Tíminn - 04.01.1991, Qupperneq 4
4T(minn Föstudagur4. janúar 1990
Ellefu dagar þangað til stríð verður heimilað af Sameinuðu þjóðunum:
Spenna eykst enn og
fresturinn stvttist
Nú, þegar einungis 11 dagar eru þar til 15. janúar rennur
upp, lokadagsetningin sem Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna gaf Saddam Hussein til að hverfa á braut frá írak eil-
egar veijast árás, eykst spenna vegna Persaflóa. Yfírlýsing-
ar, orðræður og óskir um friðsamlega lausn berast frá fleiri
og fleiri ríkjum.
Bandaríkjamenn lögðu til dag-
setningu fyrir friðarviðræður milli
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
og íraks og kölluðu þær umleitan-
ir síðustu tilraun til þess að koma í
veg fyrir stríð við Persaflóa vegna
innrásar íraka í Kúvæt í ágúst s.I.
Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að James Baker ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
væri tilbúinn til þess að hitta utan-
ríkisráðherra íraks, Tareq Aziz, í
Sviss milli 7. janúar og 9. janúar
n.k.
Samningar um dagsetningu fyrir
viðræður milli utanríkisráðherr-
anna hafa gengið afar hægt og þær
dagsetningar, sem nefndar hafa
verið hingað til, ekki verið sam-
þykktar af mótaðilanum.
George Bush Bandaríkjaforseti lét
þau orð falla í sjónvarpsviðtali á
miðvikudagskvöld að Saddam yrði
komið burt frá Kúvæt „sama hvað
það kostaði". En búist er við því að
bandaríska þingið muni hvetja
hann til að gera sitt allra ýtrasta til
að finna friðsamlega lausn Persa-
flóadeilunnar.
írakar vilja einungis
tala við EB með
skilyrðum
Orðsending, sem írak sendi Efna-
hagsbandalagi Evrópu í gær, er á
þá leið að tilgangslaust sé fyrir EB-
ríkin að reyna að hafa samband við
Baghdad án þess að þeir væru til-
búnir til viðræðna um jafnvægi á
Persaflóasvæðinu.
Zaid Haidar, sendiherra íraks í
Belgíu, tilkynnti þetta á blaða-
mannafundi í gær og sagði að hann
vonaði að á fundi utanríkisráð-
herra EB-þjóðanna í Lúxemborg,
sem fer fram í dag, myndu friðar-
umleitanir verða ræddar.
Hann sagði einnig að hann hefði
orðið fyrir vonbrigðum með að for-
seti EB í Lúxemborg hefði lýst því
yfir að ferð til Baghdad yrði til að
leita skýringa og til þrýstings, frek-
ar en til samningaviðræðna. „Ef
það er markmiðið, þá er eins gott
að senda engan," sagði sendiherr-
ann.
Ráðstefna í Lýbíu
vegna ástandsins við
Persaflóa
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, hélt til Lýbíu í gær til við-
ræðna við Muammar Gaddafi, leið-
toga Lýbíu, um ástandið við Persa-
flóa. Fréttastofa Miðausturlanda í
Egyptalandi sagði að leiðtogarnir
tveir myndu einnig hitta Hafez al-
Assad, forseta Sýrlands, og Omar
Hassan al-Bashir, hershöfðingja
Súdan.
Gaddafi kallaði þessar viðræður
saman til þess, að hans sögn, að
reyna að stöðva Sþ í að fara í stríð
við írak eftir 15. janúar.
Þessir fjórir leiðtogar hafa allir
hvatt Saddam Hussein til að hörfa
og bjarga sér frá niðurlægjandi
ósigri gegn 500.000 manna herliði
bandamanna, sem safnast hafa
saman við Persaflóa s.l. fimm mán-
uði.
En Saddam Hussein skellti skolla-
eyrum við og hefur sagt að hann sé
tilbúinn að berjast ef nauðsyn kref-
ur. „Við viljum ekki stríð, við vilj-
um frið,“ sagði hann við sovéska
þingsendinefnd á miðvikudags-
kvöld. „Ef það verða okkar örlög að
berjast, munum við berjast til að
verja frelsi okkar, heiður og sjálf-
stæði.“
Sovéska þingið hvetur
til friðsamlegrar
lausnar
Sovéska þingið samþykkti í lok des-
ember s.l. yfirlýsingu þar sem lýst er
yfir alvarlegum áhyggjum vegna
ástandsins við Persaflóa. Þingið lýsir
yfir stuðningi við samþykktir Öryggis-
ráðs Sþ og leggur sérstaka áheyrslu á
að leitað verði friðsamlegra lausna á
deilunni. Þingið er einnig sammála
þeirri pólitísku stefnu sem ráðamenn
og ríkisstjóm Sovétríkjanna hafa tek-
ið í Persaflóadeilunni.
Jafhframt beinir sovéska þingið þeim
tiimælum til íraskra ráðamanna og
þjóðir íraks að „ábyrgðartilfinning
gagrrvart örlögum föðurlandsins og
umheimsins verði látin ráða og farið
verði að kröfum heimsbyggðarinnar,
sem byggjast á reglum og lögum sið-
menntaðs samfélags. írakskt herlið
verður að fara frá Kúvæt og endur-
reisa ber þar í landi sjálfstæði og full-
veldi".
Vígbúnaður eykst enn
Atlantshafsbandalagið sendi á mið-
vikudag 40 sprengjuflugvélar til Tyrk-
lands til að verja landamæri þar gegn
hugsanlegri árás íraka. Skipafloti 13
skipa bandaríska sjóhersins yfirgaf
Filippseyjar á leið til Persaflóa einnig á
miðvikudag og annar floti til lagði upp
frá vesturströnd Bandaríkjanna.
