Tíminn - 13.12.1990, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.12.1990, Blaðsíða 3
ISIENSKA AUCLÝSINCASTOFAN HF. í Minningabók Vigdísar Grímsdóttur niðar hafið. Oldumar hníga jafnskjótt og þær rísa, en í sérhverri lýsir skamma stund minning ffá genginni tíð. Lesandinn skynjar veröld sem var, með yfirbragð trega því að hún kemur aldrei aftur. En um leið er hún lifandi og hlý, ekki að fullu farin, heldur nálæg, önnur og ný í þeirri veröld sem er og verður. Vigdís Grímsdóttir hefur þegar skipað sér sess meðal fremstu höfunda okkar með smásögum sínum, skáldsögum og ljóðum. Ismeygileg kímni, napurt háð, einlæg samúð, sterkir þræðir í nýrri skáldsögu sem á enga sína líka. Saga fólks sem byrgir bresti sína og leyndarmál á bak við luktar dyr, ættarsaga í formi eftirmæla, greina og sendibréfa héðan og að handan. Viðamikið og frumlegt skáldverk eftir rithöfund sem á erindi við þig og samtíð þína. IÐUNN VANDAÐAR BÆKUR ♦ í 45 ÁR ♦ Vigdís Grímsdóttir Steinunn Sigurðardóttir Undan illgresinu er hörkuspennandi og leyndar- dómsfull bók fyrir böm og unglinga. Guðrún Helgadóttir segir hér sögu sveipaða mögnuðum dularblæ af nærfæmi, hárfínni kímni og mannlegri hlýju. Hún nær meistaralega til lesenda sinna á öllum aldri, því hún töfrar einatt fram þá ævintýraheima sem koma okkur öllum við. VA N IÐUNN Núna heitir hann bara Pétur er undur ljúf og falleg bók fyrir yngstu bömin eftir Guðrúnu Helgadóttur sem hér segir söguna af honum Pétri. Hann lenti í svolitlum vandræðum þegar hann einu sinni sem oftar fór að gefa öndunum á tjörninni. Þær litu ekki við brauðinu hans. En hvað gerir Pétur þá? Litla leyndarmálið hans Péturs verður að ævintýri sem bömin vilja heyra aftur og aftur. DAÐAR BÆKUR ♦ 1 45 Á R ♦

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.