Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 17. október 1990 Tíminn 2 KAUPMATTUR RYRNAR HÆGAR EN í FYRRA í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar kemur fram, að greitt tíma- kaup iandverkafólks í Alþýðusambandinu hefur hækkað að meðal- tali um 7% á öðrum ársfjórðungi frá sama ársfjórðungi á fyrra árí. Á móti því kemur hins vegar að á sama tímabili minnkaði kaupmátt- ur miðað við 17% hækkun framfærsluvísitölu. „Þetta er nokkuð minni minnkun kaupmáttar en mældist milli fyrsta ársfjórðungs áranna 1989 og 1990, og hefur samdráttur kaupmáttar þannig stöðvast," segir í fréttatilkynningu frá Kjararannsóknarnefnd. Ef litið er á breytingu mánaðar- tekna, þ.e. heildarlaun með yfir- vinnu, þá hafa þær einungis hækk- að um rúm 4%. Það þýðir að kaup- máttur heildartekna hefur minnk- að um tæp 11%. Meginástæðan fyrir þessu er talin vera sú að með- alvinnutími styttist um eina klukkustund á viku á þessu tíma- bili. „Þetta er mesta vinnutíma- stytting sem orðið hefur á einu ári frá því að vinnutími styttist um rúmar 2 stundir árið 1988,“ segir í fréttatilkynningunni. Milli fyrsta og annars ársfjórðungs ársins í ár hækkaði greitt tímakaup um 2,7%, sem er meiri hækkun en hækkun kauptaxta á sama tímabili. Til að kanna hvort hér væri um launaskrið að ræða, var gerð sér- stök könnun þar að lútandi. Niður- staða hennar reyndist vera sú að svo væri ekki, heldur mætti rekja þetta frávik til þess hversu lágt tímakaup mældist á fyrsta ársfjórð- ungi 1990, miðað við ársfjórðung- inn á undan og eftir. -hs. Framhaldsskólakennarar fá um landsins. Háskólinn hefur tækifæri til að stunda rannsóknir hug á að efla tengsl framhafds- við Háskóla íslands, ýmist sem skólakennara við þessa starfsemi þátttakendur í verkefnum á veg- og stuðla þannig að bættri um kennara eöa sérfræðinga Há- kennslu í framhaldsskólum. í skólans eða með því að vinna að þeim tilgangi viU Háskólínn hvetja eigin verkefnum, með eða án leiö- til þess að framhaldsskólakennar- sagnar. Þetta var samþykkt á ar stundi rannsóknir og fræði- fundi Háskólaráðs þann 14 júní störf í samvinnu við fræðimenn í sl. Til greina kemur að Endur- sömu grein við Háskólann sam- menntunarnefnd Háskólans kvæmt nánara samkomulagi, td. skipuleggi sérstök námskeið fyrir yflr sumartímann. Upplýsingar framhaldsskólakennara af þessu um rannsóknarverkefni háskóla- tilefni. kennara má finna í ritinu Rann- í fréttatilkynningu frá Háskóla sóknir við Háskóla fslands 1987- íslands kemur fram að við Há- 1988. Er bókin fáanleg í BóksÖlu skólann fara fram rannsóknir og stúdenta og á Aðalskrifstofu Há- fræðistörf í ýmsum þeim greinum skólans. sem kenndar eru í framhaldsskól- khg. Fjallað um at- vinnumál fatl- aðra hér á landi Aðalfundur Oryrkjabandalags íslands var haldinn fimmtudag- inn 11. október sl. og í framhaldi af honum efndi Öryrkjabandalag- ið til ráðstefnu um atvinnumál fatlaðra. Formaður bandalagsins, Arriþór Helgason, flutti ítarlega skýrslu um starfsemi bandalagsins. Samskipti bandalagsins við erlend samtök hafa aukist en Öryrkjabandalagið tekur þátt í starfi norrænna samtaka og al- þjóðlegra um endurhæfingu o.fl. Þá hefur bandalagið veitt ýmsa styrki til velferðarmála fatlaðra. Á ráðstefnunni kom fram að atvinnu- ástand öryrkja hér á Iandi er betra en í nágrannalöndum okkar. Þó hefúr reynst erfitt að útvega þeim sem eru mest fatlaðir atvinnu við sitt hæfi. í umræðum og íyrirlestrum kom fram að leita verður nýrra leiða til þess að skapa fötluðu fólki atvinnutækifæri. Reglugerð um öryrkjavinnu hefur reynst mjög erfið í framkvæmd og þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hefur reynst ókleift að fá henni breytt. Varpað var fram hugmyndum um endurhæfingu fatlaðra og starfs- menntun á vegum einkafyrirtækja en til þess að það sé unnt verður ríkis- valdið að styðja við bakið á atvinnu- Burt með „Eina ásættanlega lausnin er að starfsemi Áburöarverksmiðj- unnar verði lögð niður á þessum stað,“ segir í ályktun sem sam- þykkt var á stjómarfundi hjá Ibúasamtökum Grafarvogs í fynadag. Á fundinum var fjallað um ný- birt áhættumat á rekstri Áburð- arverksmiðjunnar. Niðurstaðan varð sú að ítreka fyrri ályktun sem gerð var á borgarafundi 21. apríl sl. Jafnframt skorar stjóm íbúasamtakanna á borgarstjóm, alþingismenn Reykjavíkur og ríírisstjóm að taka höndum sam- an og vinna ákveðið að lausn málsins svo íbúar Grafarvogs geti búið áhyggjulausir í hverfi sínu. —sá rekendum. Þá komu