Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 7
haldbesti sáttmáli sem nokkru sinni hefur verið gerðir milli áhrifaafla þjóðfélagsins um sam- stiga þróun kjaramála og al- mennra efnahagsmála. Þess mun ekkert dæmi í íslenskri þjóðar- sögu að svo víðtækt samkomulag hafi náðst um aðferðir til að ná settum efnahagsmarkmiðum. í Ijósi þess má sýnt vera að laun- þegahreyfingin hefur lagt mikið undir í þessu tilfelli, sem gerir það enn brýnna en nokkru sinni fyrr að opinberir aðilar og atvinnurek- endur standi fast við skyldur sínar samkvæmt samkomulaginu. Fullyrða má að launþegahreyf- ingin hefur enga ástæðu til að ve- fengja vilja ríkisstjórnarinnar til þess að framfylgt sé skyldum sam- komulagsins gagnvart launþeg- um, enda hefur slíkum ásökun- um ekki verið hreyft. Hvert vandamál sem upp hefur komið það sem af er gildistímanum hef- ur verið leyst með góðu sam- komulagi. Ríkisstjórnin hefur lagt sig fram um það í hvert skipti sem hætta hefur virst á því að forsendum þjóðarsáttar yrði raskað, að jafna þau met með beinum aðgerðum eða ströngum viðvörunum. Þetta hefur fyrst og fremst átt við um fullt aðhald í verðlagsmálum, sem launþegahreyfingin hefur eðli- lega lagt mesta áherslu á. Ríkis- stjómin hefur gert atvinnurek- endum og milliliðum ljóst að þeir hafa gengist undir aðhald í verð- lagsákvörðunum eins og launþeg- ar em bundnir af ákvæðum þjóð- arsáttarinnar um breytingar á kaupgjaldi. Það er svo mikilvægt atriði að þessi ákvæði um verð- lagsaðhald og hófsama kaup- gjaldsþróun haldist, að þar má í engu víkja frá settum grundvall- arreglum. Árangur þjóðarsáttar- innar veltur á því að þær séu hafð- ar í heiðri. Fram til þessa hefur framkvæmd febrúarsamkomulagsins tekist vel. Snarlækkandi verðbólga á síðustu mánuðum er gleggsti vitnisburðurinn um það. I kjölfar minnkandi verðbólgu hefur átt sér mikil vaxtalækkun sem ekki verður borið á móti að er mikil kjarabót fyrir þúsundir fjöl- skyldna í landinu, ekki síst ungt fólk sem þarf að standa undir margs konar skuldum. Gildistími þjóðarsáttar En þótt svo vel hafi tekist til um framkvæmd febrúarsamkomu- lagsins til þessa, þá er eigi að síður full ástæða til að minna á, að ekki er enn liðinn hálfur gildistími samkomulagsins, við erum enn á fyrri helmingi hans, og það er engan veginn útilokað, að þegar síga tekur á tímabilið fari að gæta óþreyju um „sýnilegan" árangur þjóðarsáttarinnar, sem margir hyllast til að meta eingöngu í fjölda krónanna sem laun manna eru greidd í. Þetta hefur m.a. kom- ið skýrt fram í kröfum Bandalags háskólamenntaðra starfsmanna ríkis og bæja sem kosið hefur að ganga gegn þjóðarsáttinni með yf- irlýsingum og langsóttum kæru- leiðum sem liggja jafnvel utan landsteinanna. Það verður því aldrei lögð of mik- il áhersla á að áfram verður að fylgja fast eftir stefnunni, sem mörkuð var með þjóðarsáttinni, að henni er ætlað að gilda fram á síðari hluta næsta árs og felst í samstiga þróun efnahagslífsins og kjaramálanna, markmiðið er að koma á varanlegu efnahagsjaih- vægi með því að tryggja að verð- lagsþróun sé í samræmi við það sem er í viðskiptalöndum okkar. Verði slakað á um þá stefnu sem mörkuð hefur verið næst mark- miðið aldrei. Eins og rakið hefur verið hér að ffaman horfír nú betur um hag- vaxtarþróun hér á landi en verið hefur á þriggja ára samdráttar- skeiði. Þessi bati er þó ekki meiri en svo að hagvöxtur á íslandi verð- ur hægari en í öðrum löndum. Að því leyti til standa íslendingar enn ffammi fyrir efnahagsvanda, sem nauðsynlegt er að gera sér fulla grein fyrir. Um það geta allir orðið sammála að stefna verður að því að hagvöxturinn aukist, því að eðlilegur hagvöxtur er undirstaða þess að kaupmáttur vaxi í raun. Það hefur auk þess komið ffam að með þeim efnahagsbata sem orðið hefur á þessu ári hefur dregið úr þeirri kaupmáttarrýmun sem fylgt hefur samdráttarárunum. Þjóðhagsáætlunin upplýsir að kaupmáttur hefur haldist svo til óbreyttur á þessu ári, sem er upp- haf þess að hann geti vaxið á kom- andi tímum. Þessi almenni efnahagsbati hefur orðið fyrir þá bættu rekstrarstöðu sem atvinnulífið hefur orðið að- njótandi með sérstökum opinber- um efnahagsaðgerðum, með bættum markaðsaðstæðum og fyrir bein áhrif þjóðarsáttarinnar. Þessi bati rekstrammhverfisins sannar það, að íslenskir atvinnu- vegir búa yfir miklum fram- leiðslumætti ef þeim em sköpuð rétt skilyrði og markaðs- og geng- isþróun er hagstæð. Nauðsyn hagvaxtar í inngangi þjóðhagsáætlunar sem hér hefur nokkuð verið vísað til, er lögð áhersla á að efnahags- stefnan miði að því að varðveita þann árangur sem náðst hefur á síðustu misserum í átt til betra jafnvægis í þjóðarbúskapnum og koma í veg fyrir að þensla mynd- ist á ný. Þetta stefnuskráratriði verður aldrei nógsamlega ítrekað, því að gæfa þessarar ríkisstjórnar veltur algerlega á því að þar verði engin tilslökun gerð. Þótt vel hafi miðað í viðureign- inni við verðbólguna, og þótt lík- ur fyrir hagvaxtaraukningu hafi aukist, þá verður að tryggja áframhaldið með þeim aðferðum sem svo vel hafa gefist. Nauðsyn þess að rekstrargmndvöllur aðal- atvinnuvega þjóðarinnar sé traustur til frambúðar verður ekki í efa dregin. Hitt er jafnvíst að renna þarf fleiri stoðum undir atvinnulífið í landinu, það leiðir að sjálfsögðu til aukinnar fram- leiðslu og verðmætasköpunar og meiri hagvaxtar, sem þjóðin verð- ur að stefna að. f því sambandi þarf að ljúka á farsælan hátt samningum um byggingu álvers, því að frá því máli er ekki hægt að snúa, þótt ýmis ágreiningur hafi komið upp um einstök atriði málsins. Þrátt fyrir það verða menn að fara að koma sér saman um lyktir málsins að því er tekur til samn- inganna við Atlantsálhópinn. Hins vegar verður jalnframt að takast pólitískt samkomulag um að hefja aðgerðir til mótvægis þeirri byggðaröskun, sem þegar á sér stað í landinu og mun aukast með því staðarvali álversins sem ákveðið er. Að því verkefni verða stjómmálamenn að ganga vitandi vits og gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar em. Engum stjóm- málaflokki stendur nær en Fram- sóknarflokknum að setja það mál á oddinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.