Tíminn - 13.12.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.12.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 13. desember 1990 Timinn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrfmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason SkrifetofurLyngháls 9,110 Reykjavík. Sími: 686300. Auglýslngasími: 680001. Kvöldsíman Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Efnahagsumræður Þjóðarsáttin og lagasetningin til að fylgja henni eftir er víða umræðuefni í landinu þessa daga og er ekki tiltökumál. Yfirleitt virðast dómar manna um efnahagsstefnuna jákvæðir. I nýútkominni skýrslu ífá Seðlabankanum er m.a. bent á að með febrúar- samkomulaginu um verðbólguhjöðnun og framlagi ríkisvaldsins í því sambandi „hafi um sinn verið lögð tryggari kjölfesta að verðlagsþróun en oftast áður“. Þegar nánar er gætt að efni og orðalagi þessarar umsagnar má ljóst vera að efnahagsstefnan og framkvæmd hennar hefur til þessa náð tilgangi sín- um, þ.e. því markmiði að stöðva óheillaþróun ís- lenska verðbólguíýrirbærisins, sem efnahags- og íjármálakerfi landsins hefur liðið fyrir árum og ára- tugum saman. Þessi tilraun til samstillts átaks hagsmuna- og áhrifaafla þjóðfélagsins um að minnka verðbólgu, koma á stöðugu gengi og treysta verðgildi krónunn- ar á að standa í eitt og hálft ár og enn er ekki nema helmingur þess tíma liðinn. Hvað tímamörkin varð- ar er því annað eins eftir, og þótt vel hafi miðað það sem af er verður árangur þjóðarsáttarinnar endan- lega dæmdur eftir því hvemig staðan verður við lok tímabilsins haustið 1991. Þjóðin verður að hafa þolinmæði til þess að bíða þess tíma og forsvars- menn efnahagsstefnunnar verða að standa ábyrgir íyrir henni þar til samningstímanum er lokið. Gagnrýnendur núverandi efnahagsstefnu verða ekki síður að sýna biðlund í dómgimi sinni og gera sig ekki seka um fyrirframdóma. Þótt engum komi til hugar að líta á núverandi efnahagsstefnu sem hina „ajgjöm lausn“ efnahags, fjármála- og launastefnu á íslandi, því að hún hef- ur sín augljósu takmörk, auk þess sem „endanlegar lausnir“ á þjóðfélagsvanda em ekki til nema í hug- um öfgamanna — þá em líka takmörk fyrir því hvers konar áróðri og hvers kyns áróðursaðferðum er heimilt og siðlegt að beita í stjómmálaumræðum á hverjum tíma. Islendingar hafa um langan aldur haft illa reynslu af því þegar skmmið var látið yfir- gnæfa vitlega umræðu um efnahags- og ijármál. En nú tekur steininn úr þegar nýkapitalistar Sjálf- stæðisflokksins, marx-leninistar á Veðurstofunni og einhverjir kennarar í lagadeild Háskóla íslands sameinast í innantómum skmmræðum í tilefni mannréttindadags Sameinuðu þjóðanna um að for- dæma íslensk stjómvöld fyrir mannréttindabrot og pólitískar yfírtroðslur, að ekki sé minnst á nýstár- legar skýringar þeirra á völdum og starfssviði for- seta Islands. Almenningi er ekki gerður greiði með málflutn- ingi af því tagi sem fram fór á fundi Orators (félags laganema) og ráðstefnu á vegum Bandalags há- skólamanna og BHMR, vegna þess að hann var í mikilvægum atriðum gagnsýrður af öfgum, að svo miklu leyti sem hann var ekki tóm flatneskja að efni og framsetningu. Háskólakennarar ættu öðmm fremur að varast að skjóta yfir markið. GARRI Senn líður að því að Selfoss verði hundrað ára. Hafa rnenn þar á bæ haft uppi heitstrengíngar urn að gera hænum ýmislegt til góða á aldarafmælinu, eins og að reisa styttu af merkismanni, sem kom- ið hefur við sögu og uppbyggingu staöarins. Þegar tal berst aö slíku kemur einn maður fyrst og fremst upp í hugann. Það er Egili Thor- arensen, kaupféiagsstjóri og í rauninni sköpuður Selfoss um áratuga skeið. Þrátt fyrir