Tíminn - 19.10.1990, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.10.1990, Blaðsíða 8
8Tíminn Föstudagur 19. október 1990 Föstudagur 19. október 1990 Tíminn 9 VALUR ARNÞÓRSSON Enda þótt Valur Arnþórsson hafi að- eins verið 55 ára þegar hann lést, átti hann mikið starf að baki. Mest voru störf hans innan samvinnuhreyfing- arinnar þar sem hann starfaði um 36 ára skeið. Segja má að henni hafi hann helgað krafta sína. í>ar var hann lengi í fylkingarbrjósti, bæði með því að stýra stærsta kaupfélagi landsins og síðar með þátttöku í stjóm Sambandsins og stjórnarfor- mennsku þar í 11 ár. Það er ljóst í mínum huga, að sam- vinnuhreyfmgin á stóran hlut í upp- byggingu velferðarþjóðfélags á Is- landi. Mikil alhliða uppbygging hef- ur orðið á undanfömum áratugum, ekki síst í sjávarplássum víðs vegar um landið, þar sem stór hluti út- flutningsframleiðslunnar fer fram. Þéttbýlið f Reykjavík hefur notið góðs af þessari uppbyggingu, þar sem æði stór hluti íbúanna þar starf- ar við ýmsa þjónustu og viðskipti sem snerta landsbyggðina alla. Á Ak- ureyri hefur KEA verið leiðandi afl í verslun og viðskiptum og einnig úr- vinnslu landbúnaðarafurða. Félagið hefúr og verið virkur þátttakandi í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða á ýmsum stöðum við Eyjafjörð og átt eignaraðild að Útgerðarfélagi Akur- eyringa hf. Margar aðrar greinar þjónustu hafði kaupfélagið með höndum. Á meðan Valur Arnþórsson starfaði í KEA, átti sér stað þar mikil upp- bygging á vegum kaupfélagsins og vegna þess, hve verðbólgan og skil- getin aifkvæmi hennar ollu óstöðug- um rekstrarskilyrðum frá ári til árs, þá reyndi meira á þá sem stóðu fyrir atvinnurekstrinum. KEA var fjár- hagslega traust og betur í stakk búið til að mæta hinum erfiðu rekstrar- skilyrðum síðustu ára en mörg önn- ur fyrirtæki. Vegna hins margþætta starfs Vals þurfti hann oft að sitja fundi utan Akureyrar. Starfið í Sambandinu sem stjómarformaður gerði kröfur til setu á mörgum fundum syðra. Sama gilti um fundi í öðrum félög- um þar. Ég undraðist oft þrek Vals í að mæta á öllum þessum fundum og vera þar virkur aðili. Sjálfur hafði hann mikið starfsþrek. Hann var skarpgreindur og reyndi jafnan að setja sig vel inn í mál. Hann var mælskur og átti gott með að skynja kjama hvers verkefnis. Fyrir utan meðfædda eiginleika þá komu fé- lagsmálastörfm innan samvinnu- hreyfingarinnar að góðu haldi við málflutning og ræðumennsku. Við Valur áttum langt samstarf, fyrst í Samvinnutryggingum og síð- an þegar hann kom í stjórn Sam- bandsins og þó mest eftir að hann varð þar stjómarformaður. Enda þótt okkur greindi stundum á um leiðir, þá vorum við alltaf sammála um það markmið, að samvinnustarf- ið í landinu ætti að skila sem bestum árangri fyrir samvinnumenn og þjóðina alla. Á vettvangi stjómmálanna fylgdi Valur Framsóknarflokknum að mál- um. Sjálfur sagðist hann á unga aldri hafa hrifist af Eysteini Jónssyni, er hann kom á framboðsfundi á Eski- firði og flutti þar mál sitt af rökvísi og mikilli mælsku. Átti Valur meðal annars lengi sæti í miðstjórn Fram- sóknarflokksins og allt til dauða- dags. Síðastliðin sex ár átti hann sæti í framkvæmdastjóm flokksins. Ýmsum öðrum trúnaðarstörfum hefur hann gegnt fyrir flokkinn í gegnum árin. Þegar Valur hóf störf í Landsbank- anum sem bankastjóri 1. febrúar 1989, var hann vel undir það búinn að taka að sér þetta ábyrgðarmikla starf og þá sérstaklega vegna þeirrar reynslu sem hann hafði af rekstri fyrirtækja, bæði smáum og stómm. Slík reynsla er ómetanleg. Við Valur snæddum saman hádegis- verð saman fyrir stuttu. Var hann þá m.a. að skýra mér frá störfum sínum í bankanum. Lét hann mjög vel af sér