Upplýsingar frá leyniþjónustu banda-
ríska hersins herma að Saddam Hus-
sein hafi styrkt herlið sitt í Kúvæt og
safnað um 510.000 manna herliði,
4000 skriðdrekum, 2500 herbílum og
2700 stórskotaliðstækjum.
Saddam hefur lofað hermönnum sín-
um 200 prósent kauphækkun með því
að borga þeim mánaðarlegan bónus
upp á 50 dínera sem samsvarar um
8800 íslenskum krónum.
Bretar reka átta starfs-
menn íraska sendiráðs-
ins úr landi
Bretar tilkynntu í gær að þeir ætluðu
að reka átta starfsmenn í íraska sendi-
ráðinu úr landi og einnig 67 aðra ír-
aka sem dvelja þar í landi.
Tcilsmaður breska utanríkisráðuneyt-
isins sagði að ástæðan fyrir brottvís-
uninni væri sú að írakar hefðu haft í
stöðugum hótunum við Breta og þá
aðallega um hugsanlegar gíslatökur.
Sendiherra íraka, Azmi Al-Salihi, var
tilkynnt um þessa ákvörðun í gær-
morgun.
Talsmaðurinn sagði að þessum átta
hafi verið gefinn 24 stunda frestur til
að yfirgefa landið.
Bretar hafa nú 34.000 manna her-
lið við Persaflóa.
—Reuter, GEÓ
FRETTAYFIRLIT
NEW YORK - Sendiherra íraks í
Bandaríkjunum hefur gefið það í
skyn að möguleiki sé á fríðsamlegri
lausn Persaflóadeðunnar, en nú er
beðlð eftir svari íraka við tilboði
Bandaríkjanna um viðræður utanrík-
israðherra landanna í næstu viku.
BAGHDAD - Michei Vauzelle, for-
maður utanríkisnefndarinnar
franska þingsins, fór í einkaheim-
sókn til íraks tíl viðræðna vegna
Persaflóadeilunnar.
PARÍS - Samkvæmt fréttum í
írönskum fjölmiðlum þá samþykktu
írakar í grundvallaratríðum á meðan
á leynilegum viðræðum stóð, að yfir-
gefaKúvæL
LONDON - Hussein, konungur
Jórdaníu, notfærði sér sérstöðu sína
sem samníngamaður í Persaflóadeil-
unni og hóf að reyna að vinna stuðn-
ing Evrópu tií aö finna fríðsamlega
lausn á Persaflóadeilunni
LÚXEMBQRG - Evrópubandalag-
ið krefst þess að írak hörfi frá Kúvæt
áður en ástandiö vlð Persaflóa verðí
raett, að sÖgn utanríkisráðherra Lúx-
emborgar. „Það verða engar samn-
ingaviðræður. Samband verður haft
gegnum sfáíaboó," sagði Jacques Po-
os, en honum verður líklega frrir-
síápað að heQa viðræður við íraka
efth fund utanríkisráðherra EB-
þjóðanaa í dag.
1 - Forsefi Lífhaugaiands, Vy-
tautas Landsbergis, sagði að sováska
ríkisstjómin hafi aukið varúöarráð-
stafanirí mikilvægum byggingum og
bað um víðtækari stuðning frá vest-
rænum ríkjum í sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkjanna.
RÓM - Ráðamenn á Ítalíu segja að
forseti Sómalíu, Mohammed Siad
Barre, hafl gefið leyfi öl brottflutn-
ings útlendinga þaöari á sjó og í iofti
frá höfuðborghini Mogadishu. En
sagt er að björgun útlendinganna
velti áþvíhvortvopnahlé næst á mílli
stríðandi fyödnga í höfuöborginni.
PEKING - Hinn aldni leiðtogi Kína,
Deng Xiaoping, hefur frrirskipað
Kommúnistaflokknum að hætta aö
þrátla um formsatriói og einbeita sér
að því að betrumbæta hið staðnaða
efhahagskerfi IQha.
ÓSLÓ - Norsk ob'ufyriríæki í Norð-
ursjó hafa hert varúðarráðstafanír
vegna hugsanlegra hryðjuverka út af
Persaflóadeíluniii.
MANILA - Corazon Aquino, forseti
Fiiippseyja, fór fram á aukin völd til
bráðabirgða í sex mánuði tíl að taka á
hugsanlegum afleiðmgum þar í landi
ef til stríðs kemur við Persaflóa.
TÚNIS - Sallah Mukhfar frá írak
sagði af sér embætti aðstoðarrítara í
Arababandalaginu í gær til að mót-
mæla afstöðu Egypta í Persafíóadeil-
unni.
VÍN - Kommúnistasíjóm Albam'u,
seœ nú gh'mir víð mikinn fólksflótía
tíl nágrannaríkisins Grikklands, gaf
út 22.000 vegabréf á sfóasta ári til
fólks sem hafði ferðalög í huga.
COLOMBO - Ríkisstjóm Sri Lanka
sagði að ötyggisherír sínir myndu
stöðva ofbeldisaðgerðir gegn upp-
retsnum
deginumí dag.
DUBLIN - Peter Brook, Norður- ír-
iandsráðhena Bretíands, hlaut frfó-
arverðlaun írska lýðveldisins fyrir að
stuðla að fríðarviðræðum mifli strfó-
andi fylkínga kaþólskra og mótmæl-
enda á Noröur-írlandi.
LONDON - John Major, forsætis-
ráðherra Bretlantís, hyggst halda til
Saudi-Arabíu á sunnudag til að
heimsækja breska hermems sem
staddir eru þar nú, Hann dvelur þar $
tvo daga, en mun síðan verja nótí í
Óman og svo degi í Kairó í Egypta-
landi.
■—Reuter, GEÓ