Tíminn - 31.01.1991, Qupperneq 3
Fimmtu'dagur 31! janúar 1991
£ i t i£ A'i A'X'A"*'£
nntírí' í .v.
^ " "'"•^Trmiríh 3
Austurbæjarskólinn:
Foreldrar krefjast endur-
bóta á skólabyggingunni
í gær voru tekin íyrir á fundi borgarráðs bréf frá foreldrum nem-
enda við Austurbæjarskólann í Reykjavík til borgarstjóra þar sem
skorað er á yfírvöld að hraða framkvæmdum við endurbætur og lag-
færingar á Austurbæjarskólanum í Reykjavik, en skólinn hefur ver-
ið í sífellt hrörnandi ásigkomulagi á síðustu árum. Endurbætur
voru gerðar á salemum skólans síðasta sumar eftir að heilbrigðis-
eftirlit hafði gert alvarlegar athugasemdir við þau og talið þau
heilsuspillandi.
Alfreð Eyjólfsson, skólastjóri Aust-
urbæjarskólans, sagði að það væri
bæði að ýmsir hlutir væru í ólagi og
eins væri skólahúsið byggt fyrir 60
árum og fullnægði því ekki kröfum
nútímans. Alfreð nefndi í því sam-
bandi samkomusal, bókasafn og
mötuneyti sem vantar í skólann. Þá
hafa bæði veggir og þak lekið. „Ég er
bjartsýnn á að unnið verði kerfis-
bundið að endurbótum á húsinu. Ég
hef heyrt tölur á bilinu 50 til 60 mi-
Ijónir í endurbætur og breytingar á
húsinu sem æskilegar væru,“ sagði
Alfreð. „Hugmyndin er að standa
þannig að þessu að sá áfangi, sem
gerður er hverju sinni, sé f takt við
það sem á eftir kemur. Þannnig verði
þetta unnið kerfisbundið — skref fyr-
ir skref.“
Guðni Olgeirsson, sem sæti á í
stjórn foreldrafélags Austurbæjar-
skólans, sagði að send hefðu verið
bréf frá 200 heimilum, óháð því hve
mörg börn frá heimilinu eru í skól-
anum, en í honum eru alls 500 böm.
„Við fórum í fyrra með áskoranir um
þetta til borgarstjóra og þá var farið
af stað með verkefnið. En markmiðið
með þessum bréfum var að ítreka
vilja foreldra í hverfmu til að þessi
skóli yrði endurreistur á þessu kjör-
tímabili, eins og okkur hafði verið
lofað. Skólastjórinn er árum saman
búinn að biðja um endurbætur og
það virðist lítið hlustað á hann. En
það er ekki fyrr en foreldrar fara að
þrýsta á að hreyfing kemur á málið,“
sagði Guðni.
Bréfin, sem borgaryfirvöldunum
voru send, eru svohljóðandi: „For-
eldrar, nemendur og kennarar Aust-
Pólstækni á ísafirði gjaldþrota:
Fyrirtækið endur-
reist með nýju nafni
Lóðarlausa húsið við Vestur-
götu fær að standa:
Eigendur
hússins
eignast
lóðina
1 nóvember s.I. sagði Tíminn frá
lóðarlausu timburhúsi sem stendur
við Vesturgötu 28. En lóðin var í
eigu eiganda steinhússins sem
stendur fast við hlið timburhússins
á sömu lóð.
Nú hefur borgin keypt lóðina und-
ir timburhúsinu og greitt 3,5 millj-
ónir fyrir. Ætlunin er að selja eig-
endum timburhússins lóðina á 1,5
milljónir til þess að tryggja að húsið
fái að standa kyrrt.
„Borgin kaupir hluta af heildarlóð-
inni, því steinhúsið og timburhúsið
standa á sömu Ióð, eða þann hluta
sem tilheyra á timburhúsinu. Þessi
lóðarhluti er keyptur af eiganda
steinhússins — en það er alveg
óumdeilt að hann á alla lóðina — á
3,5 milljónir og verður hún síðan
seld aftur til eiganda timburhússins
á 1,5 milljónir," sagði Hjörleifur
Kvaran, deildarstjóri stjórnsýslu-
deildar borgarinnar.
„Borgarráð vildi ekki láta rífa húsið
og vildi stuðla að verndun gamla
timburhússins á þessum stað og því
verður gert ráð fyrir því í sölusamn-
ingi að húsið standi áfram," sagði
Hjörleifur jafnframt í samtali við
Tímann í gær. —GEÓ
Fyrirtækið Pólstækni hf. á ísafirði
hefur verið lýst gjaldþrota. Auglýst
hefur verið eftir kröfum í þrotabú-
ið, en ekki er vitað hve miklar þær
eru. Pólstækni hefur haft 11 starfs-
menn á launaskrá á ísafirði, þar
sem höfuðstöðvar þess hafa verið,
og svo 6 starfsmenn í Reykjavík.
ísfirðingarnir 11 hafa nú stofnað
nýtt fyrirtæki, Póls hf. — rafeinda-
tæki, og þeir allir starfa við það. Póls
mun sem slíkt ekki hafa útibú í
Reykjavík, en þrír fyrrum starfs-
menn útibúsins í Reykjavík hafa
stofnað sjálfstætt fyrirtæki, Eltak,
Skilafrestur
bifreiðahlunnindamiða
framlengdur til
25. febrúar nk.
Ákveðið hefur verið að framlengja áður
auglýstan frest til þess að skila bifreiða-
hlunnindamiðum, samkvæmt 93. grein
laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignar-
skatt, til 25. febrúar nk.
m
RÍKISSKATTSTJÓRI
!
urbæjarskólans í Reykjavík héldu
síðastliðið vor hátíðlegt 60 ára af-
mæli skólans. Var þá mikið um dýrð-
ir í skólanum bæði úti og inni. f Aust-
urbæjarskólanum eru nú um það bil
500 börn á aldrinum 6 til 16 ára. Ekki
fer á milli mála að skólinn er merki-
leg bygging og verðugt sýnishom ís-
lenskrar byggingarlistar. Hins vegar
finnst foreldrum barna við skólann
mál til komið að taka rækilega til
hendinni í viðhaldi hans og um-
hverfi. Skólastjóri hefur um margra
ára skeið bent á nauðsyn þess að
vinna að endurbótum, enda hefur
viðhald alla tíð verið í lágmarki.“
Guðni sagði að þrýstingur foreldra í
þessu máli væri mjög öflugur, enda
væri það gott fyrir önnur foreldrafé-
lög að taka sér þetta til fyrirmyndar.
„Enda eru foreldramir í þessum mál-
um það afl sem enginn getur stöðv-
að,“ sagði Guðni að lokum.
-sbs.
sem verður umboðsaðili Póls í
Reykjavík.
Að sögn Sigurjóns Sigurjónssonar,
framkvæmdastjóra Póls, eru margar
ástæður fyrir gjaldþroti Pólstækni.
Má þar nefna fjármagnskostnað og
eins varð umboðsaðili í Noregi
gjaldþrota. Sigurjón sagði að auk
þess sem ellefumenningarnir hefðu
lagt fram hlutafé í endurreisnina
með stofnun Póls hf., hefðu þeir leit-
að eftir hlutafjárframlögum hags-
munaaðila, þ.e. frystihúsa, og síðan
Byggðastofnunar.
-sbs.
«15
KJÖRBÓK
...kjörin leið
til spamaðar
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna