Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. október 1990 Tíminn 23 IÞROTTIR íþróttir helgarinnar: NORÐANLIÐIN MÆTAST — f úrvalsdeildinni í körfuknattleik Um helgina eru 5 leikir á dagskrá úrvalsdeildarinnar í körfuknatt- leik. Fjórir þeirra eru á morgun. i»á mætast noröaniiðið Tindastóll og Þórá Sauðárkróki kl. 16.00. Á sama tíma mætast ÍR og Hauk- ar í Seljaskóla. Kl. 20 eru einnig tveir feikir. í Njarðvík taka heima- menn á móti Snæfelli og á HHðar- enda feika Valur og Keflavík. í gærkvöld léku Njarðvík og KR í Njarðvík. Sagt verður frá úrslitum leiksins í blaðinu á þriöjudag um feið og greint verður frá gangi mála ÍBV á Seltjamamesi og Valur og Stjaman á Hlíðarenda. I gærkvöld léku KA og Víkingur nyrðra. Úrslit allra feikjanna birtast í þriðjudags- blaðinu. í öðrum leikjum helgarinnar. { 1. deiid leika í dag ÍS og UÍA í Hagaskóla kl. 13.00. í 1. deild kvenna Ieika í dag UL 14.00 UMFG og ÍR í Grindavík og ÍBK og ÍS í Keflavík. Handknattleikur 60 fþróttaþing ÍSÍ verður haldið í dag eru 5 leikir í 1. deild karia í um helgina í Félagsheimili Kópa- handknattleik. Leikimir hefjast all- vogs, Fannborg 2. Þingið verður ir kl. 16.30. í Kaplakrika taka FH- sett kL 10 á laugardagsmorgun (í ingar á móti ÍR-ingum, Fram og dag). Yfir 200 kjömir fulltrúar eiga KR feika í LaugardalshöU, Selfoss rétt til þingsetu. Fjöldi mála iiggur og Haukar á Selfossi, Grótta og tyrir þinginu. Evrópuleikur Fram og Barcelona: Leikið kl. 15.30 á þriðjudaginn Enska knattspyrnan: lan Rush leikur sinn 500. leik í dag þegar Liverpool mætir Norwich Velski landsliðsmaðurinn mark- sækni, Ian Rush, skoraði sitt 250. mark fyrir Liverpool í síðustu viku og í dag nær Rush öðrum merkum áfanga: að leika sinn 500. leik sem atvinnumaður. Á miðvikudag skoraði Rush eitt marka Wales í 3-1 sigri á Belgíu og var það hans fyrsta landsliðsmark í 28 mánuði. Kappinn er bjartsýnn á að honum takist að skora fyrir Li- verpool í dag, þegar liðið mætir Norwich City á útivelli. Liverpool hefur unnið 9 fyrstu leiki sína í deildinni og er því með fullt hús. Af þeim 500 leikjum, sem Rush hefur leikið sem atvinnumaður, eru meðtaldir allir deildar-, bikar- og al- þjóðaleikir, 46 landsleikir fyrir Wa- les og 29 leikir fyrir ítalska liðið Ju- ventus. Kenny Dalglish hafði í gær ekki endanlega ákveðið hvaða leikmenn hann myndi nota á miðjunni í leikn- um í dag. Bæði enski landsliðsmað- urinn Steve McMahon og írski landsliðsmaðurinn Ronnie Whelan hafa náð sér af meiðslum í nára. Norwich-liðið gengur ekki heilt til skógar. Fjórir af framherjum liðsins missa af leiknum. Robert Rosario verður frá í mánuð til viðbótar, vegna ökklameiðsla, og Robert Fleck er í þriggja leikja banni. Danski U-21 árs landsliðsmaðurinn Henrik Mortensen þurfti að fá saumuð 6 spor í ökklann í vikunni og Dean Coney, sem meiddur er á hné, mun líklega ekki leika meira á þessu ári. í fremstu víglínu hjá Norwich í dag verða sennilega Ruel Fox og írski U- 21 árs landsliðsmaðurinn Lee Po- wer, sem aldrei hefur byrjað inná í 1. deild. Þessir leikmenn hafa því aldr- ei leikið saman áður í framlínunni. Enski landsliðslyrirliðinn Gary Lineker varð að fara af leikvelli með sár á höfði í landsleiknum gegn Pól- verjum á miðvikudag og sauma varð 8 spor. í gær átti Lineker að fara í læknisskoðun og eftir hana átti að koma í Ijós hvort hann gæti leikið með Tottenham gegn Sheffield Wed- nesday, en Tottenham-liðið er ósigr- að á heimavelli. Arsenal verður með alla sína menn heila í dag, þegar liðið mætir Manc- hester United á Old Trafford. Leik- menn Arsenal verða í hefndarhug, minnugir 1-4 tapsins í opnunarleik síðasta keppnistímabils. Bæði Lee Dixon og David O’Leary sluppu við meiðsl í landsleikjum vikunnar. „Við vorum með æfingu á fimmtu- dagsmorgun og allir leikmennirnir voru heilir. Það er þægileg tilfmning að vera ekki með einn einasta leik- mann á sjúkralista," sagði George Graham, framkvæmdastjóri Arsen- al, í Reuter-viðtali í gær. Paul McGrath býst við að verða með Aston Villa gegn Wimbledon í dag, þrátt fyrir að hafa farið af leik- velli í landsleik íra og Tyrkja á mið- vikudag, meiddur á hné. Óvíst er hvort Roger Joseph og Lawrie Sanchez geta leikið með Wimbledon í dag. BL Fyrri leikur Fram og Barcelona í Evrópukeppni bikarhafa verður á Laugardalsvelli á þriðjudaginn kemur ld. 