Tíminn - 04.01.1991, Blaðsíða 8
Föstudagur 4. janúar 1991
Föstudagur 4. janúar 1991
Tíminn 9
Nýja árið byrjar með miklum látum í veðrinu. Truflanir hafa orðið á rafmagni, síma, útvarpi og samgöngum á lofti og landi:
URLAND VAR MEIRA
MINNA RAFMAGNSLAUST
Mjög slæmt veður hefur verið á norð-
anverðu og vestanverðu landinu und-
anfarna tvo daga. Rafmagnslaust hefur
verið mjög víða á Norðurlandi og er tal-
ið að mörg hundruð rafmagnsstaurar
hafi brotnað í gær og fyrradag. Truflan-
ir hafa orðið á símasambandi og út-
sendingar útvarps duttu út um tíma.
Umtalsvert tjón varð af völdum veðu-
rofsans á húsum og bílum, en telja má
víst að mest tjón hafi orðið á rafmagns-
línum, þó að erfitt sé að meta það á
þessu stigi. Samgöngur hafa gengið illa
og nú bíða milli 1800-1900 manns eftir
flugi innanlands. Vegfarendur hafa átt í
miklum erfiðleikum og í nokkrum til-
fellum mátti litlu muna að illa færi.
Ekki er vitað til að nokkur hafi meiðst í
veðurofsanum.
Djúp kyrrstæð lægð við
landið
Veðrinu olli mjög víðáttumikil 948
millibara kyrrstæð lægð. Vindhraði
varð mjög mikill víða á landinu, sér-
staklega norðanlands. 10-12 vindstig
mældust á Gufuskálum á Snæfellsnesi,
víða á Vestfjörðum, á Sauðanesi og á
Hrauni á Skaga fyrir norðan. Einnig var
mjög hvasst í innsveitum á Suðurlandi.
Hægast var veður á Suðausturlandi.
Veðrinu fylgdi lítil úrkoma, en þó var
slydda á stöku stað.
I gær var spáð að draga myndi úr vind-
hraða í nótt sem leið, en spáð var að
áfram yrði hvasst á Norðurlandi og
Vestfjörðum og að öllum líkindum
einnig á Snæfellsnesi. Þessi spá nær
fram yfir næstu helgi. Nú er að myndast
sterk hæð yfir Grænlandi og þess vegna
eru horfur á að á næstu dögum verði
áfram hvasst á Norðurlandi.
í tilefni af þeim óhöppum og vandræð-
um, sem fólk hefur lent í síðustu tvo
daga, er ekki óeðlilegt að spyrja veður-
fræðing að því hvort þetta veður hafi
komið fólki á óvart. Ásdís Auðunsdóttir
veðurfræðingur sagði það ekki eiga að
vera. Veðurfræðingar hefðu spáð mjög
hvössu veðri og sú spá hafi gengið eftir.
Svo virðist sem veturinn komi sumum
alltaf á óvart. Á þessum árstíma er allra
veðra von og fólk verður að haga ferð-
um sínum í samræmi við það og alls
ekki að leggja út í neina tvísýnu nema
taka mið af veðurspá.
Rafmagnslínur stór-
skemmdar víða á
Norðurlandi
Óveðrið hefur valdið mjög umfangs-
miklum skemmdum á rafmagnslínum
víða á Norðurlandi. Mjög miklar
skemmdir urðu í fyrrinótt, en í gær
brotnuðu einnig margir staurar og lín-
ur slitnuðu vegna ísingar. Nær raf-
magnslaust var í allan gærdag á Húsa-
vík og nágrenni. Vararafstöð var keyrð,
en rafmagn frá henni dugði ekki fyrir
allan bæinn og þess vegna varð að
skammta rafmagn. Rafmagnsleysinu
olli bilun á rafmagnslínu frá Laxárvirkj-
un. Miklar skemmdir urðu einnig á
sveitalínum í nágrenni Húsavíkur og í
Þingeyjarsýslu. Ekki var ljóst þegar síð-
ast fréttist hvenær viðgerð lyki, en um
mjög umfangsmikla viðgerð er að ræða.
Norðlendingar fengu í gær aðstoð frá
viðgerðarmönnum úr Borgarfirði og af
Suðuríandi. Aðstæður til viðgerðar
voru mjög slæmar, hvassviðri og bleyta.
Á sumum svæðum gátu viðgerðarmenn
lítið annað gert en að reyna að varna
frekari skemmdum á rafmagnslínum.