og horfði björtum augum fram á veginn. Hann fór þó ekki dult með það að hann bæri sterkar taugar til samvinnuhreyfingarinnar og árétt- aði hve mikið væri í húfi að sam- vinnustarfið í landinu gæti sigrast á þeim vandamálum sem samvinnufé- lögin hafa búið við undanfarið. Þegar Valur var við nám í Sam- vinnuskólanum kynntist hann skólasystur sinni, Sigríði Ólafsdótt- ur. Þessi kynni urðu til þess að þau Sigríður og Valur gengu í hjónaband árið 1955. Þau eignuðust 5 böm og þau eru: Brynja Dís sagnfræðingur, sonur hennar og Kristins Dagssonar er Val- ur. Ólafur, dýralæknir, giftur Jó- hönnu Baldvinsdóttur lyfjafræðingi. Eru þau búsett í Danmörku. Sonur þeirra er Baldvin. Arna Guðný, myndlistarmaður, búsett í Belgíu. Unnusti hennar er André Miku, nemi í viðskiptafræði. Ólöf Sigríður stúdent, nú við söngnám, og Arn- björg Hlíf, nemi í grunnskóla. Það kom í hlut Sigríðar að stjórna heimili, gæta bús og barna. Reyndist hún sérlega umhyggjusöm móðir og mikil húsmóðir. Heimilisfaðirinn var lengst af störfum hlaðinn og þess vegna reyndi mjög á húsmóð- urina. Ekki er ofsagt að hún hafi verið hinn styrki bakhjallur heimil- isins. Hún fylgdist vel með börnun- um í skóla, þar á meðal að koma þeim í tónlistarnám. Fjölskyldan dáði tónlist og Valur var góður söng- maður. Var hann um skeið virkur fé- lagi í Karlakórnum Fóstbræður. Það mun hafa verið fyrir tilstilli Vals að Kaupfélag Eyfirðinga styrkti Krist- ján Jóhannsson til söngnáms á ítal- íu þegar hann hleypti heimdragan- um á hina erfiðu braut sönglistar- innar. En þrátt fyrir hinn langa og oft stranga vinnudag, var Valur mikill heimilismaður, enda dáður af fjöl- skyldu sinni. Þau hjónin voru bæði félagslynd og þótt þau væru í annríki daganna ávallt reiðubúin að gleðjast með öðrum, þá voru þau ekki síður tilbúin til að veita þeim hjálp sem um sárt áttu að binda. Það eru grimm örlög fyrir Sigríði og fjölskyldu hennar að missa Val svo snögglega. Stutt er síðan fjöl- skyldan tók sig upp frá Akureyri og flutti suður. í rúmt ár höfðu þau bú- ið í húsinu sínu við Mávanes í Garða- bæ. Þau hafa því rétt verið búin að koma sér vel fyrir, þegar ósköpin dundu yfir. Heimilisfaðirinn hrifinn burt á augabragði, aðeins 55 ára að aldri. Þegar Valur er nú kvaddur hinstu kveðju eru mér efstar í huga góðar minningar um samstarf undanfar- inna áratuga og ég þakka það af heil- um hug, jafnframt því sem ég met mjög hið mikla starf sem hann innti af höndum fyrir samvinnuhreyfing- una. Guð blessi minningu hans. Við Margrét vottum Sigríði, börn- unum og öðrum aðstandendum innilega samúð. Við vitum hve ást- vinamissirinn er sár. Megi guð gefa ykkur styrk til að bera sorg og sökn- uð. Erlendur Einarsson Laugardaginn 13. október barst okkur sú harmafregn að vinur okkar, Valur Arnþórsson, væri látinn. Okk- ur setti hljóð. Það er erfitt að skilja á þessari stundu að þessi atorkumikli maður, svo fullur af lífsorku, skyldi hafa verið kallaður í burtu langt fyr- ir aldur fram. Valur var kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á árunum 1971- 1989 og það var á þeim vett- vangi sem kynni okkar hófust. Valur var ráðinn kaupfélagsstjóri KEA að- eins þrjátíu og sex ára að aldri. Það kom fljótt í ljós eftir að Valur tók við starfi kaupfélagsstjóra að hann stýrði félaginu af ákveðni og festu og leiddi Kaupfélag Eyfirðinga far- sællega gegnum ólgusjó erfiðs efna- hagsumhverfis. Undir forystu hans réðst félagið í hvert stórvirkið á fæt- ur öðru og hélt vel sinni stöðu sem eitt af stærstu fyrirtækjum lands- ins. Valur líkti stjómun KEA eitt sinn við „sinfóníuhljómsveit sem þarf á hverjum degi að spila mikið og vandasamt tónverk án þess að falsk- ur tónn heyrist. Hlutverk kaupfé- lagsstjórans hlýtur að vera að halda hljómsveitinni hreinni og tærri og stilla hana þannig saman að allt gangi eins og vera ber.