fram hugmyndir um samræmdari stjóm á framleiðslu vemdaðra vinnustaða til þess að koma í veg fyrir óæskilega samkeppni þeirra á milli. Atvinnumál fatlaðra á landsbyggð- inni eru nokkuð annars eðlis en á Reykjavíkursvæðinu, en þar veldur einhæfni atvinnulífsjns nokkmm vandræðum við lausn á atvinnumál- um fatlaðra. í máli Soffiu Lámsdóttur, framkvæmdastjóra Svæðisstjórnar Austurlands um málefni fatlaðra, kom fram að knýjandi nauðsyn er á skipu- lagðri atvinnuleit í nánum tengslum við atvinnuleit sveitarfélaganna. Ráðstefnu bandalagsins um atvinnu- mál fatlaðra sóttu um 120 manns og þóttu umræðurnar marka þáttaskil á þessu sviði. khg. Hópur eldri borgara frá Austfjörðum var á dögunum í heimsókn í höfuðborginni og nágrenni á vegum Rauða kross fslands og Rauða kross deilda Eskifjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfiarðar. Fólkið lagði m.a. leið sína í útvarpshúsið og naut þar fylgdar Péturs Péturssonar sem er landsmönnum kunnur fýrir þularstörf sín í gegnum árin. Hann sýndi fólkinu húsakynnin og sagði ffá ýmsu markverðu og skemmtilegu í sögu Rík- isútvarpsins. f leiðangri um húsið rakst hópurinn á Jónas Jónasson sem sést hér á myndinni spjalla við Aust- firðinga. Ráðstefna um velferðarsveitarfélag: Fjórða ráðstefna félagsmálastjóra Fjórða ráðstefna samtaka félagsmála- stjóra á íslandi verður haldin dagana 5.-6. nóvember nk. að Borgartúni 6. Fyrsta ráðstefnan var haldin árið 1984 og bar heitið „Félagsleg þjónusta- undanfarið og framundan". Sú næsta var „Fátækt á íslandi" árið 1986 og þriðja ráðstefnan nefhdist .Málþing um hamingju” árið 1988. Ráðstefnan í ár ber heitið „Velferðar- sveitarfélagið" og hefur tvíþættan til- gang. Annars vegar þann að fræða þátttakendur á gagnrýninn hátt um hin mörgu nýmæli sem eru á ferðinni um þessar mundir í löggjöf um félags- lega þjónustu í landinu. Hins vegar að tengja lagaatriði þessi og stefhuna sem í þeim felst, spurningum um vel- ferð almennt og aðild sveitarfélagsins að velferð íbúa sinna. Þá verður leitast við að tengja hagnýtar upplýsingar og fræðslu fræðilegri umræðu og spurn- ingum um tilgang og markmið. Á ráðstefhunni verða nokkrar nýj- ungar í löggjöf kynntar, sem síðan verða gagnrýndar af þeim sem hafa hagsmuna að gæta sem neytendur eða notendur laganna. Táldir verða upp kostir og lestir á breytingunum. Fjórir fyrirlesarar munu fjalla um vei- ferðarhugtakið, stefnu og horfúr í þróun velferðar á íslandi. Meðal ann- ars munu þeir fjalla um hvað velferð sé og hver aðild sveitarfélagsins geti verið og eigi að vera að velferð íbú- anna. Þá mun listafólk annast dag- skráratriði milli framsöguerinda. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku geta fengið frekari upplýsingar og skráð þátttöku á Félagsmálastofnun Kópavogs. khg. Síldog loðnatil bræðslu: Verðlagsráð sjávarútvegslns ákvað sl. þriðjudag að gefa frjálsa verðlagningu á loðnu til bræðslu á loðnuvertíð haustið 1990 til vors 1991. Einnig hef- ur frjáls verðlagning verið gefin á sild og síldarúrgangi til bræðslu á síldarvertíð haustið 1990. —SE Heimildaskrá um ðldrunarmál á íslandi Út er komið nýtt hefti af ritröðinni „Lykill: Rit um bókfræði" og ber það heitið „Öldrunarmál á íslandi. Heimildaskrá". Skrá þessi er unnin af Ásgerði Kjartansdóttur bóka- safnsfræðingi á vegum Rannsókna- stöðvar í bókasafna- og upplýsinga- málum við Háskóla íslands að beiðni Öldrunarfræðifélags íslands. Öldrunarráð íslands styrkti jafn- framt gerð skrárinnar, en þjónustu- miðstöð bókasafna gefur hana út. í skránni er vísað til um 1300 heimilda um málefni aldraðra á ís- landi og hefur þeim verið safnað saman frá bókasöfnum, stofnunum og félagasamtökum, sem tengjast öldrunarmálum. Alls hefur verið skráð efni úr 44 íslenskum og er- lendum tímaritum, auk þess sem í skránni er að finna tilvísanir í bæk- ur, skýrslur, rannsóknaniðurstöður og kannanir. Tilgangurinn með gerð skrárinnar er að ná saman yfirliti um allar helstu upplýsingar sem til eru um þennan mikilvæga aldurshóp hér á landi. Hún á því að koma að gagni öllum þeim sem vinna með öldruð- um, hvort sem er á sviði heilbrigðis- eða félagsmála og einnig er hún að- gengileg öllum almenningi, sem vill fræðast um hvað til er ritað um aldr- aða. Bókin er um 190 bls. og fæst hún hjá Þjónustumiðstöð bókasafna, Austurströnd 12, Seltjarnarnesi, sími 91- 612130. Bókin kostar kr. 2800.00,- Aðalfundur Öryrkjabandalags íslands:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.