Tíminn - 17.01.1991, Qupperneq 20

Tíminn - 17.01.1991, Qupperneq 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Halnarhusinu v Tryggvogolu, S 28822 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga POSTFAX 91-68-76-91 AKTU EKKI UT í ÓVISSUNA. AKTUÁ SUBARU Ingvar Helgason hff. Sævartiöfða 2 Slml 91-674000 líniinn FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR1991 mtm BIRGIR ISLEIFUR SEÐLABANKASTJÓRI Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra skipaði í gær Birgi ísleif Gunnarsson alþingismann seðiabankastjóra til næstu sex ára frá 1. febrúar næstkomandi að telja. Birgir ísleifur tek- urvið stöðunni af Geir Hallgrímssyni, sem lést 1. september á síðasta ári. Sólveig Pétursdóttir, lögfræðingur, verður þingmaður í stað Birgis ísleifs. Þessi skipan er hin fyrsta tii af- Birgir ísleifur hlaut bindandi markaðs tíma á grundvelli lag- anna um Seðlabanka íslands frá árinu 1986, en þar er skipunar- tíma seðlabankastjóra sett ákveð- in mörk, sem ekki voru áður. Birgir ísleifur Gunnarsson er fæddur í Reykjavík árið 1936. Hann lauk embættisprófi í lög- fræði árið 1961, var kjörinn borg- arfulltrúi í Reykjavík 1962 og var borgarstjóri í Reykjavík 1972- 1978. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1979 og hefur verið al- þingismaður Reykvíkinga síðan. Hann var menntamálaráðherra frá miðju ári 1987 til hausts 1988. Sólveig Pétursdóttir lögfræð- ingur mun taka sæti á þingi á næstu dögum þegar Birgir ísleif- ur segir af sér þingmennsku. kosningu í fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri sem fram fór síðastliðið haust. Búist er við að frambjóðendur sem lentu fyrir aftan hann í próf- kjörinu verði færðir upp, sem þýðir að góðar líkur eru á að Geir H. Haarde verði áfram þingmað- ur, en verulegar líkur eru á að hann hefði ekki náð kjöri ef úrslit prófkjörsins hefðu verið látin gilda. Kjörnefnd er nú að störfum og stefnir að því að skila tillögu að framboðslista til fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á næstu dögum. Frá honum verður endanlega gengið á fundi full- trúaráðsins 29. janúar næstkom- andi. Auk tillögugerðar um skipun í stöðu bankastjóra samþykkti Birgir isleifur Gunnarsson, ný- skipaður seðlabankastjóri. bankaráðið að beina því til við- skiptaráðherra að hann skipi nefnd til þess að endurskoða ákvæði laga um stjórnskipan Seðlabankans. Viðskiptaráðherra hefur fallist á þessi tilmæli og ákveðið að skipa nefnd til þess að fjalla um endurskoðun laga um Seðlabanka íslands og til þess að gera tillögur um breytingar í samræmi við niðurstöður slíkrar endurskoðunar. í fréttatilkynningu frá viðskipta- ráðuneytinu segir að breyttar að- stæður á íslenskum fjármagns- markaði frá því núgildandi lög voru samin og aukið fjölþjóða- samstarf á sviði gengis- og vaxta- mála muni í vaxandi mæli setja mark sitt á efnahagslíf íslendinga í framtíðinni. Breyttar aðstæður kalli á breytt vinnubrögð og bætt stjórntæki Seðlabankans í geng- is-, vaxta- og peningamálum. Ástæða sé því til þess að taka skipan og hlutverk bankastjórnar og bankaráðs til endurskoðunar. Markmið endurskoðunar á lög- um Seðlabanka íslands er að stjórnskipulag bankans tryggi sem best faglega stjórnun bank- ans og þátttöku hans í hagstjórn. Viðskiptaráðherra mun leita eftir tilnefningum fulltrúa frá þing- flokkum í endurskoðunarnefnd- ina. -EÓ ólafur Egilsson, sendihem í Moskvu, og Stefán L. Stef- ánsson sendiráðsritari áttu í gær fund með Boris N. Yelts- in, forseta Rússlands, segir í fréttatilkynningu frá utanrík- isráðuneytinu. Fundurinn stóð í klukkutíma og á honum var farið yfir stoðu mála í Eystrasaitslönd- unum og sendihem greindi frá fyrirhugaðri heimsókn Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra til þeim. Forsetanum voru afhentar ályktanir Alþingis og hann upplýstur um samskipti ríkis- stjómar íslands og Eystra- saltsríkjanna. ólafur