“ Þessi skýring Vals á stjórnunarhlutverki kaupfé- lagsstjóra KEA kemur vel heim við reynsíu þeirra manna sem með hon- um unnu. Hann var næmur á falska tóna og brá skjótt við þegar þurfti að stilla strengi. Starf hans, jafnt innan KEA, bæjar- stjórnar Akureyrar og Sambandsins, mótaðist mjög af þeim vilja að efla grundvallaratvinnuvegina og halda eðlilegu jafnvægi á milli þéttbýlis og strjálbýlis. Stundum var við ramman reip að draga en Valur var ekki einn þeirra manna sem gefast upp við hálfnað verk og með þrautseigju tókst honum margt sem hefði orðið öðrum ofviða. Valur var mjög sterkur persónuleiki og kom það glögglega fram þegar ráðast þurfti í erfið verkefni eða taka erfiðar ákvarðanir. Þetta kom ekki síður fram á fundum því hann var áberandi fljótur að átta sig á hlutun- um og óhræddur við að halda fram hyggju hann bar fyrir vinum sínum. Hlýjan og elskulegheitin einkenndu viðmót hans allt. Missir fjölskyldunnar er mikill. Fjölskyldan var Vali ákaflega mikils virði og í faðmi hennar endurnærð- ist hann eftir erfiðan vinnudag. Ef til vill urðu stundirnar að heiman oft langar en þeim mun dýrmætari var tíminn sem hann átti með konu sinni og börnum. Valur fylgdist vel með námi og störfum barnanna sinna fimm og lét sér annt um þau á allan hátt. Þá var eiginkona hans, Sigríður Ólafsdóttir, honum stoð og stytta í erfiðu og margþættu starfi og raunar sagði Valur að án hennar hefði hann ekki getað sinnt öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. í dag kveðjum við í hinsta sinn góð- an vin með miklum söknuði og trega. Sú vissa að við munum hitta hann á ný handan móðunnar miklu gerir sorgina léttbærari. Guð blessi fjölskyldu hans og veiti henni styrk f sinni miklu sorg. Magnús Gauti og Hrefna Aðrir munu rekja lífs- og starfsferil Vals Arnþórssonar nánar en hér er gert, en fyrir hönd Landsbanka ís- lands votta ég eftirlifandi konu hans, Sigríði Ólafsdóttur, börnum þeirra, barnabörnum, öldruðum föður og öðrum aðstandendum innilegustu samúð. Eyjólfur K. Sigurðsson Formaður bankaráðs Landsbanka íslands Hræðileg er sú frétt að Valur Arn- þórsson er kallaður héðan í sviplegu slysi og átti hann þó góða heimvon. Það er stórmissir að slíkum forystu- manni í blóma lífsins, þegar hann m.a.s. hafði nýlega hafið nýjan starfsferil og átti þar mörgum tökum að lyfta í framtíðinni. Alveg sérstak- lega leitar hugurinn til ástvina hans í bæn um huggun. Örfáum orðum skal Vali Arnþórs- syni nú þakkað það mikla starf sem hann vann á liðnum árum fyrir Sam- vinnuskólann, sem nú er orðinn Samvinnuháskólinn m.a. fyrir til- verknað hans. Þess skal getið að Val- áhuga, þekkingu og skilningi og tryggði málinu framgang í stjóm Sambandsins. í ársbyrjun 1987 tók Valur sæti í skólanefnd Samvinnuskólans og átti síðan beinan þátt í undirbúningi og framkvæmd þeirrar miklu breyting- ar sem varð er skólanum var breytt í sjálfseignarstofnunina Samvinnuhá- skólann. Á síðasta fundi nefndarinn- ar nú fyrir skömmu fagnaði hann því að næsti fundur var ákveðinn á Bif- röst og skyldi einnig fundað með nemendum og starfsmönnum. Nú er svo komið að Valur verður ekki með í hversdagslegum skilningi og er skarð fyrir skildi. Það er mikil eftirsjá að þessum glæsilega forystumanni. Valur var fullur af áhuga og krafti. Hann var mjög starfsamur, tók þátt í félagslífi, var útivistarmaður og átti andleg hugðarefni. Hann átti mikið eftir, en það er annar sem ræður, tekur og gefur. Ég bið hinn Hæsta að vera með Sigríði og börnunum. Jón Sigurðsson Bifröst HH i ■ilPP || í! Valur Arnþórsson, stjórnarformaður SÍS og Erlendur Einarsson forstjórí á blaðamannafundi. sínum skoðunum og fylgja þeim eft- ir. Þessir eiginleikar ásamt miklum dugnaði og ósérhlífni urðu til þess að hann var kjörinn til fjölmargra trúnaðarstarfa á hinum ýmsu svið- um þjóðlífsins. Með honum er horf- inn dugmikill og óþreytandi tals- maður samvinnuhreyfingarinnar, þeirrar hreyfingar sem átt hefur hvað mestan þátt í að byggja upp at- vinnu- og menningarlíf í byggðum landsins. En þessi sterki persónuleiki hans og mikla lífsorka kom einnig vel fram á mannamótum því þar var hann hrókur alls fagnaðar og ekki sakaði þegar hann dró fram harmonikkuna til að skemmta gestum sínum. Valur var fjölhæfur maður. Hann var ræðumaður hinn besti, góður málamaður, söngmaður góður og hafði unun af tónlist. Áhugamál hans voru fjölmörg og hann var vel að sér á ótal sviðum. Valur var mjög góður heim að sækja og hlýja hans og umhyggja fyrir öðrum voru sterk- ur þáttur í persónuleika hans. Er við hjónin komum heim frá námi erlendis hófum við bæði störí hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. Konan á skrifstofu sláturhúss KEA um skamma hríð en ég átti því láni að fagna að fá að starfa við hlið Vals Arnþórssonar í fimmtán ár. Allan þann tíma kom ekkert upp sem skyggði á það samstarf. En Valur var ekki einungis yfirmaður heldur líka leiðbeinandi og vinur sem var ætíð boðinn og búinn að miðla mér af þekkingu sinni og reynslu. Það vega- nesti sem ég hlaut hjá Vali Amþórs- syni var og er ómetanlegt. Með fjölskyldum okkar tókst góður vinskapur og þessi vináttubönd hafa orðið traustari með hverju árinu og reyndust ekki síður traust þegar Val- ur Iét af störfum sem kaupfélags- stjóri KEA og flutti ásamt fjölskyldu sinni suður til að taka við stöðu bankastjóra hjá Landsbanka íslands. Það er vandfundinn maður sem var meiri vinur vina sinna en Valur var. Við fundum það glöggt þegar við þurftum á að halda hversu gott var að leita til Vals og hversu mikla um- Kveðja frá Landsbanka íslands ,AHt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. “ Þegar dauðinn kveður óvænt dyra, eins og sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson lýsir í þessu alkunna er- indi, veldur koma hans miklum sárs- auka og trega og skilur oft eftir sig skörð í mannlegu samfélagi, sem erfitt er að fylla. í dag er til moldar borinn Valur Arnþórsson, bankastjóri Landsbanka íslands, sem fórst í flugslysi við Reykjavíkurflugvöll 13. þ.m. Hann varð aðeins 55 ára gamall, en hafði mikla reynslu að baki í stjómun fyr- irtækja og ábyrgðarmiklum trúnað- arstörfum. Hann var ráðinn banka- stjóri Landsbankans í ársbyrjun 1989. Á þeim skamma tíma sem síð- an er liðinn, kom það glöggt í ljós, að í því starfi nutu sín vel mannkostir og víðtæk reynsla Vals Arnþórssonar. Með honum, bankaráði, bankastjóm og starfsfólki tókst ágæt samvinna sem hið sviplega fráfall hans hefur nú skorið af. Valur var gjörvulegur maður, sem sópaði að hvar sem hann kom. Hann lagði sig allan fram í starfi, vann langan og strangan vinnudag og hlífði sér hvergi. Hann var fljótur að átta sig á erfiðum verkefnum og fundvís á rétta lausn í hverju máli. Því mátti jafnan treysta, að þau verk- efni sem honum voru falin, mundi hann leysa af hendi með festu og sanngirni. Á þeim skamma tíma, sem Landsbankinn naut starfskrafta hans, var hann þegar orðinn einn af máttar- stólpum stofnunarinnar. Hið snögga fráfall Vals Arnþórssonar er því mikið áfall fyrir Landsbanka fslands og okk- ur, sem áttum því láni að fagna að kynnast honum og starfa með hon- um. Við söknum góðs drengs og mik- ilhæfs samstarfsmanns. Valur Arnþórsson á Akureyrarflugvelli. ur