Tíminn - 31.01.1991, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 31. janúar 1991
Tíminn 17
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður Nafn umboðsmanns Heimili Sfmi
HafnarQörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík Guðríður Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgames Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgötu 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvik Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
GrundarQörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
ísaflörður Jens Markússon Hnlfsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangi Hólmfriður Guðmundsd. Fífusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95- 35311
Siglufjöröur Sveinn Þorsteinsson Hllðarvegi 46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstlg 18 96-24275
skrifstofa Skipagötu 13(austan) 96-27890
Svalbarðseyrí Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Friðrik Sigurðsson Höfðatúni 4 96-41120
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö 8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
Seyðisflörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaöur Birkir Stefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
Eskrflörður Berglind Þorgeirsdóttir Svínaskálahllð 17 97-61401
FáskrúðsQöröur Guðbjörg H. Eyþórsd. Hlíðargötu 4 97-51299
Djúpivogur Jón Björnsson Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Skúli (sleifsson Hafnarbraut 16A 97-81796
Setfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Vilborg Þórhallsdóttir Laufskógum 19 98*34323
Þoríákshöfrí Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Stokkseyrí Andrés Ingvason Eyjaseli 7 98-31479
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókslundi 98-61179
Hvolsvöilur Jónína og Árný Jóna Króktúni 17 98-78335
Vfk Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar—
Sjúkraliðar
Á Gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyrí eru lausar
stöður til umsóknar:
Staða hjúkrunarfræðings er laus nú þegar. Við bjóðum upp á ein-
staklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingi. Deild-
arstjóralaun fyrir 60% næturvaktir.
Sjúkraliða vantar til langtíma afieysinga nú þegar eða eftir sam-
komulagi. Nýir starfsmenn fá einstaklingsbundna þjálfun.
Til greina kemur að ráöa á fastar næturvaktir.
Upplýsingar gefa Sigurlaug Arngrímsdóttir deildarstjóri og Svava
Aradóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 96-22100 kl. 13-14
virka daga.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
L
LANDSVIRKJUN
FLJÓTSDALSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í byggingu Eyja-
bakkastíflu ásamt botnrás, lokubúnaði, yfirfalli og veitu-
skurðum.
Hélstu magntölur eru:
Gröftur 1.000.000 m3
Fyllingar 1.500.000 m3
Malbik í kjarnastíflu 15.500 m3
Steinsteypa 7.800 m3
Stálvirki 26 tonn
Lokubúnaður 75 tonn
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunarfrá kl.
13:00 föstudaginn 1. febrúar 1991 gegn óafturkræfu gjaldi
að upphæð kr. 9.000,- fyrir fyrsta eintak, en kr. 4.000,- fyr-
ir hvert viðbótareintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis-
braut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12:00 föstudaginn 15.
mars 1991.
Tilboðin verða opnuð opinberlega sama dag kl. 14:00 í
stjórnstöð Landsvirkjunar, Bústaðavegi 7, Reykjavík.
15 árum eftir að Josephine Baker dó söfnuðust 10 af 12 bömum hennar saman í Folies Bergere.
Böm Josephine Baker
hittast í Folies Bergere
Fyrir 15 árum lést Josephine Bak-
er í svefni eftir að hafa í fjórtánda
sinn komið ffarn í sýningunni Jos-
ephine 75. Hún hafði dansað þar
„charleston" af fullum krafti þó að
aldurinn væri orðinn 69 ár.
Josephine varð stjama við Folies
Bergere, þegar hún dansaði hið
fræga bananaatriði, þar sem hún
huldi ekki nekt sína með öðru en
klasa af banönum. Myndir af henni
birtust á óteljandi tímaritaforsíð-
um og auglýsingaspjöldum. Hún
átti sinn eigin klúbb sem bar nafn
hennar, „Chez Josephine", og
komst í fréttirnar vegna gæludýrs-
ins sem hún kaus að hafa með sér,
hlébarða.
Það var svo árið 1956 sem Josep-
hine fann sér verkefni sem var svo
yfirgripsmikið að ótrúlegt er að ein
bandarísk blökkukona, búsett í
Frakklandi, tækist það á hendur.
Hún hafði lengi barist gegn kyn-
þáttamisrétti hvers konar og tók
nú til við að ættleiða böm af ýms-
um kynþáttum og trúarbrögðum.
Hún hætti ekki fyrr en þau voru
orðin 12!
Tíu þessara bama, sem nú eru á
aldrinum 26 til 39 ára, komu ný-
Iega saman í Folies Bergere til að
minnast þessarar merku konu.
Marianne, Sellina, Jari, Jeannot,
Luis, Moise, Jean-Claude, Brahim,
Koffi og Akio komu frá öllum
heimshomum og var margs að
minnast.
Jari, sem er 37 ára, minntist þess
þegar mamma þeirra fór með þau í
ferðalög, og þó var eitt sérstaklega
eftirminnilegt. 1972 fóru þau til
Svíþjóðar og Jari vissi ekki fyrr til
en hún sat úti í sal og horfði á
mömmu sína á sviðinu. Hún sat á
milli kóngs og drottningar Sví-
þjóðar.
Marianne, sem líka er 37 ára, á
tvær dætur, Marie og Josephine.
Henni fannst ekki annað koma til
greina en að halda nafhinu í fjöl-
skyldunni. Ein hennar dýrmætasta
minning er frá því þegar hún bað
mömmu sína um að fá systur í
jólagjöf, hún væri búin að fá nóg af
því að vera eina stelpan innan um
10 stráka. Mamma hennar færði
henni Sellinu, pakkaða inn í teppi.
Marianne segist nýlega hafa verið
að máta gamla kjóla mömmu
sinnar og fúndið til nærveru henn-
ar, sem alltaf var svo falleg og góð í
augum bamanna sinna 12.
En þó að Josephine Baker þyrfti á
öllum sínum kröftum að halda til
að reka þetta stóra heimili varð
hún líka að halda fjárhagnum
gangandi og það var ekki auðvelt.
Hún var á barmi gjaldþrots þegar
hún tók aftur til við að dansa á
sviði 69 ára gömul. Og kannski það
hafi verið fullerfitt fyrir hana, því
að hún slakaði aldrei á, sama hvað
hún tók sér fyrir hendur.
Josephine Baker ættleiddi alls 12 böm af ýmsum kynþáttum og trúarbrögðum.