Tíminn - 13.12.1990, Blaðsíða 19

Tíminn - 13.12.1990, Blaðsíða 19
Tíminn 19 Fimmtudagur 13. desember 1990 IÞROTTIRi Halldór Ingólfsson og félagar í Gróttu máttu þola fimm marka tap fyrir Haukum í gærkvöld. Tímamynd pjetur Handknattleikur — VÍS-keppnin: BERGSVEINN TRYGGÐIFH STIGIN — þegar FH vann KR 22-24 í jöfnum leik Mikið jafnræði var með KR-ingum og FH-ingum í gærkvöld er liðin mættust í 1. deildinni í handknatt- leik. Stórgóð markvarsla Berg- sveins Bergsveinssonar í marki FH tryggði tvö stig. FH-ingar voru sterkari aðilinn á spennandi loka- mínútum og lokatölur voru 22-24. Leikurinn var mjög jafn og jafnt var á nær öllum tölum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Það fór líka svo að í leikhléi var jafnt 11-11. FH-ingar Jón Amar Ingvarsson skoraði 19 stig í sínum fýrsta A-landsleik í Cardiff í Wales í gær. Tímamynd Pjetur - tóku 2 marka forystu í upphafi síðari hálfleiks 11-13, en KR-ingar jöfn- uðu. KR náði síðan 2 marka forystu 19-17, en FH jafnaði 19-19. Enn var jafnt 21-21, en þá sagði reynslan til sín hjá FH-ingum og þeir Óskar Ár- mannsson og Guðjón Árnason komu FH-ingum 3 mörkum yfir 21- 24 og úrslitin voru ráðin. Berg- sveinn varði einnig á örlagastundu, en hann varði alls 17 skot í leiknum. Það stvrkti FH-liðið mikið í gær að Óskar Ármannsson lék með á ný eft- ir að hafa verið meiddur um skeið. Hann lék vel, sem og Guðjón og Pét- ur Petersen, að ógleymdum Berg- sveini í markinu. Hjá KR voru þeir Konráð Olavsson og Sigurður Sveinsson sterkastir, en Páll Olafsson var að venju drjúgur. Árni Harðarson markvörður varði ágætlega. Mörkin KR: Konráð 8, Sigurður 5, Páll eldri 4, Guðmundur 4 og Björg- vin 1. FH: Guðjón 5, Óskar 4, Gunn- ar 4, Stefán 4, Pétur 4, Þorgils 3 og Hálfdán 1. Leikinn dæmdu þeir ÓIi Ólsen og Gunnlaugur Hjálmarsson. Þeir voru strangir í dómum sínum og Willum Þór Þórsson fékk að líta rauða spjaldið snemma í leiknum fyrir gróft brot. Valdimar með 11 Valsmenn sigruðu KA-menn á Ak- ureyri í gærkvöld 25-28 í hröðum og skemmtilegum leik. í leikhléi höfðu Valsmenn yfir 12-14. Valsmenn náðu 4 marka forystu í fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik náðu heimamenn að jafna. Vals- menn sigu aftur framúr 23-26, en KA-menn minnkuðu muninn í 1 mark 25-26. Valsmenn gerðu 3 síð- ustu mörk leiksins og tryggðu sér sigur 25- 28. Markahæstir hjá KA voru Hans Guðmundsson og Guðmundur Guð- mundsson með 8 mörk hvor. Fyrir Val skoraði Valdimar Grímsson 11 mörk og Jakob Sigurðsson 9. Haukar og Stjarnan unnu f Garðabæ unnu Stjörnumenn 23- 20 sigur á liði Fram og í Hafnarfirði unnu Haukar Gróttumenn 30-25. Leik ÍBV og ÍR var frestað, þar sem ekki var flogið til Eyja. Leikurinn hefur verið settur á í kvöld. BL Körfuknattleikur — Smáþjóðaleikamir: Sigur sem lofar góðu íslendingar unnu Kýpurbúa á Smáþjóðaleikunum í körfuknattleik í Cardiff í Wales í gær með 15 stiga mun, 95-79. Kýpurbúar byrjuðu leikinn betur, komust í 13-10, en þá tóku íslend- ingar við sér og sigu fram úr. í leik- hléi var staðan 49-32. Seinni hálf- leikur var frekar jafn, mikið var um villur, sérstaklega af hálfu Kýpurbúa sem notuðu nær allar liðsvillur sín- ar í leiknum. Lokatölur voru eins og áður segir 95-79. Stig íslenska liðsins skoruðu: Magnús Matthíasson 22, Jón Arnar Ingvarsson 19, Pétur Guðmundsson 16, Teitur Örlygsson 10, Sigurður Ingimundarson 8, Pálmar Sigurðs- son 6, Jóhannes Sveinsson 5, Friðrik Ragnarsson 5, Jón Kr. Gíslason 2 og ívar Ásgrímsson 1. í dag leikur íslenska liðið gegn Möltubúum, en lið þeirra ætti ekki að vera erfið hindrun. Körfuknattleikur—NBA-deildin: Milwaukee velti Detroit úr sessi Milwaukee Bucks hefur tekið forystu í miðriðli austurdeildar- innar í NBA- körfuknattleiknum bandaríska. Liðið sigraði Chic- ago Bulls í fyrrinótt og á sama tíma töpuðu meistarar Detroit Pistons fyrir San Antonio Spurs. Dertoitliðið féll þar með niður í annað sætið í riðlinum. Chicago er í þriðja sætinu. Crslitin í fyrrinótt urðu þessi: NY Knicks-Miami Heat........109- 90 Orlando Magic-Phiiadelphia.114-119 Detroit Pistons-SA Spurs .86- 95 Milwaukee Bucks-Chicago Bulls .99- 87 Minnesota Timber.-LA Clippers .101- 95 Denver Nuggets-Washington ....128-125 Utah Jazz-Golden State Warr. ...135-117 Phoenix Suns-Sacramento Kings 113- 90 Portland TYail Bl.-Indiana .122- 96 Evrópukeppnin: ítölsk og spænsk lið mest óberandi I fyrrakvöld voru nokkrir leikir á Evrópumótunum í körfuknatt- leik. Úrslit urðu sem hér segir: Evrópukeppni bikarhafa Vitus Bologna Ítalíu sigraði Dynamo Moskvu frá Sovétríkj- unum 95-90. CAI Zaragoza Spáni sigraði PA- OK Salonika Grikklandi 70-64. Evrópukeppni félagsliða Joventut Badalona Spáni sigr- aði Varese Ítalíu 109-69. Knattspyma — Landsleikir: Robson lék með enska B-liðinu Bryan Robson, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins í knatt- spyrnu, sem varð vegna meiðsla að fara heim af HM á Ítalíu í sumar, lék á ný landsleik í fyrra- kvöld. Það var með enska B-lið- inu gegn Alsír í Algeirsborg. Markalaust jafntefli varð í leikn- um. Robson komst á blað í leiknum, þar sem hann fékk að líta gult spjald. Félagi hans frá Manchester United, Neil Webb, fékk hins vegar að sjá það rauða, sem og Alsírbúinn Rahim. Webb varð fyrsti Englendingurinn í þrjú ár til að vera rekinn af leik- velli, eða frá því Tony Cottee fékk reisupassann í 21 árs lands- leik gegn V-Þjóðverjum. Evrópukeppnin: Bröndby sló út Bayer Leverkusen Danska liðið Bröndby er komið í 8-liða úrslit í UEFA-keppninni eftir að hafa slegið þýska liðið Bayer Leverkusen út úr keppn- inni í fyrrakvöld. Markalaust jafntefli varð í leik liðanna í Leverkusen í fyrrakvöld. Fyrri leik liðanna lauk með 3-0 sigri Bröndby. Monaco er úr leik í sömu keppni. Liðið tapaði á heima- velli fyrir Torpedo Moskvu í fyrrakvöld 1-2. Sovéska liðið vann samanlagt 4-2. ftalía: Maradona telur þjálfara sinn orðinn galinn Argentínska knattspyrnugoð- ið Diego Armando Maradona segist ekki eiga um annað að velja en að fara frá Napólí. Ástæðan er sú að hann telur Bigon, þjálfara liðsins, galinn. Bigon valdi Maradona ekki í lið Napólí gegn Atalanta um síðustu helgi vegna þess að goðið lét sig vanta á æfingu. Það hlýtur að vera galinn þjálf- ari sem ekki velur Maradona í lið sitt, eða hvað? BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.