gekkst fyrir því 1985, sem for- maður stjórnar Sambandsins og stjórnarmaður í öðrum þeim fyrir- tækjum sem áttu fasteignir og mannvirki á Bifröst, að skólasetrið var byggt upp, en um þær mundir var svo komið að örvænt þótti um að áfram yrði rekinn Samvinnuskóli, þar eða annars staðar. Þeir sem til þekkja vita að tillögur Vals um þetta efni voru ekki samþykktar án and- mæla, en frami og framtíð skólans var honum persónulegt áhugamál sem hann lagði mikla áherslu á. Sem forystumaður norðanlands átti Valur Arnþórsson einnig þátt í und- irbúningi vegna Háskóla á Akureyri og minnisstæður er áhugi hans og skýr skilningur á nýjum og ger- breyttum aðstæðum í íslenskum skólamálum. í því efni stóð hann mörgum menntamönnum og for- ystumönnum í íslensku atvinnulífi langtum framar. Þegar skólanefnd Samvinnuskólans samþykkti sumar- ið 1985 að gerbreyta skólanum og efna m.a. til fræðslu á því nýja há- skólastigi sem þá var loks farið að kynna hérlendis, tók Valur þeim hugmyndum þegar í stað af miklum Valur Arnþórsson er látinn. Sjaldan hefur mér brugðið meira en þegar ég frétti af því sorglega slysi sem átt hafði sér stað. Valur var afar sérstak- ur maður. Gáfurnar voru svo miklar og hæfileikarnir fjölbreytilegir að það var alveg einstakt. Okkar kynni hófust nokkru eftir að hann flutti til Akureyrar 1965 til þess að taka við nýju staríi sem full- trúi kaupfélagsstjóra KEA. Hann fór nokkrum árum síðar í bæjarstjóm Akureyrar og hafði ekki setið þar lengi þegar gamalreyndur bæjarfull- trúi, Jón Sólnes, sagði við mig „Það er með ólíkindum hvað þessi nýi strákur er fljótur að átta sig á stað- reyndum að ég tali nú ekki um, hvað greinargerðir hans eru skýrar og vel settar fram. Ég man ekki eftir því að hafa séð þær betur gerðar." Þetta voru orð að sönnu. Valur var fljótur að sýna hvað hann var snjall bæjar- fulltrúi þótt ungur væri að árum. Þegar hann tók við kaupfélags- stjórastarfi 1971, tók hann jafnframt við stjórnarstörfum í þeim fyrirtækj- um sem KEA átti hlut í. Þá kom sér vel að Valur hafði notað tímann vel, þegar hann var fulltrúi kaupfélags- stjóra, því hann gjörþekkti allt þetta stóra og viðamikla fyrirtæki. Hann hafði kynnt sér alla þætti rekstursins til hlítar. Það var hans einkenni að brjóta hvert mál til mergjar og hann átti mjög auðvelt með að skilja kjamann frá hisminu. Það gerði honum mögulegt að annast öll þau störf sem hann tók að sér af kost- gæfni og þekkingu. Þegar ég tók við starfi verksmiðju- stjóra Gefjunar nokkm eftir að hann varð kaupfélagsstjóri, unnum við saman að ýmsum málum og enn meira varð samstarfið eftir að ég tók við starfi framkvæmdastjóra Iðnað- ardeildar Sambandsins. Það sam- starf snerist aðallega um sameignar- fyrirtæki Sambandsins og KEA svo og sameiginleg hagsmunamál Iðn- aðardeildar og KEA. Okkur varð strax vel til vina og þótt við deildum Valur Arnþórsson á skrifstofu sinni. Sigga (eins og við köllum hana) hef- ur staðið sem klettur bak við Val í öllum hans viðamiklu störfum. Val- ur var heilsteyptur og trúr vinur vina sinna, einarður og heiðarlegur. Um Siggu gildir nákvæmlega það sama. Það er mikið lán hverjum manni að hafa eignast vináttu þeirra. Margar voru gleðistundirnar á heimilum hvors annars. Valur spilaði á píanóið eða harmonikkuna og allir sungu með. Þau eignuðust fimm mannvænleg og elskuleg böm, elst er Brynja Dís, kennari í sögu og rússnesku við MS. Næstur er Olafur, dýralæknir í Dan- mörku. Hann er kvæntur Jóhönnu Baldvinsdóttur lyljafræðingi. Ama Guðný er myndlistarkona og Ólöf Sigríður er f söngnámi. Yngst er Arnbjörg Hlíf í grunnskóla. Þetta er stór hópur sem átti samhent heimili. Þar ríkti lífsgleði jafnhliða dugnaði og