Tíminn - 22.01.1991, Side 14

Tíminn - 22.01.1991, Side 14
14 Tíminn Þriðjudagur 22. janúar 1991 MINNING Stefán Hilmarsson Framhald af bls. 10 Það er sorglegt til þess að vita að honum skyldi ekki endast aldur til að dvelja í húsi þeirra hjóna við ströndina oftar og lengur en raun varð á, nú þegar hann var laus úr er- ilsömu starfi, svo vel sem þau voru búin að búa þar um sig og dvelja sér til ánægju. Það var gaman að ræða við þau um dvölina þarna, allt var eins og best varð á kosið, ekki aðeins þegar sólin skein glaðast og veðrið var best, heldur líka þegar austan- rokið og rigningin buldi á húsi þeirra og Stokkseyrarbrimið sýndi veldi sitt. Ég ætla ekki að rekja hér ævistörf Stefáns Hilmarssonar, eða önnur störf sem hann tókst á hendur, það munu áreiðanlega aðrir gera, nú þegar hann er látinn. Þessar línur sem ég set hér á blað eru aðeins per- sónulegar minningar mínar um hann. Eg var búinn að hugsa mér að heimsækja Stefán í „Skelina" hans á sumri komanda, ganga með honum um fjöruna eins og forðum daga og rifja upp gamlar minningar. Nú er ljóst að sú ferð verður ekki farin. Spor hans í Stokkseyrarfjöru verða ekki lengur til. Ég votta eiginkonu hans, dætrum, móður, systur og öðrum aðstand- endum mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Jónas Ingvarsson Á umrótstíma kveður sá maður þessa jarðvist, sem alla ævi fylgdist af áhuga með atburðum og hræring- um, bæði erlendis og heimafyrir, enda kunnugur flestum hnútum eft- ir langvarandi starf í utanríkisþjón- ustunni. Látinn er Stefán Hilmars- son, bankastjóri Búnaðarbankans. Hann andaðist að heimili sínu í Garðabæ að kvöldi fimmtudagsins 13. janúar. Stefán fæddist 23. maí 1925. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla ís- lands 1951 og vann eftir það eitt ár við blaðamennsku hjá Morgunblað- inu áður en hann hóf störf í utanrík- isráðuneytinu. Þótt blaðamennska yrði ekki ævistarf Stefáns hefði hún átt vel við hann og fallið ágætlega að skapferli hans. Hann minntist oft á hinn stutta feril í blaðamennskunni og þann langa vinnudag, sem þá var við lýði á blöðum. Var á honum að heyra, að í því starfi hefði hann lifað einna skemmtilegastan tíma. Næstu níu ár vann Stefán á vegum utanríkisráðuneytisins og var lengst af sendiráðsritari og sendifulltrúi í Washington. Yfirmaður hans þar var Thor Thors, sendiherra, sem Stefán virti mikils fyrir nákvæmni í starfi og örugga embættisfærslu. Árið 1962 varð Stefán síðan bankastjóri Búnað- arbanka íslands. Tók hann við af föð- ur sínum, Hilmari Stefánssyni, sem þá lét af störfum fyrir aldurs sakir. Stefán lauk störfum sem bankastjóri um síðustu áramót, en vann áfram að ýmsum verkefnum fýrir bankann þangað til hann lést. Á þessu stutta yfirliti um ævistarf Stefáns Hilmarssonar sést að honum hefur verið trúað fyrir miklu. Við því öllu brást hann af dugnaði og greind, og var á sínum dögum virtur banka- maður, sem hélt áfram því starfi föð- ur síns, að efla hag Búnaðarbankans, og má segja að sum árin hafi bank- inn sýnt ótrúlegan árangur á sviði peningamála. En alla tíð fór starf- semin vaxandi á meðan Stefáns naut við. Aðrir, sem kunnugri eru banka- starfsemi, munu bera vitni hæfileik- um Stefáns í bankarekstri. Kynni okkar Stefáns hófúst, þegar við vorum báðir að byrja í blaða- mennsku. Þau voru síðan tekin upp aftur þegar hann fluttist heim frá Washington. Tímum saman vildi svo til að við hittumst svo að segja á hverjum degi í hádeginu. Þá var brugðið á léftara hjal, en Stefán var gamansamur í besta lagi og ekki var aldurinn honum til trafala. Stefán átti land austan heiðar. Það var hon- um kært og þar dvöldu hann og kona hans, frú Sigríður Kjartansdóttir Thors, þegar tími gafst til að sumr- inu. Þessi sumarstaður