Tíminn - 08.09.1990, Side 8
8 Tíminn
Laugardagur 8. september 1990
,vr\r\u<
KJORDÆMISÞING
framsóknarmanna í
Vestfjarðakjördæmi.
Haldið að Núpi í Dýrafirði
8.-9. september 1990
DAGSKRÁ:
Laugardagur 8. september:
1. kl. 14.00 Þingsetning
2. kl. 14.10 Kosning starfsmanna þingsins
3. kl. 14.15 Kosning nefnda og framlagning mála
4. kl. 14.40 Skýrslur stjórnar, umræður og afgreiðsla
5. kl. 15.10 Ávörp gesta
6. kl. 15.30 Kaffihlé
7. kl. 16.00 Stjórnmálaviðhorfið - staða og horfur
8. kl. 16.40 Ávarp þingmanns og varaþingmanns
9. kl. 17.30 Almennar umræður
10. kl. 19.00 Matarhlé
11. kl. 20.00 Umræður um framboðsmál
12. kl. 21.00 Fundi frestað
Sunnudagur 9. september:
1. kl. 09.00 Nefndarstörf
2. kl. 12.00 Hádegisverður /
3. kl. 13.00 Afgreiðsla mála
4. kl. 14.00 Kjör stjórnar og nefnda
5. kl. 14.30 önnur mál
6. kl. 15.00 Þingslit
Stjórnin
Umhverfismálaráðstefna:
Virðum líf - verndum jörð
Ráðstefna um umhverfismál verður haldin I Vestmannaeyjum
laugardaginn 29. sept. nk.
Ráðstefnan er öllum opin. Nánar auglýst síðar.
SkráninghjáÞórunni.sími 91 -674580, og Svanhildi, s(mi 12041 e.h.
Landssamband framsóknarkvenna, LFK.
m
Reykjavík
Létt spjall á laugardegi
Laugardaginn 8. september hefst aftur „Létt
spjall á laugardegi". Að þessu sinni verður
staðan í álviðræðunum tekin.
Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaöur
innleiðir og stýrir umræðum.
Fundurinn verður að Höfðabakka 9, 2.,hæð
að vestanverðu (Jötunshúsinu og hefst kl.
10.30.
Fulltrúaráðið.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
m
hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu)
Sími 91-674580.
Opið virka daga kl. 8.00-16.00.
Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn.
Þingvallaferð
Vetrarstarfið hefst með ferð til Þingvalla laugardaginn 8. septem-
ber nk. Boðið veröur upp á kaffi og meðlæti.
Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni og lagt af stað kl. 14.00,
komið verður aftur kl. 18.00.
Upplýsingar i síma 674580. Mætum vel.
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík.
Akranes - bæjarmál
Kominn tími til að tengja. Tengja liðið saman eftir sumarfríið.
Bæjarmálafundur laugardaginn 8. sept. kl. 10.30 I Framsóknar-
húsinu við Sunnubraut.
Mætiö öll hress og kát.
Bæjarfulttrúamlr.
SPEGILL
Kartrembusvfnið Tony Danza ásamt konu slnnl, sem nú er búin að fá nóg af eigingiminni og frekjunni í manni
sínum.
Hver á eiginlega að ráða?
Tony Danza, sem leikur heimilishjálpina í „Hver á að
ráða?“, er nú að fara með hjónaband sitt í hundana
vegna deilna um það hver eigi að ráða. Tony er víst
gegnumheilt ítalskt karlrembusvín, sem álítur að konan
hans eigi að vera sæt og góð og umfram allt heima hjá
sér þegar hann er úti að dandalast með vinum og kunn-
ingjum. Hans hlutverk sé að vinna fyrir matnum og
hlutverk konunnar að elda hann. Velgengni Tonys héfur
stigið honum til höfuðs og hann er sannfærður um að
hann sé möndull jarðar. Menn segja að hann sé slæmt
tilfelli af sérframtrönusjúldingi, sem aldrei geti sleppt
nokkru tækifæri til að koma fram opinberlega.
Þetta hefur orðið þess valdandi að konan hans er orðin
hundleið á að bíða eftir að hans hátign láti sjá sig heima
hjá sér og þá sjaldan það gerist er allt í háalofli. Skilnað-
ur er því á döfinni, það eina sem hindrar er að frami
Tonys gæti hugsanlega borið skaða af því umtali sem
slíku fylgir.
Enn
um
Hvíl í friði er vinsæl áletrun á leg-
steinum. Elvis Presley virðist þó
ekki ætla að hlotnast það, þökk sé
óprúttnum náungum sem reyna hvað
þeir geta að auðgast á lífi hans og
dauða.
Sá sem nú hefur séð sér leik á borði
er heitir Murray Silver og hefur
hann skrifað bók þar sem hann held-
ur því fram að Presley hafi verið
myrtur. Hann segir að tveir menn
hafi ráðist á Presley á heimili hans
og slegið hann karatehöggi á hálsinn
sem hafi orðið til þess að barki hans
lokaðist sem leiddi til köfhunar.
Hann segist hafa vitni að árásinni
og einnig vitni sem hafi heyrt annan
manninn stæra sig af að hafa myrt
Elvis Presley. Hvers vegna hann fer
ekki með „vitneskju“ sína til lög-
reglunnar heldur gefur út bók er
spuming um dollara.
Sögusagnir hafa gengið um að El-
vis sé á lífi og hafi sést á ótrúlegustu
stöðum hafa verið Hfseigar. Hann á
að hafa framið sjálfsmorð, látist af
ofnotkun eiturlyfja, fengið hjartas-
lag af offitu, og nú á hann að hafa
verið myrtur. Hvað verður það næst?
Elvis Presley var goðsögn í lif-
anda Iffi og ekkert lát vlrðlst á
tröllasögum um andlát hans.