mikilli vinnu. Öll fjölskyldan er afar gestrisin, þannig að fjölmenni var oftast til staðar hvort sem var á Byggðavegi 118 á Akureyri eða á jörðinni þeirra, Hólum í Öxnadal. Þrátt fyrir geysilegt annríki virtist alltaf tími fyrir ættingja og vini sem að garði bar. Valur flutti suður og tók við starfi bankastjóra Landsbankans 1. febrúar 1989. Valur hafði þá skoðun að menn ættu ekki að vera í sama starfi alla sína starfsævi. Þar með urðu þátta- skil í lífi fjölskyldunnar. Hann hætti öllum störfum og stjómarsetu fyrir samvinnuhreyfinguna þegar hann settist í bankastjórastólinn. Það var mikið áfall að missa Val frá hreyfing- unni, en flestir skildu ástæðuna fyrir þeirri breytingu. Nú er Valur horfinn okkar sjónum. Við tregum sárt að hafa misst hann, en þökkum fyrir að hafa fengið að vera með honum og kynnast þeim afburða kostum sem honum voru gefnir. Mikill er söknuður Siggu og barnanna, sem sjá svo skyndilega eft- ir elskulegum eiginmanni og föður. Við hjónin og böm okkar biðjum góðan Guð að blessa þau og hugga í sárum harmi. Hjörtur Eiríksson Hartnær Qórir tugir ára eru nú síð- an við Valur Amþórsson sátum sam- an við nægtaborð systranna Guðrún- ar og Sesselju Karlsdætra, á fallegu heimili þeirra að Bókhlöðustíg 10. Nokkur hópur ungs fólks naut þeirra forréttinda að vera kostgangarar þar á heimilinu. Ýmsir fleiri en Valur urðu síðan þjóðkunnir menn. Auð- velt er að geta sér þess til að oft voru fjörlegar umræður við stóra stofú- borðið við Bókhlöðustíginn og syst- urnar sussuðu stundum á þau orða- skipti, þætti þeim gæta öfga um of. Ekki minnist ég þess að þeim þætti ástæða til að þagga niður í vini mín- um Vali Arnþórssyni. Prúðmennska hans og ljúft viðmót einkenndi allt hans fas og svipurinn var bjartur. Valur undirbjó lífsstarf sitt á farsæl- an og árangursríkan hátt. Fljótlega eftir að námi í Samvinnuskólanum stundum hafði það engin áhrif á vin- áttuna. Hún var alltaf jafneinlæg alla tíð. Eftir að hann varð stjórnarformað- ur Sambandsins fómm við utan í margar viðskiptaferðir, t.d. fómm við nokkrum sinnum til Sovétríkj- anna. Það var oft þungt undir fæti austur þar og gott að hafa Val sér til halds og trausts. Hann hafði ávallt góðar ráðleggingar í hverjum vanda. Mér er minnisstætt, þegar við fómm í boðsferð til Uzbekistan í Asíu á frægar söguslóðir, hvað hann þekkti sögu staðanna vel. Hann þekkti sög- una betur en leiðsögumennimir sem vom með okkur. En af þeim ferða- lögum sem við fómm saman stendur upp úr ferð til Mexíkó sem við fómm með eiginkonum okkar. Þar upplifð- um hvert ævintýrið af öðm, m.a. það að í bátsferð á Kyrrahafi veiddi Valur 126 punda sverðfisk. Þá sagði leið- sögumaðurinn sem var með okkur: „Þú ert greinilega vanur sverðfisk- veiðum." Hann varð steinhissa þegar Valur sagðist aldrei hafa reynt það fyrr, hins vegar hefði hann oft veitt lax á stöng á Islandi og viss skyldleiki væri þará milli. Eftir að Valur varð stjómarformað- ur Sambandsins 1978 hlóðust á hann ótal störf til viðbótar þeim sem fyrir vom. Það er með ólíkindum hvað hann gat komið miklu í verk. Að sjálfsögðu varð hann oft að leggja nótt við dag en þolið og kjarkurinn vom óbilandi. Valur var ótrúlega hæfileikarfkur og áhugamál hans mörg. Hann var mikill Islendingur, mat mikils ís- lensk menningarverðmæti. Eftir 25 ára dvöl í Eyjafirði var hann orðinn mikill Eyfirðingur. Hann tjáði hug sinn á óvenju lifandi hátt og ræður hans vom margar hverjar ógleyman- legar. Valur kvæntist skólasystur sinni, Sigríði Ólafsdóttur, 16. júlí 1955. Það var mikið hamingjuspor og lauk lá leið hans til Englands, en þá var ráðið að hann tækist á hendur forstöðu endurtryggingadeildar á vegum Samvinnutrygginga. Ég