að Egill Thorarensen, Selfoss og vestan- vert Suðurland hafi verið eins og ein órjúfandi heiíd á mestu upp- gangsáratugum þessarar aldar, hefur aðiium á Seifossi komið tii hugar að reisa styttu af öðrum ágætum manni á Selfossi á hundrað ára afmæíinu. Sá maður varð fyrst og fremst ágætur af ýmsum framfaramálum, sem snertu þjóöfélagið alit, en hann lét byggja fyrstu brúna yfir Ölfusá hjá Selfossi seínt á öldinni sem leið. Þessi maður var Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri. Að öðru leyti kom hann ekki meira við sögu Selfoss en gekk og geröist um forystumann í þjóðféTaginu. Skortir sögulegan skilning? Stytta af TYyggva Gunnarssyni stendur i Alþingisgarðinum, þar sem hann var grafinn. Eflaust er ástæða til að gera af honum aðra styttu, en hún ætti þá að standa við Eyjafjörð, þar sem sporði Vaðlaheiðar er drepið niður á sÍÓttlendið í sunnanverðu Höfða- hverfi og þar sem prestssetrið Uufls stendur. Þar jtöí Tryggvi á heimaslóðum, sem er réttmætt, EgiilThorarensen. þótt starfsvettvangur hans stæði um alit land. Öðru máli gegnir um Tryggva og Selfoss. Hugmyndin um styttu af honum þar gæli ver- ið selt fram ti) að skáka Agll til hliðar, þegar talið berst að aldaraf- mælinu. En þá eru menn Utilla sæva. Það var nefnilega Egiil Thorarensen sem gerði Selfoss að góðum og driftarmiklum stað, efldi hann á aUa lund og kom þar fyrir miðstöö atvinnulífs « stóru héraði. Hann ætlaði Selfossi mik- ið hlutverk og bjó í haginn fyrir það hlutverk af hugkvæmnl og áræði. Hann byggði ekki eina brú, sem í sjálfu sér var mikilsvert. Hann byggði athafnabtýr um allt hérað og lét þær mætast á Sel- fossi. Þeir sem stjórna Selfossi í dag verða að hafa sögulegan skiln- ing ó stöðu Selfoss f ríku og gróskumfklu héraði, gera sér grein fýrir ástæðum fyrir vexti staðarins og viðgangi og skiJja hvaða maður vann þar mestu og frækUegustu verkin. Enginn sem um Selfoss hugsar kemst fram hjá nafni BgUs Thorarensen. Nýtti tækifærin Vel má vera að EgiU hafi verið hnýflóttur á stundum og eldd vin- ur aUra alian tímann. Þannig eru athafnamenn gjantan. Eh Egilf vann staðnum vel og linnti ekki sókn og stórframkvæmdum á meðan hann lifði. Þá er Þorláks- höfn risin til vegs og virðingar fyrir hans tilverknað. Þess staðar naut hann þó aldrei sjálfur, þótt hann hafi ef til viU ætlað sér að eyða ellidögunum þar. Brúin á Ölfusá við Selfoss var mikið þreb- virki á sinni tíð og breytti mörgu fyrir Sunniendinga. Hún hafði þau áhrif á byggðaþróun héraðs- ins, að staðir eins og Eyrarbakki og Stokkseyri stönsuðu um tíma og komust ekki af stað aftur fyrr en á síðustu áratugum þegar ný atvinnutækifæri komu til sögunn- ar. Á meðan efldi Egiil Thoraren- sen Seifoss af öllum mætti. Það er því ljóst hvemig sem menn að öðru Íeyti hugsatil EgHs, að fram- hjá honum verður ekki komist, þegar staðurinn viU minnast hundrað ára afmæiis síns með styttu. Mun og mörgum jjykja tími tll kominn, að látið sé af pól- itískri andúð á starfí Egils Thor- arensen, og að ekki sé verið að sækja aðra menn iangt út lögsagnarumdæmi Selfoss til að Steypa þá í eir á hátíöisdögum. VITT OG BREITT Voðalegt ferðafrelsi Ekki er langt síðan Vesturlönd gerðu þá kröfu á hendur kommún- istaríkjum að þar yrði gefið ferða- frelsi og töldu þá utanlandsferðir og brottflutning úr landi til sjálfsagðra mannréttinda. Bandaríkin tóku fagnandi við öllum flóttamönnum frá Sovétríkjunum og fengu þeir umyrðalaust ríkisborgararétt. Vest- ur-Þjóðverjar tóku við öllu fólki úr kommúnistalöndum sem á til þýskra forfeðra að telja og fluttust þeir vestur um allt austan frá Volgubökkum. Hörð kröfugerð hef- ur lengi verið höfð uppi um að sov- éskir