Egilsson sendiherra var í gær viðstaddur minning- arathöfn sem haidin var í Moskvu um þá sem fallið hafa í Litháen undanfama daga. —SE Þróunarfélag Reykjavíkur: Bifreiðaumferð í Austurstræti Á fundi borgarráðs sl. þriðjudag var lögð fram tillaga frá Þróunar- félagi Reykjavíkur um að Austur- stræti verði opnað fyrir bifreiða- umferð strax í febrúar, í sex mánuði til reynslu. Að sögn Pét- urs Sveinbjarnarsonar hjá Þró- unarfélaginu, tók borgarráð til- lögunni vel og var henni vísað til umsagnar borgarverkfræðings. Þróunarfélagið leggur mikla áherslu á að opnað verði fyrir um- ferð strax í febrúar. Aðspurður sagði Pétur að mikið hefði dofnað yfir þessu merka stræti og ekki síður nú eftir að íslandsbanki hefði lokað sem og fleiri aðilar í götunni. „Það eru fjögur ár síðan farið var að tala um það opinber- lega að gera tilraun með að Bílvelta Bíll sem var á leið suður frá Borgarnesi valt í gærmorgun. Ökumaðurinn var einn í bílnum og að sögn lögreglunnar í Borg- arnesi slasaðist hann lítið sem ekkert. Hins vegar skemmdist bíllinn mikið. —SE hleypa aftur bifreiðaumferð inn í götuna og mönnum þykir því vera kominn tími til að láta þessa til- raun fara frarn," sagði Pétur. Pét- ur sagði einnig að miklar fram- kvæmdir væru fyrirhugaðar við Vonarstræti sem torveldi mjög umferð um miðborgina. Auk þess hafi yfirgnæfandi meirihluti hagsmunaaðila í miðbænum ein- dregið óskað eftir opnun Austur- strætis til reynslu í ákveðinn tíma. Pétur sagði að það væri leik- ur einn að opna Austurstrætið án mikils tilkostnaðar, hugsanlega þyrfti að gera einhverjar breyting- ar á umferðinni en það væri eng- inn biti sem þyrfti að standa í monnum. —SE 308 féllu fyrir eigin hendi á síðasta áratug, 229 karlar og 79 konur: Fleiri deyja í sjálfsvígum en umferðarslysum Á síðasta áratug frömdu 308 ein- staklingar sjálfsvíg hér á landi, 229 karlar og 79 konur. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráð- herra við fyrirspurn frá Inga Birni Albertssyni alþingismanni um sjálfsvíg á íslandi á síðasta áratug. Fleiri féllu fyrir eigin hendi á síðasta áratug en létust í umferðarslysum, en 240 dóu í umferðarslysum á síðasta áratug. Algengast er að ungt fólk fremji Saltfisksútflutningur: 31% VERÐMÆTAAUKNING Verðmætaaukning hvers saltfisk- tonns sem fiutt var héðan út f fyrra jókst um tæpan þriðjung, eða 31%. Alls flutti SÍF, Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda, út saltfisk fyrir 12 milljarða króna, eða 49 þúsund tonn sem er 13% meira magn en í árið á undan. Fyrir utan stærstu viðsldptalönd SíF, Portúgal og Spán, en þangað voru flutt samtals 29 þúsund tonn, varð mikil söluaukning til Frakklands og Þýskalands, en til síðamefnda landsins eru flutt söltuð usfaflök. Saltfiskbirgðir í upphafi síðasta árs voru mjög Htlar eða 2400 tonn og vom aðeins 1400 tonn um síð- ustu áramót. Heildarframleiðsla dróst saman um 11% á síðasta ári og vegna þess m.a. tókst ekki að anna eftirspum á öllum mörkuð- um á síðasta árí sjálfsvíg. Á þessu tíu ára tímabili létust 60 einstaklingar á aldrinum 15-24 ára fyrir eigin hendi og fjög- ur börn 14 ára og yngri. Til saman- burðar má nefna að 37 einstak- lingar á aldrinum 40-49 ára frömdu sjálfsvíg. Svo er að sjá sem að líkur á sjálfsvígum aukist þegar fólk er komið á sextugsaldurinn, en 59 féllu fyrir eigin hendi á aldr- inum 50-59 ára. Algengara er að gamalt fólk látist á þennan hátt en fólk á miðjum aldri. 40 einstak- lingar á aldrinum 65-74 féllu fyrir eigin hendi, en 37 á aldrinum 40- 49 ára. Áberandi fleiri frömdu sjálfsvíg á veturna én á sumrin. Þannig féllu 19 fyrir eigin hendi í júní, en 33 í febrúar. Flestir frömdu sjálfsvíg í nóvember, janúar og febrúar, en fæstir í maí og júní. í svari dómsmálaráðherra kemur ekkert fram um ástæður sjálfsvíga, en spurt var um þær í fyrirspurn- inni. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.