minnist bjartrar dagstundar, þegar hann sýndi mér skrifstofuna sína f Bankastrætinu, þar sem tekið var til starfa. Þá eins og ávallt fyrr og síðar sýndist allt það sem að honum laut bera gæfustimpil. Og það átti ekki síst við um unga æskubjarta stúlku, sem nú tók að birtast þar sem Valur var hverju sinni. Þar var raunar kominn lífsfömnauturinn hans góði. Síðar lágu leiðir okkar Vals saman í Karlakórnum Fóstbræðrum í nokk- ur ár. í Fóstbræðmm naut Valur sín einstaklega vel. Eðliskostir hans, glaðlyndi, félagsþroski og góðvild, settu mark á söngmanninn unga. Röddin var björt og falleg og Valur Iaut fúslega þeim ströngu kröfum sem metnaðarfullir söngstjórar gerðu til kórmanna. í einni af söng- ferðum kórsins, til Sovétríkjanna og Finnlands, deildum við Valur sama herbergi, eignuðumst sameiginlega kunningja. Eins og ávallt í samfylgd Vals Arnþórssonar var hver dagur eins og þeir geta bestir orðið. TVaust dómgreind hans, borin uppi af góð- um gáfum og einstakri alúð, með- fæddri og áunninni prúðmennsku, virtist nánast við hvert fótmál stýra för á réttar brautir. Svo fór að Valur tókst á hendur mikil ábyrgðarstörf á vegum sam- vinnuhreyfingarinnar á Akureyri. Fjölbreytt afskipti hans nyrðra af at- vinnu og félagsmálum verða ekki rakin hér. En þau bundu enda á margt af því sem áður var. Af þeim ástæðum varð vík milli vina hans og söngbræðra í Fóstbræðrum, eftir tæplega áratugar samfylgd. Valur átti sæti í stjórn Fóstbræðra í fjögur ár, auk annarra trúnaðarstarfa sem hann tókst á hendur fyrir kór- inn. Hann var gjaldkeri kórsins í söngförinni til Finnlands og Sovét- ríkjanna sem áður var vikið að. Óhætt má fullyrða að sú ferð varð Fóstbræðrum giftudrjúg. í fram- haldi af henni var hafist handa um að kórinn eignaðist loks húsnæði. Enn á ný hvfldi gæfuhöndin á öxl þess manns sem að þessu sinni gætti fjár- muna Fóstbræðra. Fóstbræðraheim- ilið reis með samstilltu átaki undir farsælli stjórn. En nú hefur sól brugðið sumri. Við hugðum gott til endurfunda við Val, okkar kæra vin og söngbróður, nú þegar hann var fluttur hingað suður á ný. Raunar voru slíkir endurfundir þegar hafnir og augljóst að allt var sem fyrr. Fóstbræður allir, yngri sem eldri, syrgja látinn vin og félaga og þakka af alhug. Eiginkonu Vals, Sig- ríði Ólafsdóttur, og börnum þeirra, aldurhnignum föður og fjölskyld- unni allri votta söngbræður hans einlæga samúð. Fóstbræður munu í dag kveðja kæran vin, Val Arnþórsson banka- stjóra, klökkum rómi í söng. Kveðju- stef Fóstbræðra hefst á orðunum: Mannsins bam af móður fætt, lifir um litla stund. Hörmulegt slys, sem batt með skjótum hætti endahnút- inn á lífsferii sem virtist enn á miðj- um degi, minnir á sannleik þessara orða. Veri kær vinur góðum Guði falinn. Sigurður E. Haraldsson Haustið 1964 varð ég vitni að sam- tali sem greyptist í minninguna og hefur oft rifjast upp síðan. Afi minn, Jakob Frímannsson, þáverandi kaupfélagsstjóri KEA, var að leita að eftirmanni sínum og spurðist víða fyrir. Sunnan heiða bjó afi iðulega hjá okkur í blokkaríbúð við Eskihlíð og einn sólríkan sunnudag, skömmu eftir hádegi, sátu þeir í stofu, faðir minn og hann, og spjölluðu. Afi spurði: „Er þetta ekki traustur og góður maður, hann Valur sem syng- ur með þér í Fóstbræðrum?" Föður mínum liggur vel orð til flestra, en aldrei hafði ég áður heyrt jafnvel og hlýlega talað um mann eins og þegar hann lýsti fyrir afa kynnum sínum af Vali Árnþórssyni. Hvernig getur einn maður verið prýddur öllum þessum mannkost- um? hugsaði ég, 11 ára, og reyndi að máta mannlýsinguna við persónuna eins og ég mundi hana þá, sporlétta og syngjandi, með Hank Marvin gleraugu og brilljantin í hárinu. Nokkrum