Tíminn - 04.01.1991, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.01.1991, Blaðsíða 6
6 Tíminn Föstudagur 4. janúar 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin i Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason SkrifstofurLyngháls 9,110 Reykjavík. Síml: 686300. Auglýsingéisfmi: 680001. Kvöldslmar Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Varnaðarorð forseta íslands í nýársávarpi sínu tók forseti íslands, frú Vig- dís Finnbogadóttir, svo til orða að þegar skyggnst væri um heimsbyggðina á áramótum mætti í senn finna mörg fagnaðarefni og margt sem vekti ugg, hin jákvæða þróun í heiminum væri líka blandin kvfða. Forsetinn vísaði til þess að samtímis því sem drægi úr vígbúnaðar- keppni milli stórvelda ætti sér stað stórháska- legur vígbúnaður í Þriðja heiminum, eins og nú kæmi fram við Persaflóa, rétt eins og heim- urinn væri sleginn blindu um það sem tengjast ætti batnandi sambúð risaveldanna. Forsetinn vék alvöru- og varnaðarorðum að þeirri þróun sem á sér stað um hugsanlegan pólitískan samruna Evrópuríkja. „Það gefur auga leið að við hljótum að fylgjast með þessari þróun, bregðast við henni, taka þátt í henni að okkar hætti,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir. „Við vonum að við getum leyst úr því dæmi af skyn- semi og framsýni," mælti forsetinn ennfremur, „en það hlýtur að vekja nokkurn ugg, hve þoku- kenndar hugmyndir stór hluti landsmanna virðist hafa, ekki aðeins um valkosti okkar, heldur blátt áfram um núverandi stöðu okkar gagnvart EFTA og Evrópubandalagi." í framhaldi af því sagði forseti íslands: „Hér er um stórmál að ræða, sem heimta að bestu kostir lýðræðislegrar umræðu séu nýttir, og það gerist ekki nema almenningur viti sem gleggst hvað um er að ræða. Og á þessu sviði hlýtur að gilda hið sama og í allri samvinnu einstaklinga og þjóða: Því aðeins er hún frjó og gjöful að allir haldi sinni reisn og sínum sjálf- stæða vilja. Samvinna má aldrei byggjast á kúg- un og hún felst heldur ekki í að vilji manna sé keyptur. Hér ætti gróin menningarþjóð að geta verið bjartsýn. Sjálfstæði hennar ... ætti sann- arlega að vera tryggt, ef farið er með gát.“ Forseti íslands minnti á hin mörgu dæmi þess úr sögu þjóðanna sem hvettu til þess að „stíga varlega til jarðar þegar ákvarðanir eru teknar um framtíð þjóðar.“ Hún minnti sérstaklega á örlög Litháens sem sjálfstæðs ríkis. Landið fékk fullveldi um svipað leyti og ísland fyrir meira en 70 árum, en glataði því, svo að Litháar verða nú að heyja nýja sjálfstæðisbaráttu. Vigdís minnti á orð Landsbergis, forseta Litháens, sem sagði í ávarpi til íslensku þjóðarinnar: „Frelsið er dýrmætara en brauðið." Með nýársávarpi sínu flutti forseti íslands tímabær varnaðarorð, sem þjóðinni allri, og ekki síst valda- og áhrifamönnum hennar, er skylt að veita athygli. Stundum, þegar höfundur þess* ara pistla er hálfgert á milH svefiis og vöku á morgoana og er aö bíða eftir útvarpsfréttum, koma meoo í útvarpiö, sem eíginlega aldrei heyrist tii á opínberum vettvangí og eru skemmtilegir. liinn slíkur kom í útvarp í gærmorgun og tai- afti um fingurinn á Schumann. Þetta var tónskáldið Jón Ásgeirs- son, maöur hávaðasamur í vina- hópi, söngvari á baðhcrbergjum og gulltunga i Hressó þann tíma á morgnana, þegar Flosi ÓJafsson er varla vaknaður og Finnur Slg- urjónsson |æðir út úr ser mein- legum athugasemáum um stór- stjömur bókmenntanna. I þeim hópi sat Cuðmundur ijóðasjóður á meðan hann var á dögum, flma- smekkvís á skáidskap, og