15.30, hálf fjögur. Leikmenn spænska liðsins koma til landsins síð- degis á sunnudag og fara af landi brott að kvöldi feikdags með leiguflugi. Leikurinn er 31. leikur Fram í Evr- ópukeppni frá upphafi. Fram hefur leikið 6 leiki í keppni meistaraliða, 6 leiki í UEFA-keppninni, en leikurinn á þriðjudag er sá 19. í röðinni í keppni bikarhafa. Dómari í leiknum verður Gifford frá Wales og landar hans verða í hlutverk- um línuvarða. íslenskur eftirlitsmaður á leiknum verður Guðmundur Har- aldsson milliríkjadómari. Fyrir tveimur árum mættust þessi sömu lið í sömu keppni. Barcelona sigraði 2-0 í leiknum á Laugardalsvelli og 5-0 í Barcelona. Lið Barcelona hefur byrjað vel í spænsku 1. deildinni í ár, betur en um áratuga skeið og er í efsta sætinu. Fé- iagið hefur 10 sinnum sigrað í spænsku deildinni og 22 sinnum í bik- arkeppninni. Þá hefur Barcelona þrí- vegis orðið Evrópumeistari bikarhafa. Þjálfari liðsins er hinn heimskunni Jo- han Cruyff frá Hollandi. Frá því Fram og Barcelona léku fyrir tveimur árum hafa orðið vemlegar breytingar á liði Barcelona. í íýrra komu Daninn Michael Laudmp frá Ju- ventus og Ronald Koemann frá PSV Eindhoven til liðs við Börsunga. Nú í ár komu Femando Munoz ffá Sevilla og ekki síst markaskorarinn Hristo Stoickov frá CSKA Sofia í Búlgaríu. Liðið er því mun sterkara en það lið, sem kom fyrir tveimur ámm, og sennilega er liðið sterkasta félagslið sem hingað til lands hefur komið. Leiknum verður sjónvarpað til Spán- ar á vegum TVE, spænska ríkissjón- varpsins. Spænskar auglýsingar verða því á vellinum. Þar sem engin flóðljós em á Laugardalsvelli verður leikurinn að hefjast kl. 15.30. Framarar leika í alhvítum búningum í leiknum á þriðjudag, en Barcelona mætir til leiks í sínum alþekktu rauð- bláu, röndóttu búningum. í síðari leiknum verður Fram í sínum bláu búningum, en leikmenn Barcelona verða þá að hafa búningaskipti. Reglur um lyfjapróf í Evrópuleikjum hafa nú verið hertar til muna og nú verða leikmenn kallaðir fyrirvaralaust í lyfjapróf. Ákveðnir leikir em dregnir út hjá borgarfógeta í Genf og síðan kemur læknir UEFA á keppnisstað eft- ir að leikur er hafinn. Verð aðgöngumiða á ieikinn er 900 kr. f stúku, en ókeypis verður fyrir böm yngri en 14 ára. Miðasala hefst kl. 12 á leikdegi. Tveir leikmenn Fram verða í Ieik- banni í leiknum, þeir Pétur Ormslev fyrirliði og Viðar Þorkelsson varafyrir- liði. Pétur er í leikbanni vegna brott- reksturs, en Viðar vegna tveggja gulra spjalda. Jón Sveinsson, sem stundar nám f Bandaríkjunum, kemur til landsins vegna leiksins og verður í öft- ustu víglínu Fram-vamarinnar. Krist- inn R. Jónsson verður fyrirliði Fram í leiknum. Leikurinn er að sjálfsögðu síðasti stórleikur ársins íknattspymunni hér- lendis og einstakt tækifæri til að sjá eitt besta félagslið heims í leik. BL Handknattleikur—Bikarkeppnin: Fjölnir gegn FH I gær var dregið um hvaða lið leika saman í 16-liða úrslitum blk- arkeppninnar í handknattleik. Drátturinn fór sem hér segir: Karian Víkingur-KR, Valur-Grótta, Fram b- KA, Þór-Ármann, UBK ÍR, Fjölnir-FH, Selfoss-Haukar og FH b-ÍBV. Leikimir fara fram 22.-24. Konurt Víkíngur b-FH, Selfoss-Fram, Ár- mann-Víkingur, UMFN-KR, UMFG-ÍBK, ÍBV-Valur, ÍR-Stjam- an og Haukar- Grótta. Leikimir fara fram 13.-15. nóv- ember. BL lan Rush leikur sinn 500. leik sem atvinnumaður ( dag gegn Norwich City. SAMKEPPNI um hús yfir borholur Hitaveitu Reykjavíkur Hitaveita Reykjavíkur efnir til samkeppni í samvinnu við Borgarskipuiag um hönnun húsa yfir borholur Hitaveitunnar, sem eru í borgarlandinu og í Mosfells- bæ, samkvæmt keppnisgögnum og samkeppnisreglum Arkitektafélags íslands. Markmið keppninnar er að leiða fram hagkvæma lausn hvað varðar notagildi, form og fegurð húsanna. Heimild til þátttöku hafa íslenskir ríkisborgarar og útlendingar með fasta búsetu á (slandi. Heildarverðlaunafé er kr. 1.000.000.- Fyrstu verðlaun verða ekki lægri en kr. 500.000.- Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 300.000.- Keppnisgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi Jenssyni, fram- kvæmdastjóra Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1 í Reykjavík, sími: 91- 29266. Tillögur skal afhenda trúnaðarmanni, eigi síðar en 31. janúar 1991, kl. 18.00 að íslenskum tíma.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.