Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn , Laugardagur20. október>1990 Húseignir á Skagaströnd Kauptilboð óskast í 2 skála að Strandgötu 34 á Skaga- strönd, samtals 301 fm að stærð. Brunabótamat er kr. 7.291.000.00. Skálarnir verða til sýnis í samráði við Vil- helm Jónsson, Bogabraut 9, Skagaströnd (sími: 95- 22729). Tilboðseyðublöð eru afhent á staðnum og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Kauptilboð þurfa að ber- ast skrifstofu vorri fyrir kl. 11.00 30. október 1990, þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INIMKAUPASTOFIMUN RÍKISINS ________BQRGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK 1 P”T ALLIR í BÍLUM SPENNI BELTI! Lifiu yxFB,DAB Vísindaráð auglýsir styrki úr vísindasjóði fyrir árið 1991 til rannsókna í • náttúruvísindum • líf- og læknisfræði • hug- og félagsvísindum Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Vísindaráðs, Báru- götu 3, 101 Reykjavík, og hjá sendiráðum íslands er- lendis. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1990 og skal um- sóknum skilað á skrifstofu ráðsins sem veitir upplýsing- ar daglega kl. 10-12 og 14- 16. VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF UTBOÐ Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Chevrolet Monza Subaru Justy GL Toyota Corolla 1300 Mazda 626 2000 Toyota Celica 1600 Dodge Aries Citroen Axel Fiat Uno Daihatsu Charade Fiat Uno Subaru Justy GL Range Rover Mazda 626 2000 Ford Sierra Ford Fiesta Skoda 120 L MMC Lancia Fiat 127 WV Golf GTi SAAB 900 GLE Citroen Pallas GSA BMW 320 Mercedes Benz 200 árgerð 1989 árgerð 1988 árgerð 1987 árgerð 1987 árgerð 1987 árgerð 1987 árgerð 1987 árgerð 1987 árgerð 1986 árgerð 1985 árgerð 1985 árgerð 1984 árgerð 1984 árgerð 1984 árgerð 1984 árgerð 1984 árgerð 1984 árgerð 1983 árgerð 1983 árgerð 1982 árgerð 1982 árgerð 1982 árgerð 1982 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, Reykjavík, mánudaginn 22. október 1990, kl. 12-16. Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands hf., Ármúla 3, Reykjavík, eða umboðsmanna fyrir kl. 17.00 sama dag. Vátryggingafélag íslands hf. ÖKUTÆKJADEILD Námuslys í Tékkóslóvakíu: Þrjátíu ffórust í gassprengingu Hryllilegt slys varð í Barborakolanámunum í Tékkóslóvakíu í fyrra- dag, er gassprenging varð í neðanjarðargöngum. Björgunarsveitir, sem voru að leita að mönnum sem hefðu hugsanlega lifað þetta af, áttu erfitt um vik, þar sem námugöngin hrundu við sprenginguna. Yfirmenn námanna, sem eru rétt við pólsku landamærin, sögðu að 21 lík hefðu þegar fundist. Sprengingin varð vegna uppsöfnunar metangass í göngunum og henni fylgdi mikill eldsvoði. Einn maður fannst á lífi, en lést skömmu eftir að hann komst á sjúkrahús. Átta menn eru enn ófundnir. Jan Carnecky, forstjóri námufélagsins sem er í eigu ríkis- ins, sagðist ekki telja að nokkur maður hefði sloppið lifandi úr þess- um hörmungum. Björgunarsveitir voru að störfum í alla fyrrinótt og allan gærdag, en þeim miðaði mjög hægt, þar sem renna þurfti nýjum stoðum undir þak ganganna jafnóðum og þau voru grafin út. Innanrfkisráðherra Tékkóslóvakíu sagðist hafa fyrirskipað rannsókn á því hvort þarna væri um glæpsam- legt athæfi að ræða varðandi það að stofna almenningi í hættu, en gaf ekki upp gegn hverjum sú rannsókn ætti að beinast. Sérfræðingar stjórnarinnar hröð- uðu sér þegar á slysstað og atvinnu- málaráðherrann, sem er í opinberri heimsókn til Víetnam, sendi samúð- arskeyti fjölskyldum þeirra sem fór- ust. Hann sendi líka þegar starfshóp á svæðið, til að leysa úr þeim félags- legu vandamálum sem slysið hefur í för með sér. Fréttamönnum og Ijósmyndurum var haldið frá slysstaðnum og