Tíminn - 31.01.1991, Qupperneq 19
ryt'i' ir.unsj .!•£ -lUBebuímmfl
- * -Pirnmtadagur'31 *|artóar 199t ‘
c.-rr«'
*%«* «**»* » * * * *-* * * * » ** * 4 « 4 4 4 4 4 4 * 4 4 4 I
iirvniT
i 4 44 « « rc « r» * « * « r» v|
Tíminn 19
Rallakstur:
Heppnin var
meö Sainz
Spænski ökuþórínn Caríos Sainz sigr-
aði í Monte Carlo-rallinu, sem lauk í
gær. Sainz hafði heppnina með sér á
síðustu sérleiðinni, er helsti keppni-
nautur hans varð fyrir óhappi.
Það var Frakkinn Francois Delecour,
sem nú tekur í fyrsta sinn þátt í heims-
meistarakeppninni, sem veitt Sainz
harða keppni. Hann tók forystuna síð-
ustu nótt keppninnar og var kominn
með 41 sekúndu forskot, þegar lagt var á
síðustu sérleiðina. Þá varð Frakkinn fyrír
óhappi. Ford Sierra-bíll hans stoppaði og
það tók hann 6 mín. að koma honum í
gang á ný. Delecour náði þó þriðja sæt-
inu í keppninni á eftir ítalanum Massimo
Biasion, sem ekur Lancia-bíl, en hann
vann í keppninni 1989. Sigur Sainz, sem
ekur Toyota Celica, batt endi á 5 ára sig-
urgöngu Lancia-bíla í keppninni.
Sainz leiðir nú heimsmeistarakeppni
ökumanna f ralli. Hann hefur 20 stig, Bi-
asion hefur 15 og Delecour 12 stig. f
keppni bílaframleiðenda hefur Toyota 20
stig, Lancia 17 stig og Ford 14 stig.
BL
HM á skíðum:
Annað gull
Eberharters
Austurríkismaöurinn Stefan Eberhart-
er varð í gær fyrstur manna til þess að
næla sér í tvenn gullverðlaun á heims-
meistarakeppninni í alpagreinum skíða-
iþrótta í Saalbach í Austurríki. Eber-
harter sigraði þá í alpatvíkeppni, en
keppnin samanstendur af bruni og svigi.
Eberharter náði bestum tíma í sviginu í
gær, eftir að halti keppinautur hans,
Marc Girardelli frá Lúxemborg, féll rétt
áður en hann kom í mark. Eberharter
varð 9. í brunhlutanum á mánudag, en
þá kom fyrstur í mark ítalinn Kristian
Ghedina. Ghedina náði í gær sínum
besta árangri í svigi á ferli sínum og
krækti í silfurverðlaunin. Bronsið féll í
skaut Austurríkismannsins Guenter Ma-
der. BL
Handknattleikur:
Sigurgangan stöðvuð
Það var fyrst og fremst öruggur vam-
arleikur Valsmanna sem gerði það að
verkum að Víkingar töpuðu sínum
fyrsta Ieik á þessu keppnistímabili
eftir 18 sigurleiki í röð. Sigur Vals-
manna var stór, 23 mörk gegn 18, og
var hann of stór miðað við gang leiks-
ins.
Drengirnir hans Friðriks komu
ákveðnir til leiks og eftir fáeinar mín-
útur var staðan 4-2, þeim í vil. Víking-
ar tóku sig hins vegar á og breyttu
stöðunni í 4-6 og hélst forskot þeirra
út fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik
var 9-10, Víkingum í vil. Víkingar byrj-
uðu svo með látum og skoruðu þrjú
fyrstu mörkin í síðari hálfleik og kom-
ust fjórum mörkum yfir. Valsmenn
náðu smám saman að saxa á forskotið
og jöfnuðu fljótlega og náðu síðan yf-
irhöndinni. Víkingar gáfust ekki upp
og náðu að komast yfir en þegar um
sex mínútur voru eftir af leiknum
ákvað vörn Valsmanna að nú væri
komið nóg og eftir það skoruðu Vík-
ingar ekki mark. Valsmenn skoruðu 6
síðustu mörkin í leiknum, breyttu
stöðunni úr 17-18 í 23-18 og þannig
lauk leiknum.