Rafmagnslaust var víða á vestanverðu
Norðurlandi og var áætlað um miðjan
dag í gær að þegar væru um 200 staur-
ar brotnir. Svokölluð Fellslína varð fyr-
ir miklum skemmdum og segja má að
línan hafi legið meira og minna á jörð-
inni eftir óveðrið í fyrrinótt. Margir raf-
magnsstaurar brotnuðu í nágrenni við
Skagaströnd. Mikið rafmagnsleysi var á
sveitabæjum í nágrenni Sauðárkróks
og Hofsóss. Sömu sögu er að segja frá
Eyjafirði. Starfsmenn rafveitna á Norð-
urlandi vöruðu vegfarendur í gær við
Eftir
Egil
Ólafsson
hættulegum raflínum. Raflínur voru
sumar hverjar svo sligaðar af ísingu að
hætta var talin á að bílar rækjust í þær.
Einnig geta slitnar raflínur verið
hættulegar.
Rafmagnslínan frá Mjólkárvirkjun
slitnaði í illviðrinu í fyrradag, en línan
er aðalflutningslína frá virkjuninni til
norðanverðra Vestfjarða. Ekki kom þó
til rafmagnsleysis vegna þess að díselr-
afstöðvar voru keyrðar. Vestfirðingar
urðu því ekki fyrir óþægindum vegna
þessa. Viðgerðaflokkur fór af stað með
varðskipi í fyrradag, en var ekki búinn
að finna bilunina þegar síðast fréttist.
Línan, sem eru um 60 km Iöng, liggur
yfir Flatfjöll milli Arnarfjarðar og Dýra-
fjarðar. Þar geisaði stórhríð í allan gær-
dag og þess vegna áttu viðgerðarmenn
óhægt um vik. Slæmt veður var einnig
í byggð á Vestfjörðum og fór vindhraði
upp í 10-11 vindstig í verstu hviðunum.
Bilun varð á rafmagnslínum í Reyk-
hólasveit og varð nokkurt rafmagns-
Ieysi þar af þeim sökum.
Símasambandslaust við
Húnavatnssýslur
Ljósleiðari milli Sauðárkróks og
Blönduóss bilaði í gær. Símasambands-
laust varð við Blönduós, Hvammstanga,
Laugabakka, Hólmavík og Skagaströnd,
en fólk á svæðinu gat talað innan svæð-
isins. Segja má að báðar Húnavatns-
sýslur hafi verið nær símasambands-
lausar við aðra landshluta. Þá gat verið
erfitt að ná símasambandi við Norður-
land, þar sem margar línur voru óvirk-
ar og einnig voru truflanir innan hér-
aðsins. Truflanir urðu á útvarpssend-
ingum fyrir norðan um tíma. Á Norður-
Iandi eru engir viðgerðarflokkar sem
geta gert við ljósleiðara og þess vegna
verður að fá viðgerðarmenn frá Reykja-
vík þegar ljósleiðari bilar. Þar sem allt
flug lá niðri í gær, komust viðgerðar-
menn ekki norður og því var ekki unnt
að gera við í gær. Ekki var vitað hvað
olli biluninni þegar síðast fréttist og
ekki var búið að staðsetja hana.
Þakplötur fuku
Á Blönduósi var hið versta veður eins
og víðar á Norðurlandi. í fyrradag fuku
allmargar járnplötur af húsum á staðn-
um og ollu tjóni. í fyrrinótt fauk hluti
af þaki Grunnskóla Blönduóss. Bílar
fuku til og skemmdust. Þá brotnuðu
rúður í bílum og húsum. Svipaða sögu
er raunar að segja frá Hvammstanga og
af bæjum í Húnavatnssýslum. Ljóst er
að tjón skiptir milljónum.
Veður var afar slæmt á Akureyri, en
þar varð þó ekki stórkostlegt tjón á
eignum. Járnplötur fuku af einu húsi
og neyddust íbúar til að yfirgefa það.
Björgunarsveit var kölluð út á Akureyri
um miðnætti í gær, þegar óttast var um
mann. Hann reyndist vera kominn til
byggða. Björgunarsveitarmenn á Húsa-
vík voru kallaðar út í fyrrinótt til að
varna foki. Þar náðu þakplötur að fjúka
og a.m.k. þrjár rúður brotnuðu.
Ófært um vegi vegna
hvassviðris og hálku
Færð um vegi landsins var slæm víða á
landinu. í fæstum tilfellum olli snjór
teljandi vandræðum, nema á fjallveg-
um. Mikill vindur og hálka gerðu veg-
farendum erfitt um vik að komast leið-
ar sinnar. Víða var skyggni einnig ákaf-
lega slæmt. Þeir sem voru á ferðinni
fengu margir hverjir að kynnast því.
