Tíminn - 17.01.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 17.01.1991, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 17. janúar 1991 Tíminn 7 , , VETTVANGUR Séra Gunnþór Ingason: ■ ■ STJORNUSKIN Ó, hve dýrleg er að sjá alstimd himinfesting blá þar sem Ijósin gullnu glitra glöðu leika brosi og titra og oss benda upp til sín. Kvöld- og næturhiminn stjömum prýddur er fagur á að líta. Sú himin- mynd sem blasir þá við augum í Austurlöndum er þó enn tilkomu- meiri en við sjáum hér svo norðar- lega á hnettinum. Stjömumar rað- ast þar greinilega upp í tilkomumik- il mynstur, sem eru eins og vottur um óbreytanleika og örugga reglu í alheimi. Þó eru þær allar á hreyfingu og sú mynd af þeim sem nú blasir við augum tilheyrir fjarlægum tíma. Blikur og bólstrar skyggja þó oft á himinhvelfinguna, svo menn geta sjaldan látið sig dreyma og horfið á vit stjamanna. Fannfergi og óveðurs- bál, sem rífa í sundur rafstrengi og svera staura, em nærtæk vitni um það. Og blikur og hættumerki má nú víða greina um heimsbyggðina. Það ríkir ekki sama bjartsýnin nú um þessi áramót og fyrir ári. Það horfði ffiðvænlega í heiminum þá en nú er hætta á ófriði, styrjöld sem hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér ef hún skylli á. Við vitum jafnvel hvenær hún gæti brotist út, það er búið að dagsetja hana nú um miðjan mánuðinn og það þarf margt að ger- ast skjótt svo hægt sé að forða því. Austurlönd em nú í sviðsljósinu eins og svo oft áður, ekki vegna þess að nú er þrettándi dagur jóla og sagt frá vitringum sem komu þaðan sem góðir gestir, og hafa ef að líkum læt- ur einmitt verið úr Persíu þar sem nú heitir írak, heldur vegna þeirrar stríðshættu sem þar vofir yfir. Full- komnustu drápstól og vígvélar ber- ast nú inn í nálæg lönd og flóa til þess að tryggja að sú árásaraðgerð sem kann að hefjast innan skamms verði sem öflugust og hluti þeirra er nú á siglingu þangað með íslensku flutningaskipi. Það ætti að vera okk- ur ljóst merki um það að við komum ekki til með, frekar en aðrir, að geta horft á hemaðarátökin úr hlutlaus- um fjarska. Það virðist þó fétt vera sem við get- um annað gert andspænis yfirvof- andi ógnum en beðið og vonað að þær hverfi af sjónarsviði. En þó er ákveðinn hópur manna hér á landi orðinn ber að því að vilja gera eitt- hvað þar að auki og hefúr skorað á ríkisstjóm íslands að lýsa ótvfrætt yfir andstöðu við stríðsaðgerðir gegn nokkurri þjóð í Austurlöndum nær. Þó telja megi að með því væri verið að bregðast vinaþjóðum sem nú búa sig til átaka væri sú yfirlýsing samt réttmæt og virðingarverð því hún sýndi siðferðileg heilindi, höfn- un á þeim möguleika að leita lausn- ar á víðtæku vandamáli með vafa- sömum hemaðaraðgerðum og gæti mtt braut að heillavænlegri lausn- um sem fælu í sér viðurkenningu á því að fleiri landsvæði em hemumin í austri en aðeins Kúvæt. Það er freistandi að sjá fyrir sér bjarta himinstjömu ffernur en að gæta að ófriðartáknum í nærtækum lífsvemleika og samtíma. En því að- eins er fagnaðarerindi Jesú Krists boðað að það fái snert mannlíf og sögu á hverri tíð og mótað hugsanir og gjörðir manna. Það tekur ekki langan tíma fyrir omstuþotu að fara frá írak til Palestínu og eldflaug fer þar á milli á örfaum mínútum, en það hefúr tekið drjúgan tíma og kostað töluverða fyrirhöfn fyrir þá sannleiksleitendur og vísu menn sem Guðspjall 13. dags jóla greinir frá að fara sína ferð. Við sjáum þá fyr- ir okkur ríðandi á úlföldum sínum, farandi yfir óbyggðir og eyðimerkur með stjömubjartan himininn yfir sér, enda ófó jólakort sem draga upp slíka mynd af þeim. Og þó sú mynd