- hags- og kjaramála í eitt og hálft ár. Hvað fólst þá í þessu viða- mikla samkomulagi, sem helstu valdaöfl þjóðfélagsins komu sér saman um? Þvi verð- ur e.t.v. ekki svarað með einu orði eða einni setningu. En kjaraatriði samkomulagsins eru ljós. Þar skal einkum bent á markmiðið um að koma verð- bólgu niður á viðráðanlegt stig, treysta íslensku krónuna sem alvörugjaldmiðil, vinna það tvennt, sem íslendingar hafa látið undir höfuð leggjast í ára- tugi, að tryggja kaupmátt launa með stöðugu verðlagi og treysta rekstrargrundvöll at- vinnuveganna án sífelldra gengisfellinga. Hér var efnt til jákvæðrar samstillingar á verð- lags- og kaupgjaldsþróun í stað þess að láta þessi markaðsöfl rekast á í sífellu með stigvax- andi keðjusprengingum og verðbólguvexti. Um það munu allir aðilar þessa samkomulags sammála að allsherjarsamkomulagið, sú þjóðarsátt sem hér hefúr verið gerð, standi og falli með því að verðlagsþróun verði í samræmi við sett markmið, að verðbólg- an hjaðni og verði ekki meiri en gerist í viðskiptalöndum okkar og hjá nágrannaþjóðum sem við getum borið okkur saman við. Öllinn má ljóst vera að þessu markmiði verður ekki náð nema á afmörkuðum tíma eins og samkomulagið gerir ráð fyrir og að verja verður þessa þróun fýrir truflunum eftir því sem í okkar valdi stendur. Reynsla fyrstu mán- aða samkomulagsins hefur sýnt að öllu verður til að tjalda að tryggja framkvæmd þess. Með samstilltum vilja aðila samkomulagsins .hefúr hingað til tekist að haldá réttri stefhu. En það hefúr ekki verið átaka- laust. Samskiptamistök? Við höfúm kallað febrúarsam- komulagið þjóðarsátt og notað það orð í góðri trú. En saga þeirra fáu mánaða sem liðnir em síðan sáttin var gerð, sýnir eigi að síður að nokkuð vantaði á að sáttin næði til allra sem raunverulega eiga hlut að máli. A.m.k. er vist að Bandalag háskólamenntaðra starfsmanna ríkisins, sem í em yfir 20 aðildarfélög með þúsund- um starfsmanna, telja sig óbund- in af þjóðarsáttinni. Að formi til er það rétt að BHMR var óbundið af þjóðar- sáttinni. Ef til vill vom það ein- hvers konar samskiptamistök sem ollu þvi að þessi samtök vom ekki tekin með þegar til þjóðarsáttarinnar var stofhað. En víst er að þau urðu viðskila við meginfylkingar launþegasam- taka og hafa kosið að vera það áffam, sem þýtt hefúr árekstra við aðila allsheijarsamkomu- lagsins, ekki bara ríkisvaldið, heldur launþegasamtökin sem standa að þjóðarsáttinni. Það er alger misskilningur að BHMR eigi aðeins í deilu við vinnuveit- anda sinn, íslenska ríkið, eða bæjarfélögin, þar sem það á við. Engum getur dulist að með því að standa utan við þjóðarsáttina em BHMR-menn að stofha til beinna ýfinga við önnur laun- þegasamtök miðað við það sér- staka ástand sem er í kjaramál- um, þ.e.a.s. það stöðvunartíma- bil, sem kalla má að ríki meðan gildistími þjóðarsáttarinnar varir. Málin standa einfaldlega þannig að margumtöluð 4,5% hækkun á launum BHMR-manna hefúr keðjuverkandi margfóldunar- áhrif í launakerfinu, sem koll- varpa myndi verðlagsþróun í landinu og margfalda verðbólgu í stað þess að hún hjaðni. Eins og mál stóðu vom engin önnur ráð til að koma í veg fyrir þessa rösk- un á verðalagsþróun en banna launahækkun BHMR-manna með lögum. Þetta lögbann á launahækkun er liður í opinberri efhahagsstjóm og verður að meta í því ljósi. Fordæmi fyrir slíku em mörg hér á landi, ekki af því að íslensk stjómvöld séu ffekari til valdbeitingar en gerist og gengur, heldur af því að íslenskar efhahagsástæður hafa krafist þess ffamar þvi sem þær gerast annars staðar. Með þessu er alls ekki sagt að félagsmenn í BHMR hafi ekkert til síns máls. Vist var skýrt ákvæði i samningi þeirra sem gerði ráð fyrir hækk- un 1. júlí sl. sem út af fyrir sig hefði ekki verið talin mikil á verðbólgutíma, en hefði verkað eins og eldur á tímum verðbólgu- hjöðnunar. Þetta áttu BHMR- menn að skilja. Þeir áttu að setja sig inn í aðstæður eins og þær vom orðnar, taka því vel að júlí- hækkuninni yrði frestað eins og þeim stóð til boða. Einangrun BHMR BHMR-samningurinn ffá 1989 mátti teljast háskólamenntuðum starfsmönnum ríkis og bæja hag- stæður og skynsamlegur í heild sinni. Ágæti þessa samnings lá alls ekki í því ákvæði, sem allt er nú látið snúast um þ.e. 4,5% hækkun 1. júli, heldur þeirri við- urkenningu sem fólst í því að endurmeta skyldi launaviðmið- unarkerfi háskólamenntaðra manna. Það hefði auðveldað að skapa almennan skilning á þessu endurmati sem m.a. felur í sér rökstuðning fyrir því að háskóla- menn skuli vera miklu betur launaðir en aðrir launamenn — að háskólamenn hefðu gengist undir þjóðarsáttina hvað varðar umsamda júlíhækkun og komast hjá þeim ýfingum og tortryggni sem komin er upp í launþega- hreyfingunni, þvert ofan í anda þjóðarsáttarinnar. Háskóla- menntaðir starfsmenn rikisins hafa ekki gert sjálfúm sér neinn greiða með stífhi sinni og bók- stafstúlkun á einni grein kjara- samningsins gagnstætt heildar- skilningi á markmiði allsheijar- samkomulags um þróun efna- hags- og kjaramála, sem augljóslega yrði háskólamennt- uðum jafhmikill fengur sem öðr- um launamönnum og þjóðfélag- inu í heild. Launagreiðslur í verðbólgukrónum leysa einskis manns vanda. Laun öðlast þá fyrst kaupmátt þegar þau em greidd með traustum gjaldmiðli, alvörukrónum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.