Bíll fauk út af vegi og valt nokkrar velt-
ur á utanverðu Snæfellsnesi í fyrrinótt.
Þrír menn voru í bílnum og áttu þeir
slæma vist, þar sem þeir voru ekki
nægilega vel búnir og veður snarvit-
laust. Þeir biðu nær sex tíma eftir hjálp,
en komu til Hellissands snemma í gær-
morgun. Ökumenn lentu víðar á land-
inu í erfiðleikum og þurftu sumir á
hjálp að halda. Alls staðar var það mik-
il, hvöss biindhríð og hálka sem vand-
ræðunum olli.
Á háflóðinu í gærmorgun flæddi yfir
sjóvarnargarð bak við frystihúsið
Brynjólf hf. í Njarðvík. Grjót gekk langt
upp á land og sjórinn braut upp hurðir
í frystihúsinu og flæddi mikið vatn inn.
Um tíma var vatnshæðin í húsinu um
hálfúr metri. Ekki er gott að gera sér
grein fyrir því tjóni sem þarna varð, en
menn telja þó að það sé minna en á
horfðist í fyrstu.
Ekkert flogið frá Akureyri
og Vestfjörðum á árinu
Innanlandsflug hefur gengið mjög illa
það sem af er þessu ári. Ekkert hefur
t.d. tekist að fljúga til Akureyrar og
Vestfjarða á þessu ári. Á Akureyri bíða
nú yfir 700 manns eftir flugi suður og
um 300 bíða fyrir sunnan. Margt af því
fólki sem bíður á Akureyri er námsfólk
sem átti bókað flug til útlanda. Einstak-
lingar hafa því orðið fyrir verulegum
óþægindum vegna þessa. Það var ekki
bara að ekki væri hægt að lenda á flug-
völlum fyrir norðan og vestan, ókyrrð
og ísing var líka mikil í loft. Samtals
um 1600 manns biðu eftir flugi hjá
Flugleiðum í gær og um 250 hjá Arnar-
flugi. Flugfélag Norðurlands hefur ekki
hreyft flugvél á nýja árinu. í gær fóru
Flugleiðir sjö ferðir til Egilsstaða, tvær
til Hornafjarðar og þrjár til Vestmanna-
eyja. Millilandaflug hefur gengið eðli-
lega fyrir sig.
Sexmenningamir á Fljóts-
dalsheiði komnir til byggða
Sexmenningamir, sem leitað var að á
Fljótsdalsheiði, fundust heilir á húfi
um klukkan tvö í fyrrinótt við Lauga-
fell. Nfu leitarmenn börðust áfram í
snarvitlausu veðri í um 14 tíma áður en
þeir fundu fólkið. Fólkið hafði verið í
bílum sínum tveimur í á annan sólar-
hring þegar það fannst. Ekkert amaði
að því. Það beið í heitum bflunum eftir
að hjálp bærist. Talstöð sem var í öðr-
um bílnum bilaði og gátu sexmenning-
arnir ekki gert vart við sig, en heyrðu
um leitina í útvarpi. Það var fyrst og
fremst vegna veðurofsans sem fólkið
neyddist til að halda kyrru fyrir.
Skyggni var nánast ekkert og fólkið ótt-
aðist að lenda út af veginum ef það
héldi áfram. Leitarmönnum gekk mjög
illa að finna bílana. Sexmenningarnir
heyrðu í snjóbílunum um nóttina og
sendu upp neyðarblys til að gera vart
við sig. Sortinn var það mikill að leitar-
menn sáu ekki blysin fyrr en eitt þeirra
lenti fyrir tilviljun á öðrum snjóbíln-
um. Veður lagaðist lítillega þegar leið á
nóttina og leitarmönnum og fólkinu
gekk sæmilega að komast til byggða.
Þangað var komið um kl. sjö í gær-
morgun. Skilja varð annan bílinn eftir á
heiðinni.
Það var iíka hvasst í Reykjavík, þó að
vart sé hægt að bera það saman við
óveðrið á Norðurlandi. Tæplega tíu
tonna trilla, Völusteinn NK 100, sökk í
Reykjavíkurhöfn í fyrrinótt. Talið er að
gat hafi komið á bátinn þegar hann barð-
ist upp við bryggjuna, en á háflóðinu
barst báturinn nánast upp á bryggjuna.
Tímamynd: Pjetur