Agnar Þórðarson lítur inn og ræðír mál* in. Svo kemur Jón Ásgeirsson og úti er friðorinn, stór og sterkur og hávær, og viðstaddlr híða með öndina í háisinum yflr að hann fari að bjóða í sjómann. Maí-stjarnan Jón Ásgeirsson kom sem sagt f útvarpið í gærmorgun og talaði þar um sjálfan síg í viðtali og tón- listina eins og hún er. Þeir sem Hressó heyra hann aldrei tala um tóniist eða sjáifan sig. Þar gætu ókunnugir haldiö að kominn væri einn af togaraflotanum — kannski af Halamiðum, vel iesinn og viða heima f öllu nema þá hclst tónlist En Jón er snildarmaður í tóniist og hefur samið svo vinsæl lög, eins og t.d. Maí-stjaraan við kvæði liaildórs Laxoess, að si- felldur flutningur þess ætiar hreint allt að drepa. En sagan af fingri Schumanns ó að vissu leytí við um Jón Asgeirsson. eitthvað kom fyrir einn þýska tónskátdsins varð hann ekki ptanóleikari, eins og hugur hans stóð til, heldur tók til viðað semja músík. Jón Ásgeirsson söng mik- ið t dentid og syngur iíklega enn í baðherberginu. En þar sem hann missti af því að fara tíl Sovétríkj- anna í söngnám varð hann tón- skáid og má þakka fyrir það. Hár er nóg af söngvurum en ekki nema einn Jóo < Tónn frá vélum Þótt Jón Ásgeirsson sé vel menntaður í tónlistarfræðum og hafi kennt þau fræöí í ein tuttugu ár, er hann engu að síður sprott- inn upp sem náttúrubam í list sínni. Hann æfði tón sinn sem bam og unglingur við sónino í gamalii skilvindu meðal annars. Þœrvoru handsnúnar Í þá daga og úr þeim kom rjóminn og undan- rennan. En það hefur ekki verið bent á, að þær hafl komið að gagni fyrir íslenskt tónlistarlíf fyrr en í útvarpsviðtalinu við Jón Asgeirs- son. Þær byijuðu í bassa, en eftir því sem hraðinn jókst hækkaði og iýstist tónninn og ijóminn streymdi út. Það lætur lika hátt f kaffivélinni á Hressó, en Jón hef- ur ekki fundið neina tóniistargáfu f þeim véiarskratta. Aö minnsta kosti hefur ekkert heyrst frá Finni Sigurjónssyni um að tÓnskáidlð sé byrjað að herma cftir kaffivél- inni. Fínnnr er nefnilega tíundar- maður merkálegra afbrigða Í mannh'finu, einkum aibrigða f listalífinu, og slíkt hefði ekld farið framhjá honum. Hann gætir bóka af samviskusemi vesttir i Sel- tjarnaraesi og ber þess meriri að hann situr í húsi fuiiu af andagift. I minningu átmnaðar Jón Ásgeirsson sagði f viðtalinu, að hann þyrfti að læra ijóð utan að til að smíða sönginn við þau. Það eru skemmtileg vinnubrögð. Ekki er vitað hveraig Jóni faraast við þá ósjálfráðu skrift sem nú kaliast ijóðagerð. En hann minntist á Ijóð efthr Einar Benediktsson og fleiri hann hugleiddi á sfnum tfma að fara til Sovétrikjanna og var að auki tengdur MÍH hér á áram áð- ur, sem hann hefur líka samið lög við ijóð eftir gamla pólitíska vini eins og Einar Braga. Þau ljóð hef- ur hann varia lært utan að, en það má margt rcyna f minningu átrún- aðar. Engu breytir þetta um ágæti Jóns sem tónskálds. Hann er trölivaxinn í því scm öðru. Ljóðin sem hann lærir verða söngur f munni hans. Það er söngur sem daga. Garri 1 VÍTT OG BREITT : Hverjir standa undir skattfríöindunum? Mikil hlutafélög hafa verið stofn- uð til að hafa fé af ríkissjóði. Þau eru kölluð hlutabréfasjóðir og standa ríkisfyrirtæki að einhverj- um þeirra. Tilvist svona sjóða í hlutafélagagervi byggist á því að safna saman peningum hjá þeim sem svíkja löglega undan skatti og kaupa alvöruhlutabréf fyrir svo sem 45% af því sem skattfríð- indafólk skilar inn. Löggjafanum er talin trú um að þetta brall styrki atvinnulífið í landinu. Til að njóta skattfríðindanna þurfti fólk að kaupa pappírana fyrir áramót og koma aurunum þannig fyrir í gervihlutafélögum til að plata skattinn. Hins vegar er engin trygging fyrir að nema brot af peningun- um fari inn í hlutafélög og annan atvinnurekstur en peninga- og verðbréfabrask. Það er langur vegur frá að svokölluð hluta- bréfakaup fyrir áramótin séu komin inn í atvinnulíf eða neins konar þjóðhagslega starfsemi. Auglýsingafarganið um skattaaf- sláttinn fyrir áramótin tekur af öll tvímæli um hvað hér var og er á ferðinni. Þeir sem eiga aura þurfa ekki að borga skatta nema að takmörk- uðu leyti og löggjafinn og fjár- málaráðuneytið horfir með vel- þóknun á hvernig peningabrask- arar féfletta ríkissjóð og ríkisfyr- irtæki sækjast grimmt eftir slíkum viðskiptum og lofa þau upp í hástert í auglýsingaskrumi sínu. Örlætí og skattheimta Auglýsingaherferðin til að hafa fé af ríkissjóði hafði þau góðu áhrif að sala á hlutabréfum, þar með talin á pappírum sem ávísa á gervihlutafé- lög, fjórfaldaðist miðað við árið á undan. Áætla má að ríkissjóður verði af svo sem einum milljarði skatttekna vegna ákvæða um að fría þá efhuðu af að borga tekjuskatt. Munu gjald- heimtur borga þeim milljarðinn síðla sumars. Eru það um 8% af öll- um tekjuskatti þessa árs. Allt að 20 þúsund manns munu njóta góðs af því örlæti sem stjóm- völd sýna þeim efnuðu. Satt best að segja er það dáfríður hópur í fá- mennu þjóðfélagi. í hástemmdum auglýsingum ríkis- fyrirtækja og Seðlabanka um skatt- fríar tekjur til handa efnafólki er hvergi tekið fram að einhvers staðar verður að taka peningana sem þeim loðnu um lófana eru endurgreiddir. í fjárlögum er áætlað hve tekju- skattar verða háir og þegar endur- greiða þarf milljarð króna eða 8% af heildartekjuskatti hlýtur að verða að leggja þá upphæð á aðra. Hverjir skyldu það vera? Auðveld bráð Flogið hefur fyrir að fjármálaráð- herrann okkar sé að fá einhverja eft- irþanka um endurgreiðslu skatta hlutabréfakaupenda og er seint í rassinn gripið ef það reynist rétt. í stöðunni getur fjármálaráðuneyt- ið ekki gert annað en hækka tekju- skatta á þeim sem hefðin er að láta borga og við það situr. Launaum- slögin eru svo auðveld bráð að það væri nánast yfirnáttúrlegt ef gráðug ríkishítin heldur ekki áfram að seil- ast æ dýpra í þau til að borga þeim efnuðu skattana til baka. Þá má einnig hækka tekjuskatta fyrirtækja, en skattfríðindi efna- fólksins eiga einmitt að koma þeim til góða. Það er að segja þegar hluta- bréfasjóðimir fara að kaupa hluta- bréf í alvöru hlutafélögum sem rísa undir nafni og hægt er að kalla at- vinnufyrirtæki. Almenningshlutafélög og þátttaka sem flestra í þeim er af hinu góða. Er næsta furðulegt hve seinir ís- lendingar hafa verið að skilja svo einföld efnahagslögmál. Reyndin er sú að flest eða öll hlutafélög hafa verið og em lokuð öllum almenn- ingi. Einstaklingar og fjölskyldur hafa einokað þau og hefur nó- menklatúra íslands komið í veg fyr- ir öll eðlileg hlutabréfaviðskipti og dreifingu auðs og áhrifa í viðskipta- og atvinnulífi. Þegar svo loks á að fara að hvetja almenning til að gerast þátttakend- ur í rekstri fyrirtækja og verða sér úti um eignarhlut er það gert með slíkum endemum að sparifé hinna efnameiri er keypt með skattfríðind- um í einhverja milliliði sem enginn veit hvort skila aurunum inn í at- vinnu- og viðskiptalífið eða ekki. Og hverjir borga skattfríðindin? Rétt að þeir sem setja saman oi samþykkja fjárlög svari því. O

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.