þeirra hjóna var örskammt sunnan við Stokks- eyri, þar sem þau áttu hús frammi við sjóvamargarðinn. Stefán naut þess að dvelja í sumar- húsi sínu á Stokkseyri, en þar eystra hafði hann verið í sveit, sem kallað var, sem krakki og unglingur. Minn- ist hann þeirra ára með gleðisvip og fannst hann komast nær áhyggjulitl- um tíma með dvöl á gömlum slóð- um. Þá var fjaran framundan sumar- húsinu eilíft fagnaðarefni með fugl- um sínum og fjölbreytilegum lág- gróðri, og þeim öru breytingum sem urðu á mótum hafs og lands. Stund- um fékk maður uppbyggilegan fyrir- lestur um fjöruna og líf hennar. Og gróður hennar fær nú notið sín í auglýsingum frá Búnaðarbankan- um. Stefán lét vinna þessar auglýs- ingar eftir myndatökum á þessum kæra stað, og margar fleiri, sem byggðar eru á undrum náttúrunnar. Auglýsingar þessar vöktu athygli, enda voru þær ólíkar þeim stöðluðu viðhorfum, sem ríkja við auglýsinga- gerð. Viðfangsefni myndanna lýsa svolítið inn í hugskot Stefáns, sem stjórnaði þessari auglýsingagerð bankans og hafði af henni allan veg og vanda. Stefán hafði mikinn og lifandi áhuga á margvíslegum málum, sem horfðu til framfara og voru líkleg til að auka fjölbreytni í þjóðfélaginu. Hann studdi því við bakið á ýmissi framkvæmd, sem aðrir hefðu talið of áhættusama. En þau mál, sem Stef- án ákvað að styðja, gengu þó ekki verr en það, að alltaf efldist bankinn. Fyrir þá sök og vegna áhuga hans á því að efla það sem til heilla horfði var Stefán mikilsvirtur bankastjóri; einn af fáum og í fremstu röð. Engu að síður gekk hagur bankans fýrir öllu. Stefán lagði áherslu á, að sá skilningur ríkti á meðal viðskipta- vina og bankans, að þar sem menn væru að störfum þar væri bankinn líka. Þannig vann hann ásamt öðr- um jafnt og þétt að því að afla bank- anum trausts. í stað þess að banki væri stofnun með ægilegu neitunar- valdi, áleit hann að banki ætti að leggjast á árar með fólki og létta því róðurinn eftir því sem efni og ástæð- ur leyfðu. Þessu ætlunarverki skilaði Stefán með sérstökum ágætum. Mér er minnisstætt, þegar hið svonefnda kvikmyndavor var í uppsiglingu árið 1979, hve vel Stefán tók í upphafi hugmyndinni um gerð kvikmynda. Hilmar Stefánsson, faðir hans og bankastjóri Búnaðarbankans, hafði á sínum tíma auðveldað Guðlaugi Rósinkranz að fjármagna gerð kvik- myndar snemma á sjöunda áratugn- um, sem sannaði að sú leið að gera kvikmyndir hér var fær. í það sinn þurfti þó danska tæknimenn og danskan leikstjóra. Nú voru aðstæð- ur þær að til voru íslenskir leikstjór- ar og íslenskir tæknimenn. En kvik- myndavorinu varð ekki hrundið af stað fyrir atbeina eins banka. Baldvin Tryggvason, bankastjóri SPRON, hafði líka hvatt til þess að reynt yrði að kvikmynda. Árangurinn varð sá, að efnt var til fundar í iðnaðarbank- anum gamla við Lækjargötu. Þann fund sátu Baldvin TVyggvason, Hösk- uldur Ólafsson, bankastjóri Verslun- arbankans, Pétur Sæmundsen, bankastjóri Iðnðarbankans, og Stef- án Hilmarsson. Þessi fundur leysti málið. Allir viðstaddir bankastjórar samþykktu að hleypa kvikmyndavor- inu af stað með því að lána fé til þess- arar fyrstu myndar þess. Um árang- urinn síðan geta verið deildar mein- ingar, en vorið er komið til að vera. Stefán Hilmarsson verður mér minnisstæður fyrir margra hluta sakir. Snögg brottkvaðning hans kom öllum vinum hans gjörsamlega í opna skjöldu, enda virtist hann dags daglega vel á sig kominn. En við þessu verður ekki gert. Þeir týnast í burtu jafnaldrar manns við mikla eftirsjá okkar sem stöndum enn á ströndinni og bíðum. Sú bið verður löng eða stutt eftir atvikum, en eftir- sjáin varir og verður ekki bætt. Mest- ur er þó söknuður nánustu vanda- manna, eiginkonu og dætra, aldraðr- ar móður og systur. Guð styrki þetta góða fólk og verði því hlíf, eins og Stefán var því styrkur í lifanda lífi. Indríði G. Þorsteinsson Vinningstölur laugardaginn 19. jan. '91 VINNINGAFt FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1 . 