alvar- legir námuverkamenn voru ófúsir til að ræða örlög starfsfélaga sinna. Barboranámunum, sem undir venjulegum kringumstæðum fram- leiða 5000 tonn af kolum á dag, var lokað og engum hleypt að nema rannsóknar- og björgunarmönnum. Þegar sprengingin varð voru 250 menn staddir í neðanjarðargöngum námunnar. Náman er á víðáttu- miklu námasvæði, sem teygir sig frá borginni Ostava sem er í 20 km fjar- lægð. Flestir sluppu ómeiddir, en 30 menn lokuðust inni í 750 metra löngum neðanjarðargöngum. Nokkrir særðust lítillega og voru fluttir á sjúkrahús skammt frá. Hvernig gasið losnaði úr læðingi er enn ekki vitað, en yfirvöld á staðn- um segja að námum á þessu svæði hafi alltaf hætt við uppsöfnun gass. Versta námuslys í Tékkóslóvakíu síðan í seinni heimsstyrjöld varð ár- ið 1961, þegar 108 menn létust í eldsvoða í Dolni Sucha-námunni á þessu sama svæði. Slysið á fimmtudaginn er það al- varlegasta sem orðið hefur frá því í september 1981, þegar 65 menn fór- ust í yfirborðsnámu í norðanverðum Bæheimi. SMÁFRÉTTIR Moskva — Gorbatsjev fær samþykki þingsins fyrir breyt- ingu á efhahagskerfi þjóðar- innar frá miðstýringu til mark- aðskerfis, en segir þá breyt- ingu taka nokkur ár. Moskva — Áætlanir til að bjarga lösnu efnahagskerfi ríkisins frá hruni fela i sér auk- ið framboð á vörum en einnig hættu á verðbólgu og atvinnu- leysi. Beirút —- Líbönsk yfirvöld hafa gefið fjölskyldu og sam- starfsmönnum Michei Aoun leyfi til að fara til Frakkiands, viku eftir að þau leituðu hælis I franska sendiráöinu. Jerúsalem — (sraelska lög- reglan hindrar þúsundir mús- lima í að fara til bænahalds á Musterishæð, af ótta viö óeirðir og mótmæli vegna morðanna sem þar voru fram- in á 21 Palestinumanni. Jóhannesarborg — Yfir- völd hafa lokað fyrir vatns- leiðslur til þúsunda svarta Suður-Afríkubúa í fjóra daga. Talið er að þetta geti haft al- varlegar afleiðingar fyrir heiisufar fólksins. UTBOÐ ki 14 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjór- ans í Reykjavík, óskar eftirtilboðum í gatnagerð, lagningu holræsa, jarðvinnu vegna vatnslagna og lagningu hita- veitulagna í nýju íbúðarhverfi í Borgarholti. Verkið nefnist: Borgarholt II, 1. áfangi. Heildarlengd gatna er um 1300 m, lengd holræsa um 1750 m og lengd hitaveitulagna um 1350 m. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, frá og með mánudeginum 22. október gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 31. október kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKLJRBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 1 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hita- veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í forein- angraðar pípur. Um er að ræða 2.270 m af 600 mm pípum og 260 m af 400 mm pípum ásamt viðeigandi fylgi- hlutum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 20. nóvember 1990 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 Simi 25800 n FORVAL Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgarverk- fræðings, óskar eftir umsóknum verktaka um að fá að taka þátt f lokuðu útboöi vegna byggingar fbúöa- og þjónustumiðstöðvar aldraðra að Lind- argötu 57-61 og 64-66 f Reykjavfk. Um er að ræða samtals 15 hús auk þjónustumiöstöövar. Þeir verktakar, sem áhuga hafa á að taka þátt i lokuöu útboði vegna of- angreindra verka, skulu skila skriflegri umsókn þar um ásamt þeim upp- lýsingum sem óskað er eftir i forvalsgögnum. Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3, Reykjavik. Útfylltum gögnum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama staö eigi síðar en föstudaglnn 26. október 1990, kl. 16.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.