Leikurinn var æsispennandi allan
tímann. Leikur liðanna var köflóttur
enda voru sveiflumar í leiknum mikl-
ar. Víkingarnir voru án tveggja sterkra
manna, Sovétmaðurinn Trufan og
Karl Þráinsson voru meiddir, og mun-
ar um minna. Valsmenn áttu einnig
við meiðsli að stríða og eins hrjáði
flensa suma leikmenn. Enginn leik-
maður átti stjömuleik en bestir í liði
Víkinga voru Guðmundur Guðmunds-
son, Dagur Jónasson og Birgir Sig-
urðsson. Bestur Valsmanna var Jakob
Sigurðsson og einnig stóð Dagur Sig-
urðsson sig vel. Vörnin hjá Valsmönn-
um lék frábærlega síðustu mínúturn-
ar og lagði grunninn að sigrinum.
Dómarar leiksins voru Sigurgeir
Sveinsson og Gunnar Viðarsson og
höfðu þeir ekki nægilega góð tök á
leiknum.
Mörk Vals: Jakob 7, Júlíus 5/1, Valdi-
mar 4, Dagur 3, Jón 3, Brynjar 1.
Mörk Víkings: Dagur 6, Guðmundur
5, Birgir 4, Ámi 1/1, Bjarki 1, Björgvin
1.
—SE
Úrslit í leikjunum í gærkvöld:
Valur-Víkingur 23-18
KA-KR 26-23
Fram-Haukar 22-23
FH-Grótta 21-26
Selfoss-ÍR 19-31
Stjarnan-ÍBV frestað
Körfuknattleikur-Urvalsdeild:
Booker í banastuði
- skoraði
ÍR-ingar unnu sinn fjórða leik í
riið og fjórða úrvalsdeildardeildar-
leik á keppnistímabilinu í gær-
kvöld er þeir tóku á móti Vals-
mönnum í Seljaskóla. Sigur ÍR,
93-83, var frekar öruggur, staðan
í leikhléi var 51-43.
Það vafðist nokkuð fyrir Vals-
mönnum að gæta Franc Bookers í
leiknum, David Grissom réð ekk-
ert við Booker í fyrri hálfleik, en þá
skoraði Booker 40 stig, þar af 11
þriggja stiga körfur. í síðari hálf-
leik rann þriggja stiga sóttin nokk-
uð af Booker, en það kom ekki að
sök. AJls skoraði Booker 59 stig í
leiknum, en auk þess átti hann 10
40 stig í fyrri hálfleik og
stoðsendingar, stal 12 boltum og
hirti 5 fráköst. Þá var vamarleikur
hans góður. Nýtingin í skotum
Bookers var af tveggja stiga færi
var 50% og 48% úr þriggja stiga
skotum. Þá var vítanýting hans
100% eða 7/7. Óhætt er að segja að
Booker sé hvalreki á fjörur IR og
frábær afmælisgjöf á 40 ára afmæli
körfuknattleiksdeildarinnar.
Björn Steffensen átti mjög góðan
leik í vörn ÍR, hélt David Grissom
algjörlega niðri. Grissom skoraði
aðeins 18 stig og var með slaka
nýtingu eða 30%. Eggert Garðars-
son lék vel og hirti 7 fráköst. Varn-
arleikurinn var sterkur hjá ÍR og
59 stig alls
þar voru allir mjög virkir. Hjá Val
var Magnús Matthíasson hættuleg-
ur undir körfunni og Ragnar Jóns-
son og Guðni Hafsteinsson voru
drjúgir. Ari Gunnarsson stóð sig
vel þær mínútur sem hann lék.
ÍR hefur nú jafnmörg stig og
Snæfell á botni A-riðlis, eða 8, en í
B-riðli hefur Þór 10 stig og Valur
12 stig. Spennandi botnbarátta er
því framundan.
Stigin ÍR Franc Booker 59, Karl 8,
Björn S. 6, Halldór 6, Hilmar 6,
Ragnar 6 og Gunnar 2. Valur.
Magnús 28, Grissom 18, Ari 12,
Guðni 10, Ragnar 9 og Símon 2.
BL
NBA-deildin:
NY-sigur í
framlengingu
Framlengingu þurfti til að knýja
fram sigur í leik Los Angeles Clip-
pers og New York Knicks í NBA-
deildinni í körfuknattleik vestan-
hafs í fyrrinótt. Að lokum fór New
York-Iiðið með nauman sigur af
hólmi 108-107.
Úrslitin í fyrrinótt urðu sem hér
segir:
Washington Bullets-Miami Heat 105 -101
Orlando Magic-Phoenix Suns 114-112
Cleveiand Cavaliers-Charlotte 125 -106
Milwaukee Bucks-Denver Nugg. 122-126
Houston Rockets-SA Spurs 91- 89
Dallas Mavericks-Seattle Sup. 117-112
Utah Jazz-Atlanta Hawks 116-105
LA Lakers-NJ Nets 110- 89
LA Clippers-NY Knicks frl. 107 -108
í kvöld:
Þrír leikir í
úrvalsdeildinni
í kvöld eru þrír leikir á dagskrá úr-
valsdeildarinnar í körfuknattleik.
í íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði mætast Haukar og Kefl-
víkingar kl. 20.00.
Á sama tíma leika Tindastólsmenn
og Grindvíkingar á Sauðárkróki, en
sá leikur er að öllum líkindum úr-
slitaleikur um annað sætið í B- riðli
og sæti í úrslitakeppninni.
Loks mætast Snæfell og Þór í
Stykkishólmi, einnig kl. 20, en sam-
kvæt mótabók átti leikurinn að vera
á Akureyri annað kvöld. Liðin víxl-
uðu heimaleikjum sínum vegna
þess að íþróttahúsið í Stykkishólmi
var ekki tilbúið 1. nóvember.
Finnur Ingólfsson
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 3.
febrúar I Danshöllinni (Þórskaffi) kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karta.
Finnur Ingólfsson formaður fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna i Reykjavik flytur stutt ávarp
I kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Keflvíkingar-
Suðumesjamenn
Opinn fundur um sjávarútvegsmál að Hafnargötu
62, fimmtudaginn 31. janúar kl. 20,30.
Framsögueríndl flytur Halldór Asgrímsson
sjávarútvegsráöhenra.
Allir velkomnir.
Stjóm Fulltrúaráðsins.
Halldór
Ásgrímsson
Borgnesingar-
Bæjarmálefni
I vetur verður opið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu
Framsóknarflokksins að Brákarbraut 1.
Bæjarfulltrúar flokksins f Borgarnesi verða á staðnum og heitt á könn-
unni. Allir sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á málefni Borgames-
bæjar eru velkomnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
Þorrablót -
Akranes og nærsveitir
Framsóknarfélögin á Akranesi halda Þorrablót f Kiwanishúsinu
föstudaginn 8. febrúar kl. 20.
Forsala aðgöngumiða er I Framsóknarhúsinu mánudaginn 4. febrúar
kl. 20,30 tilkl. 22. Sími 12050.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Framsóknatfélögln á Akranesl.
Framsóknarfólk
Húsavík
Framvegis verður skrifstofan f Garðari opin á laugardagsmorgnum kl. 11-
12. Létt spjall og heitt á könnunni.
Framsóknarfélag Húsavíkur
SUF-arar athugið!
Hittumst öll að Hafnarstræti 20, 3. hæð, kl. 20,30 föstudaginn 1. febrúar.
Þaöan förum viö á veitingahús f nágrenninu og ræðum undirbúning
kosninganna.
Framkvæmdastjóm SUF
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna i Kópavogi er opin á mánudags- og mið-
vikudagsmorgnum kl. 9-12. Simi 41590.
Stjóm fulltrúaráðs
Félagsvist
Spiluð verðurfélagsvist að Eyravegi 15, Selfossi, 5. febrúar kl. 20.30.
Kvöldverðlaun. - Heildarverðlaun. Fjölmennum
Framsóknarfélag Selfoss
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Siminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að llta inn.
K.S.F.S.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222.
K.F.R.
Reykjanes —
Launþegaráð
Aðalfundur launþegaráðs KFR verður haldinn mánudaginn 4. febrúar kl.
20.30 i Félagsheimili framsóknarmanna að Hverfisgötu 25, Hafnarfirði.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
Reykvíkingar
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi verður til viötals
4. febrúar nk. á skrifstofu Framsóknarflokksins að
Hafnarstræti 20, kl. 15:00 til 18:00.
Allir velkomnir.
Borgarmálaráð.
Sigrún M.
Keflavík - Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opiö alla virka daga
millikl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg, verður á staðnum.
Simi 92-11070.
Framsóknarfélögin.
Kópavogur
Opið hús að Hamraborg 5 alla iaugardaga kl. 10-12. Heitt á könnunni.
Fulltrúaráðið
Norðurland vestra
Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaös framsóknarmanna, hefur verið fluft frá
Sauðárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum i Fljótum. Hægt er að ná I ritstjóra
alla daga (sima 96-71060 og 96-71054.
K.F.N.V.
Þorrablót - Reykjavík
Laugardaginn 9. febrúar verður hið landskunna þorrablót Framsóknarfé-
laganna i Reykjavik haldiö ( Norðurljósasal f Þorskaffl.
Verð miða er kr. 3500.
Upplýsingar og miðapantanir fást hjá Þórunni eða Önnu ( slma 624480.
MUNIÐ
að skila tilkynningum í flokks-starfið
tímanlega - þ.e. fýrir kl. 4 daginn fyrir
útkomudag.