mánuðum síðar frétti ég að Valur væri fluttur til Akureyrar sem væntanlegur arftaki afa míns. Og þá minntist ég samtalsins í stof- unni heima og var satt að segja nokkuð uggandi um að faðir minn hefði nú e.t.v. tekið of stórt upp í sig þegar hann dró upp myndina af Vali í svo sterkum litum. En unglingsáhyggjur mínar reynd- ust sem betur fer óþarfar og eftir því sem Valur Arnþórsson óx með starfi sínu, kom sífellt betur og betur í ljós hvflíkan yfirburða- og drengskapar- mann hann hafði að geyma. Náið samstarf hans og afa míns þau ár sem í hönd fóru, leiddu til djúp- stæðrar og innilegrar vináttu sem aldrei féll skuggi á. Valur lét þess oft getið hvflík gæfa sér hefði verið að kynnast og nema af forvera sfnum og galt það með fágætu trygglyndi og umhyggju alla tíð. Auk hinna meðfæddu leiðtogahæfi- leika var Valur mjög listfengur og sér í lagi tónelskur. Hann var söngmað- ur góður og gleðimaður á góðri stund, sem gjarnan greip í harm- onikku eða píanó sér og öðrum til yndisauka. Þá studdi hann myndar- lega við menningarlífið á Akureyri í sinni kaupfélagsstjóratíð og mun m.a. hafa átt sinn þátt í því að ungur iðnaðarmaður á Akureyri dreif sig utan til náms og gerðist síðar heims- frægur óperusöngvari. Eftirlifandi konu sinni, Sigríði Ól- afsdóttur, kynntist Valur á Sam- vinnuskólanum á Bifröst meðan þau bæði stunduðu þar nám. Sigríður var mikil öðlingsmanneskja og reyndist manni sínum fádæma góð- ur lífsförunautur. Þau eignuðust fimm mannvænleg börn sem flest eru nú uppkomin og hafa fengið í arf marga af bestu eiginleikum foreldra sinna. Hef ég af eigin raun kynnst listrænum hæfileikum tveggja dætra Vals og Sigríðar og vænti mik- ils af þeim í framtíðinni. Jakobi Frímannssyni, sem nú syrg- ir Val í hárri elli, varð ekki sonu auð- ið í sínu lífi. Sjálfur varð ég hins veg- ar þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp hjá honum fyrstu ár ævinnar og oft fannst mér einnig sem Valur Arn- þórsson kæmist nálægt því að ganga honum í sonar stað. Eitt er víst að Valur lét einatt svo um mælt að hann hefði í rauninni notið föðurlegrar leiðsagnar tveggja manna á lífsleið- inni, föður síns Amþórs Jensen og „guðföður" síns Jakobs Frímanns- sonar. Og ræktarsemi Vals og Sigríðar við afa minn og ömmu á þeirra ævi- kvöldi verður seint fullþökkuð. Eng- inn gaf sér oftar tíma til að líta inn hjá þeim og eftir að fjölskylda Vals flutti til Reykjavíkur var ekki talið eftir sér að ferðast langa vegur norð- ur yfir heiðar til að deila með fjöl- skyldu vorri stórum stundum, hvort sem var í gleði eða sorg. Þeim mun þungbærara varð okkur því fráfall Vals, mannsins sem alltaf stóð með okkur eins og klettur, ekki bara sem venjulegur fjölskylduvinur, heldur nánast sem einn af fjölskyld- unni. Því biðjum við almættið að blessa minningu hins góða drengs og að fjölskyldu hans og vinum megi veit- ast styrkur í sorg þeirra. Því hefur stundum verið haldið fram að líðan hinna framliðnu ráðist að nokkru af því hvemig til þeirra er hugsað að þeim látnum. Þess vegna efumst við ekki um eilíflega velferð Vals Arnþórssonar. Jakob Frímann Magnússon Kveðja frá starfsmönnum KEA Sviplegt fráfall Vals Amþórssonar snerti okkur öll djúpt sem unnum hjá Kaupfélagi Eyfirðinga um lengri eða skemmri tíma meðan hann var þar kaupfélagsstjóri. Valur var góður húsbóndi í hugum starfsfólks KEA, sem þótti vænt um kaupfélagsstjór- ann sinn, þótt auðvitað hefði það misjafnlega mikil tengsl við hann, eins og gengur í jafnviðamiklum at- vinnurekstri. Valur lagði jafnan ríka áherslu á lykilhlutverk starfsfólksins í við- gangi kaupfélagsins. Gott var að leita

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.