sé fögur er sem á henni sé ákveðinn óraunvemleikablær sem samræmist betur helgisögnum og ævintýmm en raunvemlegum atburðum. Þessi frásaga hefúr enda ekki allra helst sagnfræðilegt gildi heldur ffernur táknrænt og trúarlegt gildi. En það er þó merkilegt að einmitt á þessum tíma mannkynssögunnar var víða vænst stórtíðinda og tákna og vísir menn og sannleiksleitendur gættu vel að þeim. Rómverskir sagnarit- endur höfðu og orð á því að um Austurlöndin öll hafi því verið trúað um þetta leyti og sú sögn gengið manna á millum að heimsdrottnara væri að vænta frá Júdeu. Og á ámn- um 11,7 og 5 fyrir okkar tímatal bar það einnig til að sérkennileg stjarn- fyrirbrigði sáust á himni. Árið 11 sást halastjaman Halley mjög greinilega. Árið 7 mynduðu Satúmus og Júpíter líkt og eina stjömu á himni og árið 5 var sem stjaman Síríus skini skæmm bjarma við sólampprás og það í mánuðinum ,>lesori“ samkvæmt egypsku tímatali, en orðið ,Jdesori“ þýðir „fæðing konungssonar". Svo merkilegt samhengi gat vissulega hrært við einlægum stjömuskoð- endum og sannleiksleitendum. Þó þeir hafi rýnt í stærðfræði og bækur, kannað heima og stjömur hafa þeir sýnt undmm veraldar virðingu, ver- ið við því óvænta búnir, verið gædd- ir þeim eiginleika fremstu hugsuða, vísindamanna og vitringa að leita, kanna, undrast og dást og hafa við- urkennt takmörk sín og smæð þrátt fyrir visku og auð. Þeir fengu því numið tign barnsins nýfædda, þrátt fyrir lítilfiörlega umgjörð þess og búnað, jötu og fiárhús. Þekkingarað- ferðir þeirra vom þó harla ólíkar þeim sem nú em helst virtar og við- urkenndar og hafa sannað gildi sitt í heimi vísinda og tækni. Þær byggð- ust ekki á einberri rökhugsun og ályktunum og mælingum á stærð- um og þyngd heldur á því að skoða himin og stjömur, taka mark á spá- sögnum og fara eftir draumum. Og getur ekki verið að þeirra þekk- ingarleiða sé þörf ásamt hinum ef við ætlum að sjá lengra en nemur yf- irborði og ytri sýn í rannsókn okkar á lífi og heimi og geta bjargast frá yf- irvofandi hættum og tortímingu sem vísindakunnáttan hefúr gert svo einkar nálæga. Heiti þrettándans í erlendum mál- um er „Epifani", sem þýðir opinber- un og vísar til þess að sá huldi leynd- ardómur opinberast að sá sem í jöt- unni lá er konungurinn æðsti, opin- berast hirðum og einnig vitringum og sannleiksleitendum sem koma langt að sem gefur til kynna að vald- svið hans spannaði vítt og myndi gæta um víða jörð. Ávíð ffægum málverkum fyrri alda af heimsókn vitringanna er það ekki stjaman skæra sem varpar frá sér fegurstu birtunni. Hana gefúr að líta frá ásjónu bamsins í jötunni. Sá sem þar hvflir er ljós heimsins fremur en stjömur á himni. Þær ráða ekki for- lögum manna, marka lífi þeirra ekki braut þó Guð geti talað í þeim, látið þær birta veldi sitt og tign svo að stjarna björt boðar fæðingu ffelsar- ans og tákn munu verða á himni við lok sögu og tíma. Heimsókn vitringanna hefúr verið myndlistarmönnum áleitið við- fangsefni og fær enn ungan sem ald- inn til þess að draga upp skýra mynd í huga sér og jafnvel festa hana á blað Og getur ekki verið að þeirra þekkingarleiða sé þörf ásamt hinum ef við ætlum að sjá lengra en nemur yfirborði og ytri sýn í rannsókn okkar á lífi og heimi og geta bjargast frá yfirvofandi hættum og tor- tímingu sem vísindakunn- áttan hefur gert svo einkar nálæga. Séra Gunnþór Ingason. og sýna með skærum litum. En það gleymist oft að setja skugg- ana þar sem þeir eiga að vera. Til þess að þeir kæmu í ljós þyrfti að hafa Heródes með á myndinni, læ- vísan og grimman, tortrygginn og skelfdan. Heródes og bamamorðin hafa orðið fáum