gyðingar fengju að flytja til ísraels, eða í önnur gyðingasamfé- lög. Nú hafa veður skipast í lofti með skjótari hætti en nokkurn óraði fyr- ir. Nú hóta sovésk yfirvöld að opna landamærin fyrir flóttafólki að austan og verða við síendurteknum kröfum manngæskufólksins fyrir vestan um ferðafrelsi sovéskra þegna og sýna þar með virðingu fyrir mannréttindum. Flóttinn úr fyrrum leppríkjum til Vestur-Evrópu hefur verið mikill og á síðasta ári nam hann vel á aðra milljón manns. Og á það skal minnst að þegnar Þýska alþýðulýð- veldisins sáluga eru nú ailir orðnir alvöru Þjóðverjar og eiga nú mikið verk fyrir höndum að hreinsa til og byggja upp rústir óðaia kommún- ismans. Þá munu Þjóðverjar greiða fyrir heimför hundruð þúsunda sov- éskra hermanna og fjölskyldna þeirra, sem hersetið hafa mengun- ardamminn Austur-Þýskaland um áratuga skeið. Kostar það ærið fé, þar sem Sovétríkin eru ekki í standi til að taka við eigin hermönnum og skjóta yfir þá skjólshúsi. Kröfur um mannréttindi Enn á ný horfa íbúar Evrópu vest- anverðrar með skelfingu til austurs og þekkja engar vamir til að stöðva innrásina sem í vændum er. Nú fer nefnilega að reyna á mann- réttindakröfurnar sem alltaf er verið að gera, þar sem von er á milljóna manna flóttamannastraumi þegar langþráð ferðafrelsi verður veitt. í Sovétríkjunum ríkir upplausn og skortur á lífsnauðsynjum mun hrekja fólk til gósenlanda vesturs- ins. Flóttamannastraumur hefur lengi verið verulegur úr Mið-Evr- ópuríkjum og Póllandi, en inn í þau lönd munu sovésku flóttamennimir fyrst leita og síðan áfram vestur á bóginn. Ríkisstjórnir eru orðnar logandi hræddar við væntanlega frelsingja, en geta lítið að gert vegna þess að þær em búnar að heimta svo lengi og rækilega að landamærin verði opnuð í nafni frelsis og mannrétt- inda. Almenningur er vamarlaus og ráð- villtur, því það er búið að segja hon- um svo lengi að þeir sem mjamta kjafti við þjóðflutningum flótta- manna inní bæi sína séu ekkert annað en nasistar, aríar, kynþátta- hatarar og óþverrar hinir mestu og enda óvinir mannkynsins. Málfrelsið Þrautalendingin er að veita þurf- andi þegnum Sovétríkjanna og ann- arra fyrmm kommúnistaríkja neyð- arhjáp og reyna að fá fólkið til að halda sig heima við. En það mun ekki bægja þjóðflutn- ingunum frá og ekki ómerkari mað- ur en Havel forseti telur að 17 millj- ónir Sovétmanna fari að mjakast vestur á bóginn á næsta ári. Þar sem Tékkar em nýleystir úr álögum eftir áratuga kúgun halda þeir að málfrelsi sé á Vesturlöndum og innanríkisráðherra þeirra opin- berar þá skoðun að flóttamanna- straumurinn muni breyta vest- rænni menningu. Svo er komið að meira að segja málgagn Hvíta húss- ins á íslandi prentar svona ummæli. En það er líklega bara vegna þess að hér er skírskotað til innflytjenda af slavneskum uppmna frá komma- löndum. Margir þeirra em jafnvel kristnir. Það heyrir því ekki undir menningar- og kynþáttahatur að vara við stórskömmtum af því fólki inn í vestur-evrópsk samfélög. Það er kaldhæðnislegt að fyrmrn kommaríki hafa þrýst Iandamæmm sínum lengra til vestur en þau ráða við. Svo fylgir fjöldinn á eftir og vill nú æða yfir hin vestlægu landamæri og skilja eftir órækt og örbirgð á hinum miklu og gróðursælu land- flæmum austursins. Og nú grátbæna ráðamenn á Vest- urlöndum sovétleiðtogana að fara varlega í að veita þegnunum mann- réttindi og ferðafrelsi og bjóðast til að senda þeim heldur matinn og aðrar nauðþurftir heim. Evrópa hefur nefnilega oftekið sig á gestrisninni, en á það þorir enginn að minnast nema langkúgaðir Tékkar, sem ráða ekki við nýfengið málfrelsi. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.