5 af 5 0 2.897.252 2. 2 251.262 3. 4af5 128 6.772 4. 3af 5 4.658 434 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 6.288.164 kr. UPPLÝSINGAR: SIMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 if Móðir okkar Sigríður Bjamadóttir áður húsfreyja á Hömrum f Grímsnesi lést á Kumbaravogi að kvöldi laugardagsins 19. janúar. GunnarJóhannesson Jóhanna Jóhannesdóttir Ingibjörg Jóhannesdóttir Tönsberg Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir Pála Jónína Pálsdóttir Hofi, Öræfum lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, sunnudaginn 20. janúar sl. Fyrir hönd vandamanna Bergur Þorsteinsson. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Fundur að Hafnarstræti 20, fimmtudaginn 24. janúar kl. 19.00. Við tökum forskot á þorrann og borðum saman þorramat. Þær, sem eiga myndir úr félagsstarfinu, góðfúslega taki þær með á fundinn. Fjölmennið Stjómin. Norðurland vestra Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefur verið flutt frá Sauðárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum i Fljótum. Hægt er að ná i ritstjóra alla daga I síma 96-71060 og 96-71054. K.F.N.V. Jón Helgason Guðni Ágústsson Sunnlendingar sgir stjórnmálafundir og viðtalsílmar þii þingmanna Framsóknarfiokksins Ártegir stjórnmálafundir og 1 verða haldnir á eftirtöldum stöðum Aratungu i Blskupstungum, þriðjudaginn 22. janúar kl. 21.00 Þortákshöfn I Duggunni, fimmtudaginn 24. janúar kl. 20.30 Kópavogur- Þorrablót Hið landskunna þorrablót framsóknarmanna i Kópavogi verður haldið i Félagsheimilinu laugardaginn 26. janúar nk. Ávarp: Steingrfmur Hermannsson, forsætisráðhenra. Eftirhermur Jóhannes Kristjánsson. Veislustjóri: Sigurður Geirdal. Hljómsveit Helga Hermanns leikur fýrir dansi. Tryggið ykkur miða timanlega. Pantið f síma 41590, 45918, Inga, og 40650, Vilhjálmur. Framsóknarmenn á höfuðborgarsvæðinu eru velkomnir. Stjórnin Framsóknarfólk Húsavík Framvegis verður skrifstofan I Garðari opin á laugardagsmorgnum kl. 11- 12. Létt spjall og heitt á könnunni. Framsóknarfélag Húsavikur Borgnesingar - Bæjarmálefni I vetur verður opið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu Framsóknarflokksins að Brákarbraut 1. Bæjarfulltrúar flokksins i Borgarnesi verða á staðnum og heitt á könn- unni. Allir sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á málefni Borgarnes- bæjar eru velkomnir. Framsóknarfélag Borgarness. Félagsvist Spiluð verður félagsvist að Eyravegi 15, Selfossi, þriðjudagskvöld 22. janúar, 29. janúar og 5. febrúar kl. 20.30. Kvöldverðlaun. - Heildarverðlaun. Fjölmennum Framsóknarfélag Selfoss Reykvíkingar Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi verður til viðtals mánudagana 28. janúar og 4. febrúar nk. á skrif- stofu Framsóknarflokksins að Hafnarstræti 20, kl. 15:00 til 18:00. Allir velkomnir. Borgannálaráð. Sigrún M. Keflavík - Opin skrifstofa Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla virka daga milli kl. 17 og 18. Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg, verður á staðnum. Simi 92-11070. Framsóknarfélögin. Akurnesingar - nærsveitir Þorrablót verður haldið föstudaginn 8. febrúar nk. i Kiwanishúsinu við Vesturgötu. Nánar auglýst slðar. Undirbúningsnefndin Þorrablót- Reykjavík Lpugardaginn 9. febrúar verður hið landskunna þorrablót Framsóknarfé- laganna i Reykjavik haldið í Norðurijósasal í Þórskaffi. Verð miða er kr. 3500. Upplýsingar og miðapantanir fást hjá Þórunni eða Önnu í síma 624480.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.