að myndefni og aldrei sjást þau á neinu jólakorti, ekki einu sinni í bakgrunninum, enda þrá menn að ljós og fegurð ríki ein á jólum og myrkrið hörfi þá allt á braut. En það var ekki fiarri á hinum fyrstu jólum og er það heldur ekki nú. Myrkrið hefur ekki tekið við ljós- inu enn, þó það verði um síðir að láta undan. Jesús Kristur er ljós heimsins og það kemur gleggst fram andspænis öllu myrkri hans. Hann er það þó Heródes hafi látið myrða sveinbömin í Betlehem og hann er það þó kristnir menn hafi of oft unn- ið illvirki í hans nafni, hann er það þó menn bregðist honum, sinni ekki sem skyldi sannleiks- og kærleiks- kröfu hans, sýni ekki þann kjark og það kærleiksþrek sem þarf til að lifa í ljósinu hans bjarta. „Sjá myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir þjóðunum. En yfir þér upp rennur Drottinn og dýrð hans birtist yfir þér.“ Þetta fyrirheit Jesaja spá- manns hljóðar upp á Krist og þá sem honum fylgja, leiðarstjömu hans og ljósi. Það Ijós sést í árdegisbjarma nýs dags og stjömubirtu á nætur- himni svo við sjáum handa okkar skil og einnig birtist það hér í heimi sem er ekki minnst um vert sem það innra ljós vitundar og vilja sem veld- ur því að við þekkjum rétt frá röngu, sannleika frá lygi, þekkjum það sem græðir og líknar frá því sem tortím- ir og eyðir. Það innra ljós er kveikt af sigrandi elsku Jesú Krists, vitnisburði hans og verkum, því yfirjarðneska ljósi sem er upprisubjarmi hans sem einn fær sigrað allt það eyðingarmyrkur krossfestinga og kvala sem grúfir yf- ir syndum spilltri jörð. Því myrkri verður aldrei eytt með hemaðar- átökum og ofbeldisverkum. Enginn ávinningur getur hlotist af þeim séu þau metin út frá hlutskipti þeirra sem þjást og líða þeirra vegna, ótölu- legs fiölda hermanna, óbreyttra borgara, kvenna og bama sem lim- lestast og látast svo ekki sé minnst á annan voða sem af getur hlotist og auðveldlega fær breiðst yfir víða jörð. Samskiptavandamál manna og þjóða verða aldrei leyst með stríðs- átökum og sú lausn hefur aldrei ver- ið jafnfráleit og nú þegar hægt er að beita kjama- og eiturvopnum. Það samræmdist betur kærleiks- og sannleikskröfúm að efna til fiöl- þjóðlegrar ráðstefnu um deilumál í Austurlöndum en að heyja þar stríð. Það færi vel á því að íslensk ríkis- stjórn lýsti yfir andstöðu sinni við hemaðaraðgerðir sem lausn á við- kvæmum deilumálum og þeirri yfir- lýsingu fylgdi boð um að slík ráð- stefría yrði haldin hér á landi. Það væri rökrétt framhald á því friðar- hlutverki sem íslandi hlotnaðist fyr- ir fáeinum árum og leiddi til þess að erjur og átök milli stórvelda hafa hjaðnað. Það samræmdist vel krist- inni lífsskoðun þjóðarinnar, sýndi sannleiks- og kærleiksþrek og félli fagurlega að þeim fomu spádómum að „yfir þá sem búa í landi nátt- myrkranna skín mikið ljós“ og fram- haldi þeirra orða hjá Jesaja spá- manni ,að öll harkmikil hermanna- stígvél og allar blóðstokknar skikkj- ur skuli brenndar og verða eldsmatur". Þessi spádómsorð tilheyra reyndar Iexíu aðfangadags jóla en þau telja út á þrettándanum. Jólatré í kirkjum verða nú tekin niður og kerti úr kirkjugluggum og jólaljós munu hverfa af strætum og úr verslunum og heimilum, en himinstjömur áfram skína skært. Þó ekki gefi nú á að líta þá stjömu á himni sem af öðr- um ber að ljóma, er okkur gefin leið- arstjama björt eins og sannleiksleit- endum og vísum mönnum forðum. Stjama veitt oss eirmig er, og efhenni fylgjum vér hennar leiðarljósið bjarta, leiða um jarðarhúmið svarta oss mun loks til lausnarans. Villustíg sú aldrei á undrastjaman leiðir há. Orðið Guðs hún er hið skæra, oss er Drottinn virtist foera, svo hún vœri oss leiðarljós. Á þrettánda degi jóla, 6. janúar 1991. TÓNLIST Við upphaf Mozart-árs Sinfóníuhljómsveitin markaði upphaf 200. ártíðar Wolfgangs Amadeusar Mozart með tónleik- um 10. og 12. janúar, þar sem flutt voru tvö verk hans frá Skaftárelda- árinu 1783: Sinfónía nr. 36 í C-dúr (K. 425), kennd við borgina Linz, og messa í c-moll (K. 427). Tildrög 36. sinfóníunnar voru þau, að Mozart hafði heimsótt foreldra sína í Salzburg til að kynna fyrir þeim brúði sína Konstönsu og fengið daufar undirtektir. Á heim- ieiðinni til Vínarborgar komu Mozart-hjónin við í borginni Linz. Þar var fyrir tónlistarvinurinn Thun greifi og fyrir hann skrifaði Mozart sinfóníu að bragði. Hún þykir ekki, fremur en önnur verk Mozarts, bera þess nein merki að hún var samin í snatri, enda segja lærðir menp að svo óskeikull hafi þessi snillingur verið í músíkalít- eti sínu, fullkomnum smekk og tækni, að aldrei hafi komið frá hans hendi lélegt verk eða klunna- legt, nema þá um vísvitandi skop- stælingu væri að ræða. Hins vegar þroskaðist Mozart til hinsta dags, og háleitustu verk hans eru öll frá síðustu árunum. Eins og kunnugt er samdi Mozart 41 sinfóníu á skammri ævi (1756-1791), en að- eins þrjár hinar síðustu — og síð- ustu fjórar óperurnar — eru frá- bærar að dýpt og fegurð. Þá hug- arfarsbreytingu, sem fram kemur í síðustu verkum skáldsins og líkja má við upprisu, vilja sumir tengja því að hann kynntist tónlist Bachs. Linz-sinfónían er semsagt prýðilegt verk í anda Haydns og full ástæða til að spila hana annað veifið, en ekki ein af þeim stóru. Miklu skemmtilegri, og sérlega vel flutt, var c-moll messan. Þar áttu hlut að máli stjórnandinn Owain Arwel Hughes, enskur maður, Söngsveitin Fílharmónfa sem Úlrik Ólason hefur stjórnað nokkur síðustu ár, fjórir einsöngv- arar og Sinfóníuhljómsveitin. í stuttu máli þótti mér flutningur- inn takast frábærlega vel: Söng- sveitin Fílharmónfa er aftur að ná fyrri hæð frá tímum Róberts A. Ottóssonar, með hreinum tóni, mikilli „dýnamík" og góðu jafn- ræði milli radda. Algengt er í blönduðum kórum að sópraninn yfirgnæfi aðrar raddir, en því var fagurlega afstýrt nú. Mesta ein- söngshlutverkið söng Sigrún Hjálmtýsdóttir af miklum glæsi- brag, en 2. sópran söng Sólrún Bragadóttir. Þessar prýðilegu söngkonur eru mjög ólíkar, bæði röddin og framkoman — t.d. mætti líkja þeim við Súsönnu og greifafrúna í Brúðkaupi Fígarós — en ekki þótti mér það koma að sök. Rödd Sigrúnar berst annars sérlega vel, líka í Háskólabíói, og mun betur en raddir flestra ann- arra söngvara. Gunnar Guðbjarts- son söng tenórhlutverkið og Viðar Gunnarsson örsmátt bassahlut- verk, en kvartett þeirra var glæst- ur mjög. Allir eru þessir söngvarar að gera fræga hluti í list sinni, ým- ist heima eða erlendis, og enda þótt gúmanistar þreytist seint á því að bölsótast yfir tækninni, þá verður því ekki neitað, að einmitt og einungis fyrir tilstilli hennar er það mögulegt að kalla unga ís- lenska öndvegissöngvara heim frá störfum í útlöndum til að syngja konsert á Fróni. Söngsveitin var sýnilega þaulæfð, enda fylgdi hún öruggum bend- ingum stjórnandans í hvívetna. Og sama gerði hljómsveitin, dró niður til að gefa söngvurum eða kór hljóð til að blómstra, en belgdi sig þess á milli. Að vísu kann að vera, að allt þetta sé skrifað í nót- urnar hjá Mozart, því hann kunni sitt fag flestum betur, en þó hygg ég vafalítið að Owain Arwel Hug- hes hafi átt verulegan þátt í því hve ljómandi góðir þessir tónleik- ar — og þó einkum messan — voru. Sig.SL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.